Dagur - 11.06.1998, Blaðsíða 4
4 -FIMM'TVDAGVR 11. JUNÍ x'9^8
FRÉTTIR
Fallið frá hljóðmön
Á bæjarstjómarfundi 18. maí sl. var kynnt afstaða íbúa við Bylgju-
byggð 1-11 og Bylgjubyggð 4 gagnvart grenndarkynningu vegna fyr-
irhugaðra framkvæmda í „Suðurhöfninni", þ.e. svæðinu sem af-
markast að austan af Olafsfjarðarvegi eystri, að norðan af Bylgju-
byggð, að vestan af fjölbýlishúsinu Bylgjubyggð 1-11 og að sunnan af
Ólafsfjarðar\'atni. íbúar eru tilbúnir að samþykkja framkvæmdir ef
fallið verður frá hljóðmön austan Ijölbýlishússins og ef húsfélagið
óski síðar eftir hljóðmön verði hún gerð. Bæjarstjórn féllst á þessar
kröfur. Jafnframt var bæjarstjóra falið að gera tillögu að samningi við
hótelið um afnot af svæðinu.
Fáheyrö vinnuhrögð
stiórnarmaims Homhrekku
Hálfdán Kristjánsson bæjarstjóri
óskaði eftir bókun á fundi stjórnar
dvalarheimilisins Hornbrekku ný-
verið. Þar segir m.a.: „Á síðasta
fundi stjórnar upplýsti Kristjana
Sveinsdóttir að hún hefði ljósritað
vinnuplagg um hugsanleg starfs-
lok forstöðumanns og dreift því á
kaffistofur f bæjarfélaginu. Þetta
gerði hún vegna þess að hún var
ósátt við við vinnubrögð fulltrúa
stjórnarinnar varðandi nýjan þjón-
ustusamning við heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytið. Þessi vinnu-
brögð að dreifa vinnuplaggi með
þessum hætti í stað þess að taka
málið upp við stjórn er fáheyrður,
ef ekki einsdæmi. Eg hlýt að for-
dæma þessi vinnubrögð og krefj-
ast þess að starfsmaðurinn láti af
svona lágkúrulegu hátterni og
hugsi fyrst og fremst um hag
stofnunarinnar sem hún er í stjórn hjá og ber ábyrgð á til jafns við
aðra stjórnarmenn. Vandi stofnunarinnar er nægur fyrir svo ekki
bætist þessi þáttur við.“
Bághorin fjárhags-
staða
Bæjarstjórn Olafsfjarðar sam-
þykkti ársreikninga bæjarsjóðs og
stofnana 1997 á síðasta fundi
bæjarstjórnar 20. maí sl. Guð-
björn Arngrímsson, bæjarfulltrúi
vinstra manna og óháðra lagði
fram bókun þar sem segir m.a.:
„Vinstri menn og óháðir sam-
þykkja reikningana en vilja leggja
áherslu á að það er ljóst að fjár-
hagsstaða bæjarins er enn mjög
slæm. Vinstri menn og óháðir
firra sig ekki ábyrgð á stöðu bæjar-
Guðbjörn Arngrímsson bæjarfulltrúi. sjóðs en minna á aðvaranir þeirra
----------------- við gerð fjárhagsáætlana undan-
farin ár um vannýtingu tekju-
stofnanna, þriggja ára áætlun og aðhald í framkvæmdum og síðast en
ekki síst skuldbindingar á næstu árum. Vinstri menn og óháðir munu
hér eftir sem hingað til leggja sitt af mörkum til þess að vinna bæjar-
félagið út úr þeim vanda sem það er komið í.“
Ekkert nema skemmtanir
Menningarmálanefnd Olafsfjarðar hefur átalið bæjarstjórn og segir
að hún taki Iítið eða ekkert tillit til tillagna sem komi frá nefndinni
um annað en skemmtanir og því sé eðlilegt að líta svo á að störfin að
stærstum hluta séu léttvæg fundin og tillögur vart svaraverðar. Er þar
sérstaklega minnt á bókanir um Landssmiðjuna og muni úr verk-
stæði Sigga skó. GG
Gædingamót Þráins
uerður haldið að Suarðasundi á Greniuík laugardaginn 20. júní og hefst kl. 10.l
Keppt uerður í fl og B flokki í öllum flokkum.
Hánari upplýsingar og skráning
hjá Suani í síma 4G2 7740.
Skráningu lýkur mánudaginn 15. júní.
/ vikunni unnu iðnaðarmenn hörðum höndum við að klára nýjasta hótel landsins, á Skútustöðum í MývatnssveiL
Sævar Sigurðsson hótelstjóri er á innfelldu myndinni. bþ
Nýtt hótel að
opna við Mývatn
Nýtt hótel, Lykilhótel í eigu Jóns
Ragnarssonar, er að taka á sig
endanlega mynd í Mývatnssveit
þar sem áður var Skútustaða-
skóli. Hótelið verður opnað 17.
júní nk. og bjóðast gestum 37
herbergi, öll með sjónvarpi,
snyrtingu og sturtu. Sú nýjung
verður fyrir hendi að sex her-
bergjanna eru með svefnlofti fyr-
ir börn og minna því á sumarbú-
staði að sögn Sævars Sigurðsson-
ar, sem ráðinn hefur verið hótel-
stjóri.
„Við byggðum Ioft yfir ganginn
á milli herbergjanna og bjuggum
til svona fjölskylduvistarverur.
Þetta hefur ekki verið gert áður
að mínu viti í hótelbransanum
hér,“ segir Sævar. Mikið tillit hef-
ur verið tekið til útsýnis við
hönnun hótelsins og má nefna
að veitingasalurinn er einn sam-
felldur gluggi án þess að nokkrir
steinpóstar skyggi á útsýnið.
Sævar kemur frá Akureyri og
er lærður þjónn og leiðsögumað-
ur. Hann hefur ekki stýrt hóteli
áður. „Þetta leggst rosalega vel í
mig og ég þurfti ekki að hugsa
mig lengi um þegar mér var boð-
in þessi staða,“ segir Sævar. Að
því er stefnt að hótelið starfi sem
heilsárshótel og hafa verið ráðnir
20 starfsmenn í sumar, bróður-
parturinn heimamenn.
Jón Ragnarsson segir að 30
byggingamenn vinni nú hörðum
höndum við að klára verkið fyrir
þjóðhátíðardaginn og er hann
þjartsýnn á að það takist, þótt
naumt verði. „Eg nýti allt gamla
húsnæðið og byggi þar að auki
við,“ segir Jón. Spurður um kæru
sem kom fram vegna skipulags-
mála segir Jón að hún snúi ekki
að sér persónulega og hann telji
að hún muni ekki hafa nein
áhrif. „Eg hef átt ágætis viðskipti
við hreppinn en hef að öðru leyti
haldið mér utan við þessa um-
ræðu,“ segir Jón. BÞ
„Við höfum stórbætt
iunferðarástandið“
Átak lögreglu á Akiir
eyri skilar sér í því að
það sem áður þótti
hallærislegt er tíðkað
nú. Á rúntmum eru
beltin spennt.
Löngum hefur sá siður verið
tíðkaður að ungmenni á Akureyri
hafi ekið „rúntinn“ í hjarta bæj-
arsins á Ráðhústorginu og ná-
lægum götum. Sitt hefur hverj-
um sýnst um þessa iðju, en Lög-
reglan á Akureyri telur sig nú
hafa bætt umferðarmenninguna
á rúntinum með markvissu átaki
til aukinnar bílbeltanotkunar.
„Það má segja að með tilkomu
umferðaröryggisáætlunarinnar
sem stendur yfir til ársloka 2000
hafi aukin áhersla verið Iögð á
ákveðin atriði eins og notkun bíl-
belta, ölvunarakstur, ökuhraða
og unga ökumenn. Við höfum
stórbætt ástandið hér í þessum
bæ að undanförnu og sem lítið
dæmi þá nefni ég að fyrir rúmu
ári þótti það hallærislegt hjá öku-
mönnum á rúntinum að vera
með belti. Ökumenn sem voru
nýkomnir með réttindi voru
meira og minna beltislausir en í
dag heyrir til undantekninga ef
einhver sést beltislaus á rúntin-
um. Þá á ég líka við að ungling-
arnir eru farnir að nota bílbeltin
í aftursætunum," segir Magnús
Axelsson, varðstjóri hjá Iögregl-
unni á Akureyri.
Þótt Magnús sé ánægður með
framfarirnar tekur hann fram að
óþrjótandi verkefni séu framund-
an. Hann hafnar því að meiri
áhersla sé Iögð á það hjá lögreglu
nú að fylgjast með ökuhraða, en
var fyrir reglugerðarbreytinguna
sem verið hefur í fréttum og
lækkar leyfilegan hámarkshraða.
157 ökumenn á Akureyri hafa
verið teknir fyrir of hraðan akst-
ur frá því að reglugerðin tók
gildi, 14. maí sl. og hafa margir
landsmanna orðið að sjá á eftir
skírteinum sínum. BÞ