Dagur - 11.06.1998, Qupperneq 7

Dagur - 11.06.1998, Qupperneq 7
FIMMTVDAG VR 11. JÚNt 1398 - 7 X^wr ÞJÓÐMÁL Að breyta pen- ingiun í ljós „En þrátt fyrir innlenda þekkingu og erlendan áhuga hefur kvikmyndagerð þurft að búa við amalegt skilningsleysi. Svipað og þegar fyrstu hugmyndir um fiskeldi og virkjun fallvatna komu fram, “ segir Einar þór m.a. í grein sinni. Myndin er úr kvikmyndinni Djöflaeyjunni, sem fékk feikna góðar viðtökur bæði hér heima og erlendis. Innlend og erlend kvikmynda- gerð og framleiðsla hennar er daglegt brauð Islendinga; heim- ildarmyndir, fræðslumyndir, leiknar myndir, sjónvarpsefni o.fl. Hún hefur mótandi áhrif á öllum sviðum, pólitísk, félagsleg, efnahagsleg og menningarleg. Hún er einn stærsti áhrifavaldur í nútíma heimsmenningu. Hún getur útfært flóknar hugmyndir tækni, vísinda, stjórnmála og sögu á einfaldan og aðgengileg- an hátt á öllum tungumálum fyr- ir alla aldurshópa. Hún segir sögur og fiytur menningu á milli þjóða, „hún breytir", einsog ein- hver sagði, „peningum í Ijós“. En íslensk kvikmyndagerð baslar, hún hefur ekki skilað nægum arði til að dafna. Ein- hverntíma hefur landbúnaður og refarækt verið í sömu sporum. Basl atvinnugreina kannast margir \ið, vinnsla og verkefni eru undirmönnuð, kaup er lágt, gæði tilviljunnarkennd, fyrirtæki lenda í greiðsluerfiðleikum, lánstraust dalar, hæfileikafólk hverfur til annara starfa, fyrir- tæki verða gjaldþrota, fé og reynsla glatast, og í kvikmynda- gerð er ódýrum og ókláruðum handritum stundum ýtt í vinnslu til þess að fá veltu. Samkeppnis- staða íslensks kvikmyndaiðnaðar er því slök út á við, en til að ná varanlegum árangri á alþjóða- vettvangi þarf mikinn tíma, mik- ið fé, mikinn áhuga og hæfileika margra einstaldinga. Ef eitthvað af þessu vantar eykst áhættan og framleiðslan verður í happa og glappa stíl. Staða kvikmyndagerðar Staða kvikmyndagerðar á Islandi í dag er sú að greinin er gott sem að líða undir lok. Það eru mörg rauð aðvörunarljós sem blikka. Greinin hefur verið á hægri nið- urleið allan þennann áratug, framleiðslu mynda fækkar, þær verða ódýrari og ódýrari og erfið- ara að selja, erlendum fjárfest- um fækkar og framlög þeirra lækka að raungildi. Þær myndir sem verða gerðar á næstu árum verða fjármagnaðar og unnar á svipaðan hátt og gert var fyrir 20 árum og er í dag ekki hægt að kalla professional kvikmyndaiðn- að. Það er aðeins þjálfun og þekkingu (mannauður) sem hef- ur fleygt fram en hún er góð miðað við nágrannaþjóðir. í flestum iðnrfkjum er kvikmynda- iðnaður stóriðnaður sem veltir milljörðum. I honum er meiri- hluti starfsfólks iðnaðarmenn eða sérþjálfað og lært fólk f stjórnun, framkvæmd o.fl. Að- eins hluti kvikmyndagerðar- manna eru strangt tekið ‘Iista- menn’ og bransinn ákaflega lítið gefinn íyrir glamor. En þrátt fyr- ir innlenda þekkingu og erlend- an áhuga hefur kvikmyndagerð þurft að búa við amalegt skiln- ingsleysi. Svipað og þegar fyrstu hugmyndir um fiskeldi og virkj- un fallvatna komu fram. Þetta er hægt að laga með hlutfallslega litlu íjármagni, því kvikmynda- gerð ólíkt öllum öðrum listgrein- um, getur verið mjög arðbær at- vinnugrein og má segja að íjár- festing í greininni í dag sé ein sú besta sem völ er á þegar til lengri tíma er litið. List Hlutverk listar og menningar er eilífðarumræðuefni. Listin er hluti sjálfstæðisins, menningar- arfinn ræktum við með því að hlúa að nýjum kynslóðum og þetta getum við varla verðlagt, þetta verður að styrkja. En vandamálin eru t\'ö. 1. Reglur um styrki úr einka- geiranum eru ekki nægjanlega hvetjandi, almennt styrkjakerfi lista á íslandi hefur Iítið verið endurskoðað og vinnubrögð orð- in gamaldags. Opinberir sjóðir (m.a. kvikmyndasjóður) eru farn- ir að dragast aftur úr sambæri- legum sjóðum erlendis. Þessi vandi er sumpart sameiginlegur vandi allra listgreina á Islandi, hversu mikið vil ég ekki fullyrða en þá kunna sóknarfæri einhliða gróðasjónarmiða að aukast, sér- staklega erlendis frá. 2. Margir opinberir Iistasjóðir eiga erfitt með að taka þátt í gagnrýninni umræðu um störf sín. Um þetta er oft deilt þegar styrkveitingar fara fram einsog lesendur dagblaða hafa ugglaust orðið varir við. Það má vera ómaklegt að gagnrýna sjóði sem búa við fjárskort og setja alla undir sama hatt en það eru líka vinnubrögðin sem valda óþoli. Menningarsjóður t.d. svarar vart gagnrýni og heldur áfram í mörg- um tilfellum að veita fé mönnum sem hafa ekki þekkingu, reynslu né menntun á sviði sjónvarps- og kvikmyndagerðar og ekki burði til að fleyta þessari atvinnugrein áfram inn í nýja öld. Það verður að stöðva svo kvikmyndagerð hafi traust út á við. Málefnaleg umræða er algjör forsenda fyrir breytingum og að lista- og menn- ingarstarfsemi geti sýnt fram á góð vinnubrögð, viðskiptalega hagsmuni og laðað að fé. Hug- myndafræðileg umræða kemur sér líka vel fyrir samstarf við er- lenda aðila til að skilja menning- arlegar forsendur þeirra. Ahætta Að vfsu er það svo varðandi kvik- myndasjóð, sem er févana lista- sjóður, að menn hafa oftast verið sammála um að styrkþegar séu vel að styrknum komnir. Þar er alltaf gott úrval verkefna og mörg þeirra með vilyrði um fjár- magn erlendis frá. Það eitt gerir kvikmyndgerð að heppilegri fjár- festingu, en vissulega er áhætta í greininni einsog annars staðar. Ahætta í fiskveiðum t.d. er tak- mörkuð vissa okkar um uppá- tæki náttúrinnar og ástand fiski- stofna, sveiflukennt markaðs- verð og ástand fiskistofna sam- keppnisaðila. I kvikmyndagerð hefur stríðni náttúrunnar minni áhrif og viðskiptasamböndum er auðveldlega hægt að koma á í dag því markaðurinn er gríðar- lega stór og eftirspurn eykst ár frá ári. Áhætta kvikmyndagerðar felst e.t.v. í þeim ágæta frasa; ‘að hika er að tapa’. En tækifæri í ís- lenskri kvikmyndagerð eru áreið- anlegri heldur en ástand fiski- stofna. Munurinn liggur í því að kvikmyndagerð nýtur ekki sömu pólitískra skilyrða og sjávarút- vegurinn. Iðnaður og tækifæri Samkvæmt mati stjórnmála- manna hefur kvikmyndasjóður- inn e.t.v. nóg af peningum til að sinna menningarhlutverki sínu, en til að byggja upp iðnað þarf meira til. Það er sjálfgefið að kvikmyndir á íslensku sem þjóna menningarlegu hlutv'erki verði styrktar að hluta. Tillaga Ágústs Einarssonar á Alþingi fyrir sköm- mu sem gékk útá að hleypa nýju blóði í kvikmyndagerð eru góðar fréttir frá stjórnmálaarminum. En í tillögunum er miðað við ís- lenska kvikmyndagerð sem list- grein og framlög og hvetjandi styrkjakerfi sem um er rætt duga ekki til að byggja upp iðnað. Það þarf nýsköpun. Svo sem í opin- berri stjórnun, í vinnslu hand- rita, markaðsetningu og fjár- mögnun. Greinin þarf styrk eða áhættufé til að vinna þróunar- starf, t.d. hagkvæmniskannanir og forathuganir á erlendum mörkuðum, kynningarstarf og „vöru“- þróun í framhaldi af því og þjálfun á sviði laga og reglu- gerða, dreifingar og sölu. Til að láta þessi hjól snúast þarf einsog áður segir hlutfallslega lftið fjár- magn vegna þess að veltan er mikil ef rétt er staðið að málum. Til þess þarf þrennt að gerast. 1. Aukið framlag frá ríkinu, svipað framlag og leiklistin fær frá ríki og borg er strax mjög góð byrjun í fáein ár. Það eitt myndi duga til að margfalda erlent fjár- magn í íslenskri kvikmyndagerð og skila tekjum í ríkissjóð, ólíkt leiklistinni. 2. Hvetjandi styrkjakerfi fýrir einkaaðila og aukinn skilning og þekkingu fyrirtækja og stofnana á eðli og tækifærum kvikmynda- iðnaðar, sem er forsenda þess að þau geti ‘verið með’. 3. Endurnýjað kerfi, þ.e. kerfi sem á að íjármagna. Þar má Iæra af þeim þjóðum sem lengst eru komnar en verður ekki farið nán- ar út í hér. Það sem eðlilegast væri þó í því sambandi er kerfi sem sinnir þróunarstarfi fyrstu árin og sem hvetur til samein- ingar smærri kvikmyndafyrir- tækja, langtíma áætlana, útboða og markaðssókna. Þannig kerfi væri auðvelt að koma á. „íslenskar“ myndir Smæð Islands og h'til útbreiðsla íslenskunnar veldur líka því að iðnaðurinn hefur sínar takmark- anir ef myndir verða aðeins gerð- ar á íslensku. Að veita áhættulán til framleiðslu „íslenskra" kvik- mynda á annarri tungu, jafnvel á erlendri grund getur v'erið meiri- háttar vaxtarbroddur. I fyrsta lagi er sú þróun þegar hafin en óvist hvenær hún ber ávöxt. Því sterkari og móttæki- legri sem við erum til að taka þátt í því, því meiri áhrif höfum við. Til dæmis að myndir séu teknar á Islandi. Hlutverk opin- bers aðila er mikilvægt til að hafa umsjón með framgangi hugmyndarinnar, að hér sé skýr lína á milli íslenskrar og erlendr- ar framleiðslu sem lúta ólikum Iögmálum. Þátttaka opinbers áhættuQár er líka nauðsynleg, allavega á undirbúningsstigi, vegna þess að einkafé leitar eftir hámarks arði og reynir að taka sem minnsta áhættu. Það getur haft slæm áhrif á gæðin. I öðru lagi er íslenskt áhættu- lán í erlendum myndum hag- kv'æmasta leiðin til að auka sam- bönd, samskipti og samvinnu ís- lenskra kvikmyndagerðamanna við erlenda kollega sína. Það væri búbót fyrir myndir á ís- Iensku. I þriðja lagi er töluverð eftir- spurn eftir kvikmyndum á al- þjóðamarkaði. Sá markaður sem kallaður er ‘non-commercial English speaking market’ t.d., eða „non-HoIIyvvood“ myndir á ensku, er stór og fer stækkandi. Ef um hagnað íslenskra fyrir- tækja sem útí þetta fara er að ræða, geta þau lagt útí áhættu við gerð mynda á íslensku. I fjórða lagi hleypir þetta lífi í innlendan kvikmyndaiðnað með margföldunaráhrifum á aðrar at- vinnugreinar. I fimmta lagi getur þetta stöðvað landflótta íslenskra kvik- myndagerðarmanna og laðað að hæfileika fólk sem nú leggur ekki útí annars gefandi kvik- myndagerð.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.