Dagur - 11.06.1998, Síða 11
FIMMTUDAGU R 11. J Q N í ^99,8^ 11
r^tr
ERLENDAR FRÉTTIR
Nígería er stórt og ríkt land og olíuauðurinn átti að skapa þar blómlegt og framsækið mannlíf. Nú þarfsamt að
flytja ínn bæði mat og eldsneyti.
Bisi á brauðfótum
Mikíl óvissa er imi
framtíð Nígeríu eftir
lát Abachas hershöfð-
ingja.
Þótt Nígería sé bæði stærra og
fjölmennara en önnur Afríkuríki
þá er hún eins og risi á brauðfót-
um, efnahagslífið lamað af spill-
ingu og almenningur niðurbrot-
inn undir járnhæl herstjórnarinn-
ar.
Þegar forseti landsins, herfor-
inginn Sani Abacha, lést á mánu-
daginn hafði efnahagslegt og
stjórnmálalegt ástand í landinu
farið hríðversnandi um nokkurt
skeið. En Iát Abachas vekur enn á
ný upp gamla spurningu, sem
bæði Nígeríubúar og nágranna-
ríkin hafa hvað eftir annað spurt
sig: Hvers vegna hefur þetta
þungavigtarland álfunnar, sem er
ríkara en nágrannaríkin hvort sem
litið er til lands, auðæfa eða
mannafla, hvað eftir annað valdið
bæði sjálfu sér og nágrönnunum
þvílíkum vonbrigðum sem raun
hefur verið á? Og hver yrðu áhrif-
in út á við ef sá stöðugleiki, sem
herinn hefur þó haldið uppi, yrði
fyrir bí og Nígería Iogi í óeirðum?
Björt framtíð að baki
Nærri öld er liðin frá því Evrópu-
búar bjuggu Nígeríu til með því
að hrúga saman í eitt ríki fjöl-
mörgum afrískum borgríkjum,
konungsríkjum og þjóðflokkum
sem enn í dag hanga frekar illa
saman.
Þegar Nígería hlaut svo sjálf-
stæði árið 1960 virtist allt stefna í
það að hún yrði valdamesta og
framsæknasta ríki Vestur-Afríku,
en það fór á aðra leið. Blóðugasta
stríð sem háð hefur verið í þess-
um heimshluta átti sér stað í
Nígeríu á árunum 1966-70, en
það var Bíafrastríðið. Árið 1960
fóru Nígeríubúar létt með að
brauðfæða sig og olían lofaði
ómældum auðæfum um Ianga
framtíð. Nú er hins vegar svo
komið að Iandsmenn þurfa að fly-
tja inn bæði matvæli og bensín.
Sex sinnum hefur verið framið
valdarán í þessu ríki, þar sem
borgaralegar hefðir voru komnar
Iengra á veg en víðast hvar í Afr-
íku og fleiri Iandsmenn læsir en í
nokkru nágrannaríkinu. Einungis
tvisvar hafa stjórnarskipti orðið
með almennum kosningum.
Menningarlíf stóð í miklum
blóma, enda hefur Nígería alið af
sér bráðsnjalla rithöfunda á borð
við Chinu Achebe og Nóbelsverð-
launahafann Wole Soyinka - en
nú eru þeir flestir í útlegð, og
einn af fremstu rithöfundum
landsins, Ken Saro-Wiwa, var tek-
inn af lífi eftir að hafa látið í ljósi
andstöðu við herstjórnina.
Hugmyndin um Nígeriu
lirimiu
„Árið 1960 vorum við mjög stolt
af því að vera Nígeríubúar, við
töldum okkur gegna leiðtogahlut-
verki í Afríku," sagði stjórnmála-
fræðingur sem vildi ekki að nafn
sitt kæmi fram. „En sú Nígería
varð ræningjum að bráð. Við höf-
um ekki notið afrakstursins af því
sem þetta ríki gat orðið. í augum
flestra Nfgerfubúa er hugmyndin
um Nígeríu orðin að engu, hún
hefur mistekist."
Engu að síður eru Nígeríubúar
sjötti hlutinn af öllum íbúum Afr-
íku, og þar að auki sjötta stærsta
olíuútflutningsríki heims, þannig
að þeir hafa ekki endilega gefið
upp alla von ennþá. „Nígería ætti
að vera mikil þjóð sem allir líta til
með virðingu," sagði James Anya,
leigubílstjóri í Lagos.
Tóku upp sama kerfið eftir
Bretum
Bresku nýlenduherrarnir drógu
stöðugt úr allri lýðræðisviðleitni
sem hefði getað dreift auðlindum
Iandsins jafnar milli landshluta og
íbúa. Það var einkum í suðurhluta
Iandsins sem viðskipti og sam-
göngukerfi náðu að þróast, og
menntun sömuleiðis. En þegar
Bretarnir fóru voru völdin skilin
eftir í höndum norðanmanna.
„Við getum ekki kennt nýlendu-
stefnunni um allt,“ sagði Olug-
bemi, prófessor í stjórnmálafræði.
„Nígeríubúar tóku einfaldlega
upp sama kerfið." Herinn hefur
farið með völd f Nígeríu í 28 af
þeim 38 árum sem landið hefur
verið sjálfstætt. Norðanmenn
hafa haidið fast um valda-
taumana, aðallega með því að
norðlenskir herforingjar hafa set-
ið f valdastöðunum, þar á meðal
Abacha og arftaki hans,
Abdulsalam Abubakar hershöfð-
ingi. Þetta hefur staðið í veginum
fyrir því að lýðræði hafi náð að
þróast.
- The Washington Post
430 manns látist í bardögum
SRI LANKA - Meira en 430 manns hafa látið lífið í árásum ríkis-
stjórnar Sri Lanka á skæruliðahreyfingu Tamíla frá því í síðustu viku.
Ríkisstjórnin skýrði sjálf frá þessu, en algert íjölmiðlabann var sett á
síðastliðinn föstudag.
ÓróleiM á ný í Indónesíu
INDÓNESÍA - Indónesar risu enn á ný upp gegn stjórnvöldum og
mótmæltu m.a. verðhækkunum á matvælum. Fjölmennar mótmæla-
aðgerðir voru í gær og mikill óróleiki í landsmönnum, m.a. var kveikt
í bílum og verslanir rændar víða um Indónesíu.
Þnsundir heimta hjálp frá NATO
JÚGÓSLAVIA - Þúsundir Kosovo-Albana kröfðust þess í höfuðborg
héraðsins í gær að NATO sendi herlið til þess að hindra frekara of-
beldi af hálfu Serba. Meðal NATO-ríkja vilja Bandaríkin og Bretar að
gripið verði til harðra aðgerða, en Frakkar vilja fara hægt í sakirnar.
I3íða NATO-ríkin nú þess að ákvörðun verði tekin í Öryggisráði Sam-
einuðu þjóðanna.
Landamærastríð Eþíópíu og Erítreu
heldur áfram
Til harðra bardaga kom enn í gær milli Eþíópíumanna og Erítrea, og
dvínuðu þar með vonir manna um að skjótt finnist lausn á
Iandamæradeilu þeirra.
VerkfáU leyst á síðustu stundu
FRAKKLAND - Flugvélar Air France gátu hafið flug skömmu áður
en fyrsti Ieikur heimsmeistarkeppninnar í fótbolta hófst í Frakklandi
í gær, en þá höfðu flugmenn flugfélagsins lýst því yfir að verkfallinu
væri Iokið. Málamiðlun náðist þar sem laun verða fryst í sjö ár, og
ekki komi til launalækkunar nema með einstaklingsbundnu sam-
þykki.
Fyrsta skrefíð í átt að sjálfbæmi
DÁNMÖRK - Anfinn Kallsberg, lögmaður Færeyja, sagði samning-
inn \ið Dani um milljarðagreiðslur vegna bankahneykslisins vera
fyrsta skrefið i þá átt að gera Færeyjar sjálfbærar, en vildi ekki ganga
svo langt að segja hann fyrsta skrefið í átt að sjálfstæði. Samkvæmt
samningnum eiga þó að fara fram viðræður um stöðu Færeyja. I
samningnum felst m.a. að Danir gefi Færeyjum eftir 900 milljónir
danskra króna af alls 5,4 milljóna króna skuld, en restin af skuldinni
verði greidd á 20 árum með 5% vöxtum. Sigurð Poulsen Landsbanka-
stjóri í Færeyjum sagði samninginn vera betri en hann átti von á.
Mogens Lykketoft, fjármálaráðherra Danmerkur, sagði að með þess-
um samningi vísi danska stjórnin framvegis frá sér allri ábyrgð á
efnahagsmálum Færeyja.
Hróp gerð að nýjum hermönniun
ÞYSKALAND - Hávær mótmæli voru í gær í Berlín þegar nýir her-
menn sóru hermennskueið sinn við hátíðlega athöfn undir beru lofti,
en það er í annað sinn sem slfk athöfn er haldin eftir að þýsku ríkin
tvö sameinuðust. Um 1.000 mótmælendur hrópuðu m.a. „morðingj-
ar“ að hermönnunum. 16 manns voru handteknir.
ALLIR
5UZUKI BilAR
ERU MEÐ 2 0RYGGIS-
10FTPÚÐUM
SUZUKI BALENO WAGON GLX OG GLX 4X4
Góður í ferðalagið
Baleno Wagon er einstaklega
rúmgóður og þægilegur í
akstri, hagkvæmur í rekstri
og hefur allt að 1.377
lítra farangursrými.
Baleno Wagon gerir
ferðalagið enn ánægjulegra.
Baleno Wagon GLX 4X4:
< 1.595.000 kr.H
Baleno Wagon GLX:
1.445.000 kr.
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Gardabraut 2, simi 431 28 00. Akureyri: BSA hf.( Laufásgötu 9, simi 462 63 00.
Egilsstaðir: Bila- og búvélasalan hf., Miðási 19, simi 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson, Grænukinn 20, simi 555 15 50. fsafjörður: Bilagarður ehf.,
Grænagarði, simi 456 30 95. Keflavik: BG bilakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrismýri 5, sími 482 37 00.
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.