Dagur - 30.06.1998, Blaðsíða 1

Dagur - 30.06.1998, Blaðsíða 1
 Smábátasjómennska á Vest- Jjörðum tekurásig sérstæðar birtingarmyndir. Sjómenn taka með sérsjónvarp á sjó- inn og horfa á HM. Þama hafast einnig við smábáta- menn víða aflandinu, eins- konar sígaunar hafanna. Ohætt er að segja að HM-æðið sem nú lif- ir meðal fólks um víða veröld taki á sig ýmsar myndir. Það nýjasta og frumlegasta birtist þó tíðindamanni Dags vestur á Patreksfirði um helgina, en þar eru smá- bátasjómenn nú farnir að taka með sér lítil sjónvarpstæki í róður. Gjóa sjómenn svo á knattspyrnuna í sjónvarpinu, svona rétt um leið og þeir draga ýsur úr söltum mar. Ágæt skilyrði í firöinum „Eg er að prófa mig áfram með þetta, en þetta ætti alveg að geta gengið. Það eru ágæt skilyrði til þess að ná þessum sjón- varpssendingum hérna í firðinum, enda er ég aðeins að fara þetta tvær til þrjár mílur frá landi til að renna fyrir fisk,“ seg- ir Hafþór Jónsson, smábátasjómaður á Patreksfirði, sem rær við annan mann á Geljunni BA, sem er lítill tveggja tonna trébátur. Stærðin segir þó minnst til um afla- brögðin, enda hafa þau verið fantagóð að undanförnu, að sögn Hafþórs. Oft í kringum tvö tonn á dag. Hafþór eignaðist Gefjunni BA fyrir um þremur vikum og hefur síðan farið í sex róðra og hefur náð að fiska átta tonn á þeim. „En auðvitað er mikil vinna í kringum þetta og fiskurinn veiðist ekki af sjálfu sér. Við förum út klukkan fimm eða sex á morgnana og erum yfirleitt að til klukkan tíu á kvöldin. En það er gaman að þessu meðan á því stendur," segir Hafþór. Smábátasjómenn svo tugum skiptir En fjölmörg fleiri menningarfyrirbæri má einnig sjá við sjávarsíðuna fyrir vestan. Sígaunar hafsins eru þar áberandi yfir sumartímann, smábátasjómenn svo tugum sldpir víðsvegar af land- inu koma í sjávarplássin á Vestfjörð- um og gera þaðan út. Flestir þess- ara sjómanna gera úr frá Tálkna- firði, Bíldudal, Suðureyri og svo Patrekfirði og hafast þeir við í bát- um sínum, eiga þar samastað stór- an hluta sumars. „Þetta er nú ekki skemmtilegur Iífsmáti, en þetta mun sem betur fer ekki standa lengi yfir. Mánuð í mesta lagi, kannski ekki nema hálf- an mánuð ef vel gengur og á þeim tíma ættum við að geta fyllt kvót- ann okkar," sögðu frændurnir Fannberg Einar Stefánsson og Jó- hann Bragi Ægisson, sem róa á „Það vantar alveg landleguböllin," segja frændurnir Fannberg Stefánsson og Jóhann B. Ægisson, sem róa frá Patró á Sómabátnum Góu RE-20. myndir: -sbs. sómabátnum Góu RE-10. Þeir voru nýkomnir vestur - úr Reykjavík - þegar blaðamaður Dags ræddi við þá á föstudagskvöld, en þá hafði verið bræla í viku. Þetta er annað sumarið sem Fannberg gerir út fyrir vest- an. Þeir frændur fara nokkuð djúpt út til að draga fisk, allt að 30 til 40 mílur út á miðin. „Þar er stærsta fisk- inn að hafa, hann er mun smærri hér nær landinu og því förum við svona djúpt út.“ Landlegubölliii vantar „Nei, það vantar alveg landleguböllin. Menn þyrftu að gera eitthvað í því máli,“ segir Fannberg. Hann segir aðkomusjó- menn vestra hafa með sér félagsskap á ýmsa lund, þeir heimsæki hverja aðra um borð í bátana á kvöldin og ræði málin. Stundum blandi þeir sér líka meðal heimafólks. Og umræðuefnið? „Það er alltaf verið að rífast um þetta kvótakerfi,“ segir Fannberg. -SBS. „Ágæt skilyrði til þess að ná sjónvarpssendingum frá HM hér í firðin- um, “ segir Hafþór Jónsson, smábátasjómaður á Patreksfirði. Nýkominn úr róðri með sjónvarp i hendi. m m m g æ ð i á frábæru verði! UNIROYAL Sterk og vönduð jeppadekk fyrir íslenskar aðstæður Réttarhólsi 2, sfmi: 587 5588 Skipholti 35, sími: 553 1055 Þjónustuaðilax um land allt.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.