Dagur - 30.06.1998, Blaðsíða 11
PRIDJUDAGUR 30. JÚNÍ 1998 - 27
LÍFIÐ í LANDINU
MEINHORNIÐ
• Meinhyrning-
ur brá sér í As-
byrgi um helg-
ina. Mjög
stingur í stúf að
þar skuli vera
malbikaður veg-
ur alveg inn í
botn á meðan
aðalvegurinn
um héraðið er
ekki betri en
raun ber vitni.
Ber að vísu að
geta þess að
vinna var í
gangi við að
bæta aðalveginn
... en betur má
ef duga skal.
Auðvitað er gott
að vegurinn inn
Asbyrgi skuli
vera malbikaður
en þar aka allir
hvort eð er á
tuttugu til þrjá-
tíu km hraða á
klst. A aðalveg-
inum neyðist
maður hins veg-
ar til að aka á
sama hraða
vegna þess hve
hann er slæmur.
• Bera skal í
bakkafullan
lækinn: Skatt-
lagning á Is-
landi er óþol-
andi. Bensín-
verð með allri
þeirri skattlagn-
ingu sem þar er
innifalin ... er
glæpur. Glæpir
eru óþolandi.
Tekjuskattshlut-
fallið er líka
óþolandi.
R A P P I R
FÚLKSINS
„Hvernig Danir meðhöndluðu Vestfirðinginn Jón Sigurðsson er líklega einsdæmi. Sú saga er í
rauninni sérstakt ævintýri, sem vel má rifja upp nú, þegar frændur okkar Færeyingar ræða við
Dani um sín sjálfstæðismál."
Æviiitýrið um
Jón Sigurðsson
BRÉF FRÁ
HRAFNSEYRI
Hallgrímur
Sveinsson
skrifar
lesendabréfa:
460 6111
Símbréf: 460 6171/651 6270
Óskað ereftirað bréftil
bfaðsins sóu að jafnaði hálf til
ein vólrituð blaðslða, 1000-1200
tölvuslög. Dagur áskiiur sér rétt
til að stytta lengrí bréf.
Bréfum þarf að fylgja fullt nafn,
heimilísfang og slmanúmer.
Daglega dynja á okkur
fréttir um valdbeitingu
og ofbeldi í mannlegum
samskiptum víða um
heim. Og sjálfstæðis-
barátta margra þjóða er
enn í algleymingi. Hægt
er að ímynda sér hvem-
ig umhorfs væri í heim-
inum í dag, ef ýmsar
valdbeitingarþjóðir
hlustuðu á söguleg rök,
líkt og Danir gerðu er
Jón forseti varðaði veg-
inn í sjálfstæðisbaráttu Islendinga á öld-
inni sem leið og notaði pennann sem
vopn. Hvernig Danir meðhöndluðu
Vestfirðinginn Jón Sigurðsson er líklega
einsdæmi. Sú saga er í rauninni sérstakt
ævintýri, sem vel má
rifja upp nú, þegar
frændur okkar Fær-
eyingar ræða við
Dani um sín sjálf-
stæðismál.
Jón og
Ingibjörg,
eiginkona
hans, áttu
heimili
sitt í
Kaup-
manna-
höfn.
Þaðan stjórnaði hann þjóð-
frelsisbaráttunni og hélt svo
til íslands öðru hvoru til að
herða liðið heimafyrir. Tutt-
ugu og níu sinnum sigldi
hann yfir Islandsála, fram og
til baka, á misjöfnum far-
kostum og oftast var Ingi-
björg með honum í för. Dan-
ir heftu aldrei för hans. Og
ekki lieldur scttu þeir hann
Þráttfyrirað hanngagn-
rýndi danska ráðamenn
hispurslaust, háru þeir
virðingu Jyrirhonum
vegna mannkosta hans
og hæfileika.
undir lás og slá eins og yfirleitt var regl-
an með slíka menn hjá nýlenduþjóðum.
Þrátt fyrir að hann gagnrýndi danska
ráðamenn hispurslaust, báru þeir virð-
ingu fyrir honum vegna mannkosta
hans og hæfileika. Persónuleiki þessa
Islendings var slíkur, að hinir hrifnæmu
Danir sneru sér við, er þeir mættu hon-
um á götum Kaupmannahafnar og
undruðust slíkan mann.
Uppreisnarritið Ný félagsrit, sem Is-
lendingar keyptu bæði seint og illa, lét
Jón prenta í Kaupmannahöfn. Og hvar
skyldi hann hafa geymt upplagið um
tíma? Jú, uppi á háalofti í sjálfri kon-
ungshöllinni, Amalíuborg! Og ekki nóg
með það. Danir sáu Jóni alla tíð fyrir
lifibrauði við störf hans á sviði íslenskra
fræða og sögu. Þeir veittu honum að-
gang að nánast öllum
skjalasöfnum hins
danska ríkis. Og upp
úr þeim heimildum
smíðaði hann vopnin
í sjálfstæðisbaráttu
Islendinga. Hin
sögulegu rök. Fyrir
þeim féllu Danir.
Þeir hefðu getað sett
slagbranda fyrir söfn
sín og sagt Jóni að
snauta heim. Það var
lán okkar að það
gerðu þeir ekki.
Astæðulaust er fyrir Islendinga að láta
þessa einstæðu sögu, ævintýrið um Jón
Sigurðsson, liggja í þagnargildi. Þvert á
móti ættum við að segja hana sem víð-
ast og hrósa okkar gömlu herraþjóð svo-
lítið á alþjóðavettvangi, þótt henni hafi
stundum verið mislagðar hendur í stjórn
íslandsmála í gegnum aldirnar. Fátt
væri betri landkynning fyrir okkar sjálfa.
Og var einhver að tala um handritamál-
ið?
DAGSKRA
LANDSMÓTS
HESTAMANNA 1998
Miðvikudagur 8. júlí:
Kynbótavöllur
Kl. 09.00-12.00 Hæfileikadómar kynbótahrossa.
hryssur 4ra. 5 og 6 vetra og eldri.
Sýndar eftir númeraröð í hverjum flokki.
Kl. 14.00-19.00 Hæfileikadómar kynbótahrossa, framhald.
Aðalvöllur
Kl. 09.00-12.00 B-flokkur gæðinga, forkeppni.
Kl. 13.00-13.30 Setning Landsmóts.
Kl. 14.00-16.00 B-flokkur gæðinga, forkeppni, framhald.
Melavöllur
Kl. 09.00-12.30 Barnaflokkur, forkeppni.
Kl. 14.00-16.00 Ungmennaflokkur, forkeppni.
Kl. 16.30-18.30 Ungmennaflokkur, forkeppni, framhald.
Fimmtudagur 9. júlí:
Kynbótavöllur
Kl. 09.00-12.00
Hæfileikadómar kynbótahrossa,
hryssur 6 vetra og eldri. framh.
Kl. 13.00-19.00 Stóðhestar 4ra. 5 og 6 vetra og eldri.
Sýndir eftir númeraröð í hverjum flokki
Aðalvöllur
Kl. 09.00-12.00
Kl. 13.00-15.30
Kl. 18.00-20.00
Kl. 20.00-22.00
Melavöllur
Kl. 10.00-12.00
Kl. 13.00-15.00
A-flokkur gæðinga, forkeppni.
A-flokkur gæðinga, forkeppni. framhald.
Undanrásir kappreiða,
150 og 250 m skeið og 300 m stökk.
Tölt, forkeppni.
Unglingaflokkur, forkeppni.
Unglingaflokkur, forkeppni. framhald.
Föstudagur 10. júlí:
Aðalvöllur
Kl. 09.00-11.00 B-flokkur gæðinga, milliriðill.
Kl. 11.15-12.30 Yfirlitssýning kynbótahrossa.
Stóðhestar 4ra og 5 vetra
Kl. 13.30-16.30 Yfirlitssýning kynbótahrossa, framhald.
Stóðhestar 6 vetra og eldri
Afkvæmasýndir stóðhestar
Afkvæmasýndar hryssur
Kl. 17.00-19.30 Sýning ræktunarbúa.
Kl. 20.00-20.30 B-úrslit í tölti.
Kl. 20.30-22.00 Seinni sprettir í skeiði og úrslit í 300 m stökki,
verðl.afhending.
Kl. 22.30-03.00 Dansleikur.
Melavöllur
Kl. 10.00-12.00 Barnaflokkur, milliriðill.
Kl. 13.00-15.00 Ungmennaflokkur, milliriðlar.
Kl. 16.00-18.00 Unglingaflokkur, milliriðill.
Laugardagur 11. júlí:
Aðalvöllur
Kl. 09.00-11.00 A-flokkur gæðinga, milliriðill.
Kl. 11.15-12.00 Yfirlitssýning kynbótahrossa.
Hryssur 4ra vetra
Kl. 13.00-15.00 Sýning ræktunarbúa.
Kl. 15.00-18.00 Yfirlitssýning kynbótahrossa, framhald.
Hryssur 5 vetra og 6 vetra og eldri
Kl. 19.30-03.00 Kvöldvaka, söngur, hópreið, úrslit í tölti.
verðl.afhending.
Skemmtun, dansleikur.
Melavöllur
Kl. 13.00-14.00 Barnaflokkur, sýnt eftir skrá.
Kl. 14.00-15.00 Unglingaflokkur, sýnt eftir skrá.
Kl. 15.00-16.00 Ungmennaflokkur, sýnt eftir skrá.
Sunnudagur 12. júlí:
Aðalvöllur
Kl. 10.00-11.15 Kynbótahross, verðlaunaafhending.
Hryssur 4 v. 5 efstu.
Hryssur 5 v. 7 efstu.
Hryssur 6 v. og eldri. 12 efstu.
Kl. 11.30-12.15 Ungmennaflokkur, úrslit 10 efstu.
Kl. 12.15-13.00 Barnaflokkur, úrslit. 10 efstu.
Kl. 13.00-13.30 Helgistund. ávörp gesta.
Kl. 13.30-14.15 B-flokkur gæðinga, úrslit. 10 efstu.
Kl. 14.15-15.00 Unglingaflokkur, úrslit. 10 efstu.
Kl. 15.00-17.00 Kynbótahross, verðlaunaafhending.
Stóðhestar 4 v. 3 efstu.
Stóðhestar 5 v. 5 efstu.
Stóðhestar 6 v. og eldri. 10 efstu.
Afkvæmasýndar hryssur.
Afkvæmasýndir stóðhestar, allir.
Kl. 17.00-18.00 A-flokkur gæðinga, úrslit, 10efstu.
Kl. 18.00 Mótsslit.
Framkvæmdanefnd Landsmóts áskilur
sér rétt til að breyta tímasetningum og dagskrá.