Dagur - 10.07.1998, Qupperneq 1
1
\
Það var ekki mikið að gera hjá
lögreglunni þegar Ijósmyndari leit
við hjá þeim, enda hegðun manna
með besta móti og ekki ástæða til
að láta menn blása í poka!
Blásið 1 poka
Lögreglan hefur verið athafna-
söm við að fylgjast með mannlíf-
inu á Melgerðismelum. A kvöldin
hefur hún haft sérstakar gætur á
umferðinni innan svæðisins, ekki
síst þegar menn hafa farið akandi
frá tjaldbúðunum. Þá hefur hún
stöðvað bílana og gjaman látið
ökumenn blása í poka.
I fyrrakvöld var m.a. stöðvaður
lítill pallbíll. Þegar löggan leit
inn um gluggann þá fannst
henni lyktin nokkuð sterk og
bað bílstjórann að blása í poka. I
bílnum voru hjón og var frúin
við stýrið. Hún blés fúslega í
pokann og mælirinn sýndi ekk-
ert áfengi enda konan ekki
smakkað vín frá því hún drakk
messuvínið þegar hún fermdist.
En eiginmaðurinn sem sat í far-
þegasætinu rallhálfur hló sig
máttlausan yfir því að konan
skyldi lenda í þessu. En úr því
honum fannst þetta svona gam-
an þá sagði löggan að það væri
réttast að hann blési líka. Það
gerði hann og hefur ekkert frést
af mælinum síðan. En þegar
þau hjón óku í burt frá lögregl-
unni þá heyrðist konan tauta
fyrir munni sér:
„Þegar bíllinn minn angar al-
veg einsog hjá rónunum/
og ég er látin blása hjá lög-
regluþjónunum,/
þá getur þetta ekki gengið
svona hjá kallinum/
eins og gefur að skilja þá verð-
ur hann bara á pallinum."
Landsmótið á Mel-
gerðismeliim gekk
samkvæmt áætlun í
gær og stóðust allar
tímasetningar, eu
ekki veðrið - spáð var
vætu
Sigfús Helgason, framkvæmda-
stjóri Melgerðismela, segist mjög
sáttur við það að rigningarspáin
haíi ekki gengið eftir og síðdegis
í gær var sólskin og hægur suð-
vestan andvari á Melgerðismel-
um. I gær var fjöldi mótsgesta
kominn vel á fimmta þúsundið
og stöðugt að fjölga þó ekki væri
hægt að tala um mikla „traffík“.
Sigfús spáði því fyrir mót að
mótsgestir yrðu um 10 þúsund
manns og hann segist enn sann-
færðari nú um að sú áætlun
hans standist fullkomlega. Bjart-
sýni skaði engan.
19 hross veik
Vitað var í gær um 19 hross sem
hefðu veikst af hitasótt en móts-
haldarar gerðu sér vonir um að
ekki yrði um neinn faraldur að
ræða fram yfir mótslok næsta
sunnudag. Jafhvel er talið líklegt
að sum hrossanna hafi verið
búin að taka í sig bakteríuna
áður en haldið var af heimaslóð
fram á Melgerðismela. Sigfús
segir sýktu hrossin allt vera góð
hross, enda séu ekki nema góð
hross á landsmótinu.
Lofthiti eykst
Bragi Jónsson veðurfræðingur
segir að áfram verði hæg norð-
læg eða breytileg átt á móts-
„Við afgreiddum um fimmhundruð máltíðir í hádeginu i dag, en réttur dagsins var lasagna en einnig buðum við
upp á kjúklingarétt og grillsteiktar grísasneiðar." segir Guðmundur Karl Tryggvason. Myndin er úr veitíngatjaldinu í
hádeiginu. - mynd: hg
svæðinu allt ffarn yfir mótslok á
sunnudag. Landsmótsgestir
þurfa ekki að óttast rigningu,
nema ef vera skyldi í litlu mæli
síðdegis á laugardag. Lofthiti
eykst umtalsvert, reiknað er með
að hitastigið verði 7 til 12 stig
yfir hádaginn.
„Þetta er mun betra veður en
við vorum búnir að spá á móts-
svæði hestamanna og ég er sann-
færður um að þeir eru mjög
ánægðir með þessa veðurspá nú.
Lægðin sem olli þessu hefur
fjarlægst landið og er nú við Jan
Mayen og engin lægð sem fylgir
í kjölfarið og veldur neinum
óskunda í Eyjafirðinum," sagði
Bragi Jónsson.
500 máltíðir í hádeginu
„Það gekk framar vonum að
koma þessari veitingasölu af stað
en við hoppuðum með bundið
fyrir augu út í þegar að áætlun
um sölu kom. Það fyllist salur-
inn bæði á matar- og kaffitímum
en hér geta komist fyrir í einu
allt að fjögur hundruð manns.
Við afgreiddum um fimmhund-
ruð máltíðir í hádeginu í dag, en
réttur dagsins var lasagna en
einnig buðum við upp á
kjúklingarétt og grillsteiktar
grísasneiðar. Svo eru pylsurnar
alltaf vinsælar, sérstaklega hjá
þeim yngri," segir Guðmundur
Karl Tryggvason, veitingastjóri
Bautans á Melgerðismelum. - GG
Á 5. þúsund gesta
konuiii á svæðið
Sólarhingsvakt á
hestamöimuin
Lögreglan hefur verið með sól-
arhringsvakt frá hádegi á mið-
vikudag og eru þrír Iögreglu-
menn á mótssvæðinu og tveir
við eftirlit á umferðinni til og frá
mótssvæðinu. Fjölgað verður
um tvo lögreglumenn á svæðinu
um helgina. Fjórir ökumenn
voru teknir í gær fyrir of hraðan
akstur og tveir voru teknir í fýrr-
inótt, grunaðir um ölvun við
akstur. Annar þeirra var auk
þess aðeins 16 ára, og því rétt-
indalaus. Gunnar Jóhannsson
lögreglumaður sagði að ekki
væri um nein drykkjulæti að
ræða á svæðinu, allt hefði dottið
í dúnalogn um miðnættið, en
nokkrir mótsgesta hefðu setið
við hóflega bjórdrykkju í veit-
ingatjaldinu.
Allar rásir uppteknar!
Talað í farsíma fyrir
milljón á Landsmóti
eða um 200 þúsund á
dag.
„I augnablikinu getur verið
slökkt á farsímanum, hann utan
þjónustusvæðis eða allar rásir
uppteknar. Gjörið svo vel og
reynið síðar.“ Hver kannast ekki
við þá engilblíðu rödd sem til-
kynnir þeim sem reynir að ná í
farsímanúmer áðurnefndar
staðreyndir. Þetta hafa margir
hverjir þurft að reyna sem reynt
hafa að ná sambandi við þátt-
takendur á Landsmóti hesta-
manna á Melgerðismelum.
Landssíminn hefur sett upp
sendi við bæinn Sámsstaði sem
gefur farsímanotendum mögu-
leika á 14 rásum. Uppsetningin
er varanleg, þ.e. farsímaeigend-
ur geta náð símasambandi á
Melgerðismelum í framtíðinni
þótt ekkert sé hestamótið. Að
sögn starfsmanns Landssímans
hafa allar rásir alltaf verið upp-
teknar síðan Landsmótið hófst
á miðvikudag.
Sé gert ráð fyrir að allar rásir
séu í notkun meðan á keppni
stendur og aðeins fyrir og eftir
keppni, er það notkun í 12 tíma
á sólarhring. Mínútan fyrir
GSM-síma kostar krónur 21,90
frá klukkan átta á morgnana til
fjögur á daginn, en krónur
14,60 aðra tíma sólarhringsins.
I NMT-kerfinu kostar mínútan
krónur 16,60 en krónur 14,60
aðra tíma sólarhringsins, eða
sama gjald og í GSM-síma.
Símkostnaðurinn á Melgerð-
ismelum er því um 220 þúsund
krónur á dag meðan á keppni
stendur, en auðvitað er hringt
töluvert utan áðurnefnds tíma.
Alla mótsdagana hljóðar því
heildarsímareikningurinn upp á
eina milljón króna, að lágmarki!
Með þessu er ekki reiknað með
afnotum af gjaldsíma (tíkalla-
símum) sem Landssíminn hef-
ur sett upp í þjónustumiðstöð-
inni á Melgerðismelum, en þeir
eru einnig í mikilli notkun.
Mínútan í þeim símum kostar
krónur 1,56 á daginn en krónur
0,78 utan álagstíma. Það má
því með sanni segja að þarna
fari fram mikið landsmót í
símablaðri. Hvernig var hægt að
halda landsmót áður?! — GG
1