Dagur - 18.07.1998, Qupperneq 4
20 - LAUGARDAGUR 18.JÚLÍ 1998
ro^ir
MENNINGARLÍFIÐ í LANDINU
bókaB
Kolbrun
Bergþórsdóttír
skrifar
HILLAN
Raunirein-
hleyprar konu
Það er sennilega ekki oft sem af-
greiðslufólk í bókabúðum kvartar
undan því að viðskiptavinurinn
kaupi bók en einmitt það gerðist
þegar ég réttri ungri stúlku við
búðarborðið metsölubókina
Bridget Jones’s Diary eftir Helen
Fielding. „Þetta er síðasta eintak-
ið og ég sem ætlaði að lesa það,“
andvarpaði hún svo mædd að
það hvarflaði að mér að setja
bókina aftur í rekkann. „Ég skal
lána þér mína,“ sagði önnur af-
greiðslustúlka við hana og málið
var leyst. Þegar þetta er skrifað
mun ný sending sennilega hafa
borist í hús því sagan segir að ís-
lenskar konur hafi mikinn áhuga
á þessari bók, enda snýst hún um
hversdagsvanda þess kyns sem
einhver óhappamaðurinn sagði
vera það veikara.
Breska skáldkonan Sue Town-
send notaði dagbókarformið til
að rýna í dæmigerð vandamál
nútíma unglingsdrengs í sögun-
um af Adrian Mole. Helen Field-
ing nýtir einnig dagbókarformið
til að skopast að vandamálum
nútímakonu á fertugsaldri og
áhyggjurnar snúast að mestu um
kærasta og kalóríur. Það er skort-
ur á því fyrrnefnda en því mun
meira af því síðara. Og það er
vissulega söguefni upp á þrjú
hundruð síður.
Aðalpersónan lifir í samfélagi
þar sem kona er ekki talin full-
gildur meðlimur nema hún eigi
eiginmann. Þetta er einnig sam-
félag sem gerir kröfur til útlits og
því er það að um leið og aðalper-
sónan verður fyrir höfnun af ein-
hverju tagi er eina skýring henn-
ar sú að útlit og holdarfar eigi
sökina. Þetta er nokkuð misk-
unnarlaust samfélag þar sem
þeim sem ekki fara eftir settum
leikreglum er refsað með
grimmilegu slúðri. En svo kemur
vitanlega í ljós að þær konur sem
eiga eiginmann telja sig ekki með
öllu heppnar, það er nefnilega
svo mikið púl sem fylgir því að
vera eiginkona, eins og þær
þekkja sem það hafa reynt.
Vitanlega finnur kvenhetjan
sér sæmilegan karlmann að lok-
um. Sá heppni heitir Darcy, Iíkt
og karlhetjan í Hroka og hleypi-
dómum Jane Austen, og þótt
kvenhetjan hafi andúð á honum í
byrjun kemur það vitanlega í
hans hlut að bjarga málum þegar
móðir söguhetjunnar veldur
hneyksli. Að sumu leyti er eins og
ekki sé öld á milli þessara skáld-
sagna. Keppikeflið hjá ættingjum
er enn það að láta konur ganga
út. Og ástin á yfirborði hlutanna
er æði sterk hjá fjölmörgum per-
sónum.
En þessi ágæta skáldsaga sæk-
ir ekki einungis sitthvað til Jane
Austen og Sue Townsend. Eina
best heppnuðu dagbókarfærslu
konu í skáldsögu er að finna í
Gentlemen Prefer Blondes eftir
Anitu Loos. Þar fór heimska
ljóskan Loreilei Lee á kostum í
stórkostlega fyndinni bók. Þessi
bók Helen Fielding minnir um
margt á þá sögu. Og það er eng-
inn áfellisdómur yfir Fielding
i Monday 17 AprU 8st 13. alcoholtwíts 6 (drtnming sorrows).
icigarettes t9 (fumtgating sonxnvs). catories 3983 (suífocatmg
sorrxnvs with fat-duveO, pœsitíve thoughts 1 (vg)
‘Helen Fieldíng is
one of the funniest
writers in Britain
and Brídget Jones
is a creation of
comic genius’
Nick Hornby
Salman Rushdie sagði um þessa bók: „Jafnvel karlmenn ættu
að geta hlegið."
þegar sagt er að henni takist ekki
eins vel upp og Loos því sú síðar-
nefna þótti fyndnasta kona sinn-
ar samtíðar.
Salman Rushdie sagði um
þessa bók: „Jafnvel karlmenn
ættu að geta hlegið.“ Vissulega
ættu þeir að geta átt góðar stund-
ir yfir bókinni sem er hreinrækt-
uð kvennabók í fjöruga kantin-
um. Höfundurinn hefur starfað
sem blaðamaður og þáttagerðar-
maður fyrir BBC. Þetta er önnur
skáldsaga Helen Fielding sem er
skarpur athugandi með sérlega
góða kímnigáfu. Það kæmi ekki á
óvart ef framhald yrði á sögunni
um Bridget Jones.
Góðir
toppar
gm LEIKFÉl
@£reykjav
BORGARLEI
Stóra sviðið kl. 20.00
lau. 18/7, uppseit
fim. 23/7, uppselt
fös. 24/7, uppselt
lau. 25/7, uppselt
sun. 26/7, uppselt
sun. 26/7, aukasýning kl. 15:00
fim. 6/8, örfá sæti laus
fös. 7/8, örfá sæti laus
lau. 8/8, örfá sæti laus
Skoðiö GREASE
vefinn www.mbl.is
Miðasalan er opin daglega
frá kl. 13 -18 og fram að
sýningu sýningadaga.
Símapantanir virka daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónusta.
Simi 568 8000 fax 568 0383
Buðrún Helga
Sigurðardóttir
skrifar
Leikfélag íslands:
Þjónn í súpunni
Leikstjóri:
María Sigurðardóttir
Leikarar: Kjartan Guðjónsson
Edda Björgvinsdóttir
Margrét Vilhjálmsdóttir
Stefán Karl Stefánsson
Bessi Bjarnason
Söngtextar: Gísli Rúnar Jóns-
son, Oskar Skúlason.
Tæknimaður: Geir Magnússon.
Frumsýnt í Iðnó fimmtudaginn
16. júlí.
Spennandi braut
Menningarstarfsemin í Iðnó, því
sögufræga húsi, hefur farið frá-
bærlega vel af stað með hverri
menningaruppákomunni á fætur
annarri. Nú síðast er það spuna-
verkið Þjónn í súpunni sem hef-
ur verið frumsýnt, afbragðsgóð
skemmtun, fyrir þá sem eru
sæmilega léttir í Iundu og geta
tekið áföllum á borð við súpu í
jakkann sinn eða hárið með bros
á vör. Spunaverk af þessu tagi
telst til nýjunga á Islandi og er
vonandi að þessi hópur eða aðrir
láti ekki staðar numið hér heldur
haldi áfram. Þetta er spennandi
braut sem höfðar ekkert síður til
áhorfenda en Ieikhússfólks.
Verkið fór afar hægt af stað, að
minnsta kosti fyrir leikdómara
sem var látinn bíða lon og don
frammi í forstofunni og fylgdist
þar með alvöru þjónunum í hús-
inu, að leggja diska á borð og
taka til súpuna, sem í öllum að-
alatriðum var alvöru súpa með
ætum kartöflum og fiski. Salnum
var lokað um átta-leytið og þá
hófst væntanlega sýningin. Und-
irrituð var þó ekki sest í sæti fyrr
en tuttugu mínútum síðar. Það
er slæleg þjónusta af hálfu leik-
félagsins og verður vonandi und-
antekning, fremur en venja í
húsinu.
Grínið er í fyrirrúmi
Hvað um það. Eftir að í salinn
var komið fór verkið hægt af
stað, leikararnir voru fjarverandi
langtímunum saman en síðan fór
atburðarásin smám saman af
stað og náði hámarki nokkrum
sinnum, til dæmis þegar „Gest-
ur“ úr hópi áhorfenda, sem Stef-
án Karl Stefánsson lék, datt í
Tjörnina eða þegar Gerður
(Edda Björgvinsdóttir) skipaði
honum úr pilsinu og hann laum-
aðist berrassaður út úr salnum. I
verkinu Ieynast nefnilega mörg
sterk og skemmtileg atriði. Grín-
ið er í fyrirrúmi og allir skemmta
sér vel.
Leikarahópurinn stendur sig í
heildina vel. María Sigurðardótt-
ir leikstjóri virðist hafa haft ágæt-
is tök á hópnum. Nokkrar per-
sónur eru skemmtilegri og sterk-
ari en aðrar. Þannig nær Edda
Björgvinsdóttir sér vel á strik sem
Gerður Hrund, slær jafnvel út
góða frammistöðu sína í Sex í
sveit. Hún er komin á fína braut
eftir að hafa verið stöðnuð
síðustu ár.
Halló í lokin
Kjartan Guðjónsson í hlutverki
Hjálmars Knerris nær ágætis
ffugi og góðum samleik með
Eddu. Sama gildir um hinn
óborganlega Bessa Bjarnason.
Hann er í Iitlu hlutverki sem
kokkur pabbi en er skemmtilegur
þegar hann kemur inn. Margrét
Vilhjálmsdóttir er skemmtileg
leikkona en virkar hálf ráðvillt í
þessu stykki. Margrét líður áfram
átaka- og áfallalaust og það er
kannski einmitt það sem hún á
að gera. Það væri samt áhugavert
að sjá hana takast á við eitthvað
bitastæðara.
Ungi leikarinn, Stefán Karl
Stefánsson, nær góðum toppum
þó að persónan í leiknum sé
fremur leiðinleg. Hann lofar
góðu fyrir framtíðina. Greinilega
hæfileikaríkur strákur sem getur
margt, bæði sungið og leikið.