Dagur - 18.07.1998, Side 10
26 - LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1998
Xfc^MT'
LÍFIÐ í LANDINU
Brian Milton er 56 ára og fráskilinn tveggja barna faðir, sem starfar sem blaðamaður I fjármálafréttum. Á tíu ára fresti býr hann sér til eitt almennilegt ævintýri.
Eitt stykki ævintýri
BrianMilton er 5 6 árafjár-
málabladamaðurfrá Bret-
landi. Á miðvikudag lenti
hannfisi sínu á Reykjavíkur-
flugvelli í lokaáfangaferðar
sinnar„á áttatíu dögum“ í
kringum hnöttinn. Hann hef-
urfyrirmottó að lenda í æv-
intýri á tíu árafresti.
Undanfarna mánuði hefur Brian þurft að
beita öllum sínum líkamskröftum - aðal-
lega þó upphandleggsvöðvunum - til að
stýra fisi á ævintýralegu flugi í kringum
hnöttinn. Fisið er pínulítil flugvél, sett
saman úr einhverju sem líkist mest báts-
laga segldúk á hjólum með mótor og
vængi. Stýrið er stöng fremst á farartæk-
inu, tengd við vængina, og því þarf að
stjórna með handafli. Á þessu tóli er Bri-
an búinn að fljúga frá London yfir Meg-
inlandið til Mið-Austurlanda, Asíu og
Norður-Ameríku. Áætlun ferðarinnar var
skipulögð nákvæmlega eins og hnattferð
Filiusar Fogg, sögupersónu Jules Vernes í
Umhverfis jörðina ú úttatíu dögum.
Upphaflega ætlaði Brian að ljúka ferð-
inni á jafn löngum tíma og Fogg, en
vegna ófyrirsjánlegra skakkafalla raskað-
ist tímasetningin. Stærsta töfin varð síð-
an óbeint til þess að ferðafélagi hans og
aðstoðarmaður, Keith Reynolds (46 ára
og íjórfráskilinn) varð eftir í Yuzhno-Sak-
halinsk í Rússlandi; hann varð ástfanginn
og stefnir nú hraðbyri inn í fimmta
hjónabandið með síberísku Iljóði.
Reykjavíkurflugvöllur er einn af síðustu
áfangastöðum Brians, sem ætlar að vera
staddur í teiti í London á sunnudags-
kvöld. Ferðin hingað frá Grænlandi var
nokkuð erfið af völdum veðurguða, mikið
rok og kuldi. „En maður reiknar nú ekki
beinlínis með að það sé eins að fljúga yfir
Norður-Atlantshaf og yfir stöðuvatn,"
segir Brian hæstánægður, þar sem hann
stendur og bíður eftir að kvikmyndagerð-
armenn ljúki við að koma myndavélum
fyrir í stéli og væng físsins. Fyrr getur
hann ekki hafíð sig á Ioft áleiðis til Hafn-
ar.
Hræddir í Sýrlandi
Ferðalag Brians hófst 24. mars og gekk
ágætlega framan af. Vandræðin byrjuðu
ekki fyrr en yfir Sýrlandi. Þar birtist
skyndilega MIG 21 herþota og steypti sér
yfir fisið. „Þeir vildu hræða okkur til
lendingar. Okkur datt ekki í hug að fara
eftir þessu, enda nokkuð víst að við hefð-
um endað í fangelsi,“ fullyrðir hann.
„Þegar þeir sáu að við myndum ekki
hlýða vildu þeir neyða okkur til að hækka
flugið upp í 22.000 fet. En við getum
ekki flogið hærra en í 12.000 fetum án
þess að þjást af súrefnisskorti."
Þotan hvarf um Ieið og þeir sluppu yfir
landamærin til Jórdaníu. í Sádí-Arabíu
var það fisið sem brást þeim. Vandræðin
hófust þegar þeir voru yfir eyðimörkinni.
„Vélin ofhitnaði hvað eftir annað svo við
urðum að lenda fímm sinnum sama dag-
inn. Á endanum ákváðum við að útvega
nýja vél, en það breytti engu. Vélin var
farin að hökta og tvisvar stöðvaðist hún
alveg.
Það var ekki fyrr en í Dhahrah, síðasta
viðkomustaðnum í Sádí-Arabfu, sem við
uppgötvuðum að það voru klemmurnar á
bensínslöngunni sem voru ónýtar. Okkur
tókst að útvega nýjar klemmur, en lentum
aftur í vandræðum 300 mílur úti yfir
Persaflóa. Mér var ekki rótt, því ég lenti í
sjónum einmitt þarna, þegar ég flaug til
Ástralíu fyrir tíu árum.“ Þeir sluppu við
sjóbað og vélin fékk viðgerð í Abu Dabhi.
Kyrrsettir í Síberíu
Þeir voru orðnir þrjá daga á eftir áætlun
og tókst að flýta sér yfir Pakistan, Ind-
land og Bangladesh þrátt fyrir þrúgandi
hita. I Laos töfðust þeir í einn dag í við-
bót vegna skriffinnsku. En þá voru vand-
ræði þeirra í rauninni rétt að byija.
Kínversk stjórnvöld voru ekkert alltof
hrifin af ferðalaginu og létu þá bíða fimm
daga í Hanoi eftir flugferðaleyfi yfir land-
ið. „En við urðum fyrir frekari töfum,
vegna strangra Iaga um flug af þessu tagi.
Við þurftum alltaf að vera að lenda, auk
þess sem hver lending kostaði 1200 doll-
ara.“ Brian hristir höfuðið. Japanir voru
þó varla eins slæmir og Rússar sem gerðu
allt til að gera Brian lífið Ieitt. „Það tók
okkur níu daga að komast inn í landið og
tólf daga að komast út úr því aftur. Við
vorum kyrrsettir í Yuzhno Sakualinsk og
þar missti ég Keith.
Fyrst var okkur sagt að vegabréfsáritan-
irnar okkar væru útrunnar og að við yrð-
um sendir aftur til Japans. Síðan ákváðu
þeir að leyfa okkur að fljúga, en með því
skilyrði að rússneskur flugmaður yrði
með okkur. I fyrsta lagi \dldu þeir að við
borguðum honum 100.000 dollara fyrir
að koma með og í öðru lagi þýddi þetta
að annar okkar yrði að vera eftir. Loks
fundum við þó Petr sem var til í ferðina
fyrir aðeins 245 dollara á dag!“ Brian seg-
ir að það hafi aldrei verið nein spurning
um að Keith yrði að fórna sér. „Þetta er
mitt flug. Svo varð Keith Iíka orðinn ást-
fanginn. Kveðjustundin var auðveld og
við ákváðum að hittast aftur í Alaska.“ En
Keith kom aldrei þangað, hann varð eftir
hjá ástinni sinni.
Gamaldags ævintýri
Brian var því með Petr Petrov þegar þeir
lentu í ofsakulda norður af Sfberíu. Rúss-
neski flugmaðurinn varð að skafa framan
úr Brian til að hann sæi eitthvað.
„Skammt frá Amchika, borginni sem and-
ófsmennirnir voru sendir til, urðum við
svo að lenda á litlum vegi. Eg lenti í
mesta basli við að koma vélinni aftur á
loft, því við veginn stóðu tré sem
vængirnir rákust utan í.“ Það tókst, en
vélin var öll skökk og skæld eftir árekstur-
inn við tré og rafgeymirinn brotinn. Petr
varð eftir. Og þegar Brian kom til Alaska
var Keith þar hvergi sjáanlegur.
Hann varð því að halda ferðinni einn
áfram, til San Fransisco og svo upp
Bandaríkin, norður til Kanada. Og einn
var hann Iíka við komuna til Islands.
Hann er búinn að setja met hvar sem
hann fer og jafnvel þótt honum hafi ekki
tekist að gera þetta allt á áttatíu dögum,
hefur engu að síður tekist að slá tímamet.
En það er ekki bara vegna metanna
sem hann er að þessu. „Ég hef ákveðið að
bíða ekki þar til ég verð gamall og dauður
með að lenda í ævintýrum. Ég vil lenda í
þeim núna og ég vil að þau séu gamal-
dags.“ Þess vegna ók hann yfir Sahara
eyðimörkina í Áustin bíl árið 1968 og
flaug á fisi til Ástralíu árið 1987. „Ég bý
mér til ævintýri á tíu ára fresti," segir
hann og telur sig gefa börnunum sfnum
tveimur gott fordæmi. Aðspurður hvort
þetta þurfi ekki einhvern undirbúning
segist hann ekki trúa á líkamsrækt og
mælir frekar með hálfri vínflösku á dag.
Þeir sem vilja vita meira um ferðir Bri-
ans Milton geta fundið upplýsingar um
hann á netinu: http://www.atwied.org
-MEÓ