Dagur - 30.07.1998, Page 10
10-FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 1998
-Th^ir
ERLENDAR FRÉTTIR
Stríðið sem heim-
uríim gleymdi
Þaðríkir himgurs-
neyð í Súdan. Vegna
þurrka, en einnig af
mannavöldum. í Súd-
an hefur verið borg-
arastríð meira og
minna í 40 ár. Sú
lota, sem nú nýlega
var gert hlé á, hefur
staðið í 15 ár. Þetta
hefur veríð gleymt
stríð, en ailt í einu er
Súdan komið í heims-
fréttimar, enda hefur
ástandið versnað til
mima.
Rauði kross Islands hefur um
árabil veitt aðstoð í Súdan og
hafa nokkrir sendifulltrúar héð-
an farið til starfa í Súdan og
næsta nágrenni þess. Þannig fór
Asta Stefánsdóttir hjúkrunar-
fræðingur til Lokichokio í Norð-
ur-Kenía í gær. Nokkrir íslenskir
hjúkrunarfræðingar hafa áður
starfað í og nálægt Súdan. Ein
þeirra er Eygló Ingadóttir. Hún
vann í sex mánuði á sjúkrahúsi
sem Alþjóðastofnun Rauða
krossins rekur í Lokichokio í
Norður-Kenía. Þangað koma
særðir og sjúkir Suður-Súdanir
til að leita Iækninga. Flestir
koma með flugi, en aðrir með
bílum eftir lélegum vegum, sem
þarna eru.
Erfíðast þegar bömin dóu
Eins og áður sagði, ríkir borgara-
styrjöld í Súdan, milli suður- og
norðurhlutans og ráða múslím-
ar, íbúar Norður-Súdan Kharto-
um, höfuðborg landsins. Astand-
ið í Suður-Súdan er því slæmt og
nú hafa þurrkar aukið enn á
vandann.
- Fannstu aldrei til vonleysis,
að þú værir að hjúkra fólki til að
það gæti haldið áfram að beijast
eða snúa aftur til vonlausra að-
stæðna?
„Maður tekur þessu eins og
þetta er. Þetta er einfaldlega
starf_sem maðutveiur sér.-Það er
erfitt en gefandi. Mikið af fólk-
inu sem kemur þarna er ungt
fólk og það er mikið af hermönn-
um. Það var oft búið að lifa af
ótrúlegustu aðstæður, hafði
kannski særst þremur vikum
áður en það komst loksins undir
læknishendur, okkar hlutverk er
að hjálpa þeim,“ segir Eygló og
bætir við: „Svo er þetta alveg
einstakt fólk, einstaklega elsku-
legt og gerir ekki miklar kröfur.
En erfiðast var þegar börnin
voru að deyja.“
Prinsinn af Lokichokio
Eygló heldur áfram: „Maður sér
ótrúlegustu hluti og daglega
verða kraftaverk. Einu sinni kom
pínulítið barn til okkar. Það
hafði verið ráðist á þorpið hans
og hann kom til Lokichokio með
móður sinni. Hún hafði særst og
dó hjá okkur, en litli drengurinn
lifði. Hann heitir Josaphat, en
við kölluðum hann Prinsinn af
Lokichokio. Pabbi hans fannst, í
Úganda. Með því að nýta Ieitar-
kerfi Rauða krossins höfðum við
upp á honum og gátum sent
drenginn til hans.“
Varð betri manneskja
Á spítalanum. fengu Eygló og
samstarfsfólk hennar fregnir af
gangi mála í Súdan og þeim varð
ljóst að ástandið var mjög alvar-
legt. „Við fengum fréttir af yfir-
vofandi hungursneyð og einnig
af atburðum sem myndu vekja
mikla athygli ef þeir gerðust í
hinum vestræna heimi. Við
heyrðum líka að það fólk sem
snerist til múhammeðstrúar
fengi mat, en aðrir ekki.“ Og
Eygló heldur áfram: „Við heyrð-
um náttúrulega bara aðra hlið-
ina.“
Llm ástandið í Súdan, segir
Eygló: „Þetta virðist vera enda-
laust stríð og á meðan það er,
verður engin þróun. Það er Iíka
eins og heiminum sé alveg
sama.“ - En hvernig stóð á því að
þú ákvaðst að fara að starfa í Afr-
íku?
„Þetta er gamall draumur. Eg
hef alltaf ætlað mér þetta. Þegar
ég var unglingur var ég ákveðin f
að fara til Afríku og það gerði
ég-“
Eygló starfar nú á gjörgæslu-
deild Landspítalans, en telur
hún sig betri hjúkrunarfræðing
eftir þessa reynslu?
„Ég veit það ekki, en ég er ör-
ugglega betri manneskja." — is
Clinton og ráðgjafar
hans áhyggjulausir
Clinton og ráðgjarar hans hafa ekki
miklar áhyggjur af samningi sem Mon-
ica Lewinsky hefur gert við saksóknar-
ann Kenneth Starr. Samningurinn gerir
henni kleift að bera vitni um samband
sitt við Clinton, án þess að eiga saksókn
á hættu. Lewinsky mun bera vitni innan
fárra daga.
Von um hætta samhúð Indlands og
Pákistan
Samskipti Indlands og Pakistan hafa batnað, en forsætisráðherrar
landanna mættust á fundi í gær. Þeir Atal Behari Vajpayee, forsætis-
ráðherra Indlands og Nawaz Sharif, forsætisráðherra Pakistan,
ákváðu að halda áfram viðræðum. Samskipti landanna hafa verið
með versta móti eftir kjarnorkuvopnatilraunir beggja landanna í maí
og þessi fundur var sá fyrsti síðan þá. Embættismenn ríkjanna hitt-
ust svo í gær og í dag til að ákveða tilhögun viðræðnanna.
Fyrrum ráðherra
dæmdur til
faugavistar
Fyrrum innanríkisráðherra Spánar
hefur verið dæmdur til fangavistar.
Hæstiréttur Spánar dæmdi Jose
Barrionuevo til tíu ára fangavistar,
fyrir þátttöku hans í einu versta
hneykslismáli Spánar síðan Frankó
Ieið. Barrionuevo var dæmdur íyrir
þátttöku sína í „skítuga stríðinu"
gegn ETA, aðskilnaðarhreyfingu
Baska.
Hússeiu Jórdauíuhonimgur á hatavegi
Ibúar Jórdaníu virðast ánægðir að heyra að konungur þeirra sé á
batavegi. Hann kom nýlega fram í sjónvarpi í Jórdaníu og sagði þegn-
um sínum að hann væri í meðferð vegna krabbameins, en byggist við
að ná sér að fullu. Hussein hefur verið á sjúkrahúsi í Minnesota síð-
an þann 14. júlí, hann er nú í lyfjameðferð og býst við að ná sér að
fullu.
Gassprenging í íbúðahlokk
Tveir létust í gærpegar sprenging varð í íbúðablokk í Moskvu. Gas-
sprenging reif nær alla framhlið íbúðabyggingarinnar, sem er níu
hæðir. Björgunarsveitir með leitarhunda komu fljótt á vettvang og
fóru að reyna að ná fólki út úr rústunum.
Vélmenni í í jósinu
Erfiðleikar við að fá fjósamenn til starfa urðu til þess að Hollending-
ar hófu framleiðslu mjaltavélmenna fyrir nokkrum árum og höfðu
um síðustu áramót selt 150 slík, en óttast nú að ESB-reglugerð setji
strik í reikninginn, samkvæmt fréttum Freys. Sænskir og danskir
bændur keyptu sína fyrstu vélfjósamenn fyrr á þessu ári og kosta þeir
um 18 milljónir króna fyrir 100 kúa fjós. Meðal höfuðkosta þessara
nýju fjósamanna eru þeir, að þeir eru fúsir til að mjólka kýrnar þris-
var á sólarhring, sem bæði er talið að auki nyt kúnna um 15-20
prósent og fækki doðatilfellum. En nú hefur slegið í bakseglin í notk-
un og útbreiðslu vélmennanna, þvi í ESB-reglugerð eru fyrirmæli um
að sjónmeta skuli mjólk úr hverri kú áður en hún er mjólkuð - og til
þess þarf víst ennþá fjósamenn af holdi og blóði.
Senda svínm til Þýskalands
Æ fleiri danskir svínabændur láta nú slátra svínunum í Þýskalandi.
Þeir telja sig hafa of litlar tekjur og kröfur sem tengjast meðal ann-
ars velferð dýranna, valda þeim vandkvæðum. Svínakjötsverð hefur
sjaldan verið Iægra í Danmörku og telja bændurnir hagstæðara að
láta slátra í Þýskalandi.
Hægri umferð fyrir línuskautafólk
Slys þeirra sem ferðast um á línuskautum hafa sjaldan verið fleiri í
Svíþjóð. A síðasta árið komu næstum 2.000 manns, sem slasast
höfðu á Iínuskautum, á sjúkrahús í Svíþjóð. Sænska vegagerðin hef-
ur því lagt til að komið verði á hægri umferð fyrir það línuskautafólk
sem ferðast yfir -venjulegum gönguhraða.