Dagur - 15.08.1998, Qupperneq 1

Dagur - 15.08.1998, Qupperneq 1
Bamaspítali tefst vegna Hringbrautar ReykjavBmxborg vill fá skýr svör frá ríkis- valdinu uiii flutning á Hringbrautinni áður en framkvæmdir verða leyfðar við byggingu nýs bama- spítala, en þær áttu að hefjast í júní.. Bygging Barnaspítala Hringsins og fyrsta skóflustunga að þessu 920 milljóna króna mannvirki á Landspítalalóðinni hafa tafist og ekkert verið aðhafst í sumar eins og til stóð. Astaeðan er sú að borg og ríki eiga eftir að semja um flutning á Hringbrautinni niður fyrir Tanngarð í Vatnsmýr- inni. Samkvæmt áratugagömlum samningi fellur sú dýra vegagerð á ríkissjóð. Sumir sem að málinu koma töluðu í gær um að málið væri í einskonar gíslingu, það væri orðið umferðarmál en ekki heilbrigðismál. „Það er öðru nær að þetta mál sé í neinni sjálfheldu," sagði Guðrún Agústsdóttir, borgarfull- trúi og formaður skipulags- og umferðarnefndar borgarinnar. Nefndin afgreiddi málið fyrir all- löngu til borgarráðs og þar var samþykkt að borgarstjóri ræddi flutning Hringbrautar við ríkis- valdið. Þær umræður munu vera hafnar. „Við höfum sagt það að til að hefja húsbygginguna þurfi að klára þetta dæmi með að færa Hringbrautina. Við erum búin að afgreiða þetta mál út úr skipu- lagsnefndinni með fyrirvara um að flutningur götunnar verði tímasettur." Guðrún sagði það algjört lykil- atriði að Ieysa bílastæðavanda Landspítalans og koma til móts við íbúa á svæðinu sem kvarta mjög yfir hávaða og bílastæða- skorti. Það væri alveg ljóst að opnun nýs barnaspítala og flutn- Hringbraut. Bygging barnaspítala orðin að umferðarmáli? ingur Hringbrautar yrðu að hald- ast í hendur. Ríkisspítalar sóttu um leyfi til húsbyggingarinnar í maí síðast- liðnum til skipulagsnefndar borgarinnar. Áður hafði málið farið gegnum venjulegt ferli, meðal annars grenndarkynn- ingu. Breytt nefndaskipan borg- arinnar eftir kosningar tafði mál- ið eitthvað. Ingólfur Þórisson aðstoðarfor- stjóri Ríkisspítalanna sagði í gær að í upphafi hafi menn rætt um fyrstu skóflustungu í júní. Núna stæðu vonir til að hægt yrði að heíja verkið í þessum mánuði. Utboð jarðvinnu og annarra þátta mun hinsvegar taka mánuð eða meira, þannig að sumarið verður liðið áður en hægt verður að hefjast handa. Fjármögnun Barnaspítala er tryggð. A fjárlögum ársins eru 200 milljónir króna, Kvenfélagið Hringurinn hefur lofað 100 milljónum króna til spítalans og Ríkisspítalar eiga fé í sjóði til verksins. Ingólfur sagði að hjá Ríkisspít- ölum væru menn óþreyjufullir að hefjast handa og vonuðu að ekki þyrfti að bíða lengur en þeg- ar er orðið. Hann sagði að vissu- lega yrði það til bóta fyrir Land- spítalann að fá Hringbrautina flutta í átt að flugvellinum, þá mundi rætast úr miklum þrengslum sem há rekstri spítal- ans, auk þess sem margir kvört- uðu yfir hávaða frá umferðinni. - JBP Keikó aftur hótað Háhyrningnum Keikó hefur aftur borist líflátshótun. I bréfi sem stílað er á „Gróðapunginn Hall Hallsson", segir nafnlaus ritari að farin hafi verið skoðunarferð um verslunarmannahelgina til Vest- mannaeyja „...og við getum sagt að við erum ekki vonsvikin á að- stöðunni sem okkur er gefin til að framkvæma verkið.“ Bréfið er póstlagt á Egilsstöð- um. Þar segir að það sé rangt að vonsviknir Eskfirðingar standi að baki hótununum. „Við sem að máli þessu stöndum erum öll von- svikin fyrir hönd sannra Islend- inga sem vilja nýta sér auðæfi hafsins þar á meðal hvali til bóta fyrir þjóðina." Hallur Hallsson, talsmaður Keikosamtakanna fékk bréfið á fimmtudaginn og hefur skýrt for- ráðamönnum þeirra frá hótun- inni. Hann segir þá taka hana al- varlega. Lögreglunni í Vestmanna- eyjum hafði ekki verið tilkynnt um síðara bréfið og hefur engan grun- aðan vegna þess fyrra. „Þetta mál er mjög erfitt að rannsaka," sagði Halldór Sverrisson hjá rannsókna- deild lögreglunnar. - BÞ Börnin í Skólagörðum Akureyrar eru nú að uppskera eins og þau sáðu til í vor. Þau læra að nýta náttúruna og njóta ávaxta þess sem þau leggja á sig. Fjölmargar tegundir grænmetis bíða þess að „uppfylla tilgang sinn“ og komast upp í munn og ofan í maga. Hér er Margrét Júlíusdóttir starfsmaður garðanna að aðstoða Freydísi Önnu Jónsdóttur við uppskeruna. - mynd: brink. Kristján fær ekki ábyrgð Akureyrarbær mun enga Dæjar- ábyrgð veita vegna stórtónleika Kristjáns Jóhannssonar og fleiri í minningu Jóhanns Konráðs- sonar. Eins og fram kom í Degi í gær hafa forsvarsmenn tónleik- anna falast eftir bæjarábyrgð. Kostnaður er mikill en lög heim- ila ekki að bærinn skuldbindi sig með þeim hætti. „Tónleikunum fylgir heilmikill kostnaður en þetta er ekki spurningin um að útvega pen- inga til að borga Kristjáni laun,“ segir Asgeir Magnússon, for- maður bæjarráðs og hlær. „Þetta snýst um stjórnendur, erlenda óperusöngvara, sinfón- íuhljómsveitina og fleira. Ef ein- hveijar náttúruhamfarir kæmu hér upp eða annað þá treysta að- standendur sér ekki til að standa einir að þessu. Bærinn mun reyna að sjá til þess að þetta geti gengið með einhverjum hætti. Hins vegar er búið að breyta sveitarstjórnarlögunum á þann veg að bænum er ekki Iengur heimilt að veita bæjarábyrgð fyr- ir svona gjörningi. Aður voru bæjarfélög oft að ganga í ábyrgð fyrir fyrirtæki og ýmsa aðila. Það er óheimilt í dag,“ segir Asgeir. Þetta eru e.t.v. góðar fréttir fyrir útsvarsgreiðendur á Akur- eyri, enda hafa þeir ekki alltaf haft góða reynslu af bæjará- byrgð. Nýlegasta dæmið er þeg- ar HM í handknattleik fór fram. Þá tapaði bærinn tugum millj- óna króna vegna miðasölu sem fór í vaskinn. Anna María Jóhannsdóttir sem stendur fyrir tónleikunum sagði í gær að nokkuð hefði bor- ið á þeim misskilningi, að fólk teldi hana vera að falast eftir fjárstuðningi úr bæjarsjóði vegna framtaksins. Svo væri alls ekki. Hún væri aðeins að óska eftir einhverri tryggingu ef ófyr- irséðir atburðir kæmu upp. Henni hefði ekki verið kunnugt um lagabreytinguna sem Asgeir vísar til. — BÞ Varmflskiptflr SINDRI -sterkur í verki BORGARTÚNI 31 • SÍMI 562 7222 • BRÉFASIMI 562 1024 r -h

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.