Dagur - 21.08.1998, Qupperneq 9

Dagur - 21.08.1998, Qupperneq 9
FÖSTUDAGVR 21. ÁGÚST 1998 - 9 Xk^ur áValgerði flokkinn. Hún benti á að þar hafí flokkurinn unnið sinn stærsta sig- ur.í síðustu kosningum. Auk þess væri það eitt af markmiðum flokksins að efla sig á þéttbýlis- svæðinu á suðvesturhorni lands- ins. Hún segir að vissulega komi til greina að skipa ekki ráðherra í stað Guðmundar þessa mánuði sem eftir lifa af kjörtímabilinu en hún vill engan dóm leggja á það. Laust þingsæti Guðmundur Bjarnason hefur ver- ið fyrsti þingmaður Norðurlands eystra frá 1987 og leitt Framsókn- arflokkinn í kjördæminu eftir að hafa velt Stefáni Valgeirssyni úr þeim sessi. Þegar Guðmundur snýr sér að íbúðalánum losnar sæti í kjördæminu og nær öruggt verður að teljast að í það setjist Valgerður Sverrisdóttir. Hún vill ekkert tjá sig að svo stöddu en ljóst er að hún stefnir á fyrsta sætið á lista flokksins burtséð frá því hvort hún verður ráðherra eða ekki. Keppinautar hennar hafa helst verið nefndir þeir Jóhannes Geir Sigurgeirsson, varaþingmaður og stjórnarformaður Landsvirkjunar, ogjakob Björnsson, bæjarstjórinn fyrrverandi á Akureyri. Þeir sem Dagur ræddi við virðast sammála um að Jakob eigi ekki möguleika á að velta Valgerði. Nokkrir nefn- du að gengi hans hefði fallið nokkuð fyrir norðan eftir að hann sótti um starf sveitarstjóra í Eyja- fjarðarsveit en hætti svo við. Mjög líklegt er að Jóhannes Geir hætti afskiptum af pólitík og leiðin virð- ist því greið fyrir Valgerði. Slagur framimdan Það stefnir í harðan slag á Norð- urlandi eystra enda pólitískar hræringar miklar þar. Steingrím- ur J. Sigfússon vinnur að stofnun nýs flokks og Iíklegt þykir að hann höggvi nokkuð í raðir framsóknar- manna ef svo fer. Framsóknar- flokkurinn stendur óneitanlega verr að vígi en áður fari svo að hann eigi þar engan ráðherra. Að sama skapi myndi staða Sjálf- stæðisflokksins og Halldórs Blön- dal, samgönguráðherra, væntan- lega styrkjast. í Bjarnasyni til hamingju á síðasta Fiokksþingi eftir að Guðmundur hafði verið kjörmn varaformaður flokksins. skipa ekki ráðherra og skipta ráðuneytunum á ráðherra sem fyrir eru. Mín skoðun er sú að skipa eigi ráðherra sem fyrst. Það tel ég vera eðlilegt," segir Isólfur Gylfi. Magnús Stefánsson sagðist telja slaginn standa á milli Val- gerðar Sverrisdóttur og Guðna Agústssonar og þá ekki sfst þar sem um landbúnaðarráðuneytið er að ræða. Enda þótt hann teldi það koma til greina að skipa ekki eftirmann Guðmundar heldur skipta ráðuneytunum niður, sagðist hann ekki hafa trú á að það ætti hljómgrunn innan þing- flokksins. „Mín skoðun er sú að það eigi að ganga í það strax að skipta um ráðherra. Það er óþægilegt fyrir alla að vera með málið hangandi í lausu lofti. Mér þætti réttast að Guðmundur hætti strax og nýr ráðherra skipaður en Guðmundur sæti síðan sem óbreyttur þing- maður til áramóta,“ segir Magn- ús. Stærsti siguriim Siv Friðleifsdóttir vildi lítið tjá sig. Hún sagði þó eðlilegt að sitt nafn væri nefnt sem hugsanlegur ráðherra þar sem hún væri í efsta sæti í Reykjaneskjördæmi sem væri að verða afar sterkt fyrir ur Bjama- aksviði íálaima starfaði hann við útibú Sam- vinnubankans á Húsavík og varð síðar útibússtjóri sama banka í Keflavík. Guðmundur var varaforseti Efri deildar Alþingis 1979-1983. Heilbrigðis- og tryggingaráðherra var hann skipaður 1987-1991 og Iandbúnaðar- og umhverfisráð- herra síðan 1995. Hann hefur verið varaformaður Framsóknar- floltksins síðan 1994. Eiginkona Guðmundar er Vig- dís Gunnarsdóttir og eiga þau þrjár dætur. - S.DÓR Framhaldið er órætt „Allt varðandi framhald þessa máls er algerlega órætt. Við höf- um ekki rætt neitt um hvernig staðið verður að málum," sagði Halldór Asgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, þegar Dag- ur ræddi við hann í gær um ákvörðun Guðmundar Bjarnason- ar. Hann vildi engu spá um hvort sú leið verði farin að setja ekki ráðherra í stað Guðmundar en skipta ráðuneytunum niður á aðra ráðherra eða hvort heldur skipað- ur verður ráðherra í stað Guð- mundar Bjarnasonar. í höndum þingflokksins „Það er algerlega í höndum þing- flokksins að taka slíka ákvörðun. Fyrst þarf að ganga frá því hvenær Guðmundur Iætur af embætti og fer til nýrra starfa. Eg get ósköp Halldór Ásgrímsson. lítið meira sagt á þessu stigi þar sem ég hef ekki haft tækifæri til að ræða málið við þingmenn flokksins," sagði Halldór. Halldór var inntur álits á því að ýmsum þingmönnum flokksins þykir eðlilegt að Guðmundur láti af störfum sem fyrst, en Guð- mundur sjálfur segist ætla að sitja til áramóta? „Ég vil ekkert segja um það á þessari stundu. Ég tel að Guð- mundur hafi skilað afar góðu starfi í þessu embætti og tel alveg koma til greina að hann gegni því til áramóta," sagði Halldór. Hann var loks spurður hvort hann væri með ákveðinn kandídat í huga í ráðherrastólinn? „Eins og ég sagði hefur þetta ekkert verið rætt og á meðan get ég ekki svarað þressari spurn- ingu.“ - Heldur þú að val á ráðherra geti ekld haft áhrif á prófkjör í kjördæmi viðkomandi ef það verð- ur ekki afstaðið þegar valið verður í embættið? „Ég vil ekkert tjá mig um slíkar hugmyndir þar sem ekki er einu sinni búið að ákveða próf- kjör í flokknum," sagði Halldór. - S.DÓR Eftirsiá að Guðmimdi „Við Guðmundur höfum átt náið samstarf. Ég tel hann í hópi vina og sé auðvitað eftir honum úr pólitíkinni," segir Halldór Blöndal samgönguráð- herra sem ekkert vill tjá sig um hugsanlega eftirmenn Guðmund- ar. Honum þykir eðlilegt að Guð- mundur verði áfram ráðherra til áramóta, enda hafi áður gerst að menn hafi haldið áfram ráðherra- .störfum þótt legið hafi fyrir að þeir ætluðu að hætta í pólitík eft- ir nokkra mánuði. „Það hefur ékki verið venja hér á landi að ráðherra segi af sér vegna þess að hann hafi afráðið að gefa ekki áfram kost á sér. Mér finnst ekki nema eðlilegt að Guð- mundur haldi áfram störfum þangað til hann tekst á við ný verkefni,“ segir Halldór. Guðni sterkur „Mér finnst óskynsamlegt að skipta um ráð- herra á síðustu mánuðum og finnst það litlum tilgangi þjóna,“ segir Margrét Frímannsdóttir, formaður Al- þýðubandalags- ins. Um eftirleik- inn segir hún að hugsanlega skipti ráðherrarnir sem eftir eru embættunum á milli sín en ef ekki hljóti Valgerður Sverrisdóttir og Guðni Ágústsson að teljast lík- legastir eftirmenn Guðmundar. „Valgerður hefur verið þing- flokksformaður og átt mjög far- sælan ferill sem þingmaður. Hún hlýtur að koma sterklega til greina en Guðni Agústsson hlýtur einnig að gera það. Hann hefur staðið sig mjög vel sem formaður landbúnaðarnefndar og Sunn- lendingar myndu ábyggilega vilja fá hann í ráðuneytið. Guðni væri líka ákveðið mótvægi við þá hörðu frjálshyggju sem ríkis- stjórnin rekur,“ segir Margrét . Gott samstarf „Mér finnst ekk- ert skrýtið þótt maður eins og Guðmundur sem er búinn að vera býsna lengi í póli- tík fari að hugsa sér til hreyfings og það er að mörgu leyti eðli- legt að hann velji þennan tíma þeg- ar líður að lokum þessa kjörtíma- bils,“ segir Steingrímur J. Sigfús- son, fyrrverandi þingmaður AI- þýðubandalagsins. „Ég óska honum góðs á nýjum vettvangi og þakka honum sam- starfið sem hefur verið gott." Steingrímur telur líklegast að Valgerður taki við af Guðmundi verði nýr ráðherra á annað borð skipaður sem styrki auðvitað hennar stöðu. En breytir þetta einhverju um pólitfska stöðu mála í kjördæm- inu? „Það held ég ekki. Maður hefur reiknað meó því að þarna yrðu tveir ráðherrar í framboði og leiddu lista stjórnarflokkanna. Það breytir engu þótt Valgerður kæmi í staðinn fyrir Guðmund. Það yrði frekar breyting ef það yrði ekki, en þetta breytir engu um mínar aðstæður," segir Stein- grímur. Steingrímur J. Sigfússon.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.