Dagur - 25.08.1998, Qupperneq 2
18 — ÞRIÐJUDAGUR 2S. ÁGÚST 1998
LIFIÐ í LANDINU 1
L. .
SMÁTT OG STÓRT
UMSJÓN:
SIGURDOR
SIGURDÓRSSON
Sr. Gunnlaugur
Stefánsson.
„...en eins og
landsmenn vita þá
hefur ríkisstjórn-
inni tekist að reka
ríkissjóð með af-
gangi að undan-
fömu.“
Guðlaugur Þór
Þórðarson, borgar-
fulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins í DV.
Galleríið
Menningarnóttin eða „Menningarsólarhring-
urinn“ í Reykjavík síðastliðinn laugardag var
glæsileg rós í hnappagat borgaryfirvalda. Ekki
skemmdi góða veðrið fyrir. Má segja að allan
daginn og nóttina hafi miðborg Reykjavíkur
iðað af mannlífi. Eg hef ekki í áraraðir skoðað
miðborgina jafn vel og á laugardaginn. Það
sem kom mér skemmtilegast á óvart var hve
miklar breytingar eru orðnar á Skólavörðu-
stígnum. Þessi fyrrum daufa gata er orðinn
hrein listagata með ýmiskonar galleríum eða
listaverkabúðum í öðru hverju húsi. En svo er
það gamla fangahúsið á Skólavörðustígnum
sem stingur kaldranalega í stúf. Gárungi sem
búinn var að labba niður Skólavörðustiginn og
sjá gallerí hér og gallerf þar sagði þegar hann
koma að fangahúsinu. „Og hér kemur svo
Gallerí jail.“
Fæddurprestur
Landbúnaðarnefnd, ásamt Iandbúnaðarráð-
herra, var á fer á Austurlandi fyrir nokkru, fór
um, ræddi við bændur og skoðaði sveitir. Þeg-
ar kom í Breiðdal var séra Gunnlaugur Stef-
ánsson, prestur í Heydölum og fyrrum alþing-
ismaður, fenginn til að vera leiðsögumaður
nefndarmanna um sveitina. Um kvöldið var
Gunnlaugi ásamt konu sinni, séra Sjöfn Jó-
hannesdóttur, boðið í kvöldverð á Hótel Blá-
felli með nefndinni og ráðhera. Þar voru
margar snjallar ræður fluttar og meðal ræðu-
manna var séra Hjálmar Jónsson, sem sæti á í
nefndinni. Hann hafði m.a. orð á því að það
væri merkilegt að í svo litlum hópi skyldu vera
þrír prestar. Þegar Guðni Ágústsson fékk orðið
sagði hann að þetta væri ekki rétt, prestarnir
væru fjórir. Þeir þrír sem séra Hjálmar ætti við
hefðu orðið að eyða 7 árum í að læra til prests,
„en ég eyddi engum tíma í það vegna þess að
ég er fæddur prestur," sagði „séra“ Guðni.
í himnaríki og helvíti
Sagt er að í himnaríki séu það Englendingar
sem sjái um Iöggæsluna, Frakkar matreiðsl-
una, Italarnir eru elskhugarnir og Þjóðverjar
sjá um alla skipinulaginguna. I helvíti eru það
Frakkar sem sjá um löggæsluna, Englendingar
um matreiðsluna, Þjóðverjar eru elskhugarnir
og ítalir sjá um allt skipulagið
Elsku timburmaður
Og vegna þess að minnst var á hina glæsilegu
Menningarnótt hafa sjálfsagt margir á sunnu-
deginum getað tekið undir með Torfa Guð-
Iaugssyni:
Þvtltk högg og hamraskak,
af hjarta yrði ég glaður,
ef þú hvíldist andartak
elsku timburmaður.
Rósa Kristín og
Hjörleifur spila á
söngvökunum í
vikunni.
Tónlistarsaga í tali og tónum
„Á söngvökunum förum við í
gegnum íslenska tónlistarsögu,
sem að mestu er saga söngs.
Þessu hefur verið allt of lítið
sinnt því þarna eigum við dýr-
mætan sjóð,“ segir Rósa Kristín
Baldursdótttir en hún, ásamt eig-
inmanni sínum, Hjörleifi Hjart-
arsyni, hefur sungið og spilað á
söngvökum sem Minjasafnið á
Akureyri hefur staðið fyrir í sum-
ar.
Frá örófi alda til nú tímans
„Á söngvökunum förum við í
ferðalag í gegnum aldirnar og
gefum sýnishorn úr íslenskri tón-
íist frá örófi alda fram á þennan
dag. Við tökum dæmi um fimm-
undasöng, dróttkvæði, vikivaka
og alls kyns íslensk þjóðlög og
þjóðvísur. Svo færum við okkur yfir á þessa öld
og syngjum þau lög sem hafa orðið vinsæl hjá
þjóðinni, svona „nútímaþjóðlög.“
Söngvökurnar fara fram í Minjasafnskirkj-
unni. Rósa og Hjörleifur syngja og spila á gítar
en ennfremur eru hljóðfærin Iögð til hliðar og
sagan sögð. Þetta er fimmta sumarið sem þessar
söngvökur eru haldnar á vegum Minjasafnsins
og hefur Rósa verið með frá upphafi. Hjörleifur
kom inn í sumar en þar áður hafði Rósa sungið
mikið með bróður hans, Þórarni Hjartarsyni. Þá
hefur Kristjana Arngrímsdóttir sungið mikið í
sumar. „Þetta er mikið fjölskyldu-
batterí," segir Rósa og hlær við.
Fín viðbrögð
Rósa segir aðsóknina á söngvök-
urnar að öllu jöfnu nokkuð góða
en hafi þó verið heldur minni í
sumar en oft áður. „Stundum er
kirkjan troðfull en stundum er
verið að syngja fyrir innan við tíu
manns. Þetta virðist fara eftir
veðri. Sé það vont hreyfir fólk sig
ekki. Þá hefur ferðamanna-
straumurinn í sumar verið minni
en venjulega og það hefur haft
áhrif á aðsókn. Okkur hefur hins
vegar fundist að þeir aðilar sem
bera ábyrgð á að veita ferða-
mönnum upplýsingar og koma á
framfæri því efni sem í boði er,
hafi brugðist." Rósa segir að alls
konar fólk komi á söngvökurnar, heimamenn og
ferðamenn, innlendir sem erlendir. „Viðbrögðin
hafa verið mjög fín, undantekningarlaust. Fólk
hefur mjög gaman af þessu og það gerist oft að
við fáum sama fólkið aftur. Þetta hefur mælst
mjög vel fyrir.“
Senn hallar að hausti og í kvöld er næstsíð-
asta söngvakan á þessu sumri. Hún hefst kl. 21
og stendur í um klukkutíma. Síðasta söngvakan
verður svo næstkomandi fimmtudagskvöld. Það
er því nú eða ekki fyrir Norðlendinga að skella
sér á söngvöku. - JV
Rósa Krístín spilará
söngvökum ásamt
eiginmanni sínum.
Aðsókn eralla vega
en undirtektir alltaf
góðar. Einungis tvær
söngvökurlifa það
sem eftir er sumrí.
8PJALL
FRÁ DEGI TIL DAGS
Guð hjálpi þeim sem hjálpa sér ekki
sjálfir. Wilson Mizner.
Þetta gerðist 2 5. ágúst
• 1609 sýndi Galíleó þinginu í Feneyjum
fyrsta sjónaukann sem hann smíðaði.
• 1914 réðust Þjóðverjar inn í Frakkland.
• 1921 undirrituðu Bandaríkin friðar-
samning við Þjóðverja.
• 1940 gerðu Bretar fyrstu loftárásina á
Berlín að næturlagi.
• 1944 var París frelsuð undan hernámi
nasista.
• 1970 var stífla í Laxá í Suður-Þingeyj-
arsýslu sprengd í mótmælaskyni við
stækkun Laxárvirkjunar.
• 1990 heimilaði öryggisráð S.Þ. hernað-
araðgerðir gegn Irak.
Þessir fæddust 2 5. ágúst
• 1933 fæddist saxófónleikarinn Wayne
Shorter.
• 1919 fæddist George C. Wallace, fýrr-
um ríkisstjóri í Alabama sem barðist
hvað harðast gegn afnámi aðskilnaðar-
stefnu hvítra í suðurríkjum Bandaríkj-
anna á sjöunda áratugnum.
• 1918 fæddist hljómsveitarstjórinn og
tónskáldið Leonard Bernstein.
• 1913 fæddist Bob Crosby, yngri bróðir
Bings.
• 1845 fæddist Lúðvík II., hinn vægast
sagt Iéttruglaði konungur í Bæjaralandi
(ríkti 1864-1886).
• 1786 fæddist Lúðvík I., sem einnig var
konungur í Bæjaralandi (1835-1848).
• 1744 fæddist Johann Gottfried von
Herder, þýskur guðfræðingur og heim-
spekingur.
Vísa dagsins
Þessa vísu orti Káinn um sr. Hjört Leó
sem hann hélt uppá.
Leó hresstur hélt í vestur,
heiðursgest egfann.
Það er mesti myndarprestur,
mér leist best á hann.
Afmælisbam dagsins
Ivan grimmi (Ivan Vasiljevitsj) fædd-
ist árið 1530. Hann var erkihertogi
af Moskvu 1533-47, og því ekki
nema þriggja ára þegar hann tók við
völdum af föður sínum, Basil III.
Árið 1547 hækkaði hann sjálfan sig í
tign og ríkti sem fyrsti keisari Rússa-
veldis allt til 1584. Veldi sínu stjórn-
aði hann með glæsibrag fyrstu árin,
en varð seinna afar undarlegur í
háttum og beitti óstjórnlegri
grimmd, drap m.a. elsta son sinn í
bræðiskasti.
Elsa, Sigga, Gunna...
Manni nokkrum var boðið í mat til vinar
síns. I hvert skipti sem gestgjafann vantaði
eitthvað kallaði hann til konu sinnar og
ávarpaði hana ýmsum gælunöfnum svo
sem ástin mín, elskan mín, engilinn minn
og annað í svipuðum dúr.
Gesturinn hlustaði á þetta allt kvöldið
og sagði svo:
„Mikið er gaman að heyra það að eftir
öll þessi ár sem þið hafið verið gift, skulir
þú enn kalla hana svona fallegum gælu-
nöfnum."
Gestgjafinn leit á vin sinn og sagði: „Ef
ég á að segja þér alveg eins og er ...þá man
ég bara ekki hvað hún heitir."
Veffang dagsins
Allar stjórnarskrár í heimi - eða næstum
þ\r allar - er að finna bjá www.uni-wuerz-
burg.de/Iaw