Dagur - 25.08.1998, Side 4

Dagur - 25.08.1998, Side 4
20-ÞRJOJUDAGUR 2S. ÁGÚST 1998 LÍFIÐ í LANDINU D^ur Málefni dýra eru alltaf lífið í umræðunni. Fremur óljóst er hverjir eru í forystu fyrir dýraverndunarfélögum. Alltof sjaldan koma viðbrögð frá þeim þegar viðkvæm og erfið mál koma upp. Erlendis jafnast dýrin á við ungabörn. Þau eru ríkur þáttur af tilfinn- ingaheimi fólks og gefa aðgöngumiða að félags- legum samskiptum á vinsamlegu nótun- um. Málefni dýra eru alltof lítið í umræð- unni. Fremur óljóst er hverjir eru í for- ystu fyrir dýraverndunarfélögum. Alltof sjaldan koma viðbrögð frá þeim þegar viðkvæm og erfið mál koma upp. Málefni dýra hafa löngum verið mér umhugsunarefni, ekki af því að ég sé sér- staklega mikill dýravinur, því að það er ég svo sannarlega ekki, heldur af því að ég hef verið fréttamaður, mér er ágætlega við dýr og ég hef tekið eftir því að málefni dýra eru gjarnan í umræðunni erlendis - og þar eru þau viðkvæm mál. Þegar farið er illa með dýr eða illa fer um dýrin á ein- hvern hátt fer allt í háaloft og endar venjulega með því að „kerfið" gengur í lið með dýrunum og sér til þess að lögum og reglum sé framlylgt. Þannig á það Iíka að vera en svona er þetta alls ekki alltaf hér á landi. UMBUÐA- LAUST Guðrún Helga Sígurðardóttir skrifar Dýraverndunar- sinnar þurfa að byggja upp öfluga forystu sem getur komið fram fyrir skjöidu og tjáð sig á sterkan og öfíug- an hátt þegar fjall- að er um dýr, til- raunir með dýr eða skyld málefni í fjöl- miðlum. Dýravemd- arsinnar em alltof veiMr „Pabbi“ og „manrma“ Erlendis jafnast dýrin á við ungabörn. Þau eru ríkur þáttur af tilfinningaheimi fólks og gefa aðgöngumiða að félagsleg- um samskiptum á vinsamlegu nótunum. A sama hátt og fólk byijar að spjalla um ungabarnið, spyija hvers kyns það sé og hversu gamalt það sé byijar fólk að kjá framan í hundinn og spjalla um hvað hann sé fallegur og hversu gamall hann sé. Af þessu spretta gjarnan Iangar og miklar samræður og jafnvel kunnings- skapur. Þessarar tilhneigingar gætir líka hér á landi. Hundaeigendur hittast á Geirsnefi og spjalla um daginn og veginn. Þar kemst á kunningsskapurinn. I fjölskyld- um er talað um foreldrana á heimilinu sem „mömmu“ og „pabba“ hundsins, svo hjákátlega sem það oftast hljómar. Það sýnir tilfinningarnar sem komast í spilið þegar dýrin eru annars vegar. Beðið eftir viðbrögðum Því miður sýnist mér umræða um málefni dýra skammt á veg komin hér á landi og undantekningarnar alltof fáar. Þeirra gætir þó. Þannig gerði eitt dagblaðanna heiðarlega tilraun til þess um helgina að fjalla um málefni dýra með fréttum um að fuglalíf og flugeldasýningar færu ekki saman - frétt sem vissulega vakti athygli þegar einmana svanur synti einn fugla og hálfruglaður um Tjörnina eftir miðnætti aðfaranótt sunnudags þó að Ingibjörg Sólrún segði í sjónvarpinu að endurnar á Tjörninni væru öllu vanar. Hin fréttin var öllu alvarlegri. Lifandi grís, sem átti að aflífa, hafði fundist í gámi! Máttfarinn en þó á lífi. Mistök sem ekki mega gerast, sagði bústjóri svínabús- ins. Og auðvitað er það rétt. Dýravernd- unarsamband Islands ku vera að skoða málið og nú þegar þetta er skrifað er bara að bíða og sjá hver viðbrögð þess verða. Verða þau einhver? Eg bara spyr. Hræddir við að tjá sig skýrt? Tilraunir á dýrum og slæm meðferð dýra hafa átt sér stað nánast átölulaust hér á landi og umfjöllun um málefni dýra hefur almennt verið alltof iítil. Skuldinni er tæpast hægt að skella alfarið á Ijölmiðla. Sem fréttamaður hef ég til dæmis fengið að fjalla um slík mál og reynt að fá for- svarsmenn dýraverndunar til að koma fram fyrir skjöldu og tjá sig um þau á skeleggan hátt. Með litlum árangri þó. Það hefur einfaldlega ekki náðst í þá og stundum hefur það verið óskýrt hveijir væru í forystunni og mættu/ættu að tjá sig. Margir eru hræddir við að taka ein- arða afstöðu ef þeir svara símanum á annað borð. Varð að athlægi Þá virðist vera óeining meðal dýravernd- unarsinna. Dæmi um vitleysuna sem þar virðist viðgangast eru deilurnar sem komu upp i sumar þegar talsmaður dýra- verndunarsinna kom skyndilega fram í íjölmiðlum til að tjá sig um Keiko. Þá virtist eitthvað á reiki hvort viðkomandi hefði yfir höfuð eitthvert umboð til að tjá sig. Þessi umræða var þögguð niður í snarhasti með yfirlýsingu frá mönnum sem lýstu sig hina réttu forystumenn. Það breytir því þó ekki að þessar deilur sýndu Ijóslega hve staða dýraverndunar- samtaka og dýraverndunar er veik hér á landi. Dýraverndin varð að athlægi í þessu máli. Mikil þörf er á því að gera bragarbót á umljöllun um dýr og málefni dýra. Dýra- verndunarsinnar þurfa að taka sig saman í andlitinu, setja niður deilur sínar ef ein- hveijar eru og byggja upp öfluga forystu sem getur komið fram fyrir skjöldu og tjáð sig á sterkan og öflugan hátt þegar fjallað er um dýr, tilraunir með dýr eða skyld málefni í fjölmiðlum. Það er kom- inn tími til þess að dýraverndunarsamtök taki þessi mál föstum tökum til að vinna að bættum hag dýra. Æra Lewinski ófagra mynd af þessari ungu stúlku. Hún var sögð veru- leikafirrtur lygari, athyglissjúk drusla og loddari af guðs náð. Upp á svið voru dregnir gamlir kærastar og skólafélagar sem óð- fúsir vitnuðu um óáreiðanleika hennar. Ráðgjafar og stuðnings- menn forsetans drógu heldur hvergi af sér í Iýsingum. Á ör- skammri stundu var mannorðið haft af Lewinski og það er óvíst að henní muni nokkru sinni takast að endurheimta það. Ég ætla ekki að helja langa tölu um framhjáhald Bandaríkjafor- seta, þess hins sama og heldur því fram að tæknilega séð hafi hann ekki tekið framhjá þar sem hann var óvirkur aðili í atburða- rás þar sem konan sá um allt erf- iðið. Unga konan sem athygli heimsins hefur beinst að síðustu mánuði er sögð gröm forsetanum vegna þess að hann hefur ekki beðið hana afsökunar. Hún ætti að vera jafn gröm fjölmiðlum sem segja má að hafi haft af MENNINGAR VAKTIN Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar henni mannorðið og sýna jafn litla iðr- un og forsetinn. Þegar samskipti Clintons og Lewinski komust í hámáli drógu Ijölmiðlar upp Þessi afgreiðsla fjölmiðla er umhugs- unarverð. Hið sama má segja um um- fjöllun þeírra um Lindu Tripp og Paulu Jones en ótæpilega var hæðst að útliti „Þegar samskipti Clintons og Lewinski komust I hámáli drógu fjöl- miðlar upp ófagra mynd af þessari ungu stúlku. Hún var sögð veru- leikafirrtur lygari, athyglissjúk drusla og loddari afguðs náð.“ þeirra. Önnur hafði unnið sér til saka að vera vel við vöxt, hin þótti með ein- dæmum ófríð. Ég hef oft furðað mig á því af hverju kvennasamtök hafa ekki bent á þá með- ferð sem þessar konur hafa fengið í fjöl- miðlum. Kannski er skýringin sú að kvennasamtök styðja af krafti forseta- frúna sem sögð er vera hin raunverulegi stjórnandi í Hvíta húsinu. Hillary hefur vissulega allt það vit sem bónda hennar skortir. Það breytir þó engu um það að meðferð fjölmiðla á Lewinski er víta- verð.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.