Dagur - 25.08.1998, Blaðsíða 7

Dagur - 25.08.1998, Blaðsíða 7
 ÞRIÐJUDAGUR 2S.ÁGÚST 1998 - 23 LÍFIÐ í LANDINU ulistaverk sem málað hafði verið á hliðarvegg hússins. Æskan hefur sinn hátt á að fagna ást- sælum foringja eins og ég komst að raun um þegar unglings- stúlka við hlið mér galaði: „Inga Solla, blessuð beib!“ Eg gekk einn hring í bókabúð- inni og skiptist á skoðunum við fjölmiðlamann. Umræðuefnið var Kári Stefánsson sem við vor- um sammála um að væri hinn nýi Einar Ben. Þegar ég byrjaði að skammast yfir afskiptasemi forsetans fékk ég litlar undir- tektir frá viðmælandanum sem er Iaunukommi eins og megnið af hans kollegum og finnst að sósíalískur forseti eigi að leiða þjóðfélagsumræðuna. „Vá“ og „Vei“ Eg nennti ekki að rölta lengra upp Laugaveginn og ákvað að ganga heim á Ieið, sömu Ieið og ég hafði komið. Edda í Flex var með opna búð og bauð gestum og gangandi upp á hvítvín. „Heimsborgarnir í Reykjavík eiga það skilið,“ sagði Edda sem hefur höfðinglega sál og kann að fagna. Pétur Blöndal var í Banka- strætinu að þýða ljóð fyrir út- lendinga. Hann veifaði mér og hið sama gerði hópur ungkrata sem nýkomnir voru úr sumar- ferð Alþýðuflokksins sem farin hafði verið fyrr um daginn. Ung- kratarnir voru merkilega vel á sig komnir, miðað við að þeir höfðu megnið af deginum notið leiðsagnar Guðlaugs Tryggva Karlssonar. Kratarnir voru á Ieið á flugeldasýninguna. Ég hafði hins vegar ákveðið að forðast hana. Eg hef rótgróna andstyggð á Ijöldasamkomum þar sem menn æpa: „Vá!“ og „Vei!“ í kór. Og þá skiptir ekki máli hvort um er að ræða menningarnótt í Reykjavík eða flokksþing Al- þýðuflokksins. Ég var á leið upp Tjarnargöt- una þegar sýningin brast á með tilheyrandi hávaða og djöful- gangi. Ég var ekki langt frá skot- pöllunum og þegar ég leit til himins virtust sprengjur stefna að. Mér leið eins og saklausum Súdana undir sprengjuárás Bandaríkjamanna á lyfjaverk- smiðju. Hundur f bandi tók á rás með eiganda sinn og vældi ógurlega. Lýðurinn æpti: „Vei!“ og „Vá!“ Ég lagði á flótta. -kb MULTI VIT FJÖLVÍTAMÍN MEÐ STEINEFNUM NATTURULEGT 60 tciflur Ein með öllu handa öllum Skólavör&ustíg, Kringlunni, Smáratorgi og Skipagötu 6, Akureyri Guölaugur Bergmann heimsóttur að HeUnum ÁÖ í Skallagrímsgarði i Borgarnesi. Alþýðuflokksfólk fór í sína ár- legu sumarferð um helgina. Haldið var frá Alþýðuhúsinu f Reykjavík að morgni laugardags- ins og haldið um Hvalíjarðar- göng á Skagann. Þar tóku Akra- neskratar á móti hópnum og var farin útsýnisferð um Skagann og komið við í hinu frábæra steina- safni, Steinaríkinu, sem nýlega var opnað á Skaganum. Þaðan var haldið í Borgarnes og þar voru það Borgarneskratar sem tóku á móti hópnum. Geng- ið var um bæinn og áhugaverðir staðir skoðaðir. Síðan settist fólk niður í Skallagrímsgarði, þar sem boðið var upp á veitingar í einstakri veðurblíðunni, sem hélst allan daginn. Frá Borgarnesi var haldið um Mýrar vestur á Snæfellsnes og Guðlaugur Bergmann og frú heimsótt að Hellnum. Þar flutti Guðlaugur þrumandi tölu um mannrækt og sagði frá lífinu hjá mannræktarfólki á staðnum. Boðið var upp á heilsukökur og kraftadrykkinn, íslenskt vatn, áður en hópurinn hélt fótgang- andi um Hellnahraun að Arnar- stapa. Á Arnarstapa var grillað í ná- vist Bárðar Snæfellsáss, með jökulinn gínandi yfir hriklegri náttúrufegurð Arnarstapa. Harmonikan var með í ferðinni og tóku ferðalangar hressilega undir með harmonikuleikaran- um og alþingismanninum Gísla Einarssyni frá Akranesi. Gísli Einarsson alþingismaður var hrókur alls fagnaðar í sumarfeðinni og sá um að halda uppi fjörinu. Hér taka þeir saman lagið á Hellnum, Gísli, Gunnlaugur Bergmann og Sighvatur Björgvinsson, flokksformaður. Heilsukökur og kraftavatn í mannræktarhringnum á Hellnum. Óssur Skarphéðinsson, alþingismaður og ritstjóri, með hjónunum á Hellnum, Guðlaugi og Guðrúnu Bergmann. WtMOWœ ÉXPr&s EITT NÚMER AÐ MUNA 5351100

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.