Dagur - 25.08.1998, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 2S.ÁGÚST 1998 - 27
LÍFIÐ í LANDINU
i.
FOLKSINS
MEINHORNIÐ
• Óþolandi
spuming sem
veldur því að
fólk nennir ekki
lengur að versla
í Hagkaupi:
„Ertu með
Fríkort?" Nei,
fólk er ekki með
fríkort og ætlar
ekki að vera
með fríkort. I
Nýkaupi er eng-
inn spurður
þessarar aula-
spumingar. Það
er partur af
þjónustunni í
þeirri búð.
Maður fer þang-
að....
• Það er ástæða
til að lýsa frati á
sjónvarpsstöð-
ina RÚV. Hún
er ömurleg.
Enda þótt Stöð
2 sé ekki mikið
til að hrópa
húrra fyrir, þá
eru þeir að
reyna sitt besta.
Og þeir hafa
reitt eina ijöðr-
ina af annarri af
RÚV. Eru sjálf-
stæðismennirnir
í kringum RÚV,
menntamálaráð-
herrann Rjörn
og útvarpsstjór-
inn Markús,
frændi hans, að
sjá til þess að
Ríkisútvarpið
sofni kæfingar-
svefhi með allt
lélegasta sjón-
varpsefni sem
til er?
• „Grammófón-
ar“ eða talvélar
sem svara í ýms-
um fyrirtækjum
og eru í tísku
ætti að banna.
Þetta er afturför
í símavörslu,
tækninýjung
sem er til
hreinnar
skammar. Nán-
ast útilokað er
að ná inn í sum
fyrirtækin og
margir gefast
upp. Lifandi
fólk á símaborð-
in aftur!
m «5%
«——
í bréfi Brynjólfs til Skeljungs kemur fram að hann telur að það muni leiða til hærra oiíuverðs
á landsbyggðinni ef flutningsjöfnun á olíu verður hætt.
Brynjólfl
svarað
GUNNAR E. KVARAN,
KYNNINGARFULLTRÚI SKELJUNGS HF.
SKRIFAR
Strandgötu 31, 600, Akureyri
Þverholti 14,105 Reykjavík
Sími umsjónarmanns
lesendasíðu:
460 6111
Netfang: ritstjori@dagur.is
Símbréf: 460 6171/551 6270
Óskað er eftir að bréf til
blaðsins séu að jafnaði hálf til
ein vélrituð blaðsíða, 1000-1200
tölvuslög. Dagur áskilur sér rétt
til að stytta lengri bréf.
Brynjólfur Brynjólfsson sendir Skelj-
ungi hf. opið bréf í Degi þann 22. júlí
sl. þar sem hann óskar skýringa á því
hvað stjórnendum félagsins gangi til
með að senda Eftirlitsstofnun EFTA
kvörtun vegna laga um flutningskostn-
að olíuvara. Því er til að svara að árið
1991 var innflutningur á olíum gefinn
frjáls og ári síðar voru felld niður Iaga-
ákvæði sem kváðu á um að verð á olíu
skuli vera það sama um allt land. Allar
götur síðan hafa forsvarsmenn Skelj-
ungs hf. ftrekað bent á að flutnings-
jöfnun á olíuvörum sem hér hefur við-
gengist er tímaskekkja og í beinni and-
stöðu við samkeppnisreglur. Krafa fé-
lagsins hefur verið að flutningsjöfnun-
arsjóður verði lagður niður og þeim
óeðlilegu millifærslum sem hann hefur
staðið fyrir verði hætt.
Þrátt fyrir að sýnt hafi verið fram á
með dæmum hvernig framkvæmd
flutningsjöfnunar mismunar ólíkum
hópum notenda og hvernig kerfið
stuðlar að óhagkvæmni í dreifingu hef-
ur verið talað fyrir daufum
eyrum stjórnvalda. Jafnvel
þótt samkeppnisráð hafi
komist að þeirri niðurstöðu
í des. 1995 að tiltekin
ákvæði f lögunum geti tor-
veldað frjálsa samkeppni og
leitt til mismununar milli
einstakra fyrirtækja og
neytendahópa hefur sú
mismunun ekki enn verið
leiðrétt.
Um leið og Skeljungur
hf. skaut máli sínu til Eftir-
litsstofnunar EFTA var í
fréttatilkynningu meðal
annars greint frá því að
munurinn á því sem Olíu-
félagið hl’. hefur fengið greitt úr ílutn-
ingsjöfnunarsjóði síðastliðin 10 ár og
því sem Skeljungi hefur verið gert að
greiða í sjóðinn nemur tæpum 870
milljónum króna á núvirði. Skeljungi
hf. hefur með öðrum orðum verið gert
að greiða niður flutningskostnað helsta
samkeppnisaðilans, Olíufélagsins, um
tugi milljóna króna á hverju ári.
Þessum millifærslum hefur verið
haldið áfram með óbreyttu flutnings-
jöfnunarkerfi þrátt fyrir að samkeppn-
isaðilar Skeljungs hf., Olíufélagsins hf.
og Olíuverslun Islands hf. hafi samein-
að olíudreifingu sína og reki nú sam-
eiginlega dreifingu með um 70% mark-
aðshlutdeild. Afram hefur það verið
látið viðgangast að minni aðilanum á
markaðnum sé gert að greiða niður
flutningskostnað þess stærri.
Sú augljósa mismunun á samkeppn-
isaðstöðu sem Skeljungur hf. hefur
verið látinn búa við er með öllu ósætt-
anleg og þess vegna freistar félagið að
ná rétti sínum eftir þeim Ieiðum sem
tiltækar eru og er málsskotið til Eftir-
litsstofnunar EFTA liður í tilraun fé-
lagsins til að rétta sinn hlut. Skeljung-
ur hf. telur að greiðslur úr flutnings-
jöfnunarsjóði séu í eðli sínu opinber
fjárhagsstuðningur og hljóti því að falla
undir aðstoð af því tagi sem kveðið er á
um í 1. mgr. 61. gr. EES samningsins.
Samkvæmt þeirri grein er lagt bann við
ríkisaðstoð sem er til þess fallin að
raska samkeppni með þvf að ívilna
ákveðnum fyrirtækjum eða fram-
leiðslu.
I bréfi Brynjólfs til Skeljungs kemur
fram að hann telur að það muni leiða
til hærra olíuverðs á landsbyggðinni ef
flutningsjöfnun á olíu verður hætt. Um
það er alls ekki hægt að fullyrða.
Benda má á að smurolía er utan flutn-
ingsjöfnunar en samt er hún seld á
sama verði allstaðar á landinu. Þar
kemur til samkeppi seljenda sem sjá
sér hag í því að ieita hagkvæmustu
flutningsleiða, enda bera þeir flutn-
ingskostnaðinn að öllu leyti sjálfir.
Atvinna
Vantar starfskraft til starfa 1. september við afgreiðslustörf á
þjónustustöð félagsins við Tryggvabraut, Akureyri.
Leitað er eftir starfskrafti með reynslu
í þjónustustörfum.
Umsóknum skal skila til afgreiðslu
Dags fyrir föstudaginn 28. ágúst með
upplýsingum um menntun og fyrri
störf, merkt OLÍS - þjónusta.
AKUREYRARBÆR
ÚTBOÐ
Akureyrarbær óskar eftir tilboðum í jarðvinnu fyrir loka-
áfanga Lundarskóla á Akureyri.
Helstu magntölur eru: gröftur 4.000 m3 og fylling 3.000 m3.
Útboðsgögn verða afhent á Arkitekta- og verkfræðistofu Hauks. ehf.,
Kaupangi við Mýrarveg, 600 Akureyri, gegn 10.000,- kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboð verða opnuð á byggingardeild Akureyrarbæjar, Geislagötu 9,
4. hæð, föstudaginn 28. ágúst nk. kl. 11:00 að viðstöddum þeim
bjóðendum sem þess óska.
Akureyrarbær
Byggingardeild.
Frístund
Álftanesskóla
Starfsmaður óskast til að sjá um Frístund Álftanesskóla, sem er
gæsla skólabarna eftir að skóladegi lýkur. Vinnutími er frá kl. 12:00-
17:30. Um er að ræða umsjón með gæslunni þar á meðal skipu-
lagningu og framkvæmd.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að fá hjá Kristni Guð-
laugssyni, símum 565 2428 og 896 9697.
Umsóknarfrestur er til og með 28. ágúst nk.
íþrótta- og tómstundafulltrúi.
fFræðslumiðstöð
Reykjavíkur
Skólastarf í grunnskólum Reykjavíkur hefst
þriðjudaginn 1. september.
Nemendur mæti í skólann þann dag sem hér segir:
10. bekkur (nem. f. 1983) kl. 9:00
9. bekkur (nem. f. 1984) kl. 10:00
8. bekkur (nem. f. 1985) kl. 11:00
7. bekkur (nem. f. 1986) kl. 13:00
6. bekkur (nem. f. 1987) kl. 13:30
5. bekkur (nem. f. 1988) kl. 14:00
4. bekkur (nem. f. 1989) kl. 14:30
3. bekkur (nem. f. 1990) kl. 15:00
2. bekkur (nem. f. 1991) kl. 15:30
Nemendur 1. bekkjar, börn fædd 1992, hefja skólagöngu sam-
kvæmt stundatöflu fimmtudaginn 3. september en verða áður boð-
aðir til viðtals með foreldrum, hver í sinn skóla.
Skólastarf í Borgaskóla hefst mánudaginn 7. september.
Nánari upplýsingar um skólabyrjun þar verða sendar for-
eldrum í þessari viku.