Dagur - 01.09.1998, Blaðsíða 2

Dagur - 01.09.1998, Blaðsíða 2
18 - ÞRIDJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1998 LÍFIÐ í LANDINU L. SMÁTT OG STÓRT UMSJÓN: SIGURDÓR SIGURDORSSON Guðmundur Bjarnason. 6ULLK0RN „Ég tók boltann niður og brunaði áfram og var að leita að Stein- grími og þeim sem voru frammi en þá öskrar HLynur fyrirliði: ,Áfram sjálfur," og ég bara fór sjálfur og svo sá ég markið og lét vaða.“ Hjalti Jóhannesson ÍBV í DV í gær. Sparifötin Mikið hefur gengið á í Framsóknarflokknum að undanförnu vegna þeirrar ákvörðunar Guð- mundar Bjarnasonar að Iáta af ráðherradómi og gerast forstjóri húsnæðismála. Þessari ákvörðun Guðmundar fylgir keðjuverkun eins- konar. Fyrir hann þarf að koma ráðherra að margra dómi og þar eru margir kallaðir en fáir útvaldir. Þá þarf að kjósa nýjan varaformann í stað Guðmundar og loks, ef Valgerður Sverris- dóttir verður ráðherra, þarf að kjósa nýjan for- mann þingflokks. Þetta allt barst í tal í rabbi okkar Jóns Kristjánssonar á dögunum og ég spurði hann hvort hann ætlaði sér ekki í ráð- herraslaginn eða varaformanninn. „Ég get sagt þér það,“ sagði Jón af sinni alkunnu stillingu, „að ég hef ekki sett sparifötin mín í hreinsun ennþá!“ Einskær tilviljuii Eins og alþjóð veit er bannað að auglýsa drykki með alkohóli í á Islandi. Það varð því að vonum nokkur hvellur þegar ákveðið vínum- boð í Reykjavík keypti heilsíðu auglýsingu í Mogga undir eina tegund af bjór, aðra af víni og loks eina áfengistegund. Sorg Moggans vegna þessa var mildl því blaðið baðst síðar af- sökunar á auglýsingunni, hún hefði birtst fyrir mistök. Eigandi vínumboðsins sagði hins vegar í sjónvarpi að hér hefði alls ekki verið um aug- lýsingu að ræða, heldur upplýsingar um við- komandi tegundir. Fréttamanninum datt þó ekki í hug að spyrja, fyrst svo var, hvers vegna miðarnir á flöskunum voru látnir snúa fram en ekki aftur. Dýr fiskur Á dögunum voru tveir blankir Hafnfirðingar við veiðar í lítilli á, þar sem öruggt var talið að bara veiddist silungur og því var veiðileyfið ódýrt. En eins og stundum gerist í svona ám þá kemur upp einn og einn lax. Og allt í einu setti annar Hafnfirðingurinn í lax. Éftir nokkra viðureign náði hann að landa fiskinum, tók hann af önglinum og sleppti honum. „Af hveiju í ósköpunum sleppirðu laxinum mað- ur,“ spurði félagi hans. „Vegna þess að ég hef ekki efni á því að borða lax,“ svaraði Hafnfirð- ingurinn. Fyrirbæn Ekki veit ég eftir hvern þessi ágæta vísa er en hún heitir Fyrirbæn: Blessaður vertu vinur minn, verði þérflest til ráða. Guð og enda andskotinn okkur styrki báða. Th^ur Magnús Gestsson ásamt Emblu dóttur sinni. MiM hugsj ónavhma Bókmenntatímaritið Andblær hefur komið út á Islandi í rúm fjögur ár og nýjasta hefti þess, hið 8., kom út nýlega. „Megintilgangur ritsins er að endurspegla það sem er að gerast í bókmenntum hjá ungu fólki,“ segir Magnús Gestsson, ritstjóri 8. heftis Andblæs. Hann er sagn- fræðingur að mennt en hefur ofan í sig og á með því að vinna hjá Póstinum, þar sem honum hefur ekki tekist að fá vinnu í sínu fagi. „I þessu riti erum við að gera tilraun til að víkka ritið út og setjum inn teikn- ingar og myndir eftir ýmsa listamenn," segir hann. „Ritið hefur jú áður fjallað um myndlist en ekki sýnt hana beinlínis á síðum sínum.“ Nýtt blóð reglulega Andblær varð til er ungir höfundar hittust viku- lega um tíma á bókmenntakvöldum og lásu upp úr verkum sínum og skeggræddu þau. Meðal þeirra er þar áttu hlut að máli eru þau Bjarni Bjarnason, Steinunn Ásmundsdóttir og Hrafn Torfason ásamt fleirum. Öll vinna við ritið er unnin í sjálfboðavinnu og stöku sinnum seld auglýsing á bakið. „Ef svo vantar uppá, þá höf- um við nokkra fjárhagslega bakhjarla sem hjálpa til, en þeir hafa aldrei þurft að reiða mikið fé af höndum," segir Magnús. Ritstjóm er endurnýjuð með hveiju hefti að mestu og segir Magnús að það megi h'kja því við frægan mann sem hann heyrði eitt sinn um að léti skipta um blóð í sér reglulega til heilsubót- ar. „Þó held ég að skipt hafí verið oftar um blóð í Andblæ en þess- um karli,“ segir Magnús létt. likamsnánd í bókmenntiun „Mig langar til að vekja athygli á því að blanda okkur í þessa um- ræðu um líkamstjáningu sem nú er í gangi," segir Magnús. „f þessu nýjasta hefti Andblæs er líkamsnánd og líkamstjáning áberandi og okkur fínnst bók- menntum dálítið hafa verið úthýst á þessu sviði og það ekki koma nógu vel í ljós að þetta á sér miklu lengri sögu en komið hefur fram í um- ræðunni. í 7. hefti Andblæs var líkamsnánd einnig áberandi og í ritstjórnarpistli hnýti ég of- urlítið í gagnrýnanda sem ekki tók eftir þessu atriði.“ Efnisöflun í Andblæ fer fram með þeim hætti að heftinu berst talsvert efni frá ungum og upp- rennandi höfundum en einnig sækist ritstjórnin eftir efni frá þeim sem vitað er um að eru að skrifa. Ritstjórnin aðstoðar svo fólk við orðalag og uppsetningu efnis og Magnús telur það mik- inn kost fyrir fólk að geta séð verk sín á prenti. Við það sjái fólk oft hvort það á að halda áfram að skrifa eða ekki. Því má segja að Andblær nýt- ist ekki bara til að fylgjast með því sem er að gerast heldur einnig til að aðstoða fólk við ákvörðun um framhald ferilsins. -vs Andblærvarð til er ungir höfundar hitt- ust vikulega um tíma á bókmennta- kvöldum. SPJALL ■ FRÁ DEGI TIL DAGS Það er betra að fólk óttist mann en elski, geri það ekki hvorutveggja. Niccolo Machiavelli (1469-1527), Prinsinn. Þettagerðist 1. september • 1669 var Jerúsalemborg lögð í rúst. • 1666 hófust miklir brunar í London. 89 prósent borgarinnar eyðilagðist. • 1923 varð jarðskjálfti í Japan sem varð 106.000 manns að bana. • 1938 afnam Mussolini borgaraéttindi ítalskra Gyðinga. • 1939 hófst seinni heimsstyijöldin þegar Þjóðverjar réðust á PóIIand. Þau fæddust 1. september • 1933 fæddist bandaríski rokkabillý- söngvarinn Conway Twitty. • 1925 fæddist bandaríski djassarinn Art Pepper. • 1902 fæddist Carlo nokkur Gambino, sem var lengi vel einn aðalmafíósinn í New York. • 1856 fæddist á írlandi John Redmond, leiðtogi írskra þjóðernissinna. Vísa dagsins Þegar Sveinn Elíasson var kosinn aðal- maður í stjórn Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni, en hann hafði ver- ið þar varamaður og Óskar Ágústsson var felldur úr varamanssæti orti ABS þetta: Inn komst Sveinn sem aðalmaður; af því gladdist hugur minn. En ekki varð ég afþvt glaður, að Óskarféll í þetta sinn. Merkisdagurinn 1. sept. I dag er Egidíusmessa. Egidíus var einbúi í Próvins í Suður Frakklandi (d. um 721). Um Egidíus er fátt vitað með vissu en hann er talinn grískur að ætt. Brot af sögu hans er til í íslensku handriti frá 15. öld. Hann var höfuðdýrlingur á Sauða- felli í Dölum. Á deginum var nokkur veð- urtrú á íslandi. Afmælisbam dagsins Edgar Rice Burroughs er þekktastur íyrir bækurnar sem hann skrifaði um Tarsan apabróður. I Kaliforníu er heill bær sem skírður er eftir Tarsan, og heitir Tarzana. Alls skrifaði Burroughs meira en 70 skáldsögur, og nutu sumar þeirra ekki síður mik- illa vinsælda en Tarsanbækurnar. Burroughs fæddist í Chicago árið 1875, og lést árið 1950. Trúfesti Maður nokkur vildi komast að því hvort eiginkona hans og viðhald væru honum trúar. Hann bauð þeim því báðum í sigl- ingu og spurði þær svo hvora fyrir sig hvernig hin hefði hagað sér. Þegar eiginkonan kom, spurði hann hana fyrst um fólkið svona almennt og síð- an þrengdi hann spurningarnar þar til hann gat spurt um viðhaldið án þess að eiginkonuna grunaði hvers kyns var. „Þessi kona var alveg svakaleg," sagði þá eiginkonan. „Hún svaf hjá nærri hverjum karlmanni á skipinu." Maðurinn var heldur óhress með þetta en spurði viðhaldið á sama hátt og eigin- konuna og Ieiddi spurningarnar að henni. „Sú kona er gulí af konu,“ sagði þá við- haldið. „Hún var með eiginmanni sínum og þau skildu ekki eitt andartak alla ferð- ina.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.