Dagur - 01.09.1998, Side 6

Dagur - 01.09.1998, Side 6
22 - ÞRIÐJUDAGU R 1. ÁGÚST 1998 rD^tr LÍFIÐ í LANDINU Bikarmeisturum ÍBV varfagnað tilhlýðilega undirmiðnætti á sunnudagskvöldið með lúðrasveit,flugeldum, blómum og ræðum. Allflestiríbúa bæjar- ins munu hafa mætt. „Þvílíkar móttökur á bryggjunni, stór flugeldasýning og mæting- in meiriháttar í níu vindstigum. Þetta var stórkostleg sjón. Þarna var lúðrasveit og mikið blóma- haf. Þessi árangur strákanna er stór vítamínsprauta fyrir lífið hjá okkur í Eyjum,“ sagði Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri í gær- morgun, mættur snemma til skrifstofunnar eftir ánægjulega helgi. A bryggjunni ávarpaði Sig- rún Inga Sigurgeirsdóttir forseti bæjarstjórnar knattspyrnuhetj- urnar. Spilað og sungið í Herjólfsdal Sigur Eyjamanna í Bikarkeppn- inni var frækilegur. Þeir sönn- uðu að þeir eru með besta knattspyrnulið landsins. Þeir eiga stóra von um annan bikar ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Sala og endurnýjun áskriftarkorta er hafin Innifalið í áskriftarkorti eru 6 sýningar. 5 sýningar á stóra sviðinu: Solveig - Ragnar Arnalds Tveir tvöfaldir - Ray Cooney Brúðuheimilið - Henrik Ibsen Sjálfstætt fólk, Bjartur Sjálfstætt fólk, Ásta Sól- lilja - Höf.: Halldór K. Lax- ness / leikgerð: Kjartan Ragnarsson og Sigríður M. Guðmundsdóttir. 1 eftirtalinna sýninga að eigin vali: R.E.N.T. - Nýr bandarískur söngleikur Maður í mislitum sokkum - Arnmundur Backman Gamansami harmleikur- inn - Hunstad/Bonfanti Óskastjarnan - Birgir Sigurðsson Bróðir minn Ijónshjarta - Astrid Lindgren Almennt verð áskriftarkorta er kr. 8.700 Eldri borgarar og öryrkjar kr. 7.200 Miðasalan er opin mánud,- þriðjud. kl. 13-18, mið- vikud.-sunnud. kl. 13-20. Símapantanir frá kl. 10 virka daga. Sími 551 1200. Allir vita að Vestmannaeyjar og gleði merkja nánast það sama. Eyjamenn hafa löngum kunnað að gleðjast á góðri stund og heimkoma bikarmeistaranna á sunnudagskvöld undirstrikaði aðeins þá almennu vitneskju. Guðni Rúnar Helgason horfir stoltur á verðlaunagripinn. Dollan komin heim og næsta verkefni bíður: Að koma sér aftur niður á jörðina og krækja í hina dolluna líka. og ekki síðri, Islandsbikarinn sjálfan. Hann ætti að koma til Eyja eftir 3-4 vikur. Þrátt fyrir þokuna sem lagðist yfir eyjarnar naut flugeldasýn- ingin sín hið besta og fólkið á hafnarbakkanum hafði í fullu tré við rokið og fagnaði sínum mönnum ákaft. Heijólfur lagðist upp að milli hálftólf og tólf á sunnudags- kvöldið. Guðjón var í hópi þeirra sem sáu leikinn í Laugardal og kom með Herjólfi til Eyja. „Þetta var tilkomumikil sjón, mannfjöldi og bílamergðin ótrú- leg og langt upp úr öllu.“ Frá Herjólfi var haldið inn í Herj- ólfsdal þar sem stóra veitinga- tjaldið stendur enn uppi. Þar var slegið upp miklu fjöri, spilað og sungið fram undir þrjú um nótt- ina. Betel hélt sinu striM „Það er alltaf gaman að vera Vestmannaeyingur, sama á hverju gengur. Við tökum virkan þátt í lífinu, í súru sem sætu. Velgengnin er á mörgum sviðum og bjartsýni yfír staðnum. Þetta er spurning um sáninguna og uppskeruna, spurning um það hvernig menn tala. Eg geng eftir þeirri meginreglu að þakka fyrir alla hluti eins og biblían segir, það breytir hugarfarinu," segir Snorri Oskarsson í Betel. Þegar Eyjamenn hófu leik suður í Reykjavík var Snorri að hefja vikulega athöfn í Betel ásamt söfnuði sínum og þar var mjög vel mætt. En komu fréttir af gangi leiksins inn á samkom- una? „Nei, það gerði það nú ekki, við vorum einangruð frá því, en strax á eftir, um hálf fimm, feng- um við góðar fréttir af gangi Ieiksins," sagði Snorri Oskars- son. En var hann og kannski bræður hans í fótboltanum í denntíð? „Nei, við gáfum því nú alveg frí. Þess vegna voru Vestmanna- eyingar fyrst núna að sigra, hefðum við verið með hefði þetta kannski komið fyrr,“ segir Snorri og hlær dátt. „Þú sérð nú hvað það þýðir að hafa bræður í Iiði.“ Gleðivíma í Herjólfi „Þetta var eftirminnileg sigling, 499 farþegar um borð, fullskip- að. Þetta gekk allt vel og mikil gleði ríkjandi á leiðinni, menn voru afskaplega hamingjusamir með gengi liðsins," sagði Jóhann Guðjónsson stýrimaður á Herj- ólfi í gærmorgun. „Það var nokkuð stífur vindur á móti okkur, en þetta var mein- Iætisveður, við fórum grunnt með og það fór vel um bæði mannskap og skip. Við vorum þrjá tíma, kortéri lengur en vanalega. Menn voru eldhressir rétt eins og þeir voru inni á vell- inum,“ sagði Jóhann. „Ljósadýrðin var gífurleg við komuna og eftirminnileg sjón að sjá alla fólksmergðina. Það var aldeilis myndarlega tekið á móti piltunum," sagði Jóhann. Ekkert er öruggt í fótboltaniun „Eg sá þetta nú bara í sjónvarp- inu. Mér fannst þessi leikur ekki svo erfiður á að horfa, þó aldrei sé neitt öruggt í knattspyrn- unni,“ sagði Valur Andersen flugmaður í Eyjaflugi. Hann var einn af bestu knattspyrnumönn- um Eyjanna fyrir rúmum aldar- fjórðungi og stóð nærri landslið- inu. „Eg fór niður á bryggju. Þetta voru víst þúsundir að taka á móti strákunum og stemmning- in stórkostleg. Menn voru annað hvort í Herjólfi, niðri á bryggju eða þá í Reykjavík," sagði Valur i gær. „Þetta var líka ágætt inni í dal, fín móttökuathöfn í tjaldinu og menn fögnuðu sigrinum eins og vera ber,“ sagði Valur. -jbp í Bé Vaff... íBé Vaaaff... Eyjamenn syngja, dansa og gleðjastyfir frækilegum árangri sinna manna... og Keikó gleymist um stund.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.