Dagur - 18.09.1998, Blaðsíða 13
FÖSTUDjÍG'VR 1 8 ."SÉ'PTÉMÉER 1998 - 13
r*
Víypir.
ÍÞRÓTTIR
Erlendir leikmenn
aldrei verið fleiri
Nissandeildin í hand-
knattleik hefst um
helgina og verður heil
umferð spiluð á
sunnudagskvöldið
klukkan 20:00.
Liðin tólf sem leika í deildinni
hafa undirbúið sig vel fyrir
keppnina, en töluverðar breyt-
ingar hafa orðið á flestum lið-
anna frá síðustu leiktíð. Erlendir
leikmenn hafa aldrei verið fleiri í
deildinni og ber þar mest á leik-
mönnum frá Eystrasaltsríkjun-
um. Einnig hafa nokkrir fyrrum
lykilmenn liðanna horfið til út-
landa, þannig að erfitt er að
meta stöðuna í upphafi leiktíðar.
Þau tvö lið sem í ár virðast
sterkust á pappírunum eru lið
Fram og Aftureldingar, en sjald-
an hefur þó styrkur liðanna verið
jafn ófyrirséður. Leikmanna-
markaðurinn er enn opinn og
sum liðin eru enn að skoða sín
mál og eflaust eiga nýir leik-
menn eftir að bætast í hópinn.
Félagaskiptin eru opin til 1. nóv-
ember, en þeir Islendingar sem
spila með Iiðum erlendis, geta
skipt til 1. febrúar.
Reglan um fjölda erlendra
leikmanna með hveiju liði er sú,
að leikmenn frá Evrópubanda-
lagslöndunum njóta sömu rétt-
inda og íslenskir leikmenn, en
aðeins má nota tvo frá svæðum
utan EB.
Sum Iiðin hafa þegar fyllt kvót-
ann af erlendum leikmönnum
utan EB og t.d. Ieika með Fram
tveir Rússar, með Gróttu/KR
tveir Lettar, með IBV Serbi og
Lithái og með Aftureldingu tveir
Litháar.
1. iimferð
NissaTujpildarimiar
Sunnud. 20. sept.
Leikirnir hefíast kl. 20:00
Stjarnan - Valur
HK - KA
Fram - ÍR
Grótta/KR - FH
Haukar - ÍBV
UMFA - Selfoss
Úrslitakeppnin
á síðustu leiktíð
Á síðustu leiktíð var keppnin
í Nissandeildinni ótrúlega
jöfn og Ijögur lið efst og jöfn
fyrir úrslitakeppnina.
Átta lið komust áfram, sem
voru KA, Fram, FH og UMFA
með 30 stig, Valur með 27,
Haukar 25, ÍBV 24 og
Stjarnan 21 stig.
Átta liða úrslit:
KA - Stjaman 21-20
Stjaman - KA 25-26
KA áfram
UMFA-Valur 19-22
Valur - UMFA 25-22
Valur áfram
Fram - ÍBV 29 - 26
ÍBV - Fram 28 - 26
Fram - ÍBV 28-18
Fram áfram
FH - Haukar 28-21
Haukar - FH 24-18
FH - Haukar 26 - 24
FH áfram
Fjögurra liða nrslit:
KA - Valur 18 - 17
Valur - KA 25-24
KA - Valur 20 - 23
Valur áfram
Fram - FH 27 - 22
FH - Frain 25 - 19
Fram - FH 24 - 22
Fram áfram
Úrslitaleikir:
Fram-Valur 18-21
Valur - Fram 28-25
Fram - Valur 27 - 22
Valur - Fram 27 - 23
Valur Islandsmeistari
Valsliðið er eitt af fáum liðum Nissan-deiidarinnar sem ekki er með erlenda leikmenn innanborðs.
Á myndinni erJón Kristjánsson þjálfari og leikmaður I/als að skora eitt af mörkum sínum í úrslitakeppninni gegn
Fram á síðustu leiktíð.
SKOflUN
SVERRISSON
Verða að
semja
Leiðinda deila hefur átt sér stað
hjá körfuknattleikssamtökunum.
Forráðamenn félaganna og dóm-
arar hafa deilt mikið um kaup og
kjör. Það er ekkert undarlegt að
dómarar sem og aðrir launþegar
standi í kjarabaráttu. En af
hveiju núna? Af hverju er ekki
búið að afgreiða þetta mál áður
en undirbúningsmótin byija? Þar
sem leikmenn og dómarar „hita“
upp fyrir komandi átök. Reykja-
nes- og Reykjavíkurmótið hafa
farið af stað án lærðra dómara.
Það er ekki gott. Nú verða menn
að mætast á miðri Ieið og semja.
Það er stöðugt nöldur út af
dómurum í öllum íþróttagreinum
á Islandi. Hvaða rugl er þetta?
Skilja íþróttafélögin ekki, að það
er þeirra að „framleiða“ dómara
eins og leikmenn? Nei það er
ekki öfundsvert að vera dómari f
keppnisíþrótt. Og sumum finnst
það eðlilegt að kalla dómara fífl
og fávita, jú út af því að það er í
„hita leiksins". Af hverju ættu
dómarar að þola meira af svívirð-
ingum en annað venjulegt fólk.
En dómarar eru ekki heilagir
menn frekar en afreksmenn í
íþróttum. Dómarar sem heimta
meiri laun, verða að vera tilbúnir
að Ieggja meira á sig og verða
„betri“. Það hlýtur að vera kapps-
mál dómara eins og leikmanna að
ná sem lengst. Komast í alþjóð-
lega dómgæslu, en það gerist
ekki ef menn og konur dæma
ekki.
Það eru peningar í íþróttalífinu
hér á landi. Hættum öllum felu-
leik. Greiðum dómurum sem
vilja gera hlutina vel mannsæm-
andi laun. Þá verða allir ánægðir
og áhorfendur geta einbeitt sér
að þvf að styðja sín lið, en ekki
eyða allri orku á dómarann.
GUNNAR
ÍÞR Ó TTAVIÐ TALID
Deildm verðnr jö£a í ár
Öm
Magnússon
framkvæmdastjórí HSÍ
Handknattleiksvertíðin
er nú hafin ogfyrstu leik-
imirí Nissandeildintii
fara fram á sunnudaginn.
Töluverðar mannabreyt-
ingarhafa orðið hjá sum-
um liðunum og erfitt að
meta stöðuna í byrjun
tímabilsins. Dagurræddi
málin við Öm Magnússon,
framkvæmdastjóra HSÍ.
- Verða einhverjar breytingar á
jyrirkomulagi deildarinnar jrá
þvi i fyrrá?
„Það verða engar breytingar
gerðar á fyrirkomulagi Nissan-
deildarinnar frá því á síðasta leik-
tímabili. Enda held ég að það
megi segja að þetta fyrirkomulag
sem er í gangi hafi ótvírætt sann-
að sig og sé það sem menn vilja. Á
því leikur ekki nokkur vafi.
Það er ekki síst vegna þess,
hvernig úrslitakeppnin hefur þró-
ast á síðustu árum og hve spenn-
andi og skemmtileg hún hefur
verið. Ekki síður hjá kvenfólkinu
en körlunum, en hjá konunum
hefur keppnin verið einstaklega
spennandi og skemmtileg á síð-
ustu tveimur keppnistímabilum.
Þar hafa Haukar og Stjarnan háð
harða baráttu urn Islandsmeist-
aratitilinn og gífurlega mikil
stemmning skapast í kringum
leikina.
Urslitakeppnin hjá körlunum
hefur líka verið mjög skemmtileg
og ég efast um að menn vilji sjá á
eftir þeirri geysilegu stemmningu
og skemmtun sem fylgir þeirri
keppni frá byrjun til enda. 1 vor
var keppnin t.d. mjög jöfn og
spennandi, þar sem fjögur lið
komu jöfn að stigum inn í úrslitin
og önnur íjögur skammt á eftir.
Eg tel að úrslitakeppnin í sinni
mynd sé komin til að vera og á
henni munu örugglega ekki verða
gerðar neinar breytingar f nán-
ustu framtíð."
- Hvað með aðra deildina?
„Málefni annarar deildarinnar
hafa töluvert verið rædd og menn
hafa verið að leita leiða til að gera
hana meira spennandi. Það er
stöðugt verið að leita eftir hug-
myndum, en því miður höfum við
ekki enn dottið niður á neina
patentlausn."
- Áttu von á spennandi keppni
í vetur?
„Eg held að deildin verði mjög
jöfn í ár og á ekki von á því að það
verði fjögur lið efst og jöfn fyrir
úrslitakeppnina, eins og síðast.
Samt á ég von á mjög jafnri
keppni og í mínum huga verða
þetta kannski tvö lið sem eiga eft-
ir að skera sig eitthvað úr. Þar á ég
við Fram og Aftureldingu, en hin
liðin líst mér þannig á, að þar geti
orðið mjög jafnt. Eg sé heldur
ekki fyrir mér að eitthvert eitt lið
falli út án stiga eins og gerðist
með Breiðablik í fyrra, að því leyt-
inu held ég að þetta verði jafnara.
Það kæmi mér ekki á óvart að
þetti yrði vetur heimaleikjanna,
þar sem heimavöllurinn rnuni
ráða miklu fyrir Iiðin."
- Áttu von á þvt að nýliðar
Gróttu/KR og Selfoss muni
standa sig í deildinni?
„Bæði þessi lið hafa styrkt sig
og fengið til sín nýja leikmenn.
Sérstaklega þó Grótta/KR, sem
fengið hefur til sín nokkra góða
leikmenn, bæði íslenska og er-
lenda. Þessi lið verða örugglega
erfið heim að sækja og gætu hæg-
Iega gert stóru félögunum skrá-
veifu í vetur.“
- Nú hefur jjöldi útlendinga
aldrei verið meiri í islenskum
handbolta og á sama tima
hverfa sifellt fleiri íslenskir
leiktnenn til útlanda. Hvað
fmnst þér um þessa þróun?
„Það hafa aldrei verið fleiri út-
lendingar að spila hér á Iandi og á
sama tíma hafa heldur aldrei ver-
ið fleiri íslenskir Ieikmenn að
spila erlendis. Sumir segja að
þessi þróun sé slæm, en mín
skoðun er sú að með þessu þá
færist aldurinn neðar hjá okkur
hér heima. Yngri leikmenn fá
tækifæri með liðunum og leik-
menn halda Iíka lengur áfram,
heldur en var. Sá tími kemur að
þessir Ieikmenn sem eru úti, þeir
koma heim aftur reynslunni rfkari
og ég f sjálfu sér kvíði engu. Eg
held að þetta gæti þess vegna
aukið breiddina í handboltanum
og muni ekki draga úr gæðum
boltans."
- Viltu einhverju spá um röð
liðanna eftir veturinn?
„Það er erfitt að spá að þessu
sinni, en ég spái því að Framarar
verði deildarmeistarar. Síðan er
ekki ótrúlegt að Afturelding verði
í öðru sætinu. Um restina er erfitt
að spá, en þar held ég að nokkur
Iið verði í einum hnapp. Þar á ég
við lið eins og ÍBV, KA, FH, Val og
Hauka og það er gjörsamlega
ómögulegt að segja til um það
hvernig röðin verður. Stjarnan og
Grótta/KR gætu blandað sér í
hópinn, þannig að ég treysti mér
ekki til að spá um röðina. Að
sama skapi er næstum ómögulegt
að segja til um það hvaða lið muni
falla. I fyrra var hægt að sjá það
betur fyrir, en nú er það ómögu-
legt.“