Dagur - 19.09.1998, Side 1

Dagur - 19.09.1998, Side 1
I 3 3 81. og 82. árgangur- 176. tölublað Verð f /ausasö/u 200 kr. BLAÐ Laugardagur 19. september 1998 Henda á plagginu og semj a annað Kristinn H. Giumars- son alþiiigismaður viH henda mál- efnaplagginu sem kynnt var á miðvLku daginn og byrja upp á nýtt við að semja plagg og fá tH þess iðlk sem kann að vinna í pólitík. „Því miður er hér um ónýtt plagg að ræða sem á bara að henda. Síðan eiga menn að setjast niður °g byrja upp á nýtt við að semja plagg undir Ieiðsögn fólks sem kann að vinna í pólitík," segir Kristinn H. Gunnarsson þing- maður Alþýðubandalagsins á Vestljörðum, um málefnaplagg A-flokkanna og Kvennalistans, sem kynnt var á miðvikudaginn. Kristinn er end- urskoðandi að mennt og situr í fjárlaganefnd fyr- ir flokk sinn. Hann segist hafa verið að skoða plaggið og reyna að meta hvað sá loforða- listi, sem það er, muni kosta þjóð- arbúið. Hann segist ekki vera kominn með tölu sem hann telji áreiðanlega, enda orðalagið sums staðar þannig að erfitt er að átta sig á við hvað er átt. „Eg er orðinn alveg öruggur með 20 milljarða en á samt eftir að slá mati á mjög dýra liði, þannig að með fyrirvara tel ég að loforðalistinn myndi kosta á milli 30 og 40 milljarða króna á ári út næsta kjörtíma- bil,“ segir Krist- inn. Hann segir að það sé engu líkara en að fólkið sem vann plaggið hafi hreinlega skrif- að allt upp sem því datt í hug án þess að nokkur hafi gert við það at- hugasemd. Síð- an hafi verið tekið undir all- ar óskir frá öll- um í þjóðfélag- inu, sem eru eitthvað óánægðir. Að lokum hafi þessu verið stillt upp og sagt að þetta ætli menn að gera á næsta kjörtímabili. Framboðsmál Kristinn H. er einn af þeim sem enn hefur ekki gefið um það yfir- lýsingu hvort hann ætlar í fram- boð fyrir samfylkingu A-flokk- anna og Kvennalistans eða eitt- hvað annað. Dagur hefur vissu fyrir því að mjög fast hafi verið að honum lagt að koma yfir til þeirra sem kalla sig vinstrafram- boð undir forystu Steingríms J. Sigfússonar. Kristinn var spurð- ur hvort eitthvað nýtt væri að frétta af framboðshugrenningum hans? „Ég sagðist ætla að bíða og sjá hvað út úr þessari málefnavinnu kæmi. Nú er þetta allt svo óljóst að maður stendur hálf ringlaður og klórar sér í höfðinu og þarf meiri tíma til að átta sig. Ég hef svo sem ekki hugsað mér neitt annað en að vera í Alþýðubanda- laginu áfram. En ég hef líka sagt að það væri ekki sjálfgefíð að ég styddi hvaða stefnuskrá sem er og það stendur ennþá,“ sagði Kristinn. -S.DÓR Kristinn H. Gunnarsson segist ekki vera með áform um annað en að vera áfram í Alþýðubandalaginu. Þrjúnðfn samþykkt Ornefnanefnd íjallaði á fimmtu- dag um erindi frá sameiginlegu sveitarfélagi Arskógshrepps, Svarfaðardals og Dalvfkurbæjar og hins vegar frá sameinuðu sveitarfélagi fimm sveitarfélaga á Héraði um nöfn á sveitarfélögin. Frá Eyjafirði barst beiðni um umsögn um þau 7 nöfn sem íbú- ar kusu um samhliða kosningu í sveitarstjórn. Nöfnunum Ardals- vík, Norðurbyggð, Norðurslóð, Eyjafjarðarbær og Víkurströnd getur Örnefnanefnd ekki mælt með. Nefndin mælir með nafn- inu Víkurbyggð en bendir á að í nöfnum á borð við Dalvíkur- byggð eða Svarfdælabyggð væri fyrri liður ákaflega sérkennandi um hið nýja sveitarfélag í augum allra landsmanna. Nefndin telur nafnið Vallabyggð ekki ýkja sér- kennandi í huga fólks nú á tím- um, en getur mælt með heitinu. Nefndin telur heitið Austur- Hérað viðeigandi enda ekki gengið á hlut annarra Héraðsbúa með þeirri nafngift. — GG Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri í Reykjavík, tók í gær formlega í notkun fyrsta upplýsta strætisvagnabið- skýlið af 120 sem verið er að setja upp í borginni. Skýlin koma frá Svíþjóð og fjármagnar framleiðandinn upp- setningu, viðhald og þrifskýlanna með auglýsingum. Skýli af þessari gerð hafa verið sett upp í um 1.000 bæjum og borgum í Evrópu. Tap er á fíugi beggja flugfélaganna til Húsavíkur. Tap á Húsa- vikurflngi Flugfélagið Mýflug mun ganga frá samningum um kaup á nýrri flugvél á næstunni. Að sögn Leifs Hallgrímssonar, framkvæmda- stjóra Mýflugs, eru allar líkur á að ákvörðun liggi íyrir í næstu viku og verður vélin nýtt í áætl- unarflugið milli Húsavíkur og Akureyrar. Leifur segist hafa augastað á 19 manna vél en slík stærð henti einkar vel fyrir flugið milli Húsavíkur og Reykjavíkur. Vonbrigði með morgunflug Margir efast um að Húsavíkur- flugið sé til skiptanna, en ís- landsflug á í samkeppni við Mýflug á þessum fluglegg. Ljóst er að töluvert tap er sem stendur á fluginu hjá Islandsflugi, enda nýtir fyrirtækið 46 sæta vél með þriggja manna áhöfn á flugleið- inni og farþegar oft fáir. Mýflug notar tvær litíar vélar, sjö og níu manna, en Leifur telur einnig ljóst að einhver hallarekstur hafí orðið hjá þeim á flugleiðinni. Fyrir liggur að breytingar verða á áætlun Mýflugs í næsta mán- uði. Morgunflugið hefur valdið vonbrigðum að sögn Leifs og verður því hugsanlega flýtt frá því sem nú er. Mýflug fer í loftið 8.30 á morgnana. Leifur segir að þótt áætlun verði endurskoðuð sé ekki þar með sagt að ferðatíðni minnki. — bþ 60 hreindýr afgangs Veiðitíma hreindýra er lokið og vantaði nokkuð á upp á að veitt væri upp í kvótann. Hann var 141 tarfur og 156 kýr og veidd- ust 113 tarfar en 126 kýr. Alls vantar því 58 dýr upp á leyfilega veiði sem er hlutfallslega óvenju mikið. Aðalsteinn Aðalsteinsson, starfsmaður hreindýraráðs, segir að veiðarnar hafí gengið mis- jafnlega. A sumum svæðum hafi náðst að veiða allan kvótann en annars staðar hafi veiðimenn byrjað of seint, auk þess sem veður hafí haft áhrif. A fjórum svæðum af níu var veiði lítil.— BÞ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ i^air ■ UÉI t ö I v a n iét-dSi. f: v ■ Afgreiddir samdægurs Venjulcgir og demantsskomir trúlofunarhringar GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI - SÍMI 462 3524 tmfítumoe exfmsT EITT NÚMER AÐ MUNA 5351100

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.