Dagur - 19.09.1998, Síða 5

Dagur - 19.09.1998, Síða 5
LAUGARDAGUR 19.SEPTEMBER 1998 - S FRÉTTIR Sopliia býður 15 mmj ónir á borðið Túngata 32, eign dánarbús Rúnu Guðmundsdóttur [að kjallara frátöldum). Hálf- systurnar Sophia Hansen og Rósa Rúnudóttir hafa báðar boðið um 15 milljónir króna í eignina, en skiptastjóri vill að eignin seljist á frjálsum markaði. MYND: TEtTUR Sophia Hansen keppir við systur sína tun að kaupa húseign úr dán- arhúi móður þeirra - gerði 15 miUjóna króna staðgreiðslutil- boð. Málið komið fyr- ir héraðsdóm. Þingfest var í gær fyrir Héraðs- dómi Reykjavfkur ágreiningsmál sem sprottið hefur upp milli Sophiu Hansen og hálfsystur hennar Rósu G. Rúnudóttur, en ágreiningurinn lýtur að ráðstöf- un húseignar úr dánarbúi móður þeirra. Þær vilja báðar eignast húsið að Túngötu 32 og gert til- boð - Sophia býður 14,6 milljón- ir króna staðgreitt í húsið og hef- ur arfshlutinn þá verið dreginn frá og staðgreiðsluafsláttur reiknaður. Lögerfingjarnir eru sjö hálf- systkini og hafa systkini Sophiu og Rósu tekið afstöðu með Sophiu í málinu - samþykkt að hún fái að kaupa húsið. Rósa, sem á um 40 ferðir að baki með Sophiu til Tyrldands vegna for- ræðisdeilu systur sinnar við Halim AI, vill ekki sætta sig við þá ráðstöfun og gerði gagntilboð sem metið er á 15,5 milljónir króna. Jóhannes R. Jóhannsson, skiptastjóri dánarbúsins, hefur úrskurðað að þar sem ekki er samstaða meðal erfingja skuli fasteignin seljast á frjálsum markaði, en að kröfu lögmanns Sophiu, Ragnars H. Hall, hefur málinu verið skotið til úrskurðar héraðsdóms. Skiptastjóri mun ít- rekað hafa leitað sátta í málinu en án árangurs. Lögmenn systranna vildu lítið um málið segja. Ragnar telur að um einfalt framkvæmdaratriði sé að ræða í skiptum á dánarbúi og telur að öðru Ieyti ekkert tilefni til að fjalla um málið í fjölmiðl- um. Hann segir að unnið sé að þvf að ná sáttum í málinu og tek- ur Sigurður Helgi Guðjónsson, lögmaður Rósu, undir það. „Það er uppi ágreiningur í málinu en skiptastjóri féllst á það með Rósu að það ætti að selja húsið hæst- bjóðanda. Agreiningnum hefur verið vísað til héraðsdóms, en við vonum að sættir náist bráðlega," segir Sigurður Helgi. Túngata 32 er vegleg fasteign sem kunnugir telja að sé gott bet- ur meira virði en 15 milljónir króna á frjálsum markaði. Þriggja milljóna króna veð hvílir á eign- inni. Nú er Sophia skráð þar til heimilis og má heita fullvíst að hún eignist húsið með fulltingi systkina sinna annarra en Rósu. Persónulegt mál, segir Sophia „Það er algjörlega persónulegt mál hvers og eins hvernig hann fjármagnar sín fasteignakaup. Það er einnig persónulegt mál hvers og eins hvert hann leitar um lánafyrirgreiðslu í því sam- bandi,“ er það eina sem Sophia vildi segja um málið. „Ef fólk gengur með þær ranghugmyndir að þetta sé fjármagnað með söfnunarfé þá vísa ég því per- sónulega alfarið á bug og bendi á formann fjárgæsluráðs, Benedikt Sveinsson lækni, til staðfestingar að svo sé ekki,“ segir Sigurður Pétur Harðarson, umsjónarmað- ur söfnunarinnar „Börnin heim“. - FÞG Mikilvægt er að opinská umræða hefjist segir Magnús L. Sveinsson formaður VR. í stríð gegn áreitni „Félögin telja áreitni af þessu tagi óþolandi á vinnustöðum. Þetta á ekki bara við um kyn- ferðislega áreitni heldur áreitni af öllum toga. Einelti er líka ólíðandi. Áreitni sem er í óþökk þolandans er sá útgangspunktur sem hægt er að ganga út frá,“ svaraði Magnús L. Sveinsson, formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur, sem hefur gengið til samstarfs við FIS og Samtök verslunarinnar um sameiginlegt átak gegn áreitni. Kveikjuna að því segja talsmenn samtakanna þá, að til þeirra hafi verið leitað í vaxandi mæli um ráð til að bregðast við slíkum vandamál- um. Ákveðið var að gefa út bækling um efnið sem félögin dreifa. I framhaldinu ætlar VR að gera sérstakt fræðsluefni fyrir trúnaðarmenn og halda nám- skeið fyrir þá. Eg held að það sé mikið meira um þetta en menn hafa gert sér grein fyrir. Mikil- vægt er að opinská umræða hefj- ist um þetta vandamál og kanns- ki besta vömin,“ sagði Magnús. 135 milljóiiir til að bjarga Loðsktnni „Heilagar kýrÍÉ Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs- ráðherra, sagði á aðalfundi Sam- taka fiskvinnslustöðva í gær að sú krafa sjómanna að skylda allan fisk á markað hefði veikt efnahagslega stöðu Islendinga auk þess sem hún hefði trauðla staðist ákvæði stjórn- arskrárinnar. Höggvið hefði verið á þann hnút með stofnun Kvóta- þings og Verðlagsstofu skiptaverðs. „Þegar hvert skip hefur fyrirfram ákveðna aflahlutdeild felst afrakst- ur útgerðarfyrirtækis ekki í að veiða sem mest heldur í hinu að veiða með sem minnstum tilkostnaði. Launakerfi sjómanna fellur vissu- lega illa að þessum grundvallarbreytingum sem átt hafa sér stað. Eg veit að það er veruleg hætta á áframhaldandi árekstrum ef við leitum ekki kerfislegra lausna. Sumir segja að þetta þýði ekki að nefna því að hlutaskiptakerfið sé heilagt með sama hætti og kýrnar á Indlandi," sagði Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra. — GG Fagna gagnagrunnsfnimvarpmu Stjórn MS felags Islands fagnar þeim nýju mögufeikum sem felast í gagnagrunnsfrumvarpi ríkisstjórnarinnar til að rannsaka, auka skiln- ing og leita Iækninga á sjúkdómum. Þetta kemur fram í fréttatilkynn- ingu frá félaginu. Stjórnin treystir því að stjórnvöld búi svo um hnúta að almenningur þurfi ekki að óttast misnotkun upplýsinga. Þess má geta að yfirlýsingin er sú fyrsta sem fram kemur til stuðnings frum- varpinu. Mótuð verði stefna í fLutnmgamáliiiii Ársfundur Hafnasambands sveitarfélaga hefur beint því til sam- gönguráðherra að mótuð verði stefna í flutningamálum á sjó, landi og í lofti. I ályktun fundarins, sem haldinn var í Vestmannaeyjum nú í vikunni, er minnt á að sjóflutningar séu umhverfisvænni en land- flutningar og telur fundurinn mikilvægt að notendur greiði eðlilega kostnaðarhlutdeild í uppbyggingu og rekstri samgöngumannvirkja, sem myndi hafa í för með sér aukna sjóflutninga á kostnað landflutn- inga. 1 Jeppaflotinn fyrir utan Skíðaskálann í Hveradölum var til vitnis um að Fisk- vinnslustjórnendur voru á fundi. Erfið staða er komin upp hjá fyr- irtækjum í skinnaútflutningi. Verðfall á skinnum, kreppa í Rússlandi, hrun Asíumarkaða og hlýindi valda stórfelldum tekju- samdætti auk þess sem birgðir hrannast upp. Þetta ástand kem- ur upp á sama tíma og ákveðið hefur verið að ráðast í umfangs- miklar björgunaraðgerðir fyrir rekstur sútunarverksmiðjunnar Loðskinns á Sauðárkróki. Að sögn Margeirs Friðriksson- ar, framkvæmdastjóra Loð- skinns, hefur verið ákveðið að fyrirtækið fái um 135 milljónir króna til að komast á kjöl. Bæði Búnaðarbankinn og hið nýja sameinaða sveitarfélag í Skaga- firði munu leggja til 50 milljónir en aðrir hluthafar 30-35 milljón- ir. En hvað segir Margeir um framhaldið? „Við liggjum með miklar birgðir, en það er viður- kennd staða að saumastofur eiga engin skinn og búðir enga jakka. Allir bíða eftir að búðirnar panti og saumastofurnar í kjölfarið. Það er erfitt að segja til um hvenær eftirspurnin hefst, en maður vonar að úr rætist sem fyrst. Eitthvað fer þetta líka eftir veðri,“ segir Margeir. Starfsfólki hefur fækkað hjá Loðskinni að undanförnu en þó starfa enn um 40 manns hjá fyr- irtækinu. „Þetta er mjög erfitt. Flestar verksmiðjur eru núna með hálffull hús frá síðasta ári en þurfa nú að taka við nýju hrá- efni án þess að eiga auðvelt með að spá í framhaldið," segir Mar- geir. Skinnaiðnaður á Akureyri hef- ur jafnframt orðið fyrir skakka- föllum í rekstri vegna verðhruns á hrágærumörkuðum að undan- förnu. Verð er í sögulegu lág- marki og er meginástæðan efna- hagskreppan í Rússlandi. Rússar kaupa gífurlegt magn af flíkum unnum úr mokkaskinnum og samdrátturinn nú kemur á versta tíma fyrir útflutning Skinnaiðn- aðar. Heimsmarkaður hafði ekki náð jafnvægi eftir hrun á mörk- uðum Asíu í Iok síðasta árs, auk þess sem veðurfar hefur leitt til samdráttar á flestum mörkuðum öðrum það sem af er þessu ári. Sölutekjur Skinnaiðnaðar drógust saman um 30 prósent á síðasta söluári sem þýðir stór- aukna birgðasöfnun. Sveiflur í greininni eru hins vegar engin nýlunda og ólíkt Loðskinni hefur Skinnaiðnaður ágæta stöðu til að mæta skakkaföllum, enda hafa síðustu ár verið fyrirtækinu hagstæð. Við milliuppgjör 28. febrúar síðastliðinn nam eigið fé Skinnaiðnaðar 344 milljónum eða 38,2 prósentum. Bjarni Jón- asson, framkvæmdastjóri Skinnaiðnaðar, vonast til að botninum sé náð, en telur þó Iitlar líkur á að jafnvægi komist á markaði að nýju fyrr en kemur fram á næsta ár. — BÞ

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.