Dagur - 19.09.1998, Page 7

Dagur - 19.09.1998, Page 7
\ ÐMýtr RITSTJÓRNARSPJALL LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1998 - 7 1 Þriðja og stærsta breytingin sem er að verða í íslenskum stjórnmálum um þessar mundir er tilraun Alþýðuflokksins og meirihluta Alþýðubandalagsins og Kvennalistans til að bjóða fram saman til þings undir merki nýrrar málefnaskrár sem sá dagsins Ijós í vikunni. Simdur og ELIAS SNÆLAND JÓNSSON SKRIFAR Viðburðaríkri viku í sögu vinstri manna á íslandi er að ljúka. Fyrst klofnaði þingflokkur Al- þýðubandalagsins formlega þeg- ar þriðjungur þingmannanna sagði skilið við gömlu félagana. Síðan kynntu forystumenn Al- þýðuflokksins, Alþýðubandalags- ins og Samtaka um kvennalista nýja málefnaskrá sameiginlegs framboðs við næstu alþingis- kosningar. Loks stofnuðu þre- menningarnir úr Alþýðubanda- laginu og Kristín Astgeirsdóttir, sem yfirgaf Kvennalistann fyrir nokkrum mánuðum, sameigin- legan þingflokk óháðra og hafa með sér nokkra varaþingmenn, þeirra á meðal Guðrúnu Helga- dóttur. Það má því með sanni segja að „sundur og saman" eigi vel við atburðarásina á vinstri væng islenskra stjórnmála síð- ustu daga. Fyrir liggur að óháði þingflokk- urinn er fyrst og fremst tæknilegt fyrirbæri sem einungis á að lifa af komandi vetur. Þótt þremenn- ingarnir sem fóru úr Alþýðu- bandalaginu hyggi á framhaldslíf í stjórnmálum virðist Kristín Ast- geirsdóttir vera á útleið af þingi næsta vor. Sameiningarmenn hugsa hins vegar til Iengri framtíðar; sam- kvæmt því sem fram kemur í málefnaskránni er hún stefna samfylkingarinnar fyrir næsta kjörtímabil og lýsir þeim málum sem koma á í framkvæmd ef hið nýja framboð nær þeim árangri að setjast í næstu ríkisstjórn. Andlát Kvennalistans Nauðsynlegt er að líta á þessa at- burði alla í samhengi vegna þess að þeir eru liður í því verulega breytta umhverfi sem framund- an er í íslenskum stjórnmálum. Hvað breytist? I fyrsta lagi er Ijóst að þeirri til- raun sem gerð var til að halda úti stjórnmálahreyfingu sem næði konum á þing á grundvelli kvennabaráttunnar er endanlega Iokið. Segja má að hún hafi stað- ið Iengur en margir höfðu trú á í upphafi og hafi haft veruleg áhrif, þar á meðal á stöðu kvenna í öðrum flokkum. En endalokin voru óumflýjanleg vegna almenns fylgisleysis eins og augljóst er af skoðanakönn- unum síðustu missera. Eins og gjarnan verður þegar pólitísk hreyfing lognast út af dreifast fylgismenn hennar í ýmsar áttir. Það er aðeins hluti Kvennalistans sem gengur til kosningasamstarfs við A-flokk- ana og alls ekki hægt að reikna með þ\á að allt það fylgi sem Kvennalistinn fékk þó í síðustu þingkosningum skili sér til sam- eiginlegs framboðs næsta vor. Þvert á móti virðist augljóst að það muni dreifast á fleiri lista. „Hrein“ vinstristefna I öðru lagi klofnar Alþýðubanda- lagið og getur af sér nýjan flokk sem verður Iengst til vinstri í ís- lenskum stjórnmálum. Sögulega séð má vafalaust líta á væntan- legan stjórnmálaflokk Stein- gríms J. Sigfússonar, Hjörleifs Guttormssonar, Ögmundar Jón- assonar og fleiri sem hugmynda- fræðilegan arftaka þeirra flokka sem kommúnistar og sósíalistar stofnuðu á fyrri hluta aldarinnar. Þetta er það fólk sem afneitar „kratisma“ sem hægristefnu eða miðjumoði og vill nú fá flokk með „hreina“ vinstristefnu. Hver hún er mun væntanlega koma í ljós þegar vetrar og nýi flokkur- inn kynnir stefnuskrá sína. Alþýðubandalagið hefur auð- vitað lengi verið samfylking tveggja ólíkra arma sem áður hafa tekist svo harkalega á að leitt hefur til klofnings. Það sem er frábrugðið fyrri átökum af því tagi er einkum að núna er það vinstri armurinn sem fer úr flokknum. Margir hafa orðið til að spá þessum nýja vinstriflókki tak- mörkuðu fylgi. En það er alltof snemmt að segja til um hvaða stöðu hann nær í almenningsá- litinu þegar líður á veturinn. Reyndar er það ekki nema að hluta til undir þeim sjálfum komið sem þar eru í forystu. Það skiptir nefnilega miklu máli fyrir framgang nýja vinstriflokksins hvernig aðrir flokkar, og þá ekki síst Framsóknarflokkurinn og sameinaða framboðið, standa sig næstu mánuði. SamfylMngarstefnan Þá er komið að þriðju og stærstu breytingunni sem er að verða í íslenskum stjórnmálum um þessar mundir; tilraun Alþýðu- flokksins og meirihluta Alþýðu- bandalagsins og Kvennalistans til að bjóða fram saman til þings undir merki nýrrar málefnaskrár sem sá dagsins ljós f vikunni. Óhætt er að fullyrða að þetta plagg er á ýmsan hátt allt öðru- vísi en margir höfðu reiknað með. Þar er margt fallega sagt og hugsað. Miklu er lofað á flestum sviðum þjóðmálanna. Hins vegar skortir samhengi, forgangsröð og það sem mestu máli skiptir; áætl- un um hvernig eigi að standa að því að efna loforðin ef nýja fram- boðið kemst í ríkisstjóm. Sú sjálfsagða krafa er gerð til stjórnmálaflokka nú á dögum að þeir skýri þjóðinni ekki aðeins frá því hvað þeir hyggist gera heldur einnig hvernig þeir ætli saman að fara að því. Með því að hækka skatta? Með því að skera niður ríkisútgjöld á móti og þá hvað? Loforðasúpa án slíks rökstuðn- ings er ekki nógu trúverðug. Hitt er svo annað mál að það eru enn nokkrir mánuðir til þing- kosninga. Forystu sameiginlega framboðsins gefst því tækifæri næstu vikur og jafnvel mánuði til að forgangsraða loforðunum og útskýra hvernig þau verði fram- kvæmd. Að þvf leytinu til má kannski líta á þetta stefnuplagg sem upphaflegan óskalista sem eftir sé að sníða úr marktæka og raunhæfa stefnuskrá, þótt svo sé ekki að skilja á plagginu sjálfu. Milljarðamir Öll loforðin hafa dregið athygl- ina frá þeirri gleðilegu staðreynd að mörg jákvæð grundvallar- þemu renna sem rauður þráður í gegnum málefnaskrá samfylk- ingarinnar. Til dæmis sú mikla áhersla sem lögð er á fjölskyld- una, jafnréttið, rétt almennings, virkt lýðræði og verndun um- hverfisins. Þessu ber að fagna. En margt af því sem lagt er til að gera á þessum sviðum og öðr- um hlýtur að kosta samfélagið mikla fjármuni. Lítum á nokkrur atriði af handahófi: Samræmd verði lífeyrisréttindi og fæðingarorlof opinberra starfsmanna og starfsmanna á almenna markaðinum, væntan- lega til hækkunar fyrir hina síð- arnefndu. Fæðingarorlof verði 12 mánuðir á fullum launum. Barnabætur hækki og skerðist ekki við hærri tekjur. Komugjöld í heilsugæslunni verði afnumin og tannlækningar felldar inn í þá þjónustu sem heilsugæslan veit- ir. Hærri greiðslur til aðstand- enda sjúklinga. Aukið fjármagn til reksturs sjúkrahúsa og heilsu- gæslustöðva. Ókeypis geðheil- brigðisþjónusta barna og ung- linga. Skólagjöld verði afnumin. Endurgreiðsluhlutfall námslána verði lækkað, framfærslugrunn- urinn hækkaður og námslánin gerð vaxtalaus. Framlög til rann- sókna og menntamála verði hækkuð til jafns við það sem ger- ist best meðal annarra þjóða. Virðisaukaskattur á bækur og tímarit verði afnuminn. Framlög til kvikmyndasjóðs hækki. Auk- inn stuðningur við menningar- og listastarfsemi. Húsnæðisbæt- ur verði skattfrjálsar. Bætur til aldraðra dugi til framfærslu og fylgi almennum launahækkun- um. Örorkubætur hækki. Dregið verði úr tekjutengingu bóta. Boðaður er öflugur stuðningur við ráðgjafa- og þjónustustarf í atvinnulífinu. Framfærslukostn- aður sem er misjafn eftir búsetu, svo sem vegna heilbrigðisþjón- ustu, húshitunar og náms, verði jafnaður. Þannig mætti halda áfram að telja upp loforð sem kosta peninga. Andstæðingar málaefnaskrár- innar hafa fullyrt að reikningur- inn fyrir þetta muni nema tugum milljarða á ári. Hvort sem það er rétt eða ekki hlýtur öllum að vera ljóst að þetta allt, og margt fleira sem lofað er í plagginu, verður ekki gert á fjórum árum með þeim Qármunum sem ríkið hefur til ráðstöfunar. Síst af öllu ef ætlunin er, eins og segir í mála- efnaskránni, að miða stefnuna í ríkisfjármálum við að „tryggja stöðugleika, lága verðbólgu, stöðugt gengi og lága vexti.“ Þrátt fyrir hugsanlegan sparn- að og niðurskurð á ýmsum svið- um hlýtur loforðalisti af þessu tagi að kalla á stórfelldar skatta- hækkanir hjá launafólki í land- inu. Þjóðin mun hafna slíkri skattpíningu, enda telur almenn- ingur sig með réttu nú þegar greiða meiri skatta til ríkis og sveitarfélaga en góðu hófi gegnir.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.