Dagur - 19.09.1998, Qupperneq 8

Dagur - 19.09.1998, Qupperneq 8
8- LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1998 FRÉTTASKÝRING amrikl ar 1 en litlaus kosnin QUNNARH. ARSÆLSSON STJÖRNMÁLAFRÆÐINGUR I UPPSÖLUM, SVlÞJÓÐ Á morgun, sunnudag, ganga Sví- ar að kjörborðinu, en þá verða haldnar almennar kosningar til þings, bæjar- og sveitarstjórna. Kosningabaráttan í ár er af mörgum talin vera í líkingu við sumarið sem nú er Iiðið, afar dauf og litlaus og að lítill hiti sé í lykilmönnum baráttunnar. Jafn- aðarmenn (Socialdemokraterna) hafa stjórnað Svíþjóð í samvinnu við Miðflokkinn (Centerpartiet) á því kjörtímabili sem nú er að Ijúka og hefur Miðflokkurinn stutt jafnaðarmenn í að koma málum sínum í gegn um þingið. Jafnaðarmenn vilja að sjálfsögðu gera allt til þess að halda völdum áfram, en þetta eru fyrstu kosn- ingar þeirra undir formennsku Görans Persson. Kosningarnar í ár eru þrátt fyr- ir þetta merkilegar að mörgu leyti. Carl Bildt, Ieiðtogi hægrimanna (Moderaterna), reynir eftir fremsta megni að leiða Svíum það fyrir sjónir að nú þurfi virkilega að skipta um stjórn og koma efna- hagnum á skrið að nýju, m.a. með því að lækka skatta. Ef Carl Bildt tekst ekki að verða forsætisráð- herra eru margir sem spá þvf að hann muni á ný hverfa á vit verk- efna á vegum Sameinuðu þjóð- anna, en hann var sem kunnugt er háttsettur fulltrúi þeirra í fyrr- um Júgóslavíu. sem er neðarlega á lista, komist inn á þing í skjóli tiltölulega fárra atkvæða. Áhugi kjósenda fyrir persónu- vali er lítill ef marka má skoðana- könnun sem birt var um síðustu helgi. Þá sögðust 61% aðspurðra ekki ætla að nýta sér þennan möguleika og hafði þessi tala hækkað um heil 15% á aðeins nokkrum vikum. Metfjöldi nýrra kjósenda Fjöldi kjósenda sem nú kjósa í fyrsta sinn er óvenju mikill, eða um 600.000. Mjög mikilvægt er því fyrir flokkana að ná til þessara ungu kjósenda. Það virðist hins vegar ekki ganga mjög vel og af fjölmiðlum að dæma er mikið áhugaleysi ríkjandi hjá ungum kjósendum, sem margir segja sig ekki eiga neitt sameiginlegt með „gömlu" flokkunum. Þetta ætti hinsvegar að geta komið Um- hverfisflokknum (Miljöpartiet) til Göran Persson. Lítill áhugi á persónuvali I ár verður bryddað upp á þeirri nýjung að kjósendur geta kosið einstaklinga í persónuvali, en ekki bara flokkslista. Hver kjós- andi má krossa við einn fram- bjóðanda. Þetta fyrirkomulag gæti hleypt fjöri í kosningarnar og úrslit þeirra. Ef tekið er dæmi frá kosningum til þingsins, þá þarf frambjóðandi að fá átta prósent greiddra atkvæða til flokksins í kjördæminu til þess að komast inn á þing og gæti þess vegna far- ið upp fyrir efsta mann á lista flokksins. Það er því alls ekki gef- ið að sætaskipan Iistanna haldist þegar upp verður staðið. Nokkurs misskilnings hefur gætt varðandi persónuvalið og í hæklingi frá skattayfirvöldum segir að kjósandi sem ekki krossi við einn einstakan frambjóðanda samþykki þar með uppröðun flokksins. „Rangt,“ segir Tommy Möller, stjórnmálafræðingur við háskólann í Uppsala og einn nefndarmanna sem hafa rannsak- að áhrif persónuvalsins. Til þess að samþykkja uppröðun flokksins verði kjósandinn að krossa við efsta mann listans. Ef kjósandi krossar ekki við neinn, þá eftir- lætur hann öðrum sem velja frambjóðanda það að raða upp frambjóðendunum til þings og gæti þá farið svo að frambjóðandi góða, en ungum kjósendum er töluvert umhugað um þau mál- efni. Gallinn er bara sá að annar talsmaður flokksins, Marianne Samuelsson, þykir afskaplega lit- laus og slöpp í kosningabarátt- unni og tekst því ekki að höfða til ungra kvenkyns kjósenda. Hinn talsmaður flokksins, Birger Schlaug, hefur verið mun meira í Carl Bildt. sviðsljósinu og talað mikið um eitt aðalmál flokksins í þessari kosningabaráttu, styttingu vinnu- tíma. Hann segir að stytting vinnudagsins um 2 klst. geti skapað tugi þúsunda nýrra starfa. Dauðaþögn uni myntbanda- lagið, EMU Annað sem vakið hefur athygli er dauðaþögn jafnaðarmanna um EMU málefni. Svíar standa fyrir utan myntbandalagið og hefur Göran Persson sagt að málið verði rætt eftir kosningar, þá skuli lífleg umræða fara í gang. Carl Bildt hefur gagnrýnt þetta harð- lega, en hægrimenn vilja án nokkurs vafa ganga inn í EMU, og vilja að Svíþjóð verði með í Evrópubandalaginu í einu og öllu. Það vilja Þjóðarflokksmenn (Folkpartiet), með nýjan leiðtoga, Lars Lejonborg, í broddi fylking- ar, einnig gera. Kristilegir demókratar (Kristdemokraterna), með Alf Svensson í fararbroddi vilja láta þjóðaratkvæðagreiðslu skera úr um þetta. Miðflokkur- inn, Umhverfisflokkurinn og Vinstriflokkurinn (Vánsterparti- et) vilja hinsvegar ekki sjá Svíþjóð í EMU. Skoðanakannanir Undanfarið hafa daglega birst skoðanakannanir um fylgi flokk- anna. Vinstriflokkurinn undir formennsku Gudrun Schyman, sem nú leiðir flokkinn í fyrsta sinn í gegn um kosningar, hefur töluvert sótt í sig veðrið og fengið allt upp í 14% fylgi (fékk 6.2% í kosningunum 1994). Ef þetta gengur eftir verður þetta glæsi- legur sigur fyrir flokkinn, sem fékk hæst 10.3% í kosningunum árið 1944, og Schyman persónu- lega. Hún hefur gengið í gegnum miklar raunir á síðustu misserum og viðurkenndi í vor opinberlega áfengissýki sína og fór í meðferð. Þrátt fyrir þetta var hún endur- kosin sem formaður flokksins. Um síðustu helgi var svo birt ný skoðanakönnun sem sýndi að Kristilegir demókratar fengju um 9% fylgi. Þetta eru stór tíðindi fyrir flokkinn, sem fékk 7.1% í kosningum 1991, en aðeins 4.1% 1994. Skýringin á þessu er talin vera sú að óánægðir kjós- endur bæði frá jafnaðarmönnum og hægrimönnum séu að flytja sig til og geti jafnvel hugsað sér að kjósa Kristilega í þetta sinn. Jafnaðarmenn geta hinsvegar ekki verið ánægðir með sínar töl- ur í skoðanakönnunum. Flokkur- inn hefur legið fyrir neðan 40% og farið allt niður í 34%, sem hrellir flokksmenn. Það stefnir því í mun verri kosningu í þetta sinn, en flokkurinn fékk 45.2% árið 1994. Þetta hefur valdið flokksforystunni verulegum áhyggjum. Þrátt fyrir að engu sé til sparað og flokkurinn fái ríku- legan stuðning frá stærstu verka- lýðssamtökum Svíþjóðar, LO (Landsorganisationen), um 800 milljónir ís.kr., virðast margir fylgismenn jafnaðarmanna vera á báðum áttum og í nýlegri skoð- anakönnun meðal járniðnar- manna og bæjarstarfsmanna (flestir í þessum hópum hafa ver- ið gallharðir stuðningsmenn flokksins í gegn um árin) kom í Frá kosningafundi. Bildt og miðflokksleiðtoginn Dalé Ijós að aðeins um þriðjungur þeirra var ákveðinn í að kjósa flokkinn, sem er mjög lágt. Hægrimenn hafa legið á bilinu 25-30%, Þjóðarflokkurinn, Kristi- legir demókratar, Umhverfis- flokkurinn og Miðflokkurinn hafa allir legið frá rúmum fjórum prósentum til níu (4% er lágmark til að koma manni á þing). Nýjum leiðtoga Miðflokksins, Lennart Daléus, hefur ekki tekist að hífa flokkinn upp úr þeirri Iægð sem fyrri formaður, Olof Johansson, skildi eftir sig. Daléus hefur einn- ig afþakkað áframhaldandi sam- starf við jafnaðarmenn og vill þess í stað skapa „Ríki miðjunn- ar“ (Mittens rike), grundvallað á góðri miðjupólitík. Honum hefur hinsvegar gengið verr að útskýra út á hvað þetta miðjunnar ríki gengur. Tvísýnt nm borgaralega stjóm Möguleikarnir á borgaralegri meirihlutastjórn eru því ansi tæp- ir eins og staðan er. I því sam- starfi myndu t.d. Hægrimenn og Miðflokksmenn ekki geta komið sér saman um afdrif Barsebáck kjarnorkuversins á Skáni, S-Sví- þjóð, en ríkisstjórnin ákvað fyrr á

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.