Dagur - 19.09.1998, Side 9
Xfc^ur
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1 9r9~8" - 9
kosniiigar
gábarátta
us takast á.
þessu ári að loka því nú í sumar
(sem hefur ekki gerst). Þetta var
mikið kappsmál fyrir Olof Johans-
son og gert samkvæmt þjóðarat-
kvæðagreiðslu sem fram fór fyrir
17 árum síðan. Hægrimenn vilja
að Barseback starfi áfram, m.a.
vegna þess að enn sé ekki kominn
fram orkugjafi sem myndi fylla
það raforkugat sem lokun Bar-
seback myndi skilja eftir sig. Þeim
finnst þetta líka einfaldlega
heimskuleg orkupólitík. Nú er
málið komið til Evrópudómstóls-
ins og geta liðið nokkur ár þangað
til málið fær lendingu.
Jafnaðarmenn eru heldur ekk-
ert alltof hrifnir af þeirri tilhugs-
un að stjórna í samvinnu við
Vinstriflokkinn, sem gæti mögu-
Iega gefið af sér meirihlutastjórn,
ef sósíaldemókratar fá yfir 40%
fylgi og Vinstriflokkurinn um
10%. Gudrun Schyman vill t.a.m.
fara hægar í sakirnar með afborg-
anir erlendra skulda (sem nema
um 1400 milljörðum sænskra
króna), en þar vilja jafnaðarmenn
ganga ákveðið fram á næsta kjör-
tímabili. Helst vill Persson halda
stöðunni eftir kosningar í sama
formi og fyrir kosningar, þ.e. að
jafnaðarmenn verði með einhvern
lítinn og þægan smáflokk sér við
hlið, sem þvælist ekki mikið fyrir
„stóra stráknum“ í sænskri pólitík.
Atvtnnuleysið og efnahags-
mál afgerandi þáttur í kosn-
ingimum
Atvinnuleysi í Svíþjóð er gríðarlegt
vandamál. Um 20% af síðustu
fjárlögum (ca. 1500 milljarðar
ís.kr.) soguðust upp vegna þess og
nú eru um 500.000 Svíar án at-
vinnu eða í svokölluðum „atvinnu-
markaðsaðgerðum.“ Mörgum
fínnst algerlega skorta á að jafnað-
armenn hafi komið fram með hug-
myndir og tillögur sem miða að
því að minnka atvinnuleysið.
Þessu hefur Göran Persson mót-
mælt og sagt að besta meðalið
gegn atvinnuleysi sé bættur fjár-
hagur ríkisins, lágir vextir og lág
verðbólga. Varla má ræða um
skattalækkanir og hefur Persson
engu Iofað í þeim efnum en segir
að athuga megi málið á næsta
kjörtímabili. Jafnaðarmenn hafa
lofað hækkuðum barnabótum og
lækkuðum dagheimilisgjöldum.
Anders Sundström, ráðherra efna-
hagsmála, sagði íyrr í mánuðinum
að þetta jafngilti skattalækkunum,
væri neysluhvetjandi og þar með
atvinnuskapandi. Þetta væri því
aðgerð sem miðaði að minnkuðu
atvinnuleysi! Þess má geta að Sví-
ar borga hæstu skatta í heimi, alls
fara um 60% allra launa í beina og
óbeina skatta.
Hægrimenn vilja lækka skatta
strax og einfalda regluverk á þann
hátt að auðveldara verði að stofna
og reka smáfyrirtæki, og þeir vilja
afnema fjármagnstekjuskatt. Þeir
vilja vinna gegn því „styrkjasamfé-
lagi“ sem þeir kalla Svíþjóð, en ár-
lega þurfa um 750.000 manns að
lifa á svokölluðu „socialbidragi“,
sem er opinber framfærslustyrkur.
Hægrimenn vilja einnig að fleiri
konur stofni og reki fyrirtæki, en
samanburður við önnur lönd er
óhagstæður sænskum konum að
þessu leyti.
Líklegt verður að teljast að smá-
flokkarnir; Þjóðarflokkurinn (með
frjálslynda hugmyndafræði), Um-
hverfisflokkurinn og Kristilegir
demókratar (þrátt fyrir gott fylgi í
skoðanakönnunum) verði áfram í
einskonar aukahlutverki eftir
kosningarnar. AUir eru þessi flokk-
ar veikir í eðli sínu og rödd þeirra
veikist gagnvart risunum tveimur,
þremur ef Vinstriflokkurinn fær
góða kosningu. Einhver eða ein-
hverjir þeirra gætu þó reynst
nauðsynleg hjól undir næsta ríkis-
stjórnarvagn í Svíþjóð, hvort sem
það verður stjórn jafnaðarmanna
eða hægrimanna. Allir flokkar
hafa haldið öllu opnu í sambandi
við hvernig stjórn þeir vilja
mynda og hlýtur það að gera kjós-
endum erfitt fyrir varðandi val sitt.
En óhætt er því að fullyrða að
næstu vikur verði spennandi í
sænskum stjórnmálum.
Helstu stefnumál
• Jafnaðarmenn: Halda óbreyttri stefnu, lágir vextir, lítil verðbólga og
aðhald í ríkisfjármálum skapa hagvöxt og fleiri störf. Áhersla á
menntamál, heilsugæslu og umönnun eldri borgara. Bíða og sjá til
með EMU.
• Hægrimenn (Moderatar): Lækkun skatta fyrir alla. Einföldun á
regluverki sem miðar að því að auðvelda nýsköpun og stofnun nýrra
smáfyrirtækja. Þannig verði til ný störf. Svíþjóð verði fullgildur aðili að
EMU.
• Vinstriflokkurinn: Aukið réttlæti í samfélaginu. Lækkun skatta fyrir
þá með minnstu tekjurnar. Fjármagnstekjuskattur. Svíþjóð úr Evrópu-
bandalaginu. Minni afborgarnir erlendra skulda. Aukin réttindi
kvenna.
• Kristilegir demókratar: Bætt umhverfi fyrir börn. Aukin gæði í um-
önnun og heilsugæslu. Harðari aðgerðir gegn glæpum. Aukið siðgæði í
samfélaginu. Sveigjanlegra menntakerfi. Bætt umhverfi. Sósíalískur
markaðsbúskapur, lækkun skatta með 30% skattamarkmiði fyrir alla
launþega. Þjóðaratkvæðagreiðsla um EMU.
• Þjóðarflokkurinn: Manneskjan í fyrirrúmi, barátta gegn hnignandi
siðgæði í samfélaginu. Bætt umhverfi fyrir fyrirtæki, afnám ríkis og
bæjarfyrirtækja. Lækkun skatta, sérstaklega þeirra sem hindra tilkomu
nýrra starfa. Stöðvun niðurskurðar í heilsugæslu og umönnun eldri
borgara. Svíþjóð fullgildur aðili að EMU. Lögreglan út á göturnar
(NewYork - módelið). Bætt menntakerfi.
• Umhverfisflokkurinn: 35 klst. vinnuvika í stað 40 og þar með
200.000 ný störf, markmið; 30 klst. vinnuvika. Fríár; launþegi getur
tekið sér frí á fullum atvinnuleysisbótum til þess að hleypa öðrum at-
vinnulausum að. Umhverfísvænt samfélag að öllu möguiegu leyti. Sví-
þjóð úr Evrópubandalaginu. Kosningaaldur 16 ár. Aukin áhersla á at-
kvæðagreiðslur almennings í bæjar- og sveitarstjórnarmálum og á þjóð-
arvísu.
• Miðflokkurinn: Manneskjan og umhverfið í fyrirrúmi. Völdum og
áhrifum dreift meira en nú er. Afnám kjarnorku sem orkugjafa. 30
stunda vinnuvika.
FRÉTTIR
INNLENT
Skiptastjóri sýknaður
Hæstiréttur herur staðfest sýknudóm yfír Páli Skúlasyni lögfræðingi
í máli sem höfðað var gegn honum til greiðslu skaðabóta fyrir að hafa
brugðist skyldum sfnum sem skiptastjóri þrotabús. Kona sem stefndi
Páli taldi hann eiga sök á því að þrotamaður fjarlægði ýmsa muni úr
þrotabúinu, en undirréttur og Hæstiréttur voru á öðru máli.
Páll var skiptastjóri þrotabús einstaklings sem átti Ióð og hús í
landi Helgafells í Fellahreppi austur á Héraði. Konan gerði 4,6 millj-
óna króna kröfu í búið og var rætt um að hún fengi eignirnar fyrir
austan framseldar. Konan óttaðist að þrotamaðurinn kynni að ljar-
lægja hluti úr húsinu og bað um að eftirlit yrði haft með því. Þrota-
maðurinn fékk leyfí Páls skiptastjóra til að fara með lögreglumanni
og fjarlægja nokkra persónulega muni og gám sem stóð á lóðinni og
var í eigu hlutafélags. Lögreglumaðurinn fór hins vegar af vettvangi
og þrotamaðurinn notaði tækifærið til að fjarlægja meðal annars úti-
hurð, viðarofn, eldhúsinnréttingu, innihurðir, skápahurðir og teppi.
Niðurstaða málsins var að tjón konunnar væri ekki á ábyrgð skipta-
stjóra, enda hefði hann ekki vitað að lögreglan fór af staðnum og
raunar ekki ástæða til að ætla að þrotamaðurinn myndi fjarlægja
annað en persónuiega muni. — FÞG
Aðalfimdiir í sambandi
Aðalfundur Samtaka fískvinnslu-
stöðva fór fram í gær í Skíðaskálan-
um í Hveradölum. Fundurinn hef-
ur verið haldinn þar síðustu ár en
fundarstaðurinn hefur valdið
nokkrum taugatitringi hjá þeim
fískvinnsluforkólfum sem ekki geta
skilið farsímann við sig eina ein-
ustu mínútu þar sem ekki hefur
verið GSM-símasamband á fundar-
staðnum. Guði sé lof, sögðu aðrir.
Nú geta þessir menn aftur tekið
gleði sína því Landssíminn hefur
bætt úr þessu og er nú GSM-sam-
band í Hveradölum en vara skal
hins vegar við því að fara niður í
beygjuna fyrir neðan skálann, þar er algjört „black-out" á stuttu
svæði. — GG
Fulltrúar á aðalfundi Samtaka fisk-
vinnslustöðva voru í símsambandi í
gær en hér gefst kaffistund milli
stríða.
Ósáttur vegna Crew
Hjalti Kristjánsson, sérfræðingur í heimilislækningum hjá Heilbrigð-
isstofnun Vestmannaeyja, segist hafa orðið fyrir vonbrigðum með af-
greiðslu Hollustuverndar ríkisins á Crew hárkremi. Hollustuvernd
rannsakaði kremið og umbúðir þess eftir að ungur maður leitaði til
læknis í Vestmannaeyjum á þjóðhátíð. Kremið hafði Iekið niður í
augu hans og valdið nokkrum bruna og voru áhöld um hvort kremið
væri í samræmi við lög. Mat Hollustuverndar var að ekkert væri at-
hugavert en Hjalti segist alls ekki geta fallist á að það sé álitamál
hvort áritanir á kreminu uppfylli reglugerð. Letrið á innihaldslýsingu
sé allt of smátt og ólæsilegt.
„Ég get ekki heldur fallist á að það hafi ekki skipt máli í sambandi
við umrætt slys og varð fyrir vonbrigðum með afgreiðslu yðar. Að
öðru leyti fínnst mér virðingarvert að þið hafið gert ýtarlega úttekt á
þessu,“ segir í bréfi Hjalta til Hollustuverndar vegna málsins. — BÞ
C-17 heim
Hin gríðarmikla her-
gagnaflutningavél banda-
ríska hersins, sem flutti
Keikó „heim“ til Islands,
er nú sjálf farin heim eft-
ir töluverða hrakninga.
C-17 flugvélin laskaðist
töluvert á hjólabúnaði við
lendinguna með Keikó í
Eyjum, en vel gekk að
gera við skemmdirnar
Hér má sjá C-17 vélina á þegar vélin komst loks í
Vestmannaeyjaflugvelli þar sem hún lokaði hiiSi
_______fyrír flugumferð. Flugleiðir lánuðu
Bandaríkjamönnum flug-
skýli fyrir viðgerðina og komu allmargir sérfræðingar að vestan til að
bjarga vélinni frá íslandi. „Þetta skotgekk. Þeir voru leiftursnöggir að
þessu,“ segir Baldur Bragason yfirflugvirki hjá Flugleiðum. C-17 var
komin út á braut ferðbúin um áttaleytið á miðvikudagskvöld og hélt
af landi brott heim á leið í býtið í gær. — FÞG
Norðurlönd og kalda stríðið
Á aðalfundi Sögufélagsins, sem haldinn verður í dag í Þjóðarbók-
hlöðunni og hefst kl. 14, mun dr. Valur Ingimundarson sagnfræðing-
ur flytja erindi um Norðurlöndin og kalda stríðið. Á mörkum sam-
stöðu og hlutleysis nefnist fyrirlesturinn. Fundurinn er öllum opinn.
Leiðrétting
Gísli Marteinn Baldursson, fréttamaður á Sjónvarpinu, var rangfeðr-
aður í Degi í fyrradag og sagður sonur Baldurs Hermannssonar. Það
er ekki rétt og eru hlutaðeigandi beðnir velvirðingar á þessu rang-
hermi. Foreldar Gísla Marteins eru Baldur Gíslason kennari og
Elísabet Sveinbjörnsdóttir, leikskólakennari.