Dagur - 19.09.1998, Síða 12
12- LAVGARDAGVR 19. SEPTEMBER 1998
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR UM HELGINA
Laugard. 19. sept.
■ KNATTSPYRNA
Coca Cola bikar kvenna
Laugardalsvöllur
Kl. 15:30 Breiðablik - KR
1 ■ deild karla
Kl. 14:00 KA - Skallagrímur
Kl. 14:00 FH - Fylkir
KI. 13:00 Breiðablik - HK
Kl. 14:00 KVA - Þór
Kl. 14:00 Víkingur - Stjarnan
■ ALMENNINGSHLAUP
Götuhlaup FH
Hlaupið hefst við Suðurbæjar-
laug kl. 13:00. Vegalengdir eru
3, 5 og 10 km með tímatöku.
Flokkaskipting bæði kyn: 10 ára
ogyngri (600 m), 11-14 ára (1,3
km), 15-18 ára (3 km), 19-39
ára og 40 ára og eldri 5 eða 10
km). Allir sem ljúka hlaupi fá
verðlaun. Frítt í sund.
Sunnud. 20. sept.
■ KNATTSPYRNA
Landsímadeildin
Kl. 14:00 ÍA - Þróttur
KI. 14:00 ÍBV - Leiftur
Kl. 14:00 Keflavík - KR
Kl. 14:00 Fram - ÍR
Kl. 14:00 Valur - Grindavík
■handbolti
Nissadeildin
Kl. 20:00 ÍA - Þróttur
Kl. 20:00 ÍBV - Leiftur
Kl. 20:00 Keflavík - KR
Kl. 20:00 Fram - ÍR
KI. 20:00 Valur - Grindavík
ÍÞRÓTTIK A SKJÁNUM
Laugaid. 19. sept.
Knattspvma
Kl. 15:30 Bikarkeppni kvenna
Breiðablik - KR
Bein útsending frá úrslitaleik í
bikarkeppni kvenna.
Körbubolti
Kl. 12:30 NBA-molar
Knattspvrna
Kl. 12:00 Beint í mark
Ensku mörkin
Kl. 16:00 Enski boltinn
Leeds - Aston Villa
Ameríski fótboltinn
Kl. 17:00 NFL-deildin
Knattspvrna
KI. 18:25 Spænski boltinn
Real Madrid - Barcelona
Hnefaleikar
Kl. 22:45 Hnefaleikar
Endursýnt frá Las Vegas
M.a. leikur Oskar de la Hoya
og Julio Cesar Chavez.
Kl. 00:45 Hnefaleikar
Bein útsending frá Atlanta.
Keppni heimsmeistarans
Evander Holyfield gegn
Vaughn Bean.
Sunnud. 20. sept.
Knattspvrna
Kl. 13:50 Landsímadeildin
Bein útsending frá leik Vals og
Grindavíkur.
Kl. 17:00 Fótboltasyrpa
Svipmyndir frá leikjum
17. umferðar.
Handbolti
Kl. 22:05 Helgarsportið
1. umferð Nissandeildarinnar
1181
Körfubolti
Kl. 11:55 NBA-kvennakarfan
Knattspvrna
Kl. 16:50 ítalski boltinn
Juventus - Cagliari
Knattspvrna
Kl. 13:55 íslenski boltinn.
Landsímadeildin
Keflavík - KR
Kl. 16:00 Enski boltinn
Arsenal - Man. United
Kl. 20:30 ítalski boltinn
Inter Milan - Piacenza
Kl. 22:40 íslensku mörkin
Svipmyndir ffá 17. umferð
Landsímadeildarinnar.
Golf
Kl. 23:35 Golfmót í USA
PGAUS 1998.
Það er skammt stórra högga á milli í boxinu,
en nú um helgina mætast þungavigtarkapp-
arnir Evander Holyfield og Vaughn Bean í
hringnum í Atlanta og keppa um heimsmeist-
aratitil IBF.
Sýnt verður beint frá bardaganum á Sýn
klukkan 00:45 á laugardagskvöld.
Holyfield.
Stefiiirí
hörkuleik
Breiðablik og KR leika
í dag til úrslita í bikar-
keppni kvenua á Laug-
ardalsvelli og hefst
leikurinn klukkan
15:30. Tekst KR aö
vinna tvöfalt í ár, eða
vinnur Breiðablik bik-
arinn í sjöunda siun?
Lið Breiðabliks sem hefur unnið
bikarinn tvö síðustu árin sigldi
lygnan sjó í gegnum Meistara-
deild kvenna í sumar og lenti þar
í þriðja sæti með 29 stig, en KR-
stelpurnar eru núverandi ís-
landsmeistarar og sýndu það í
sumar að þær voru með besta
liðið í deildinni.
En allt getur gerst í bikarnum
og hefðin er Breiðabliksmegin.
Þær hafa átta sinnum leikið til
úrslita f bikarnum og sex sinnum
sigrað. KR hefur aftur á móti
tvisvar áður komist í úrslitaleik-
inn og tapað 0:1 í bæði skiptin.
Arið 1994 gegn Breiðablik og
1995 gegn Val. Þær eru því ör-
ugglega orðnar hungraðar í bik-
arinn og allt er þegar þrennt er,
eins og sagt er og enn meira
spennandi að vinna tvöfalt.
Sigurvegari bikarkeppninnar
fær til varðveislu í eitt ár glæsi-
legan bikar sem gefinn var af
borgarstjóranum í Reykjavík,
ásamt eignarbikar frá Vífílfelli.
Einnig fær sigurliðið 300.000,-
króna verðlaunafé ffá Vífílfelli og
tapliðið 150.000,- krónur. Það er
því til mikils að vinna fyrir liðin
og örugglega ekkert gefíð eftir, í
hörkuúrslitaleik í Laugardalnum.
Dómari leiksins er Jóhannes
Valgeirsson og aðstoðardómarar
þeir Rúnar Steingrímsson og
Eyjólfur Finnsson. Varadómari er
Einar Sigurðsson og eftirlitamað-
ur Eiríkur Helgason.
BRIDGE
Gylfi vann tvöfalt
Svona leitJón Baldursson út árið 1975 [annar t.h. í aftari röðj. Þá var hann
þrátt fyrir ungan aldur kominn í landsliðið i bridge sem er samankomið á
myndinni. Jón vann lokamót Sumarbridge 1998 ásamt félögum sínum.
Það varð ljóst
um mitt sumar
að Gylfi myndi
sigra í brons-
stigakeppni
Sumarbridge
1998 í Reykja-
vík. Forystan var
aldrei í hættu og
varð lokastaðan
þannig:
1. Gylfi Baldursson 653
bronsstig
2. Eggert Bergsson 441
3. Vilhjálmur Sigurðss. jr. 435
4. Jón Viðar Jónmundsson 407
5. Jón Steinar Ingólfsson 398
6. Steinberg Ríkarðsson 368
7. Hermann Friðriksson 367
8. Isak Orn Sigurðsson 365
9. Friðjón Þórhallsson 363
10. Þorsteinn Joensen 357
Gylfi og Anton til Homafjaið-
ar
Eins og flestir vita, tóku Gylfi
Baldursson og Anton R. Gunn-
arsson snemma forystu í Horna-
fjarðarleik Sumarbridge 1998.
Ekki var líklegt að Gylfí yrði sleg-
inn út, en Anton þótti ótryggur
með verðlaunin í nær allt sumar.
Anton hélt samt velli þrátt fyrir
að margir kæmust nálægt því að
slá hann út, og fá Anton og Gylfi
því gistingu á Hótel Höfn, keppn-
isgjöld og flugferðir á Hornafjarð-
armótið í tvímenningi sem haldið
verður 25.-27. september n.k.
Landsbréf sigmðu á lokamót-
inu
Lokamót Sumarbridge 1998 var
haldið á laugardaginn var, 12.
september. Otrúlegur fjöldi
sveita mætti til Ieiks, 40 sveitir,
og var spilaður sjö umferða
Monrad með átta spila Ieikjum.
Má segja að nær allir sem spil-
uðu reglulega í sumarbridge hafi
verið með í þessu móti, en auk
þeirra mættu margir spilarar
sem lítið hafa spilað í sumar.
Nokkrar af okkar alsterkustu
sveitum voru með í mótinu, má
þar nefna tvær Landsbréfasveit-
ir, Marvin, Nýherja og Júlíus
Sigurjónsson. Var auðvitað
reiknað með að þessar sveitir
myndu beijast um sigurinn.
Nokkrar sveitir komu skemmti-
lega á óvart og náðu frábærum
árangri. Þar ber hæst árangur
sveitar Hermanns Friðrikssonar
(Hermann, Hlynur Angantýsson,
Gísli Þórarinsson, Þórður Sig-
urðsson og Guðjón Einarsson).
Þessi sveit tapaði engum leik
þrátt fyrir erfiða andstöðu, t.d.
báðar Landsbréfasveitirnar og
Marvin. Endaði sveitin að lokum
í þriðja sæti. Vel gert ! Einnig
má nefna sveit Oldu Guðnadótt-
ur (Alda, Kristján Snorrason,
Jón Ag. Guðmundsson, Guðjón
Stefánsson og Jón Björnsson)
sem sigraði fimm fyrstu leiki
sína stórt, m.a. Landsbréf 19-
11. Sveitin Iauk keppni í 4-5.
sæti ásamt sveit Notabene (Sig-
mundur Stefánsson, Hallgrímur
Hallgrímsson, Guðmundur
Baldursson og Egill Darri Brynj-
ólfsson). Notabene skaust upp
töfluna með því að fá 74 stig út
úr 3 síðustu umferðunum. Onn-
ur Landsbréfasveitin (Anton
Haraldsson, Sigurbjörn Haralds-
son, Jón Baldursson og Magnús
Magnússon) sigraði á þessu móti
eftir æsispennandi lokaumferð
þar sem margir áttu möguleika á
sigri. I öðru sæti varð sveit Júlí-
usar Sigutjónssonar (Júlíus, Sig-
urður Vilhjálmsson, Sveinn R
Eiríksson, Erlendur Jónsson,
Hjördís Eyþórsdóttir og Curtis
Cheek). Stigin skiptust annars
svona á milli efstu sveita:
1. Landsbréf 143
2. Júlíus Siguijónsson 138
3. Hermann Friðriksson 135
4. -5. Alda Guðnadóttir 134
4.-5. Notabene 134
6. Landsbréf b.r. 130
7. Marvin 127
8. Nýherji 126
9. Málning 123
10. Stefán Garðarsson 122
Lokamót Sumarbridge 1998 fór í
alla staði vel fram og má segja að
fólk hafí almennt verið komið til
að skemmta sér, því andinn í
spilasölunum var óvenju léttur og
skemmtilegur allan tímann. Það
þurfti nánast aldrei að kalla út
keppnisstjóra og er það frekar
óvenjulegt núorðið.
Valdimar til Lundima
I verðlaunaafhendingu Loka-
mótsins var ýmislegt skemmtilegt
á dagskrá. Fyrst fengu vikumeist-
arar sumarsins vinninga sína,
gjafabréf á tvö veitingahús í borg-
inni, LA Café og Þijá Frakka hjá
Úlfari. Svo var dregið í happ-
drætti Iokamótsins og fengu tveir
þátttakendur óvænta vinninga.
Ingibjörg Ottesen og Sigtryggur
Jónsson voru dregin úr pottinum
og fengu gjafabréf, Ingibjörgá
Café Óperu og Sigtryggur á Hót-
el Holt. Næst fengu Gylfi Bald-
ursson, Eggert Bergsson og Vil-
hjálmur Sigurðsson jr. verðlauna-
gripi fyrir frammistöðu sína í
sumar, en að því loknu voru verð-
Iaun fyrir Iokamótið afhent. Loks
var komið að rúsinunni í pylsu-
endanum, dregið var í happdrætti
Samvinnuferða-Landsýnar og
Sumarbridge 1998. Vinningurinn
var ferð fyrir tvo til Lundúna.
Það var Valdimar Sveinsson sem
hreppti hnossið, til hamingju
með það! Helgi Jóhannsson, for-
stjóri Samvinnuferða-Landsýnar,
kom á staðinn og afhenti þessi
verðlaun. Verðlaunaafhending-
unni Iauk með því að mótinu var
slitið á hefðbundinn hátt.
BA byrjar vetrarstarf
Vetrardagskrá Bridgefélags Akur-
eyrar hófst sl. þriðjudag með
tveggja kvölda tvímennningi.
Mótið er styrkt af Sjóvá-Almenn-
um og eru Stefán Stefánsson-Sig-
urbjörn Haraldsson efstir þegar
27 spil hafa verið spiluð. Þeir
skoruðu 265 stig, Pétur Guðjóns-
son-Grettir Frímannsson 254 og
Magnús Magnússon-Haukur
Grettisson eru þriðju með 236
stig. Spilað verður í Hamri á
þriðjudagskvöldum í sumar og
auk þess verða eins kvölds tví-
menningar á sunnudögum.
Keppnisstjóri: Anton Haraldsson.