Dagur - 07.10.1998, Síða 2

Dagur - 07.10.1998, Síða 2
2 - MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1998 Uagtar VÍKURBLAÐIÐ Aðalstemn Ami Bald- ursson, formaður Veraklýðsfélags Húsa- víkur, hefur mjög ver- ið í uuiræðunui að uudanfömu. Það er þrýst á haun að gefa kost á sér á Hsta fyrir tvö framhoð, verka- fólk viU halda honum á síiiuin stað og hanu hefur þurft að sitja uudir þuugum ásök- iiiiuin heimafyrir. Aðalsteinn brá sér austur í Þistil- fjörð í fyrri viku, ekki þó til að smala atkvæðum og afla stuðn- ings fyrir hugsanlegt framboð, heldur til þess að kaupa úrvals hrúta af bændum. Aðalsteinn er nefnilega ötull hobby-bóndi, hann er enda búfræðingur að mennt og hefur verið forystu- sauður í flokki fjárbænda á Húsavík um árabil. Og hann hef- ur víðar komið við, enda félags- málatröll mikið, hefur meðal annars um árabil þjálfað yngri Undir þiýstiiigi flokka í knattspyrnu. Undanfarið ár hefur hann gegnt formennsku í Kjördæmis- ráði Alþýðubandalagsins í Norð- urlandi eystra, en kjördæmisþing var haldið á Húsavík s.l. laugar- dag. Við spyrjum Aðalstein hvað þar hafi helst verið til umfjöllun- I’riður á þinginu „Margrét Frímannsdóttir, for- maður okkar, mætti á þingið og fór yfir stöðuna í pólitíkinni á vistri vængnum. Þetta var frið- samur og góður fundur miðað við það sem búið er að ganga á. Þarna mættu fulltrúar frá 3 fé- lögum af 8 í kjördæminu, frá Ak- ureyri, Húsavík og Kópaskeri. Hin félögin 5 eru lömuð um þessar mundir vegna innbyrðis átaka og þar hafa menn verið að ganga út. Allir hættu á Þórshöfn, flestir fóru út á Raufarhöfn og margir eru farnir á Dalvík og Olafsfirði. Enginn hefur gengið út á Húsavík og menn hafa held- ur verið í sókn í starfi félagsins á Kópaskeri. A þinginu var kjörin þriggja manna nefnd til að fara í viðræð- ur við krata og kvennalista um hugsanlega uppstilingu og ýmis þau málefni sem hafa sérstöðu hér í kjördæminu." Síminn er aldrei langt undan. Askoranir úr ölliun áttum - En hvað unt þtna stöðu? Nú hef- ur verið skorað á þig úr ýmsum áttum að fara í framboð? Hvað hyggst þú fyrir? „Nú hljóma ég auðvitað eins og stjórnmálamenn gera alltaf þegar þeir þykjast hafa fengið fjöída áskorana þó ekki nokkur sála hafi talað við þá. En því er ekki að neita að ég hef fengið mikið af hringingum vfða úr kjördæminu þar sem ég er hvattur til að gefa kost á mér hjá sameiginlegu framboði, en einnig á Iista Stein- gríms vinar míns Sigfússonar. I síðustu viku var ég svo á fundi hjá stjórn og trúnaðarmannaráði Vekalýðsfélagsins sem er 25 manna samkoma og þar var bor- in upp áskorun og samþykkt samhljóða þess efnis að ég héldi áfram störfum mínum fyrir félag- ið og Iéti Iandsmálin í friði. Þannig að það standa á mér öll spjót og úr vöndu að ráða. En vissulega hef ég lengi barist íyrir sameiningu vinstri manna og studdi samstarf þeirra í Húsavík- urlistanum. Og þessvegna hef ég m.a. verið mjög óhress með klofn- ing og sundrungu á vinstri vængn- um þar sem ég vil sjá einn öflugan Þetta er ekki tekið á framboðsfundi, en þarna eru kjósendur framtíðarinnar og hefðu öruggiega allir kosið Georg . ef hann hefði verið í framboði. Ódeigir i leiMistinni Leikfélag Húsavíkur er enn að velta vöngum yfir verkefnum vetrarins og ýmislegt er í skoðun. Meðal annars leikrit eftir lög- manninn Orlyg Hnefil Jónsson, sem sennilega verður þó ekki tekið til sýningar. Leikdeild Eflingar í Reykjadal, sem hefur verið með mjög góðar sýningar undanfarin ár, stefnir að því að setja upp „Láttu ekki deigan síga, Guðmundur," í leik- stjórn Arnórs Benonýssonar. Leikfélagið Búkolla tók þátt í stórsýningunni Oliver sl. vetur og að sögn Guðrúnar Láru Pálmadóttur, er enn dálítil þreyta í mannskapnum og líkur á að menn taki það rólega í vetur, setji ekki upp heilt stykki heldur verði með samsetta helgardag- skrá með efni úr ýmsum áttum. Aðalfundur Búkollu var haldinn á dögunum og var Marteinn Gunnarsson kjörinn formaður félagsins. |S Prilaó íholliitni Georg er bankastjóri bamaima í huga fullorðinna eru nafntog- uðustu Georgar sögunnnar ugg- laust heilagur Georg sem drap drekann forðum tíð, Georg Lár- usson, Georg tæknimaður og George Harrison. En hjá börn- um stendur aðeins einn Georg upp úr, mörgæsin Georg, banka- stjóri barnanna og Islandsbanka. Mörgæsin Georg fagnar 5 ára afmæli sínu um þessar mundir og heimsótti börnin á Húsavík af því tilefni í fyrri viku og bauð til veislu. Um 350 börn mættu í veisluna og þáðu kleinur, kex, svaladrykki og endurskinsmerki. Og sungu auðvitað sannkallaða „sparisöngva“ með afmælisbarn- inu og kunnu textana upp á sína tíu fingur. js Fimm fulltrúar húfuvæðingar- innar á Húsavík. Það er sérlega skynsamlegt að mæta á háhesti á mannamót til að sjá betur. Björgunarsveitin Garðar hefur óskað eftir því að svokallaður klifurveggur verði settur upp í íþróttahöllinni. Sigmenn sveitar- innar hafa æft frumklifur á lágreistum vegg í húsnæði Garð- ars og dugar skammt. Tómstundanefnd hefur ákveð- ið að kanna kostnað við gerð slíkra ldifurveggja. JS Viðræður um lamtakjör Fulltrúar kennara gengu á fund bæjarráðs Húsavíkur í fyrri viku og reifuðu þar hugmyndir kenn- ara í málinu. Aðilar urðu sam- mála um að koma á fót viðræðu- nefnd þriggja manna frá hvorum aðila til að vinna að framvindu málsins. Bæjarráð samþykkti að hafa frumkvæði í þessu máli og boða til fyrsta viðræðufundar. JS AfmæH í dag í dag, 7. október, eiga þessir Húsvíkingar afmæli: Skúli Jónsson, Reykjaheiðarvegi 2, f. 1930; Aðalbjörg K. Arnórsdóttir; Guðlaugur Arnarsson, Sólbrekku 12, f. 1978; Valgerður Laufey Þráinsdóttir, f. 1982. bk/js

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.