Dagur - 10.10.1998, Blaðsíða 3

Dagur - 10.10.1998, Blaðsíða 3
GSP LJi#&£&&& S o-.'i ÖK T'ÓWéW 1 9$8 H Greifinn sjálfur! Engin tilviljun ræður því að myndin á íslensku krónunni er af þorski. Flest sem íslendingar þurfa til daglegra nota verður að kaupa frá útlöndum og til þess að geta það er nauðsynlegt að flytja út vörur. Sjötíu prósent af verðmæti alls vamings sem við seljum til útlanda eru sjávarafurðir. En þorskurinn einn stendur fyrir tæpum helmingi af öllum vöruútflutningi. Ef illa árar í hafinu bitnar það á öllu atvinnulífinu. Á sama hátt lifnar allt við þegar vel gengur f sjávarútvegi. Sjómenn, fiskvinnslufólk og aðrir starfsmenn fá laun. Rannsóknarstofnanir, vélsmiðjur, tryggingafyrirtæki og olíufélög hafa einnig tekjur af sjávarútveginum. Viðskipti fara síðan í gang á ólíkum sviðum; fjármagn streymir um allt samfélagið og til verður það sem hagfræðingar kalla margfeldisáhrif. Eðlilega skilar sjávarútvegurinn því miklum fjármunum í sameiginlega sjóði landsmanna. Auk þess greiðir hann margvísleg gjöld sem tengjast honum sérstaklega; aflagjald og veiðieftirlitsgjald, svo nokkur dæmi séu nefnd. Þá greiðir hann nær milljarð króna í Þróunarsjóð. Yfir 70% af heildarútflutningi íslendinga cru sjávarafurðir. Á undanfömum áratugum hafa atvinnuhættir okkar breyst mikið en þó er ljóst að um langa framtíð mun sjávarútvegurinn verða undirstaðan í efnahagslífinu. (Heimild: Hagstofa íslands: Hagtíðindi, jan. 1998, 83. árg. nr. 1, bls. 26.) Þorskur, sem kallast gadus morhua á máli fræðimanna, er talinn með botnfiskum eins og ýsa, ufsi, karfi, grálúða og skarkoli. Til uppsjávarfiska teljast aftur á móti loðna, síld og kolmunni. Þorskur hefur alltaf verið einn af okkar verðmætustu nytjafiskum og það segir sitt um mikilvægi hans að oft var hann einfaldlega kallaður fiskurinn. Þorskur hefur líka verið kallaður „sá guli" í gegnum tíðina. Þorskígildi er aftur á móti nýlegt hugtak. Talað er um þorskígildi þcgar vcrðmæti annarra fisktcgunda cr umreiknað í vcrðmæti þcirra í þorski. Þannig var t.d. þorksígildi karfa 0,70 á síðasta fiskveiðiári, sem þýðir að kfló af karfa jafngilti 700 grömmum af slægðum þorski. Enginn gjaldmiðill hefur reynst íslendingum betur en fiskurinn. Þessi auglýsing cr liður í fræðsluátaki íslenskra útvegsmanna. Fiskurinn leggur landsmönnum til sjö af hverjum tíu krónum. Á undanfömum ámm hefur sjávarútvegurinn stuðlað að margháttaðri nýsköpun í atvinnulífmu. Búnaður og tæki til fiskveiða og verkunar, sem hugvitsmenn og iðnfyrirtæki hafa þróað, reynist meðal þess besta sem völ er á í heiminum. Útflutningur á fiskikörum, umbúðum, fiskinetum, línum, rafeindavogum, toghlerum og öðmm tækjum skilar nú umtalsverðum fjármunum inn í hagkerfið. íslendingar hafa lengi glímt við þorskinn og kostað til miklum fjármunum. Hann hefur haft sína duttlunga, komið og farið — en stundum höfum við líka gengið of nærri honum. Á seinustu ámm höfum við þó lært að lifa með þorskinum. Við stöndum nú fyrir ábyrgri og hagkvæmri nýtingu fiskistofnanna. Þess njóta Islendingar allir. Sjávarútvegurinn er vissulega stór þáttur af efnahagslífinu og margir áhættuþættir honum samfara. Einmitt þær staðreyndir kalla á staðfestu og markviss vinnubrögð, ásamt virðingu fyrir því sem vel er gert. Við eigum þorskinum margt að þakka. Hann gerir okkur kleift að njóta menntunar og heilbrigðisþjónustu, lista og menningar. Hann er greifi. www.liu.is ÍSLENSKIR ÚTVEG S M E N N Fræðsluátak á ári hafsins

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.