Dagur - 10.10.1998, Blaðsíða 15

Dagur - 10.10.1998, Blaðsíða 15
 Thgur LAUGARDAGUR 10. OKTÓBF.R 1998 - 31 Sara María í rósóttum buxum og með flott heklað sjal á herðunum. Gæti sem best skroppið til Suður-Ameríku og smellpassað inní. Blær Guðmundsdóttir í„alveg venjulegum fötum." Haukur Hálfdánarson í appelsínugulu pilsi sem vakti þó ekki tiltakanlega athygli í kaffistofunni Silfurskottunni. Það þarfkjark til að mæta með skærbleikt hár í skólann en LHja hefur ekki áhyggjur af því. Fer íþað sem henni finnst best og ef hárliturinn er eitthvað öðruvísi en hún vill þann daginn, þá bara litar hún hárið. Einfaldara geturþað varla verið! Skyldu verðandi listamenn klæða sig öðruvísi en aðrir? Um það skal ekki dæmt, en hitt erannað að sumireru skrautlegarklæddirenfjöldinn og ekki getur talist venjulegt að mæta með bleiktháreða í appelsínugulu pilsi sértu karlkyns, nema maður tilheyri HareKrishna söfnuðinum? Það ríkir notalegt andrúmsloft í kaffistofu MHI við Skip- holt, Silfurskottunni, en svo heitir kaffistofan sem er rekin af nemendum á 2. ári í deild. Nemendur tínast inn í kaffitímanum, hver af öðrum til að fá sér Ijúffeng rún- stykki sem kosta bara 50 kall með osti, túmötum og papriku. FatastíII nemenda í MHI hefur stundum verið talinn svolítið öfgakenndur og til að kanna málið settist blaðamaður Dags inn á kaffistofuna. Líflegar umræður um föt og fatastíl eiga sér stað og virðist það vera svolítið álitamál hvað telst venjulegt og hvað ekki. „Maður fer auðvitað bara í þau föt sem mann Iangar að fara í hverju sinni,“ segir ein. „Já en sumir eru jakkafatatýpur og dragtarfólk, það kalla ég venjulegt," segir annar. „Það er samt eldíert eitthvað „venjulegt" til, ekki í dag held ég,“ segir sá þriðji með þunga í röddinni. „Tískan er svo fjöl- breytt að það geta allir verið einhvernveginn og samt passaði inní.“ „En samt“.. mótmælir einhver. „Ég var í FB á myndlistabraut og þar var ein stelpa, alveg ótrúlega venjuleg og hún var bar spurð að því hvað hún væri að gera á myndlistabraut, af hverju hún væri ekki á tungu- málabraut eða eitthvað." „Já, það er einhvern veginn ætl- ast til þess eða maður ætlast til þess sjálfur að maður sé svolítið öðruvísi, alla vega þegar fólk kemur inn í fornám- ið, þá reynir það mikið að skera sig útúr, en svo þegar það er búið að vera í tvö ár eða svo, þá eru bara allir venjuleg- ir,“ segir nemandi í nokkuð venjulegum fötum, greinilega kominn úr fomámi eftir því að dæma. Niðurstaðan er sú að nemendur MHI séu kannski svolítið óhefðbundir í klæðaburði upp til hópa, „enda í listnámi og listamenn eru jú aðeins útúr kortinu," eins og einhver sagði. Strákur ípilsi Appelsínugult pils er svo sem ekkert óvanalegt, en sé það utan á Iöngum strák þá vekur það óneitanlega meiri athygli en ef til dæmis ung stúlka væri í því. Strákurinn sá heitir Haukur Hálfdánarson og er nemi í MHI, þar sem hann er á öðru ári í textíl. „Hvort ég er svona klæddur dags daglega?" svarar Haukur spurningu blaða- manns. „Nei, en hinsvegar fer ég í það sem mér líkar hverju sinni og í dag var það þetta. Annars er þetta draslefni í þessu pilsi, það raknar úr því,“ bætir hann við. Hann er i buxum innanundir og hvítum stutterma- bol við. Þar utan yfir er hann í bláum gallajakka en sér til halds og trausts hefur hann með sér appelsínugulan jakka líka. Til samans myndar þetta skemmtilega heild og svo sannarlega öðruvísi. Við hlið Hauks er ung stúlka með skærbleikt hár og í kóngablárri peysu með rennilás. Peysan sú er greinilega í uppáhaldi því hún Iítur út fyrir að hafa verið mikið not- uð um dagana. En virkar þægileg og hlý, sem er kannski aðalatriðið. „Hárið á mér var miklu rauðara," segir stúlk- an, sem heitir Lilja Sighvatsdóttir. „Þetta er bara skol sem fer úr í nokkrum þvottum." Lilja segist gjarnan skipta um háralit „svona eftir skapinu“, en auðvitað er svona sterkur háralitur þess eðlis að ekki er hægt að vera í hverju sem er við. „Maður fer ekki í appelsínugulan jakka við skærbleikt hár.“ Suðræn sveifla Rósóttar víðar buxur, þröngur bolur og peysa utanyfir með gamaldags hekluðu sjali er klæðnaðurinn sem Sara María kemur í þennan daginn. Hún er lágvaxin og dökk- hærð og svolítið prakkaraleg í framan en passar alveg ótrúlega vel í þessi föt sem hafa á sér suðrænt yfirbragð. Sara segist vera í þvf sem henni finnst þægilegast hverju sinni og er ekkert að stressa sig yfir útlitinu. Þarf þess raunar ekki þ\i hún virðist geta verið í hverju sem er og allt fari henni vel. Gæti sjálfsagt mætt í strigapoka og Iit- ið vel út samt. Blær Guðmundsdóttir er í þröngum íjólubláum bol og svörtum „kvennabúrsbuxum“ víðum og þægilegum. Hún telur sig mjög venjulega klædda og ekki skera sig úr á nokkurn hátt. Fer „eins og hinir“ bara út um allt að kaupa sér föt og notar þau eftir hendinni. Sjálfstraustið í lagi þarna megin, ekkert verið að eltast við tísku- straumana, bara búa til sína eigin tísku. -vs

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.