Dagur - 13.10.1998, Síða 3
ÞRIÐJVDAGUR 13.0KTÓBER 1998 - 3
FRÉTTIR
Örlagavefír þjóðar
og kirkju samofnir
Verkefniö sem viö
blasir er að nota það
aukna olnbogarými
sem kirkjan lieíur
fengið til þess að ella
kirkjustarfið og
treysta undirstöður
þess, sagði kirkju-
málaráðherra við upp-
haf kirkjuþings.
Þorsteinn Pálsson, kirkjumála-
ráðherra, sagði m.a. f ávarpi sínu
við upphaf ldrkjuþings að kirkju-
samfélagið væri ekki ólíkt öðrum
félagsskap manna að þ\ í leyti að
í sjálfstæði og ábyrgð fælist afl-
vaki og kraftur. Veruleg þáttaskil
hefðu átt sér stað á haustdögum
f tengslum ríkisins og þjóðkirkj-
unnar en það hefði ekki átt sér
stað ef ekki hefði komið til frum-
kvæði, áhugi og vilji forystu-
manna kirkjunnar. Nýr kirkju-
réttur markaði þó vonandi ekki
þau ein tímamót að menn geti
bent á nýtt form og nýtt skipulag.
„A herðum nýs biskups hvílir
mikil ábyrgð og hann á fyrir
höndum vandasöm úrlausnar-
efni. Verkefnið sem við blasir er
að nota það aukna olnbogarými
sem kirkjan hefur fengið til þess
að efla kirkjustarfið og treysta
undirstöður þess.
En í allri auðlegð sem nýr tími,
ný tækni og ný hugsun hefur
skapað eru líka fólgnar aðrar
myndir. Við sjáum fjölskyldur í
meiri upplausn en áður. Við sjá-
um foreldra skeyta minna um þá
ábyrgð sem því fylgir að eiga og
ala upp börn. Við sjáum ungling-
ana ánetjast helvíti eiturlyfjanna.
Hér hefur kirkjan hlutverki að
gegna. En til þess að það hlut-
verk verði virkt þarf hún að vera
Iifandi stofnun, trú þeim boð-
skap sem hún var stofnuð til að
flytja, trú þeim siðferðilegu gild-
um sem hann er reistur á og trú
þeim hefðum sem greina kjöl-
festu frá rótlausu þangi. En á
sama tíma þarf kirkjan að vera
opin fyrir nýjum straumum og
reiðubúin að takast á við þau
verkefni sem eru ólík því sem
áður var,“ sagði Þorsteinn Páls-
son.
I Iok ávarps síns sagði kirkju-
málaráðherra að þó sjálfstæði
kirkjunnar hafi verið aukið ætli
hann að gæfa þjóðarinnar sé
fólgin í því að örlagavefir hennar
og kirkjunnar verði áfram spunn-
ir saman. — GG
Sophia Han-
sen.
Borgar 11
miQjóiiír
Sátt hefur náðst
milli Sophiu Han-
sen og alsystur
hennar Rósu
Rúnarsdóttur í
dómsmáli því sem
efnt var til vegna
deilna þeirra um
ráðstöfun á hús-
eigninni Túngötu
32. Dómsmálið var fellt niður
þegar Rósa samþykkti að selja
Sophiu erfðahlut sinn í húseign-
inni, einn hlut af sjö, en áður
hafði Rósa eins og Sophia viljað
eignast húsið.
Sigurður H. Guðjónsson, lög-
maður Rósu, vildi ekki gefa upp
hvað Sophia greiðir Rósu fyrir
sjöunda part hússins. „Það er
búið að leysa þennan ágreining
og dómsmálið hefur verið fellt
niður. Sophia kaupir erfðahlut
Rósu en samkomulagið er að
öðru leyti trúnaðarmál," segir
Sigurður.
Samkvæmt heimildum Dags
hafði Sophia áður keypt þrjá
hluta af öðrum systrum sínum á
ríflega tvær milljónir króna
hvern hlut. I heild er reiknað
með hún kaupi systkinahluti
upp á um 11 milljónir króna,
einn hlut erfði hún sjálf og einn
hlut fékk hún gefins, frá Jónu
Rúnu Kvaran. Undanskilin er
kjallaraíbúð í húsinu sem syst-
ursonur Sophiu erfði.
Þau Sophia og Sigurður Pétur
Harðarson aðstoðarmaður
hennar segja að húsakaupin
tengist á engan hátt söfnuninni
„Börnin heim“. Samkvæmt
heimildum Dags nýtur Sophia
fulltingis föður síns, Rúnars
Hansen, við húsakaupin. - Ft>G
Páll lítilsvirðir
embætti sitt
Technopromexport
þvingað til samkomu-
lags um að fara að
kjarasamuingum. Raf-
iðnaðarsambandið
mim krefja Vinnueft-
irlitið og Heilbrigðis-
eftirlitið svara um að-
bimaðinn.
„Rafiðnaðarsambandið á inni hjá
Heilbrigðiseftirliti, Vinnueftirliti
og Vinnumálastofnun margar
spurningar, sem ekki hefur verið
svarað, þrátt fyrir ítrekaðar beiðn-
ir þar um. Það leysir embættis-
menn þessara stofnana ekki und-
an því að svara þessum spurning-
um, þó að stéttarfélögunum hafi
tekist að þvinga Technopromex-
port til þess að fara að löglega
gerðum kjarasamningum," segir
Guðmundur Gunnarsson, for-
maður Rafiðnaðarsambands Is-
Iands, í samtali við Dag.
Deila Rafiðnaðarsambandsins
við Technopromexport leystist
seint að kveldi sl. föstudag þegar
rússneska fyrirtækið lét undan
kröfum sambandsins og þrýstingi
frá Landsvirkjun. Rafiðnaðarsam-
bandið hyggst þó áfram ganga eft-
ir svörum hjá ofangreindum
stofnunum, en þar er meðal ann-
ars spurt hvernig á því standi að
heilbrigðis- og \dnnueftirlit heim-
ili að Technopromexport bjóði
Guðmundur Gunnarsson, for-
maður Rafiðnaðarsambandsins:
„Páll Pétursson lítilsvirðir starfsitt
sem alþingismaður.“
starfsmönnum sínum upp á að-
stöðu sem ekkert íslenskt fyrir-
tæki fengi að bjóða. Einnig telur
Rafiðnaðarsambandið óútkljáð
gagnvart Vinnumálastofnun á
hvern hátt rússneskir verkamenn
voru fengnir til landsins undir því
yfirskini að um faglega stjórnend-
ur væri að ræða.
Dugur í iHÖnnum sem brjóta
lög?
Hvað þetta síðast talda varðar
hefur Páll Pétursson félagsmála-
ráðherra sagt opinberlega að
hann sæi ekkert athugavert við
það að faglegir stjórnendur kjósi
að ganga í verk í stað þess að
standa hjá og horfa á, að það sé
dugur í slíkum mönnum. „Það er
okkur launþegum áhyggjuefni, að
Páll Pétursson, félagsmálaráð-
herra: Ekkert við það að athuga
þótt yfirmenn grípi í verk með
undirmönnum.
sá ráðherra og þeir embættis-
menn, sem eiga að gæta réttar
okkar, skuli sífellt taka málstað
atvinnurekandans og ætíð halda
launamönnum í þeirri stöðu að
þurfa að afsanna fullyrðingar
hans. Hér á landi eru í gildi Iög og
reglugerðir, eins og t.d. um raf-
orkuvirki og iðnlöggjöfin. Páll
Pétursson lítilsvirðir starf sitt sem
alþingismaður og einnig háttvirt
Alþingi, með yfirlýsingum um að
það sé að hans mati dugur í þeim
mönnum sem brjóta landslög.
Ráðherra er stjórnvald sem á að
sjá um að settum landslögum sé
fylgt. Páll lítilsvirðir það embætti
sem honum hefur verið falið að
gegna með yfirlýsingum af þessu
tagi," segir Guðmundur. - FÞG
Hljóp in a ii ii uppi
Komandi vetur minnti á sig í
borginni aðfaranótt sunnudags
en upp úr miðnætti var komin
hálka um alla borgina og saltbíl-
arnir kallaðir út. Engin alvarleg
slys urðu á svæði Reykjavíkur-
lögreglu um helgina en nokkur
minniháttar. Níu voru grunaðir
um ölvun við akstur og 45 stöðv-
aðir fyrir of hraðan akstur. Með-
al annars var bifreið mæld á 102
km hraða á Breiðholtsbraut þar
sem er 60 km hámarkshraði.
Okumaðurinn reyndi að sleppa
en var hlaupinn uppi af lögreglu-
Veruleg ölvun í
miðbænum
I dagbók lögreglunnar í Reykja-
vík helgina 9. til 12. okt. 1998
kemur m.a. fram að veruleg ölv-
un var í miðborginni aðfaranótt
laugardags en þar voru um 3000
manns þegar flest var talið. Fjór-
Ýmislegt gekk á í miðbæ
Reykjavikur um helgina.
ir voru handteknir vegna líkams-
meiðinga en alls urðu 6 sinnum
átök milli manna þar sem Iík-
amsmeiðingar hlutust af. Þá
flutti Iögregla 4 á slysadeild en
enginn var fluttur með sjúkrabif-
reið. 26 unglingar voru fluttir í
athvarf vegna aldurs. Kveikt var
í ruslatunnum, rúða brotin og
tvær bifreiðar skemmdar. Tveir
menn voru fluttir í fangageymslu
eftir að hafa efnt til slagsmála,
otað hnífi að fólki og sprautað
mace úða. Flest mál gengu vel
upp en mikill erill var í miðborg-
inni.
Mátti ekki á milli
sjá!
Á laugardagskvöld um kl. 21
réðst fullorðinn maður á dreng á
Eiðistorgi. Drengurinn var flutt-
ur á slysadeild til aðhlynningar
en maðurinn í fangageymslu.
Aðfaranótt sunnudags sló maður
konu sína í Pósthússtræti svo
konan féll í götuna. Er parið var
á leið á lögreglustöðina virtist
konan hætt að anda og var flutt
með hraði á slysadeild. Þetta
reyndist hinsvegar gabb hjá kon-
unni og má því ekki á milli sjá
hvort hjónanna hagaði sér verr
þessa nótt, segir í dagbókinni.
Þá kom maður á Miðborgar-
stöðina og var hann alblóðugur í
andliti og á höndum. Er gert
hafði verið að sárum hans til
bráðabirgða vildi hann ekki frek-
ari afskipti lögreglu og var það
með eftirgangsmunum að hann
fékkst til að fara á slysadeild.
Tveir menn bundu reiðhjól sín
við fiskikar á Miðbakkanum að-
faranótt laugardags. Síðar um
nóttina voru fiskikörin komin í
sjóinn en reiðhjólin fundust
ekki.