Dagur - 13.10.1998, Qupperneq 5
X^wr
ÞRIÐJUDAG UR 13. OKTÓBER 1998 - 5
FRÉTTIR
Framsóknarmenn
deila ran kvótakerfid
Ekki prófkjör
Akveðið var á fundinum að fara
ekki út í prófkjör en kjósa þess í
stað uppstillingarnefnd sem á að
raða á listann og leggja síðan til-
lögur sínar fyrir aukaþing sem
haldið verður í janúar. Guðni var
spurður hvers vegna flokkurinn
væri ekki með prófkjör nú eins
og síðast.
„Menn eru vel sáttir við sinn
þingmann og vilja hafa Gunn-
laug Sigmundsson áfram í efsta
sætinu. Að fenginni reynslu telj-
um við að það sé minni ófriður
við að stilla svona upp á lista en
að fara út í prófkjör.
Þegar minnst var á Kristin H.
Gunnarsson sagði Guðni að
hann væri velkominn í flokkinn
eins og allt fólk en hann þyrfti að
sækja um inngöngu og vinna sig
upp í flokknum eins og aðrir.
Það biði hans ekkert fyrsta sæti á
lista framsóknarmanna á Vest-
fjöðrum. Það væri alveg á
hreinu. — S.DÓR
Frainsóknarmeiui á
Vestfjörðum greinir á
um breytingar á
kvðtakerfinu og þeir
ætla ekki að viðhafa
prófkjör við uppstill-
ingu á lista fyrir kom-
andi þingkosningar.
„Það er of mikið sagt að hér hafi
verið uppi deilur en menn vilja
breytingar á kvótakerfinu og það
eru fleiri en ein hugmynd uppi
þar um. Það eru engin læti í
flokknum hér á Vestljörðum út
af þessu en menn vilja ákveðnar
breytingar," sagði Guðni Jóhann-
esson, formaður kjördæmissam-
bands framsóknarmanna á Vest-
Ijörðum, sem hélt fund um síð-
ustu helgi.
Hann sagðist ekki vilja fara
Kristinn H. Gunnarsson. Veikominn
en ólíklegur.
nánar út í þær hugmyndir sem
uppi eru um breytingar á kerfinu
því þær væru nokkrar. Hann
sagði enga hugmynd uppi um að
taka upp veiðileyfagjald. Guðni
sagði framsóknarmenn á Vest-
íjörðum ætla að vinna að því
næstu vikurnar að stilla saman
Gunnlaugur Sigmundsson. Sátt um
að hann verði í efsta sætinu.
strengi í þessu efni og koma
samstiga með eina hugmynd á
flokksþingið í nóvember. Þess
má geta að Halldór Ásgrímsson,
formaður flokksins, mætti á
fundinn en hann var farinn aftur
þegar umræðurnar um kvóta-
kerfið hófust.
Myndir Errós eru umdeildar.
Erróburt
Samtök gyðinga sáu til þess um
helgina að mynd eftir Erró var
tekin út af listaverkauppboði í
París. Samtökin eru sögð
öfgasinnuð meðal listunnenda
en þau telja mynd Errós, „Isra-
el“, sýna gyðingaríkið í óheppi-
legu ljósi. Eftir mikinn þrýsting
fyrir uppboðið var látið undan
og myndin tekin af skrá.
Þetta er í annað skipti sem
mynd eftir Erró fær svona með-
ferð. Onnur útgáfa af Israel var
tekin af uppboðsskrá í Glasgow
að undangengnum miklum lát-
um af hálfu gyðinga. Gunnar B.
Kvaran, forstöðumaður Lista-
safnsins í Bergen, hugðist bjóða
í myndina um helgina fyrir hönd
safnsins. Hann sagði að þau
samtök sem um ræðir væru ein-
faldlega svona sterk. Uppboðs-
haldarinn kysi frið frekar en að
halda uppboðinu til streitu.
Segir gagnagnmniim
persónugreinanlegan
Dr. Ross J. Anderson með leiðtoga Læknafélagsins: Með samsetningu
fyrirspurna má finna út einstakling efum hann liggur fyrir tiltekin vit-
neskja, svo sem að hann hafi handleggsbrotnað eftir fall afhestbaki á til-
teknum degi. - mynd: teitur
Breskur sérfræðingiir
segir gagnagnmniim
ófuUnægjandi og per-
sónugreinanlegan.
Vill dreifða gagna-
grunna frekar en mið-
lægan.
Væntanlegur gagnagrunnur Is-
Ienskrar erfðagreiningar er per-
sónugreinanlegur, segir Dr. Ross
J. Anderson, sem hér er staddur í
boði Læknafélags Islands, en
hann er einn af þekktari sérfræð-
ingum Evrópu í öryggismálum
læknisfræðilegra upplýsingakerfa.
Dr. Anderson gagnrýnir gagna-
grunnsfrumvarpið einkum út frá
því að fjölmörg atriði eru óljós og
undirbúningi áfátt. Hann segist
sannfærður um að eins og frum-
varpinu sé háttað, þrátt fyrir
breytingar á því, að boðaðar
dulkóðunaraðferðir muni ekki
tryggja persónuvernd með örugg-
um hætti. Hann bendir á að með
samsetningu fyrirspurna um
læknisfræðileg og ættfræðileg
efni megi finna út einstakling, ef
um þann einstakling liggur fyrir
tiltekin vitneskja, svo sem að
hann hafi handleggsbrotnað eft-
ir fall af hestbaki á tilteknum
degi. Dr. Anderson segir gagna-
grunninn í núverandi mynd
hvorki veita vörn fyrir óleyfileg-
um aðgangi við fyrirspurnir né
gagnvart stuldi utan frá eða inn-
an frá hjá óheiðarlegu starfs-
fólki.
Dr. Anderson segir frumvarpið
mjög óljóst um nauðsynleg smá-
atriði varðandi framkvæmdina
og fullyrðir að eins og því sé
háttað sé verið að afhenda Is-
lenskri erfðagreiningu e.k. óút-
fyllta ávísun, sem fyrirtækið geti
fyllt út eftirá eftir hentugleikum.
Þannig sé ekki einu sinni ljóst
hvað teljist til „heilbrigðissviðs".
Hann telur mun vænlegra að
viðhafa dreifða gagnagrunna en
einn miðlægan. - FÞG
Leikmaður forseti idrkjuþiugs
Jón Helgason frá Seglbúðum,
fyrrverandi dóms- og kirkjumála-
ráðherra og forseti Alþingis, var
kjörinn forseti kirkjuþings í gær,
fyrsti leikmaðurinn í 40 ára sögu
Idrkjuþings sem til þessa hefur
lotið forystu biskups Islands. Jó-
hann Björnsson úr Arbæjarsókn
í Reykjavík og Magnús Stefáns-
son frá Fagraskógi í Eyjafirði
voru kjörnir varaforsetar. Kosið
var í fjórar nefndir, allsherjar-
nefnd, fjárhagsnefnd, þingfarar-
kaupsnefnd og löggjafanefnd og
þar farið að tillögum kjörnefnd-
ar, nema að sr. Magnús Erlings-
son á Isafirði vék úr sæti í lög-
gjafanefnd fyrir Döllu Þórðar-
dóttur prófasti í Skagafirði sem
gaf kost á sér í þá nefnd, en hún
er eina konan sem situr Kirkju-
þing.
Afstaða kjörnefndar undir-
strikar enn frekar en áður að
konur þurfa að vinna skipulega
til þess að efla hlut sinn á kirkju-
þingi, það gerist ekki sjálfkrafa
þrátt fyrir að um 45% þeirra, eða
um 120 konur, sem sæti eigi í
safnaðarstjórnum víða um land
séu konur, en aðalmenn í safn-
aðarstjórnum eru um 250. Oll-
um þykir eðlilegt að karlar séu
kosnir £ ýmsar nefndir og ráð
vfða um land svo að jafnréttis-
hugsjónin á augljóslega talsvert í
Iand með að öðlast raunverulegt
gildi. Það að aðeins ein kona sitji
kirkjuþing ásamt nær þremur
tugum karla er augljóst dæmi
um það. — GG
Vegas skaut 30 milljónum uralan
Frumrannsókn skattrannsóknaryfirvalda á málefnum veitingastaðar-
ins Vegas er lokið. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Dags er það
meginniðurstaða rannsóknarinnar að umfang þeirra veltu sem skot-
ið hafi verið undan skatti hefði leitt til skattgreiðslna upp á 30 millj-
ónir króna. Degi er ekki kunnugt um tímalengdina sem rannsóknin
náði yfir, en hún laut fyrst og fremst að meintum undanskotum á
tekjuskatti og virðisaukaskatti og brotum á öðrum lögum, svo sem
um bókhald. Aðaleigandi Vegas er Haraldur Böðvarsson. Heimildir
Dags fyrir þessari niðurstöðu eru traustar, en hins vegar vildi Skúli
Eggert Þórðarson skattrannsóknarstjóri ekki staðfesta hana. „Það er
grundvallaratriði hjá okkur að tjá okkur ekki um málefni einstakra
gjaldenda,“ segir Skúli Eggert. — FÞG
Losna vlð 9 milljóna víneftirlitsskatt
Vínveitingastaðir losna á næsta ári við 9 milljóna gjald sem á þá hef-
ur verið Iagt til að standa undir störfum víneftirlitsmanna, en fram-
vegis verður það eftirlit kostað af ríkissjóði. Samkvæmt nýjum lögum
ber ríkislögreglustjóra að annast skipulag áfengiseftirlits á Iandsvísu
og verður í því skyni sett á fót sérstök deild hjá embættinu. Til að
standa undir áfengiseftirliti lögreglunnar á nú lögum samkvæmt að
veija til þess 0,3% af áfengisgjaldi, sem runnið hefur óskert í ríkis-
sjóð. Aætlað er að þetta skili lögreglunni 15 milljóna tekjum á næsta
ári (sem þýðir þá að alls er gjaldið áætlað um 5.000 milljónir á ár-
inu). Lögreglan í Reykjavík fær 11 milljónir til að sinna áfengiseftir-
litinu en Ríkislögreglustjóri 4 milljónir til að kosta nýju áfengiseftir-
litsdeildina. — HEI
Mikill hafis á Grænlandssraidi
Hafís á Grænlandssundi
er meiri nú í haust en í
meðalári og hefur verið
um 30 sjómílur frá landi
þar sem styst er í hann,
eða norður af Horni. Is-
röstin virðist vera um 10
sjómílúr á breidd og teyg-
ist í meiri ís austnorð-
austur af Vestfjörðum.
Með henni fylgja þrír
stórir borgarísjakar og er
einn þeirra í Víkurál.
Haustið 1992 var hafís þó miklu nær landi á þessum árstíma, eða að-
eins í 8 sjómílna fjarlægð frá Horni. Framundan eru óhagstæðar
vindáttir, þ.e. að norðvestan en Eiríkur Sigurðsson, veðurfræðingur á
Veðurstofu, ríldi ekki spá um það að þessi hafís yrði landfastur. Isinn
sem var norðvestur af Vestfjörðum í grænlensku lögsögunni fyrr í
sumar eyddist ekki í september eins og vant er og kuldi hefur verið
venju fremur mikill á norðaustur Grænlandi svo ísmyndun hefur ver-
ið fremur mikil og hefur t.d. aukist töluvert á Scoresbysundi og þar
fyrir norðan. — GG