Dagur - 13.10.1998, Side 11
ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1998 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Serbneskir stúdentar veifa fánum sínum í Pristina, höfuðborg Kosovo.
Þrjóskan í Serbiun
Líkur aukast stöðugt
á að NATO geri árásir
á Kosovo-hérað - en
engan bilbug er að
finna á Serbum.
Á vestræna mælikvarða getur
Slobodan Milosevic, forseti
Júgóslavíu, ómögulega talist vin-
sæll maður. I skoðanakönnun-
um fyrr á þessu ári voru 23%
landsmanna ánægð með hann,
sem er um 5% minna en fyrir
tveimur árum.
I Júgóslavíu nægir þetta þó til
þess að hann beri höfuð og herð-
ar yfir aðra stjórnmálamenn. Og
með því að kenna Vesturlöndum
stöðugt um ófarir Serba hefur
honum tekist að koma sér undan
pólitískum afleiðingum þess að
efnahagslífi landsins hefur
hnignað stöðugt meðan hann
hefur verið við völd.
Gjaldmiðill Júgóslavíu, dínar-
inn, er nú sex sinnum verðminni
en hann var árið 1994. Mánað-
arlaun í landinu eru að meðaltali
rétt um 700 krónur, viðskipta-
hallinn er kominn í nærri 150
milljarða króna, og atvinnulausir
eru í kringum 40%.
Við þessar aðstæður virðist það
ekki vera annað en fífldirfska af
Serbum að standa uppi í hárinu
á Vesturlöndum, og nánast
heiminum öllum, með framferði
sínu í Kosovo-héraði - eigandi
það á hættu að fá allan herstyrk
NATO yfir sig, sem þeir stæðu
gjörsamlega varnarlausir gegn.
Mörgum Serbum virðast þetta
hins vegar vera eðlileg viðbrögð,
að taka mikla áhættu með því að
neita að taka mark á fordæm-
ingu umheimsins. Enda taka að-
komumenn fljótt eftir því, að
þetta er ekki neitt venjulegt
land.
Eftir nánast óslitið stríðsá-
stand í heilan áratug, sem kostað
hefur gífurlegar fórnir af hálfu
Serba, standa stjórnvöld í
Júgóslavíu enn uppi nánast jafn
traust í sessi sem fyrr. Og hlusta
ekkert frekar á veikburða and-
mæli innanlands heldur en for-
dæmingu að utan. Ekki er ljáð
máls á neinum umbótum, hvorki
á efnahagssviðinu né í stjórn-
málum.
Eða eins og Nebosja Drnd-
arevic, leigubílstjóri sem eins og
aðrir á erfitt með að láta enda ná
saman, orðaði það: „Berlínar-
múrinn féll aldrei hjá okkur.“
Milosevic þykir óneitanlega
búa yfir miklum hæfileikum til
að finna góða leiki í valdabarátt-
unni. Honum hefur tekist að
draga allan mátt úr óvinum sín-
um innanlands, eða ldjúfa þá í
smærri fylkingar sem eiga enga
möguleika gegn honum. Rudda-
leg valdsmannshegðun hans
ásamt þeirri tortryggni og
þrjósku sem hann hefur tamið
sér hefur þó fundið hljómgrunn
meðal margra íbúa landsins.
„Ef hann langar í kjúkling í
matinn, þá fer hann með skrið-
dreka að ná í hann, vegna þess
að hann kann ekki að gera það
öðru vísi,“ segir Zoran Djindjic,
Ieiðtogi elsta og stærsta stjórnar-
andstöðuflokksins. „I fimm eða
sex ár höfum við nú búið við eins
konar hernámsástand. Hann
hefur tryggt sér þvílík völd að ör-
lög okkar fara eftir því hvernig
hann er innrættur."
- The Washington Post
Sólhattur eflir
ónæmiskerfið
025%
CUVF
eilsuhúsið
Skólavörðustíg, Kringlunni, Smáratorgi
og Skipagötu, Akureyri
Þrír læknar fá Nóbelsverðlaim
SVIÞJOÐ - Þrír bandarískir vísindamenn, Robert Furchgott, Louis Ign-
arro og Ferid Murad, hljóta Nóbelsverðlaunin í læknisfræði þetta árið.
Þeir hljóta verðlaunin fyrir þá uppgötvun sína að köfnunarefnisoxíð sé
mikilvægt boðefni í líkamanum. Meðal þess, sem sú uppgötvun leiddi
af sér, var kyngetulyfið Viagra sem farið hefur sigurför um hinn vest-
ræna heim undanfarið.
Jeltsín kvefast enn
RÚSSLAND - Að ráði lækna sinna stytti Boris Jeltsín, forseti Rúss-
lands, heimsókn sína til Kasakstan í gær og hélt heim á Ieið. Svo virð-
ist sem hann hafi kvefast í flugvélinni á Ieið til Tasjkent, höfuðborgar
Kasakstans.
ítalir leita leiða til stjómarmyndunar
ÍTALIA - Stjórnarkreppa ríkir nú á Italíu eftir að Romano Prodi forsæt-
isráðherra sagði af sér. Scalfaro, forseti Italíu, ræðir nú við leiðtoga
Kommúnista og annarra smærri flokka um hugsanlega stjórnarmynd-
un, en líklegast þykir að mynduð verði bráðabirgðastjórn.
Fé til höfuðs Rushdie hækkað
ÍRAN - Nú hefur fé það, sem boðið er í verðlaun fyrir að myrða rithöf-
undinn Salman Rushdie, verið hækkað upp í rúmar 200 milljónir
króna. Svokölluð írönsk menningarstofnun safnaði saman um 20 millj-
ónum króna til þess að bæta við gjaldið, sem sett hefur verið til höfuðs
honum. Khatami, forseti Irans, lýsti því nýlega yfir að ríkisstjórnin hefði
ekkert lengur með dauðadóminn að gera. Heittrúaðir múslimar halda
því þó fram að ríkisstjómin geti ekki ógilt dauðadóminn, þar sem hann
var kveðinn upp samkvæmt lögum trúarinnar.
Fjarnám til
meistaragráðu í
hjúkrunarfræði
Kynningarfundur
HÁSKÓLINN Á AKUREYRI, í samvinnu við MANCHESTER HÁ-
SKÓLA auglýsir fjarnám til meistaragráðu í hjúkrunarfraeði. Áaetlað
er að námið, sem tekur tvö ár, hefjist í lok janúar 1999. Gert er ráð
fyrir að hjúkrunarfræðingar geti stundað námið jafnhliða a.m.k. hálfu
starfi. Inntökuskilyrði er B.S. gráða í hjúkrunarfræði ásamt starfs-
reynslu.
Umsóknarfrestur er til 1. nóvember, n.k.
Upplýsingar um námið fást hjá Póru Ragnheiði Stefánsdóttur, skrif-
stofustjóra heilbrigðisdeildar, Þingvallastræti 23, 600 Ak., s. 463-
0901. Upplýsingar um námið veitir einnig prófessor Sigríður Hall-
dórsdóttir í vs. 463-0900 og hs. 462-7676.
Haldinn verður kynningarfundur um meistaragráðunámið fimmtudag-
inn 15. október kl. 15 á sex stöðum samtímis:
Akureyri, Háskólinn á Akureyri, Þingvallastræti 23, 1. hæð í stofu 14.
Isafirði, Framhaldsskóli Vestfjarða, Torfnesi, 2. hæð í heimavist.
Egilsstöðum, Menntaskólinn á Egilsstöðum, 1. hæð í stofu 2.
Neskaupsstað, Verkmenntaskóli Austurlands, 3. hæð í stofu 11.
Austur-Skaftafellssýslu, Framhaldsskóli Austur-Skaftafellssýslu, 1.
hæð í stofu 4.
Reykjavík, Háskóli íslands, Félagsvísindadeild Odda, kjallara.
Íi&BK&UMM
A AKUREYRi
í keppni þeirra hestu er fullkomin samhæfing allra þátta lykillinn aö velgengni.
Aptiva fjölskyldan irá IBM fullnægir öllum kröfum nútíma
margmiðlunar. Fullkominn hljóö- ag myndbúnaöur ásamt
fjarskiptamöguleikum færa þér óendanlega möguleika.
Hvert sem hugurinn stefnir, veitir Aptiva þér
S 3S*S. ‘SSkS. tækifæri til aö kanna óravíddir heimsins. NYHERJI
Skaitahlíö 24 • Sími 569 7700
http://www.nyherji.is
i
i
i
J
3
i
I
J
\
i
i