Dagur - 20.10.1998, Blaðsíða 5

Dagur - 20.10.1998, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998 - S i D^ur FRÉTTIR Deilt iim tíma hjá framsóknarfólM Á kjördæmisþmgi framsóknarmaima í Reykjanesi urðu snarpar deilur um hvenær tvöfalt kjör- dæmisráð kemur sam- an til að ganga frá uppstillingu. Á kjördæmisþingi Framsóknar- flokksins í Reykjaneskjördæmi var ákveðið að viðhafa ekki prófkjör vegna uppstillingar á lista flokks- ins í þingkosningunum næsta vor. Þess í stað verður kallað saman tvöfalt kjördæmisþing sem velur fólk á listann. Siv Friðleifsdóttir vildi að þessi fundur yrði haldinn 5. nóvember næstkomandi í Mosfellsbæ. Skúli Skúlason, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, lagðist gegn til- lögunni. Um væri að ræða kvöld- fund og þeir sem ættu lengst að Sigurður Geirdal bæjarstjóri í Kópavogi lagði fram málamiðlun- artillögu á kjördæmisþinginu. fara yrðu ekki komnir heim til sín fyrr en um miðja nótt. Hann sagði að nú, þegar búið væri að ákveða aðferðafræðina við að setja saman lista, þá væri eftir að sjá hverjir vildu gefa kost á sér og þeir þyrftu sinn tíma. Hann viðraði það að fundurinn yrði ekki haldinn fyrr en í byijun næsta árs. Halldór Ásgrímsson segir að það, að vera efstur á lista I kjördæmi sé ekki sjálfkrafa ávísun á ráðherrasæti. Málamiðlim reynd Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi, kom þá með málamiðl- un um að fundurinn verði hald- inn 28. nóvember, sem er laugar- dagur. Á þetta gat Siv Friðleifs- dóttir ekki fallist og varð að gera hlé á þingstörfunum. Stjórn kjör- dæmissambandsins skaut á fundi og kallaði fyrir sig þingmennina Siv og Hjálmar Árnason. Niður- staðan var síðan sú að vísa því til stjórnar kjördæmisráðsins að ákveða hvenær fundurinn verður haldinn. Margir skildu ekki af hverju Siv lagði svo mikla áherslu á að halda fundinn 5. nóvember. Aðrir bentu á að flokksþing Framsóknar- flokksins hefst 20. nóvember og Siv vill að Iistinn í Reykjanesi verði tilbúinn fyrir þann tíma. Yfírlýsing Halldórs Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, var gestur á fundinum. Hann var þar spurður hvort það væri ekki í Framsóknar- flokknum eins og Sjálfstæðis- flokknum að efsti maður á Iista væri ráðherraefni. Halldór sagði enga hefð fyrir því í Framsóknar- flokknum og þess vegna gæti maður í 2. sæti aiveg eins orðið ráðherra. — S.DÓR Boðaðri skerðingu gagnvart íslenska járnblendifélaginu hefur nú verið frestað um 10 daga og kemur skerðingin til framkvæmda þann 1. nóvember, en áður hafði verið ákveðið að loka ofnum verksmiðjunnar í dag. Endurskoðar skerðingu Bruni í Skagafirði Stórtjón varð á bænum Fagra- nesi í Skagafirði í fyrrakvöld þegar eldur kviknaði í steinhúsi. Slökkviliðið í Skagafirði fékk til- kynningu um eldinn klukkan 19.00 í fyrrakvöld en þegar það kom á staðinn höfðu íbúar allir komist út úr húsinu, Qórir full- orðnir og eitt ungabarn. Slökkvi- starf gekk greiðlega en eldsupp- tök eru rakin til óvarkárni með eld. Bann við mútuþægni Komið er fram stjórnarfrumvarp um refsiábyrgð lögaðila vegna mútugreiðslu til opinberra starfsmanna. Þessi lagasetning er til þess að Island geti fullgilt samning um baráttu gegn mútu- greiðslum til erlendra opinberra starfsmanna. Upplýst nm hverjir gistn Stöð 2 fær að- gang að upplýs- ingum um hveij- ir gistu í íbúð Búnaðarbanka Islands í Lund- únum. Héraðs- dómur Reykja- víkur felldi úrskurð um þetta í gær en fréttastofa Stöðvar 2 hafði áður farið fram á gögnin, en fengið synjun af hálfu bank- ans. Kannast við eina álft Mennirnir sem grunaðir eru um að hafa drepið allt að 50 álftir í Þykkvabænum nýlega hafa sagt við yfirheyrslur að þeir kannist aðeins við að hafa skotið eina álft skv. fréttum RÚV. Viðamikil rannsókn hefur farið fram vegna málsins þar sem veitingahús hafa m.a. verið til skoðunar. Landsvirkjun hefur endurskoðað áður ákveðna skerðingu á af- gangsorku til stóriðju með hlið- sjón af nokkrum bata sem átt hefur sér stað í vatnabúskapnum að undanförnu. Mestu ræður hér meiri úrkoma að undanförnu en gert hafði verið ráð fyrir, sem og sú staðreynd að álag hefur verið minna frá almenningsraf- Tíu íslensk fyrirtæki sýna á sjávarútvegs- sýningu í Kína. Aukin eftirspum eftir sjáv- arafurðum í fram- haldi af vaxandi kaup- mætti. „Fyrir utan sjávarútvegssýningu erum við líka að skipuleggja ráð- stefnu í Ivína, þar sem við mun- um kynna hátækni og hugbúnað í sjávarútvegi,“ segir Vilhjálmur veitum og Norðuráli en fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir. Þessar breytingar valda því að boðaðri skerðingu gagnvart Is- Ienska járnblendifélaginu hefur verið frestað frá 20. þ.m. til 1. nóvember nk. en Járnblendið hafði áður ákveðið að slökkva á ofnunum í dag. Jafnframt hefur verið ákveðið að draga á svipað- Guðmundsson hjá Útflutnings- ráði Islands. Á annan tug Islendinga heldur innan skamms til Dalian í Norð- ur-Kína, þar sem tíu íslensk fýrir- tæki munu kynna framleiðslu sína fyrir heimamönnum í lok mánaðarins. Þetta er í þriðja sinn á jafnmörgum árum sem Islend- ingar leggja land undir fót til að sýna og kynna fyrir Kínveijum það markverðasta sem er að ger- ast í íslenskum sjávarútvegi. Sóknarfæri í Kína Vilhjálmur Guðmundsson segir að kaupgeta almennings í Kína an hátt úr skerðingu á af- gangsorku til ISAL og Áburðar- verksmiðjunnar á þessu ári. Enn hefur ekki reynst nauðsynlegt að skerða ótryggt rafmagn til al- menningsrafveitna, enda hefur verð á slíku rafmagni verið hækkað í samræmi við gildandi gjaldskrá og það dregur úr eftir- spurn. — BÞ hafi vaxið mjög mikið í framhaldi af markaðsvæðingu efnahagslífs- ins í stað áætlunarbúskapar á undanförnum árum. Það hefur m.a. haft í för með sér aukna eft- irspurn eftir sjávarafurðum. Sem dæmi þá hefur útflutningsverð- mæti íslenskra sjávarafurða til Kína aukist úr nokkrum tugum milljóna króna á ári í tæpar 700 milljónir króna í fyrra. Þarna er aðallega um að ræða rækju og loðnu. Auk þess eru Kínveijar að smíða nýtt skip fyrir íslenskan út- gerðarmann. Þá hefur t.d. Sölu- miðstöð hraðfrystihúsanna opn- að skrifstofu í Shanghæ. - GRH Islensk hátækni tíl Kína 600 létust í sprengingu NÍGERÍA - Um 600 manns lét- ust í gær þegar sprenging varð í bensínleiðslu í Nígeríu. Þar á meðal voru mörg börn. Undan- farna daga höfðu hundruð manna notfært sér leka á bens- ínleiðslunni, sem lá í gegnum þorp í Nígeríu, og náðu sér í ókeypis bensín á flöskur og kúta. Fjölmargir voru því stadd- ir við leiðsluna þegar neisti barst að henni og gífurleg sprenging varð. Clinton hafnar kröfu Jones BANDA- RÍKIN - Bill Clinton Bandaríkja- forseti hafn- aði tilboði frá lögfræð- ingum Paulu Jo- nes, um að greiða 2 milljónir dollara gegn því að hún falli frá ákæru sinni á hendur forsetanum um kynferðislega áreitni. Clinton hafði áður boð- ið henni hálfa milljón dollara. Akærunni var vísað frá rétti í Arkansas, heimaríki Clintons, en í dag eiga að hefjast vitna- leiðslur í málinu fyrir áfrýjunar- rétti. Microsoft fyrir rétti BANDARÍKIN - í gær hófust í Bandaríkjunum réttarhöld yfir hugbúnaðaríyrirtækinu Microsoft. Fyrirtækið sætir þar ákæru bandarískra stjórnvalda um að hafa misnotað sér yfir- burðastöðu sína á tölvumark- aðnum til þess að bola burt keppinautum. Samkomulag í höfn? BANDARÍKIN - Samninga- fundir Bills Clintons Banda- ríkjaforseta með Jasser Arafat, leiðtoga Palestínumanna, og Benjamin Netanjahu, forsætis- ráðherra Israels, héldu áfram í gær. Mikil óvissa ríkti um hvort samkomulag næðist. Deilt var um nokkur lykilatriði, eins og hvort 3000 Palestínumönnum í ísraelskum fangelsum yrði sleppt lausum og kröfu Israels- manna um að framlengja frest, sem settur var í Oslóarsam- komulaginu um endanlega nið- urstöðu í friðarferlinu, sem átti að verða 4. maí 1999. Pmochet ákærður fyrir þjóðarmorð BRETLAND - Augusto Pin- ochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile, situr nú í varðhaldi í Bretlandi og bíður þess hvort hann verði framseldur til Spán- ar. Baltasar Garzon, dómari á Spáni, fjölgaði í gær ákæruefn- um á hendur Pinochet, og er hann nú ákærður fyrir þjóðar- morð, pyntingar og hryðjuverk gegn 94 einstaklingum af ýms- um þjóðernum. Samkvæmt breskum framsalslögum hafa dómstólar á Spáni 40 daga frest til að leggja fram lagalegan rök- stuðning fyrir framsali Pin- ochets. Bill Clinton.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.