Dagur - 20.10.1998, Blaðsíða 6

Dagur - 20.10.1998, Blaðsíða 6
6 - ÞRIÐJUDAG U H 20. OKTÓBER 19 9 8 ÞJÓÐMÁL Útgáfufélag: Útgáfustjóri: Ritstjórar: Aðstoðarritstjóri: Framkvæmdastjóri: Skrifstofur: Símar: Netfang ritstjórnar: Áskriftargjaid m. vsk.: Lausasöluverð: Grænt númer: Símbréf auglýsingadeildar: Símar augiýsingadeiidar: Netfang auglýsingadeildar: Símbréf ritstjórnar: DAGSPRENT EYJÓLFUR SVEINSSON STEFÁN JÓN HAFSTEIN ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON BIRGIR GUÐMUNDSSON MARTEINN JÓNASSON STRANDGÖTU 31, AKUREYRI, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK 460 6100 OG 800 7080 ritstjori@dagur.is 1.680 KR. Á MÁNUÐI 150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ 800 7080 460 6161 (REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason (AKUREYR 1)460-6191 G. Ómar Pétursson OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir omar@dagur.is 460 6171(AKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK) Skákstelpur í fyrsta lagi Skáksamband Islands hefur ekki jafnrétti kynjanna á dagskrá sinni. Þar er það í hópi með helstu íþróttafélögum og sam- böndum sem þiggja reiðinnar býsn af almannafé til starfsemi sinnar. Skáksambandið vill veija takmörkuðum fjármunum sínum til að senda stráka til að keppa á alþjóðlegu móti, en stelpurnar mega fara ef þær borga sjálfar. Málið er ekki alveg jafn einföld karlremba og sýnist. Miklu fleiri strákar en stelp- ur stunda skák, samkeppnin um sæti á alþjóðamóti er hörð og þeir standa stúlkunum framar í samanburði við væntanlega keppinauta. A ekki að velja þá hæfustu til keppni án tillits til kyns? Nei. í öðru lagi Ur því skáklistin er á aðskildum mótum pilta og stúlkna á Skáksambandið að sjá sóma sinn í því að senda keppendur í báðum flokkum. Við vitum að innan íþróttahreyfingarinnar hefur verið mikil freisting að leggja niður kvennaflokka til að styðja betur við afrekskarla. Og stúlkurnar hafa verið reknar út á guð og gaddinn með klósettrúllur og rækjur til að afla fjár meðan strákarnir æfa. Við viljum að kynin njóti jafnréttis til þátttöku í íþróttum. Ef alþjóðleg mót heyra þar undir eiga stúlkur að keppa við erlendar stöllur rétt sem piltar. Engum dettur í hug að leggja niður karlalandsliðið í knattspyrnu þótt kvennalandsliðið standi hærra á alþjóðlegum mælikvarða, eins og hefur gerst. í þriöja lagi Þetta mál sýnir hvað gerist þegar menn hafa ekki áhuga á jafn- rétti kynjanna. Hugsunin og forgangsröðunin er út frá öðrum gildum. Þau þurfa ekki að vera röng svo langt sem þau ná. Þau fullnægja bara ekki kröfu okkar um að jafnrétti kvenna og karla nái til sem flestra sviða í samfélaginu, og alveg tvímæla- laust þeirra sem njóta almannafjár. Enn einu sinni höfum við sönnun þess að jafnréttismálum verður að gera hærra undir höfði í pólitískri stefnumótun og jafnréttisstefna á að vera samþætt opinberu lífi. Annars verður alltaf hægt að búa til af- sakanir fyrir því að gera ekki neitt. Stefán Jón Hafstein. Stol fyrir Steina Þá er Þorsteinn að hætta í pólitíkinni eftir 16 ára fræki- lega framgöngu. Garri heyrði í honum í útvarpinu um helgina og það var eiginlega ekki fyrr en þá að hann áttaði sig hversu gríðarlega afkastamikill Þorsteinn hefur verið. Allar helstu breytingar og betrumbætur á þjóðfélaginu síðustu 16 árin eru meira og minna Þorsteini að þakka, dómskerfið, hagkerfið og vist- kerfið í kringum landið hefur hann reist við og rifið upp úr öskustón- ni. Þorsteinn er enn ungur maður og þeir eru fáir sem geta svo ungir státað sig af jafn miklum þjóðfélagsbylt- ingum og hann. Þorsteinn Pálsson. Óvinir og V vmir Þorsteinn hefur eðlilega eign- ast marga óvini í stjórnmálum, eins og raunar gerist með flesta stjórnmálamenn sem eru í forustusveit flokka sinna. Það er hins vegar óvenjulegt með Þorstein að helstu póli- tísku óvinir hans koma úr röð- um samherja hans og sam- starfsmanna eins og sannaðist best þegar vinur hans og félagi til margra ára í Sjálfstæðis- flokknum, Davíð Oddsson, fór fram gegn honum í formanns- kjöri - og hafði betur. Garri hefur tekið eftir því að Þor- steinn neitar því ekki í viðtöl- um að Davíð hafi komið aftan að honum. Hann segir bara að það sé ekki tímabært að gera upp slík mál. I ljósi þess að aðalóvinir Þorsteins eru samstarfsmenn hans og félag- ar er Garri ekki í nokkrum vafa um að Davíð hefur tilkynnt Þorsteini að hann myndi ekki fá sæti í næstu ríkisstjórn ef hann færi fram. Það hafi því í raun verið sjálfhætt og kominn tími til að finna annan stól fyr- ir Steina. Viðlagið Pólitískur ferill Þorsteins er því að fá á sig mjög áberandi viðlag. Sem ungur maður skaust hann upp á stjörnuhim- ininn og var krafan þá strax um að fá „stól fyrir Steina.“ Var þá fyrst fundinn ritstjórastóll og fram- kvæmdastjórastóll VSÍ og síðan for- mannsstóllinn sjálfur f Sjálfstæðisflokkn- um. Þegar sá stóll var í höfn magnaðist kraf- an fram úr öllu hófi um stól fyrir Steina - og snerist hún þá um að fá ráðherrastól. Það mál var leyst farsællega og fundinn var góður ráðherrastóll. Síðan kom að því að Þorsteinn fengi forsætisráðherrastól en síðan hefur stólaleitin meira snúist um að finna stól fyrir Steina þar sem hann fær að vera í friði fyrir duttlungum Davíðs. Spurningin er því hvers skonar stóll verður fundinn fyrir Steina núna. Ljóst er að ef fé- lagar Þorsteins fara að gera kröfur um stól fyrir Steina mun lítill hugur fylgja þar máli. Því hljótum við að mæl- ast til þess við andstæðinga Þorsteins, sem alla jafnan hafa reynst honum betur en sam- herjar hans, að þeir setji fram kröfuna um stól fyrir Steina. Þorsteinn á óvenju marga and- stæðinga á Morgunblaðinu og því ekki ólfklegt að þeir muni bjóða honum splunkunýjan ritstjórastól þar. garhi. JÓHANNES SIGURJÓNS- SON skrífar Grandalausir samherjar íslenskir útvegsmenn standa þessa dagana fyrir fræðsluátaki á ári hafsins. Og Ieggja sérstaka áherslu á að þetta sé fræðsla og þar af leiðandi ekki einhliða áróður. Uppfræðsla felur jú f sér að allar hliðar málsins sem um er fjallað, góðar og slæmar, eru dregnar upp á yfirborðið og gaumgæfðar. Og það er auðvitað gert í „fræðsluátaki" útvegs- manna, eða hvað? Einn liður í þessu átaki er aug- lýsingaherferð í blöðunum. M.a. hefur birst mynd af ungum og fögrum stúlkum og þjóðinni bent á að það eru þessar stúlkur sem eiga kvótann. Og hafa þá vænt- anlega vélað hann út úr „granda- lausum samheijum" þessa Iands. I annarri auglýsingu stara löngu steindauðir fiskar freðnum augum framan í Islendinga og þessi flenniyfirlýsing undir: Frelsi til að velja! Sem náttúrlega stenst ekki, því ýsan, steinbítur- inn, karfinn og þorskurinn á myndinni, hafa akkúrat ekkert frelsi til að velja svo löngu eftir fráfall sitt. Og höfðu það reynd- ar ekki heldur í lifanda lífi og kusu sér örugg- lega ekki ömur- legan aldurtila í netum og nótum útvegsmanna. Sértæk sam- eign ■ Og óbreyttir Is- lendingar hafa heldur ekki frelsi til að velja hvort þeir gerast út- gerðarmenn, eignast kvóta og róa til fiskjar. Fjármagn er sem sé forsenda frelsisins til að velja. Og þeir sem ekki eiga kvóta, þeir sem ekki voru svo heppnir að vera á rétt- um stað á réttum tíma þegar ráðamenn þjóðarinnar útdeildu sameign þjóðarinnar til fárra út- valdra, þeir hafa ekkert frelsi til að velja. Auðurinn fer þangað sem hann er fyrir. Afturgengnir lénsherrar Vonandi eiga út- vegsmenn eftir að birta fleiri auglýsingar í sínu jákvæða fræðsluátaki. Og þar verður væntanlega fjallað um það hversvegna harðduglegir sjómenn sem stundað hafa sjóinn um áratugaskeið eiga ekki svo mikið sem eitt kíló af sameig- inlegum kvóta landsmanna, á meðan börn og unglingar sem aldrei hafa migið í saltan sjó, en eru svo heppin að eiga útvegs- menn að feðrum, eru erfingjar kvóta sem leggur sig á hundruð milljóna. Og þar verður örugglega einnig birtur Iisti yfir þá útvegs- menn sem hafa selt kvóta fyrir hundruð milljóna og lifa nú í vellystingum pragtuglega og reka verslanir í Kringlunni á milli ut- anlandsferða. Það sem fer í taugarnar á þjóð- inni er ekki sjálft kvótakerfið og fiskveiðistjórnunin, heldur hitt að hér skuli vera við haldið ein- hverskonar lénsskipulagi þar sem þjóðarauðnum er skipt eftir ættum en ekki verðleikum ein- staklinga eða vinnuframlagi. Svoddan kerfi var við lýði í Evr- ópu á miðöldum, en hefur þar verið lagt af að mestu - en skýtur svo upp kollinum sem aftur- ganga á Islandi í dag. Hvemig verðurÞor- steins Pálssonar minnst sem stjómmálamanns? Margrét Frímannsdóltir form. Alþýðubandalagsins og þing- maðurSunnlendinga. „Þorsteinn Páls- son er afar góð- ur samstarfs- maður. Við erum búin að vinna saman í bráðum tólf ár sem þingmenn Suðurlandskjördæmis og hann er afar heiðarlegur og hreinskip- inn í öllum samskiptum. Þó við séum ekki alltaf sammála er nið- urstaðan engu að síður sú að aldrei hefur borið skugga á sam- skipti okkar vegna þeirra mál- efna sem snerta Suðurland. Þor- steinn er ekki maður sem er gjarn á að auglýsa verk sín, en hefur skilað kjördæminu heil- miklu.“ Einar Oddur Kristjánsson þingmaður Sjálfstxðisflokks. „I mínum huga hefur það alltaf verið mjög skýrt að Þorsteinn Pálsson er frá- bærlega hæfur maður til allra hluta. Það getur ekki verið að hans verði minnst öðruvísi sem stjórnmálamanns.“ Sverrir Hermannsson fv. bankastjóri. „Misjafnlega, trúi ég. Þor- steinn á sína eindregnu stuðningsmenn og sjálfsagt að- dáendur í kjör- dæmi. En þjón- usta hans við útgerðaraðalinn verður lengi í minnum höfð og þegar þar að kemur verður það ekki talinn glæsilegur kafli í stjórnmálasögu hans og Sjálf- stæðisflokksins. Enda er hann sjálfsagt búinn að fá nóg. Á hinn bóginn er margt gott um þennan mann að segja ef hann er látinn njóta sannmælis, en hann hlýtur þó að verða talinn nokkur hrak- fallabálkur í pólitík." Kaunveig Guðmundsdóttir formaður þingflokks jafnaðarmanna. „Þorsteins verð- ur vissulega minnst sem eins af helstu for- ystumönnum Sjálfstæðis- flokksins, enda fyrrum formað- ur hans. Hann mun og verða mjög tengdur sjávarútvegsstefn- unni sem er mjög umdeild. Mannsins Þorsteins verður að mínu mati minnst sem agaðs stjórnmálamanns, sem sjaldan hefur látið setja sig út af laginu. Eg býst við að flestir Iíti á hann sem traustan stjórnmálamann, sem hafi sett hagsmuni flokksins ofar eigin hagsmunum og til- finningum þó hann hafi oft haft tilefni til að setja hnefann í borð- ið.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.