Dagur - 20.10.1998, Blaðsíða 8
8 - PRIDJUDAGUR 2 0. OKTÓBER 1998
ÞRIDJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998 - 9
FRÉTTASKÝRING
.Thypir
Mmningarsjóður um forsetafnína
JOHAN
DOTTI
ERÐUR
NS-
TTIR
Útfor Guðrúnar
Katrínar Þorbergsdótt-
ur, forsetafrúar, verð-
ur gerð frá Hallgríms-
kirkju á morguu. Þjóð-
höfðingjar Norður-
landa verða allir við-
staddir og eiuuig fjöl-
margir sendiherrar er-
lendra ríkja. Stofnað-
ur hefur verið iniirn-
iugarsjóður um for-
setafrúua.
Guðrún Katrín Þorbergsdóttir,
eiginkona Olafs Ragnars Gríms-
sonar forseta Islands verður jarð-
sungin frá Hallgrímskirkju á
morgun. Útförin verður á vegum
ríkisstjórnarinnar og er öllum
heimill aðgangur að kirkjunni
meðan húsrúm leyfir.
Þjóðhöfðingjar Norðurlanda
hafa allir boðað komu sína við út-
för forsetafrúarinnar, þau Mar-
grét II. Danadrottning, Karl XVI.
Gústaf Svíakonungur, Haraldur
V. Noregskonungur og Martti
Ahitsaari forseti Finnlands.
Einnig hafa sendiherrar margra
erlendra ríkja tilkynnt að þeir
muni verða við útförina.
Mtnningarbókm
Nokkur þúsund manns hafa ritað
nafn sitt í minningarbók um for-
setafrúna sem legið hefur frammi
í hátíðarsal Bessastaða síðan á
laugardag. Mikil bílaumferð var
út á Alftanes á sunnudaginn og
mynduðust biðraðir eftir af-
leggjaranum að Bessastöðum og
varð Iögreglan að hleypa bílum í
hollum að forsetabústaðnum.
Stöðugur straumur fólks var ein-
nig að Bessastöðum eftir hádegi f
gær, en minningarbókin mun
einnig liggja frammi í dag til
klukkan 18:00.
Mianingarsjóður stofnaður
Akveðið hefur verið að stofna
minningarsjóð um Guðrúnu
Katrínu. í tilkynningu frá Ólafi
Ragnari Grímssyni, forseta, segir
að fjölskyldunni hafi borist óskir
og tilmæli um stofnun minning-
arsjóðs og ákveðið að verða við
því. Sjóðurinn verður helgaður
þeim málefnum sem forseta-
frúnni voru hugleikin,. einkum
heilbrigði, menntun og listsköp-
un ungs fólks.
Framlög í minningarsjóðinn
verða skráð í sérstaka stofnenda-
skrá Minningarsjóðs Guðrúnar
Katrínar Þorbergsdóttur. Þeir
sem vilja minnast forsetafrúar-
innar með framlögum í minning-
arsjóð hennar er vinsamlega bent
á reikningsnúmerið 140800 sem
merkt hefur verið sjóðnum í öll-
um bönkum og sparisjóðum
landsins.
Biskupiun jarðsyngur
Biskup Islands, herra Karl Sigur-
björnsson, jarðsyngur forseta-
frúna, en útför hennar fer eins og
fyrr sagði fram í Hallgrímskirkju.
Athöfnin hefst klukkan 11 og er
öllum opin meðan húsrúm leyfír
en Hallgrímskirkja tekur um 800
manns í sæti. Athöfninni verður
útvarpað og sýnd beint í sam-
sendingu Sjónvarpsins og Stöðvar
2 líkt og gert var á laugardaginn
þegar komið var með kistu for-
setafrúarinnar.
Auk fjölskyldu Guðrúnar
Katrínar, verða viðstaddir þjóð-
höfðingar Norðurlanda og fleiri
útlend fyrirmenni, ráðherrar,
embættismenn og fleiri.
Athöfnin verður hefðbundin en
forsetinn hefur lagt mikla áherslu
á að tónlist sem flutt verður við
athöfnina sé íslensk. Forspilið
verður eftir Jón Nordal og útspil-
ið eftir Jónas Tómasson. Tveir
kórar syngja, Schola Cantorum
undir stjórn Harðar Askelssonar
sem einnig annast orgelleikinn og
Vox Feminae undir stjórn Mar-
grétar J. Pálmadóttur. Einsöngv-
arar verða Sigrún Hjálmtýsdóttir
og Kristinn Sigmundsson. Sigrún
syngur „Sjá dagar koma, ár og
aldir líða“ eftir Sigvalda Kalda-
Ións við Ijóð Davíðs Stefánssonar
og Kristinn syngur „Þó þú lang-
förull legðir" eftir Sigurð Þórðar-
son við texta Stephans G. Steph-
anssonar.
Útförin er á vegum ríkisins og
skipan fyrirmenna og embættis-
manna í sæti lýtur opinberum
siðareglum. Allt sem lýtur að
þátttöku nánustu fjölskyldu og
ættingja svo sem sætaskipan og
fleira er varðar útförina á morgun
er ákvörðun forsetans sjálfs.
Sama gilti um athöfnina á laugar-
daginn þegar kistan kom til
landsins.
Bálíör í Fossvogskapellu
Gert er ráð fyrir að athöfnin í
Hallgrímskirkju taki um klukku-
stund en að henni lokinni verður
farið með kistu forsetafrúarinnar
í Fossvogskapellu. Þar verður
bálför hennar gerð en við þá at-
höfn verður aðeins fjölskylda
Guðrúnar Katrínar.
Ríkisstjómin hefur ákveðið að
skrifstofur stjórnarráðsins og aðr-
Nokkur þúsund manns hafa rítað nafn sitt í minningarbók um Guðrúnu Katrínu Þorbergsdóttur forsetafrú og var stöðugur straumur fólks tii Bessastaða í gær og fyrradag. Útför Guðrúnar Katrínar verður gerð frá Hallgrímskirkju á morgun.
- mynd: teitur
ar opinberar stofnanir verði lok-
aðar til klukkan 13:00 útfarar-
daginn, eftir því sem tök eru á. I
samráði við menntamálaráðherra
hefur einnig verið mælst til þess
að kennsla verði felld niður í
skólum landsins fyrir hádegi á
morgun.
Athöfn á Keflavikurflugvelli
Komið var með kistu forsetafrú-
arinnar ífá Seattle í Bandaríkjun-
um til Keflavíkur á laugardaginn
var og með í för voru Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Islands,
dætur hans tvær Guðrún Tinna
og Svanhildur Dalla og Kornelíus
Sigmundsson, forsetaritari. Flug-
véí Cargolux lenti með kistuna
laust eftir klukkan 13:00 og á
flugvellinum var stutt og virðuleg
athöfn.
A móti forsetafjölskyldunni
tóku handhafar forsetavaíds, for-
sætisráðherra, forseti Alþingis,
forseti Hæstaréttar og eiginkonur
þeirra, einnig ríkisstjórnin og
makar ráðherra, biskupinn og
eiginkona hans, ættingjar forseta-
frúarinnar, embættismenn og
starfsmenn forsetaembættisins.
Biskup íslands flutti blessunar-
orð við athöfnina og sagði þá
meðal annars: „Haustsvalinn um-
lykur ykkur kæra fjölskylda, en
hlýtt er þel alþjóðar sem umvefur
ykkur, almenn samúð, dýpsta
virðing, kærleikur, fyrirbæn. Vel-
komin heim.“
Lúðrasveit lék sorgarlög, lög-
reglumenn stóðu heiðusvörð og
að athöfninni lokinni báru 8 ein-
kennisklæddir lögregluþjónar
kistuna í líkbílinn, sem flutti hana
til Bessastaða. Þar var einnig at-
höfn fyrir nánustu fjölskyldu
Guðrúnar Katrínar.
Faðmast á sorgarstundu. Dætur forsetahjónanna faðma ættingja sína við
komuna til Keflavíkur. - mynd: þök
Davíð Oddsson forsætisráðherra vottar Úlafi Ragnari Grímssyni, forseta ís-
lands, samúð sína við athöfnina á Keflavíkurflugvelli á laugardaginn. Við hlið
hans er eiginkona hans Ástríður Thorarensen, en ráðherrar og makar þeirra
voru allir viðstaddir. - mynd: þök
Átta lögreglumenn báru kistu forsetafrúarinnar að líkbílnum að lokinni athöfninni á Keflavíkurflugvelli. Úlafur Ragnar
Grímsson forseti og dæturnar Svanhiidur Dalla og Guðrún Tinna. - mynd: þök
iL'iljíÍiJJITLll
Kenni á Subaru Legacy.
.. .......---—------
MÓT0RSTILUNG,
HJÓLASTILUNG,
VETRARSK0ÐUN!
Tilboð næstu vikur.
Notið tækifærið og
undirbúið bílinn
fyrir veturinn.
Leitið upplýs'"9a
rtöidur ehi.
Bifreiðaverkstæði
Draupnisgötu I • Simi 461 3015
TÍMAR EFTIR SAMKOMULAGI. ÚTVEGA NÁMS-
GÖGN. HJÁLPA TIL VIÐ ENDURNÝJUNARPRÓF.
Ingvar Björnsson
ökukennari frá KHÍ
Akurgerði 11 b, Akureyri
Sími 899 9800 Heimasími 462 5692