Dagur - 31.10.1998, Side 4

Dagur - 31.10.1998, Side 4
4- LAUGABDAGUR 31. OKTÓBER 1998 FRÉTTIR Sjávarfréttir komnar út Handbókin Sjávarfréttir 1998 til 1999 er komin út í sjöunda sinn. Hún hefur að geyma nýja skipaskrá, kvótaskrá og skrá yfir útflytjend- ur sjávarafurða. Auk þess eru í bókinni margvíslegar aðrar upplýsing- ar, meðal annars um ástand fiskistofna og ráðgjöf Hafró, aflaþróun, veiða utan lögsögu og sölu á fiskmörkuðum. Einnig eru £ bókinni, sem jafnframt er fáanlega á tölvudiski, upplýsingar um öll íslensk þil- farsskip og útgerðir þeirra. — SBS Fjölbrautarskóli Suðurlands með umhverfisstefnu Skólanefnd Fjölbrautaskóla Suðurlands hefur samþykkt umhverfis- stefnu fyrir skólann, fyrstur skóla landsins. Stefria þessi nær til fjöl- margra þátta, en samkvæmt henni verður mikil áhersla lögð á um- hverfisfræðslu meðal nemenda og starfsmanna skólans og að þeir þekki meðal annars áhrif starfa sinna á umhverfið. Frá þessu er greint í Dagskránni. Jólamerki Thorvaldsensfélagsius Jólamerki Thorvaldsensfélagsins fyrir þessu jól prýðir að þessu sinni myndina Jólin nálgast eftir Sigrúnu Eldjárn. Um áratugaskeið hafa jólamerki félagsins sett svip sinn á jólapóst Iandsmanna, en öllum ágóða af sölunni verður sem áður varið til styrktar börnum. Ork með tólf merkjum kostar 300 krónur. Jólamerkin eru til sölu á öllum póst- húsum landsins, í Thorvaldsensbazarnum í Austurstræti 4 í Reykja- vík og hjá féalgskonum. Dögg Pálsdóttir, formaður Umhyggju, afhendir Borghildi Fenger formanni Kvenfélagsins Hringsins verðlaunin. Umhyggja veitir norræn verðlaun Umhyggja, félag til styrktar langveikum börnum, hélt í sl. mánuði norræna ráðstefnu systurfélaga sinna í Reykholti í Borgarfirði. Ráðstefnan var fjölsótt og ýmis hagsmunamál langveikra harna voru þar reif- uð. I tengslum við ráðstefnuna kom það í hlut Umhyggju að ákveða hver skyldi fá norræn verðlaun íyrir framúrskarandi störf í þágu veikra barna. Sam- þykkt var að veita þau að þessu sinni til Kvenfélagsins Hrings- ins sem ötlullega hefur unnið að þessum málum, allt frá því á fimmta áratugnum. Öflugasta vopn okkar í baráttunni um fiskinn kemur til með að verða það fiskveiðistjórnunarkerfi sem við íslend- ingar höfum verið að byggja upp á síðustu árum og sá árangur sem við höfum sannanlega náð. Mikil orrasta um fískiim framimdan Ormstan um fisklim í sjónum verður ekki háð í fjöruhorðinu hér heima heldur á al- þjóðavettvangi sagði Halldór Ásgrímsson á aðalfundi útvegs- manna. „Enn á ný er umræðan um fisk- veiðar og stjórnun fiskveiða farin af stað á alþjóðavettvangi hvort sem okkur Iíkar betur eða verr. Orrustan um fiskinn í sjónum verður ekki háð í fjöruborðinu hér heima, heldur í salarkynnum Sameinuðu þjóðanna, á borðum hinna ýmsu náttúruvemdarsam- taka, óháðra stofnana og samtaka úti í heimi sem vilja gera sig gild- andi í þessari umræðu. Öflugasta vopn okkar í þeirri rimmu kemur til með að verða það fiskveiði- stjórnunarkerfi sem við Islending- ar höfum verið að byggja upp á síðustu árum og sá árangur sem við höfum sannanlega náð,“ sagði Halldór Asgrímsson, utanríkisráð- herra, á fundi Landssambands ís- lenskra útvegsmanna í gær. Hann sagði að spurningin um yfirráðaréttinn yfir auðlindum hafsins væri mjög mikilvæg og al- varleg. „Hún snertir grundvöll okkar samfélags. Hún snertir með beinum hætti efnahagslegt sjálf- stæði lands og þjóðar. Staðreynd- in er sú að ýmsir hafa þá skoðun að alþjóðlegar stofnanir eigi að taka við stjórnun fiskveiða og að draga eigi úr yfirráðarétti ein- stakra þjóða yfir þeim málum. Margt hefur komið fram í þessa átt að undanförnu, bæði á vegum stofnana Sameinuðu þjóðanna og einnig hafa komið vísbendingar um að áhugi ýmissa áhrifaaðila í Bandaríkjunum beinist í þessa átt.“ Halldór benti á að sums staðar réðu annarleg sjónarmið ferðinni - „sjónarmið þeirra sem eru ein- faldlega þeirrar skoðunar að fisk- veiðar séu af hinu vonda, veiði- tækni og veiðarfæri séu ómann- úðleg og þess vegna eigi að vinna gegn fiskveiðum. Nægir hér að minna á að í fjölþjóðastofnunum, eins og til dæmis Evrópuráðinu, hafa komið fram tillögur um að banna stangveiðar vegna þess að í sjálfri veiðiaðferðinni felist svo mikil grimmd. Þar hafa Iíka fallið orð í umræðum í þá veru, að það að leggja hvalkjöt sér til munns sé engu betra en að borða manna- kjöt. Þetta eru sönn dæmi um öfgana í þessari umræðu." Utanríkisráðherra minnti á að illa upplýstir neytendur „geta ver- ið jafn hættulegir hagsmunum okkar sem andsnúin stjórnvöld í öðrum ríkjum. Reynslan hefur og sýnt að stórfyrirtæki sem versla með sjávarfang eru fljót til að dansa í takti við duttlunga og tískusveiflur markaðarins. Það er því nauðsynlegt að við tökum virkan þátt í mótun framtíðarvið- horfa og alþjóðasamstarfs um vernd og nýtingu sjávarauðlinda. Það er eitt af mikilvægustu verk- efnunum sem við okkur blasa PRENTUN??? OLL ALMENN PRENTUN * REIKNINGAR * KVITTANIR * NÓTUR * AÐGÖNGUMIÐAR * FRÉTTABRÉF * BÆKLINGAR * UMSLÖG * BRÉFSEFNI * NAFNSPJÖLD *JÓLAKORT * OFL. OFL. OG LÍMMIÐARNIR LÍKA ALLAR STÆRÐIR OG GERÐIR LÍMMIÐA NÚ ER RÉTTI TÍMINN TIL AÐ HUGAAÐ MERKINGUM ÁJÓLAVÖRUM!!! Leitið tilboða ■ LIMMIÐAR NORÐURLANDS Hjalteyrargötu 2 • 600 Akureyri Sími 462 4166 • Fax 461 3035 Netfang: limnor@est.is Ncttó Ak. 0% Hagkaup Ak. BSSSKH 9% Hrísalundur Ak. QEE 12% Samkuup ísaf. — 25% KÁ HvcragerÖi 29% KÁ Þorlákshöfn SB 30% Kjar-Val Self. H 30% KÁ Sclfossi B 31% Kaupnngur Ak. 40% Hverakaiip Hvg. ■ 41% SunnuhlíÖ Ak. B 43% Elú ísafirðt » 46% Hornið Selfossi BH 50% KSH Hóimavlk Mismunur á prósentum í 74 verslunum á Akureyri, Suðurlandi og Vest- fjörðum. Verðmuniir 62% Á meðan viðskiptavinir KEA Nettó greiða 8.000 kr. fyrir körfu af neysluvöru, greiða íbúar Hólmavíkur um 13.000 fyrir sömu vörur. Þetta leiðir könnun Neytendafélags Akureyrar og ná- grennis, Neytendafélags Suður- lands og Neytendafélags Vest- fjarða í ljós, þar sem tilgangurinn var m.a. sá að leiða fram þann aðstöðumun sem verslanir og neytendur á Iandsbyggðinni búa við miðað við þéttbýliskjarnana Akureyri og Reykjavík. Vöruúrtak könnunarinnar var 70 algengar neysluvörur og var meðalverð kr. 10.000. mismunurinn er 62% á hæsta og lægsta vöruverði. Þótt Hólmavík hafi í könnun- inni orðið sérstakt dæmi um að- stöðumuninn milli þéttbýlis og dreifbýlis í þessum efnum, er vit- að að ástandið er svipað í öðrum fámennum byggðakjörnum, enda geta verslanir þar ekki notið hag- kvæmni magninnkaupa. Miðað við þessar niðurstöður, þurfa íbú- ar Hólmavíkur og annarra svip- aðra staða, að greiða um 5.000 kr. meira fyrir sömu vörur og Akureyringar eða höfuðborgar- búar.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.