Dagur - 31.10.1998, Page 5

Dagur - 31.10.1998, Page 5
I Xfc^wr FRÉTTIR U o «» *■ ^ í| f> 1> M O ' í 5; | V» f. «1 *. »> \\ >« t 1. LAUGARDAGUR 31.QKTÓBER 1998 - S KEA breytt í lilutaleliig Breytt samkeppn- isumhverfi veldur gruudvallarbreytiug- um á rekstri Kaupfé- lags Eyfirdiuga á Ak- ureyri. Sameign verð- ur einn öflugasti hlutabréfas j óður laudsius. Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga á Akureyri ákvað einróma í gær að fela Eiríki S. Jóhannssyni, kaup- félagsstjóra, að vinna að breyt- ingu fyrirtækisins í nokkur hluta- félög. Jóhannes Geir Sigurgeirs- son, formaður stjórnar KEA, sagði að skrefið væri stærsta stefnumótandi ákvörðunin sem stjórnin hefði tekið allt frá árinu 1906 þegar horfið var frá pönt- unarfélagsforminu. Að fengnu samþykki fulltrúafundar mun vinna við breytingarnar hefjast um næstu áramót og verður fyrsta skrefið að breyta verslunar- og matvælasviði KEA í hlutafé- lög. Strax í janúar er vonast til að fystu félögin verði komin á kopp, en stefnt er að því að heildarferl- inu verði lokið fyrir árið 2000. í takt við tímaiui Hlutafélögin verða til að byrja verði tekið til framleiðenda á starfssvæði KEA og stefnt sé að því að þeim verði tryggð að- ild að stjórn hlutafélagsins. Annarri starf- semi félagsins verður einnig komið fyrir í hlutafélags- forminu og hún flokkuð eftir eðli starfsem- innar. Jóhannes Geir Sigurgeirsson formaður stjórnar og Eiríkur S. Jóhannsson kaupfélagsstjóri gera grein fyrir fyrirhugðum breytingum á KEA. mynd brink með að fullu í eigu Kaupfélags Eyfirðinga, sem áfram verður samvinnufélag. Sfðar er reiknað með að félög í skyldum rekstri geti komið til samstarfs við hluta- félögin. Astæður hlutafélagavæð- ingarinnar eru fyrst og fremst breytt samkeppnisumhverfi, að sögn Eiríks Jóhannssonar kaup- félagsstjóra. Samvinnufélags- formið leyfir ekki samruna við önnur hlutafélög, vaxtarmögu- Ieikar stóreflast sem og mögu- leikarnir að fá áhættufjárfesta til að taka þátt í rekstrinum. Sala B- deildar hlutabréfa hefur skilað takmörkuðu fjármagni inn í reksturinn að undanförnu. Framleiðendur ráði KEA gerir ráð fyrir að stofna eitt hlutafélag um matvöruverslun, annað um móttöku og vinnslu landbúnaðarafurða og sérstök hlutafélög um iðnað og starf- semi. Verslunarhlutafélag KEA myndi taka yfir matvöruverslanir KEA sem eru nú 10 talsins. Und- ir matvælasvið heyra Kjötiðnað- arstöð, Sláturhús, Mjólkursam- lag, Safagerð og Smjörlfkisgerð. Eiríkur segir að sérstakt tillit Einn öllugasti sjóðurinn Utan um þessi hlutafélög verð- ur stofnað eign- arhaldsfélagið Sameign sem verður einn öflugasti hlutabréfa- sjóður landsins, að sögn Eiríks. Vel er hugsanlegt að í framtíðinni muni sjóðurinn losa sig við meirihlutaeign í þeim öllum en stefnt er að skráningu sjóðsins á Verðbréfaþingi Islands. „Þetta er gífurleg breyting en hún er í fullu samræmi við núverandi tilgang félagsins. KEA verður áfram fyrst og fremst byggðafestufélag," seg- ir Eiríkur. Velta KEA var um 12 milljarðar í fyrra og verður meiri í ár samkvæmt áætlunum. — BÞ Sundiaugar Reykjavíkur voru meðal þeirra aðiia sem stóðust prófið og höfðu potta sem voru í lagi. PottasMtur út uin allt! Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur nú birt Iista yfir þær heilsuræktarstöðvar sem stand- ast ekki gæðakröfur um vatn í heitum pottum. Til stendur að rannsókn fari fram víðar um Iand, þar sem ekki er talin van- þörf á. Á samráðsfundi hollustu- nefnda fyrir stuttu var mótuð sú stefna. í höfuðborginni var tekið sýni af vatni í pottum jhnissa stöðva og mældur fjöldi kólígerla, saurkólígerla, Pseu- domonas aeruginosa og síðan gerlaíjöldi við 37 gráður. Allt eru þetta óæskilegir félagar í bað- vatni og geta valdið óþægindum eða sjúkdómum. „Fínu nnfnin“ falla Þessir stóðust ekki gæðakröfur í „örverumati vatnssýna": Máttur, Hótel Saga, Þokkabót, Fínar lín- ur heilsulind, World Class og Planet Pulse. Þau hús scm stóðust prófið voru Baðhúsið, Sundlaugar Reykjavíkur (alls staðar), Elli- heimilið Grund og Dvalarheimili aldraðra Seljahlíð. Ekki tókst að afla sýna á þess- um stöðum sem heimsóttir voru, vegna bilunar potta eða af öðrum ástæðum: Sólbaðsstofan Punkt- urinn, Sólbaðsstofan Supersól, Gullsól, Lífslindin og Aerobic Sport. Ord Kristjáns vekja uiidnm Framkvæmdastj óri Sj ómaiuiasambands- ins segir hlutaskipta- kerfið hafa skilað ut- gerðinni eins miklu og sjómönnum og alls ekki hindra endumýj- un flotans. Vegna þeirra hækkana sem orðið hafa á launum og verð- lagi sfðastliðið ár hækkar áskriftarverð Dags nú um mánaðamótin - en það hefur verið óhreytt frá miðju ári 1997. Frá og með 1. nóvem- ber kostar áskrift að Degi 1800 krónur á mánuði. Lausasöluverð Dags verður hins vegar óbreytt - blaðið mun áfram kosta 150 krónur á virkum dögum en 200 krónur um helgar. Kristján Ragnarsson, formaður LÍU, sagði á aðalfundi samtak- anna að mikil þörf væri á að end- urskoða launakerfi sjómanna. Hlutaskiptakerfið væri farið að virka gegn endurnýjun fiski- skipaflotans og nauðsynlegri hagræðingu og ijárfesting í nýrri tækni leysti oft mannshöndina af hólmi. Vonlaust virtist þó að vera að ná sameiginlegum skilningi á því að fækkun manna í áhöfn leiði til lægri launakostnaðar. Meðan það vari séu menn á rangri leið þegar forystumenn sjómanna fengjust ekki til að breyta því og ríkisstjórnin hafi heykst á að Ieiðrétta það með lagasetningu. Svona vitlaust Iaunakerfi fyndist ekki á nokkru byggðu bóli. Hólmgeir Jónsson, fram- kvæmdastjóri Sjómannasam- bands íslands, segist undrandi á því að heyra Kristján Ragnarsson fullyrða að hlutaskiptakerfið hindri eðlilega endurnýjun fiski- skipaflotans. Það þurfi ekki nema að líta í kringum sig til þess að sjá að þetta sé tóm vit- leysa í formanni LÍU. „Það hefur ekkert breyst í hlutaskiptakerfinu sem hefur gert það verra og ég veit ekki bet- ur en að kerfið hafi skilað út- gerðinni miklu eins og sjómönn- um. Þegar fækkar í áhöfn verður launahlutfallið hærra en hann gleymir fortíðinni. Arið 1976 var farið í sjóðakerfisbreytingu og skiptaprósentan lækkuð svo þá var tekið tillit til þeirra tækni- breytinga sem höfðu orðið fram að þeim tíma. Það sama gerist árið 1986 þegar sjóðakerfið er aflagt en þó mannatölurnar í samningnum séu gamlar þá byggist skiptaprósentan á ann- arri mannatölu en samningurinn segir til um vegna þess að það er búið að breyta hlutaskiptakerf- inu,“ segir Hólmgeir Jónsson. Hólmgeir segir Kristján Ragn- arsson gleyma því líka að útgerð- armenn hafi þrátt fyrir lög og kjarasamningabann látið sjó- menn taka þátt í kvótakaupum og þannig hafi þeir einhliða ver- ið að breyta hlutaskiptakerfinu sér í hag. Hann segir engan vilja afnema hlutaskiptakerfið en verði ráðist í breytingar eða lag- færingar á því verði fleira að koma þar til, meðal annars verð- myndunarmálin. Lang eðlilegast sé að allur fiskur fari á fiskmark- að eins og sjómenn hafi margoft lagt til. — GG Ráðherrann á Netinu Björn Bjarnason menntamálaráðherra kynnti í gær nýja heimasíðu ráðuneytis síns þar sem kynnt er hvernig staðið hefur verðið að fram- kvæmd þeirrar verkefnaáætlunar sem hann setti fram við upphaf ráðherraferils síns. Slóð- in að heimasíðu menntamálaráðuneytisins er www.mnr.stjr.is og þar er sú verkefnaáætlun sem ráðherrann setti fram á sínum tíma, en Björn Bjarnason hún er í 59 liðum. Tekið hefur verið saman menntamáiaráðherra yfirlit um hvaða árangur hefur náðst í þessum við tölvuna. Ráðuneytið stefnumálum og í gegnum Netið er hægt að er komið með nýja sækja ítarlegar upplýsingar um hvern mála- heimasíðu þar sem flokk. kynnt eru meðal annars A blaðamannafundi í gær kynnti Björn stefnumál ráðherrans. Bjarnason þetta og jafnframt nýja heimasíðu ráðuneytisins. Þar er meðal annars að finna helstu stefnumál ráðherrans og upplýsingar um störf hans, upplýsingar um menntamálaráðuneytið og starfsemi þess og jafnframt það efni sem það hefur gefið út. -SBS. Enginn gnmaöur um nauðgunma „Því miður er ekkert að frétta, það liggur enginn undir grun enn,“ sagði varðstjóri í Lögreglunni í Kópavogi í gær um rannsókn á nauðg- un ungrar konu á holtinu skammt frá Kópavogskirkju á þriðjudags- kvöld. Lögreglan hefur rætt við fjölda vegfarenda án árangurs. Nauðgunin er talin hafa átt sér stað milli kl. 20 og 21 og eru þeir sem gætu gefið upplýsingar beðnir um að gefa sig fram við Lögregluna í Kópavogi. - BÞ Kona furnst látin í Noregi Ung íslensk kona fannst Iátin í Drammen í Noregi fyrir nokkrum dögum. Lík hennar fannst í höfninni og rannsakar lögreglan kringumstæður. Ekki er hægt að greina frá nafni konunnar að svo stöddu.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.