Dagur - 31.10.1998, Page 8

Dagur - 31.10.1998, Page 8
8- LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998 FRÉTTASKÝRING Tkyfir- TUIögum RíMsendurs fleygt en skýrsla VS( IRIK ÞÖR GUÐMUNDS- SON Dðmsmálaxáðherra lét bæði RíMsendurskoð- un og VSÓ ráðgjöf vinna tiUögur um breytt skipulag Lög- reglustjórans í Reykja- vík. Tillögur RíMs- endurskoðunar verða ekki notaðar. Um ára- mótin verður Böðvar Bragason „stefnumót- andi“ en Georg Lárus- son verður daglegur stjómandi embættis- ins. Yíimiöimuiii verð- ur fækkað og völd millistjómenda auk- in. Lögreglumenn óska eftir fundi með ráðherra. Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð- herra hefur tekið ákvörðun um að um næstu áramót verði hrundið í framkvæmd stórfelldum breyting- um á stjórnskipulagi lögreglu- stjóraembættisins í Reykjavík, samkvæmt tillögum sem fyrirtæk- ið VSÓ ráðgjöf hefur unnið fyrir dómsmálaráðuneytið. Ráðherra hefur falið sérstökum stýrihópi að annast upptöku nýja skipu- lagsins og um leið er ljóst að ekk- ert verður gert við tillögur Rfkis- endurskoðunar að breyttu skipu- lagi embættisins, sem stofnunin vann að samhliða VSÓ. Tillögum Ríkisendurskoðunar verður í raun fleygt, en helsti munurinn á tillögum þeirrar stofnunar og VSÓ liggur í hlutverkum lög- reglustjóra (Böðvars Bragasonar) og varalögreglustjóra (Georgs Lárussonar). Ljóst er að tvíverknaður hefur átt sér stað við uppstokkun lög- reglustjóraembættisins; af ein- hveijum ástæðum fól dómsmála- ráðuneytið bæði Ríkisendurskoð- un að skoða og gera tillögur um stjórnskipulagið (með meiru) og VSÓ ráðgjöf. I samtali við Dag neitaði Þor- steinn Pálsson dómsmálaráð- herra að kannast við að um tví- verknað væri að ræða. „Vinna VSÓ var unnin með fullri vit- neskju Ríkisendurskoðunar. Því embætti var falið að annast al- menna stjórnsýsluendurskoðun, en í tillögum VSÓ er farið miklu dýpra í stjórnskipulagið en al- menn stjórnsýsluendurskoðun gefur tilefni til," sagði ráðherra og staðfesti að stýrihópur um að hrinda tillögum VSÓ í fram- kvæmd myndu ekki hafa tillögur Ríkisendurskoðunar til hliðsjón- Ábyrgðin cr ráðherrans, segir ríMsendurskoðandi Sigurður Þórðarson ríkisendur- skoðandi vildi Iítið tjá sig um tví- verknaðinn og meðferðina á til- Iögum stofnunarinnar. „Eg hef út af fyrir sig ekkert um þetta að segja. Þetta er ákvarðanataka ráð- herra og hann ber ábyrgð. Við höfum einfaldlega unnið þá vinnu sem ráðuneytið og Alþingi fólu okkur og höfum ekkert boð- vald í þessum málum,“ segir Sig- urður. í tillögum VSÓ er lögreglustjóri nú sem áður æðsti yfirmaður lög- reglustjóraembættisins og er hon- um ætlað að annast stefnumótun og þróun. Beint undir honum er varalögreglustjóri og er honum ætluð dagleg verkstjórn. Þrír æðstu yfirmenn undir þeim eiga að vera yfirlögregluþjónn á lög- reglusviði (lögreglumenntaður), saksóknari á rannsóknar- og ákærusviði (lögfræðimenntaður) og framkvæmdastjóri rekstrar- og þjónustusviðs (viðskiptamenntað- ur). Þessir fimm menn eiga að mynda framkvæmdastjórn emb- ættisins. Stærsta breytingin er sögð sú, að einn yfirlögregluþjónn verði yfir öllu lögregluliðinu, bæði al- mennri löggæslu og rannsóknar- deildum. Aðstoðaryfirlögreglu- þjónum í stjórnunarstöðum verð- ur fækkað úr 6 í 4, en þeim sem eftir standa og öðrum millistjórn- endum verður falin aukin ábyrgð og völd, um leið og sjálfstjórn og ábyrgð einstakra sviða varðandi rekstur verða aukin. Tillögurnar gera ekki ráð fyrir beinum áhrif- um breytinga á fjölda Iögreglu- manna, fyrirkomulag vakta, hverfalöggæslu eða annað slíkt. Eðlilegt gagnvart Böðvari, segir ráðherra Þorsteinn Pálsson segir að breyt- ingarnar lúti að því að styrkja yf- irstjórn embættisins og efla stöðu lögreglunnar yfirleitt. Hann taldi það ranga túlkun ef menn héldu að verið væri að gera lögreglu- stjórann að einhvers konar „and- legum leiðtoga" en varalögreglu- stjórann að raunverulegum stjórnanda. „Þessi breyting gefur Iögreglustjóra tækifæri á að hafa meiri yfirsýn en hann hefur að óbreyttu og auðveldar honum að taka stærri ákvarðanir. Það gerist með því að ýmis dagleg fram- kvæmdamál verða ekki á hans borði, en þau hafa þrengt svig- rúm hans til yfirsýnar. Það verða í sjálfu sér ekki miklar breytingar á stöðu lögreglustjóra og varalög- reglustjóra að öðru leyti en þessu,“ segir Þorsteinn. Ráðherra segir að Böðvar Bragason komi úr veikindaleyfi 15. nóvember og að hann eigi ekki von á andstöðu við breyting- arnar frá hans hendi. „Hann mun síðan auðvitað koma að fram- kvæmd þessara tillagna. Gagn- vart honum hefur verið unnið að þessu með fullkomlega eðlilegum hætti," segir Þorsteinn. Aðspurður vildi Georg Lárus- son, varalögreglustjóri og settur lögreglustjóri í veikindafjarveru Böðvars Bragasonar, ekki kalla breytingarnar byltingu. „Eg vil miklu heldur kalla þetta hagræð- Lögreglumenn í Reykjavík eiga eftir áramótin að vinna undir nýju stjórnskipulagi. Það á ekki að hafa mikil áhrif á almen Georgs Lárussonar eykst en Böðvar Bragason fær aukið svigrú ingu og einföldun og það verða einhverjar tilfærslur, en legg áherslu á að framkvæmdin hefur ekki verið mótuð ennþá, en það verður í höndum hins sérstaka stýrihóps." Hann telur að breyt- ingarnar þýði ótvírætt að lög- regluliðið nýtist betur til lög- gæslustarfa. Hertar hæfniskröfor Tillögur Ríkisendurskoðunar að breyttu stjórnskipulagi eru allt annars eðlis en hjá VSÓ;"þar er lögreglustjóri sannarlega á toppn- um sem verkstjóri. Ríkisendur- skoðandi var beðinn um tillögur í vor af dómsmálaráðuneytinu og í kjölfarið einnig af Alþingi; pönt- unin var upp á úttekt á stjórn- skipulaginu, fjármálunum og málaafgreiðslu Iögreglustjóra- embættisins. Um svipað leyti var VSÓ fengið til að skoða inn- heimtumál embættisins, en áður en Iangt um leið var VSÓ einnig farið að skoða stjórnskipulagið; tvíverknaðurinn var hafinn. Tillögur Ríkisendurskoðunar um breytt stjórnskipulag eru í tvennu lagi, þar sem lagt er til að embættið skiptist í annað hvort þrjú eða fjögur svið. Sviðin eru Ijögur nú; almenn deild, sem Jón- mundur Kjartansson stýrir, ákæru- og lögfræðisvið, sem Egill Stephensen stýrir, rannsóknar- deild, sem Guðmundur Guðjóns- son stýrir og skrifstofudeild, sem Stefán Hirst stýrir. Lögreglustjóri er í báðum til- lögum Ríkisendurskoðunar sem fyrr æðsti yfirmaður og verkstjóri embættisins, en í báðum tillög- unum er gert ráð fyrir auknu vægi yfirmanna sviðanna og varalög- reglustjóri gerður að einum þess- ara yfirmanna. Hæfniskröfur eru leið hertar til þessara yfir- um Róttæk tiHaga frá Rikisend- urskoðun Nú eru sex einstaklingar í efsta lagi embættisins; iögreglustjóri, varalögreglustjóri og fjórir yfir- menn sviða, en sú tillaga Rfkis- endurskoðunar sem lengra geng- ur gerir ráð fyrir fækkun í þessu efsta Iagi niður í íjóra menn; svið- um er fækkað um eitt og varalög- reglustjóri er yfir einu sviðanna með hæfniskröfur upp á ígildi sýslumanns. Munurinn á þessu og tillögu VSÓ er að hjá Ríkis- endurskoðanda er varalögreglu- stjóri ekki sérstakt apparat, held- ur yfirmaður löggæslusviðs. I þeirri tillögu sem gengur lengra eru rannsóknardeild og ákæru- og lögfræðisvið sameinuð. Þar með yrði annar yfir hinum; Egill Stephensen eða Guðmund- ur Guðjónsson, væntanlega í samræmi Hð uppfyllingu hæfn- iskrafna (lögfræðimenntun, mál- flutningsréttindi og sérþelddng á sviði afbrotarannsókna). Heiti al- mennrar deildar yrði breytt í lög- gæslusvið og yfirmaður hennar jafnframt varalögreglustjóri. Samkvæmt formúlunni væri þetta embætti Georgs Lárusson- ar, en Jónmundur Kjartansson undir hann settur beint. Skrif- stofudeildin yrði stjórnsýslu- og rekstrarsvið og ekki hróflað við stöðu Stefáns Hirst, nema að Ríkisendurskoðun leggur til hæfniskröfur um háskólamennt- un á sviði viðskipta og rekstrar, en Stefán er lögfræðingur. Auk þessa leggur Ríkisendur- skoðun í róttækari útgáfunni til að á skrifstofu lögreglustjóra og beint undir honum starfi einn

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.