Dagur - 31.10.1998, Síða 9

Dagur - 31.10.1998, Síða 9
LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 1998 - 9 ; FRÉTTIR ikoðanda )notuð eða fleiri sem annist innri endur- skoðun hjá embættinu; til að fylgj- ast með framgangi mála, sjá til þess að reglur séu settar, að eftir þeim sé farið og að rannsaka allt sem betur má fara hjá embættinu. Tillögu að innri endurskoðun er einnig að finna hjá VSO. Lögregliunenn vilja fund með ráðuneytinu Samkvæmt heimildum Dags hefur töluverðrar óánægju gætt meðal almennra lögreglumanna innan lögreglustjóraembættisins að und- anförnu vegna þeirra átakamála sem uppi hafa verið. Almennum starfsmönnum hefur verið boðið að skoða drög að fyrirhuguðum skipulagsbreytingum, en hefur ekki auðnast að funda um málið og höfðu í gær ekki vitneskju um að til stæði að hrinda breytingun- um í framkvæmd strax um ára- mótin. Einn Iögreglumanna sem Dagur ræddi við í gær sagði: „Sitt sýnist hverjum hér. Ætli megi ekki segja að það hlakki í sumum en öðrum ekki.“ Óskar Bjartmarz, formaður Lög- reglufélags Reykjavíkur, segir að stjórninni hafi ekki unnist tími til að fara yfir tillögur VSÓ í skýrsl- unni. „Við óskuðum eftir og feng- um þessa skýrslu fyrst á miðviku- dag. Dómsmálaráðherra var ný- lega á fundi hjá félaginu og var þar spurður hvort einhveijar breyting- ar væru í farvatninu og hann talaði um að engum breytingum yrði komið á nema í góðri samvinnu við samtök lögreglumanna. Við eigum eftir að fara yfir málið og ræða það og ég trúi því ekki að ráðherra fari af stað með þetta nema tryggt sé að það sé ekki í andstöðu við samtök okkar. I því skyni hefur framkvæmdastjórn Landssambands lögreglumanna óskað eftir fundi með dómsmála- ráðuneytinu," segir Óskar. Óskar segir að sér sýnist ýmis- Iegt nýtilegt í tillögum VSÓ. „En annað þarfnast miklu frekari skoð- unar við. Þessar tillögur eru að mínu mati ekki þannig í stakk búnar að þær séu klárar til fram- kvæmda. Eg vil ekki fara út í smá- atriði í þessu sambandi, en vænti þess að okkur verði gefinn kostur á að koma athugasemdum á fram- færi,“ segir Óskar. Hátt í 50-60 meinatæknar hafa ákveðið að hætta störfum um helgina semjist ekki um kaup og kjör við Ríkisspít- ala. Ef það verður reyndin mun það bitna á allri starfsemi spítalans og þá sérstaklega á sjúklingum. Starfsemi Rílds- spítala í uppiiámi Meinatæknar segjast hafa dregist afturúr hjúknmarfræðmgiun í launum. Vilja fá leið- réttingu. Hafa hafnað 20 prósenta launa- hækkun. Vilja 30 pró- senta hækkun fyrir verkefnisstjóra. „Þetta grípur svo víða inn í og tef- ur því mjög mikið alla starfsemi spítalans. Nær allir sem koma hingað til lækninga fara í gegnum rannsóknir,11 segir Þorvaldur Veig- ar Guðmundsson Iækningafor- stjóri Ríkisspítala. Skiiiðaðgerðum seinkar Hann vill þó ekki taka svo djúpt í árinni að um neyðarástand verði að ræða þegar og ef uppsagnir nokkurra tuga meinatækna koma til framkvæmda um helgina. Gangi það eftir verður meðal annars ekki hægt að sinna venju- legum innköllunum sjúklinga sem þurfa til dæmis að fara í skurðaðgerðir. Lækningaforsljór- inn segir að það sé erfitt að segja nákvæmlega til um hvaða afleið- ingar uppsagnirnar kunna að hafa í för með sér. Hann segir að þótt viðbúið sé að þær muni hafa mik- il áhrif á starfsemina, verður engu að síður allt reynt til að minnka þau áhrif eins og kostur er. Þá er heldur ekki útséð um niðurstöður þeirra samningaviðræðna sem átt hafa sér stað á milli Ríkisspítala og meinatækna, en fundað hefur verið nær daglega að undanförnu. Leiðréttingu launa „Þetta snýst um túlkun og fram- kvæmd á kjarasamningi. Við höf- um einnig dregist talsvert afturúr hjúkrunarfræðingum í gegnum árin og viljum fá leiðréttingu á því,“ segir Sigrún Rafnsdóttir meinatæknir. Hún vildi ekki tjá sig um hvað kröfur meinatækna á hendur stjórnenda Ríkisspítala væru miklar í krónum eða pró- sentum talið í þeim viðræðum sem fram hafa farið um gerð að- lögunarsamninga fyrir meina- tækna. 20 prósenta hækkun hafnað Pétur Jónsson framkvæmdastjóri Ríkisspítala segir að búið sé að bjóða meinatæknum sama og hjúkrunarfræðingar fengu í vor, eða 20 prósenta kauphækkun í svonefndum aðlögunarsamningi. Því hefðu meintæknar hafnað og vilja að verkefnastjórar fái allt að 30 prósenta hækkun. Það eru um 20-25 meinatæknar af þeim 50- 60 sem sagt hafa upp störfum frá og með næstu mánaðamótum sem bera upp á þessari helgi. Hann segir að ef gengið yrði að þessum kröfum meinatækna þá mundi það raska uppbyggingu launakerfis spítalans og leiða til þess að aðrir hópar meðal starfs- manna kynnu að hugsa sér til hreyfings. — GRH Fjöldaúrsögii úr Al])yðuflokkmxm Skrifstofu Alþýðuflokksins barst nýlega bréf frá þrjátíu og tveim- ur félögum úr Jafnaðarmannafé- lagi Hafnarljarðar, þar sem þeir segja sig úr félaginu og þar með Alþýðuflokknum. Helsta ástæða úrsagnanna mun vera mikil óánægja fólksins með störf lngvars Viktorssonar, oddvita flokksins í Hafnarfirði, á síðasta kjörtímabili og hvernig sameiningarmál jafnaðarmanna þróuðust þar fyrir kosningarnar í vor. Alþýðuflokkurinn í Hafnar- firði var þá eina flokksdeildin á landinu sem bauð fram sérlista, en sérframboðið hlaut skelfilega útreið undir forystu Ingvars Viktorssonar, sein skipaði efsta sæti listans. Að sögn Ólafs Sigurðssonar, fyrrverandi formanns Jafnaðar- mannafélagsins, er fólk orðið þreytt á framkomu flokksforyst- unnar í Hafnarfirði og sér enga ástæðu til að leggja nafn sitt við flokkinn. „Við erum ósátt við þrásetu Ingvars Viktorssonar sem odd- vita flokksins eftir afhroðið í síð- ustu kosningum. Miklu fleira flokksfólk er sömu skoðun og ég á þess vegna von á fleiri úrsögn- um. Nýtt blóð súrnar í Alþýðu- flokknum í Hafnarfirði," sagði Ólafur. Ný stjóm kjörrn í BHM Ný stjórn var kjörin á aðalfundi BHM í gær. Björk Vilhelmsdótt- ir frá Stéttarfélagi íslenskra fé- Iagsráðgjafa er formaður, Tryggvi Jakobsson frá Utgarði, félagi há- skólamanna, er varaformaður en aðrir í stjórn eru Auður Antons- dóttir frá Félagi íslenskra nátt- úrufræðinga, Asta Björg Björns- dóttir frá Meinatæknafélagi Is- lands, Elínborg Stefánsdóttir frá Félagi íslenskra hjúkrunarfræð- inga, Már Ársælsson frá Félagi tækniskólakennara og Óskar Th. Traustason frá Kjarafélagi við- skipta- og hagfræðinga. Aðalfundurinn samþykkti ályktun þar sem lýst er yfir þung- um áhyggjum vegna þess ástands sem skapast hefur í mál- efnum sjúkrahúsanna vegna uppsagna fjölmargra meina- tækna. Fullri ábyrgð er lýst á hendur stjórnvalda. Þá voru samþykktir síðasta að- alfundar áréttaðar og meðal annars að talið sé mikilvægt að nú þegar verði hafist handa um að skýra verkaskiptingu milli bandalagsins og aðildarfélag- anna. Kosin var sérstök nefnd til að Ijalla nánar um skipulagsmál- in og er Björk Vilhelmsdóttir for- maður hennar. — Hi

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.