Dagur - 31.10.1998, Page 11
LAUGARDAGUR 31.0KTÚBER 1998 - 11
Thyfir.
ERLENDAR
L
TTIR
Lögreglan útilokar
ekki íkveikju
Sextíu uugmenui
brunnu inni á diskó-
teki í Gautáborg, flest
iuuflytjendaböm frá
Makedóníu og Sómal-
íu.
Lögreglan í Gautaborg segir
Iangan tíma geta Iiðið, þar til
rannsókn á orsök brunans, sem
er einn sá versti í sögu Svíþjóðar,
verður Iokið. Grunur vaknaði
fljótt um að kveikt hafi verið í, og
vísbendingar er að finna f þá átt,
en líka bendir ýmislegt til þess að
svo hafi ekki verið.
Sextíu ungmenni létu lífið þeg-
ar eldur kom upp í diskótekinu í
Gautaborg í fyrrinótt. 190 voru
fluttir á sjúkrahús og liggja 20
unglingar þar á gjörgæslu, sumir
enn í lífshættu. A milli þrjú og
fjögur hundruð unglingar voru
að skemmta sér þegar eldurinn
kom upp á diskótekinu, sem er í
hverfi þar sem fólk frá Makedón-
íu er í meirihluta. Flest ung-
mennin, sem voru á aldrinum 13
- 17 ára, voru frá Makedóníu,
Sómalíu og Svíþjóð.
Fimmtán ára unglingur sem
bjargaðist sagði að um leið og
eldurinn kom upp hafi gripið um
sig mikil hræðsla og allir vildu
komast út í einu. „Margir krakk-
ar tróðust undir þegar við vorum
að reyna bijótast út. En við gát-
um ekkert annað gert en að
reyna að bjarga okkur sjálfum."
Foreldramir hjálparvana
Mikil skelfing og ringulreið var á
staðnum og sjónarvottar sem
komu að brunanum sögðu að að-
koman hefði verið skelfileg. Þeir
heyrðu hrópin í fólkinu innan
dyra en gátu lítið sem ekkert
hjálpað til þar sem eldurinn barst
um húsið eins og eldsprengja.
Faðir sem var mættur á stað-
inn til að sækja son sinn sagðist
aldrei hafa séð neitt í líkingu við
brunann. „Það var skelfilegt hvað
við vorum hjálparvana þarna fyr-
ir utan. Við gátum ekki komist
inn vegna eldsins og það var
reyndar ekkert sem við gátum
gert til hjálpar krökkunum sem
hrunnu inni. Margir sem komu
út voru með mikil brunasár. Eitt
ungmennanna sem ég hjálpaði
var mjög illa brunnið í andlit-
inu,“ sagði faðirinn.
Slökkvilið Gautaborgar skýrði
frá því í gær að diskótekið hafi
aðeins verið ætlað fyrir 150
manns, en hátt í 400 unglingar
voru í húsinu þegar bruninn
varð. Diskótekið hafði verið
skoðað af öryggiseftirliti borgar-
innar á síðasta ári og engar at-
hugasemdir gerðar við bruna-
varnir eða önnur öryggisatriði.
- GÞÖ
Kynlíf er gott!
905-5000
Buxnadragtir
með síðum jökkum. Stærðir 42-52.
Verð 13.900-14.900.
Mikið úrval af samkvæmisfatnaði.
Rita
Eddufelli 2
s: 557 1730
Opið
mán. - föst. kl. 10-18
laug. kl. 10-15
nn l DOLBY |
D I G I T A L
icntriiM
Leiðtogi Hamas í stofufangelsi
ÍSRAEL - Palestínska lögreglan hefur handtekið tugi herskárra
Palestínumanna í kjölfarið á sprengjuárás sem gerð var á skólavagn í
ísrael á fimmtudag. Jasser Arafat lét einnig til skarar skríða gegn Ieið-
toga Hamas, Akmed Jassín, og var hann settur í stofufangelsi. Ham-
as-hreyfingin hefur sagst bera ábyrgð á sprengjuárásinni.
Arafat hefur hingað til varast að hreyfa við Jassín, sem sat lengi í
fangelsi í Israel, enda nýtur hann verulegs stuðnings meðal Palest-
ínumanna. Greinilegt er að Arafat er mjög í mun að sýna fram á að
hann hyggist standa við samkomulagið sem gert var við Israelsmenn
í Wye í Bandaríkjunum nýlega.
Ný sending af
MORE
MORE
yfirstíeróir
St. 42-58.
Síóu jakkarnir
komnir aftur
Jakkar frá 5.900
Buxur frá 2.900
Pils frá 2.900
Blússur frá 2.800
Kjólar og vesti
Mikið úrval af fallegum
velúrgöllum frá 4.900.
Nýbilavegi 12, sfmi 554 4433
Kópavogi
fyrir alla
St 364-4»
Lögsaga yíir Pinochet viðurkennd
SPÁNN - Dómstóll á Spáni komst í gær að þeirri niðurstöðu að
spænskum dómstólum sé heimilt að rétta yfir Augusto Pinochet,
fyrrverandi einræðisherra í Chile. Þar með er rannsóknardómaran-
um, sem upphaflega fór fram á það að Pinochet yrði handtekinn og
framseldur til Spánar, heimilt að leggja fram formlega ákæru.
John Glenn skemmtir sér í upphæðum
BANDARÍKIN - Hinn aldni geimfari, John Glenn, naut þess til hins
ítrasta í gær að vera kominn aftur út í geiminn og brosti út að eyrum,
en 36 ár eru frá því hann var síðast á ferðinni þar í upphæðum.
Glenn er 77 ára, elsti maður sem farið hefur út í geiminn, og gegnir
því hlutverki að vera eins konar tilraunadýr í rannsóknum á öldrun,
og hvernig áhrif þyngdarleysi hefur á hana.
Ted Hughes látiim
BRETLAND - Ted Hughes, lárviðarskáld Breta, lést úr krabbameini
á fimmtudag eftir að hafa glímt við sjúkdóminn í eitt og hálft ár. Fyrr
á þessu ári gaf hann óvænt út Ijóðasafn um Iátna eiginkonu sína,
skáldkonuna Sylvíu Plath, sem framdi sjálfsvíg árið 1963, og rauf þar
með Ianga þögn um hjónaband þeirra og tilfinningar sínar til henn-
ar. Margir aðdáendur skáldkonunnar höfðu lengi vel haft horn í síðu
Hughes og kenndu honum háhþartinn um örlög hennar.