Dagur - 03.11.1998, Síða 8
8- ÞRIDJUDAGUR 3 . N Ó V E M B E R 1998
OMjUt-
FRÉTTASKÝRING
Kröfiun Kvei
SIGURDÓR
SIGURDÓRS-
SON
SKRIFAR
Talsmenn Aílnkkanna
hafna alfarið þeim
kröfum Kvennalistans
að hann fái eitt af
þremur efstu sætun-
nm á lista samfylking-
arinnar í öllnm kjör-
dæmum landsins.
Kröfu landsfundar Kvennalistans
um að samtökin fái eitt af þrem-
ur efstu sætunum á listum sam-
fylkingarinnar í öllum kjördæm-
um er vægt sagt illa tekið af tals-
mönnum A-flokkanna. Einn
þeirra sagði í samtali við Dag að
þessum kröfum yrði að sjálfsögðu
hafnað og ekki síst fyrir þá sök að
þær væru óframkvæmanlegar.
Það væru kjördæmisráð í hverju
kjördæmi fyrir sig sem ákveði
framboðin. Formenn eða aðrir
foringjar A-flokkanna réðu þar
engu um og því væri ekki hægt að
verða við kröfunni, jafnvel þótt
menn vildu það.
Þá er líka bent á það að í
nokkrum kjördæmum séu kon-
urnar ekki með neitt fylgi að kalla
eins og til að mynda á Austljörð-
um. Þar fékk Kvennalistinn 191
atkvæði í síðustu þingkosningum,
Alþýðubandalagið 1257 og Al-
þýðuflokkur 577 atkvæði. Menn
spyrja hvort Kvennalistinn eigi
þarna að fá 3. sætið? Þá er einnig
kvartað undan því að í Norður-
landskjördæmi vestra og Austur-
Iandskjördæmi vanti kvennalista-
konur til að taka þátt í viðræðum
samfylkingarinnar, hvað þá að
fara í framboð.
Mestar líkur virðast vera til að
A-flokkamir haldi nú áfram kosn-
ingaundirbúningnum og láti
Kvennalistann taka um það
ákvörðun hvort hann verður með
eða ekki og það án allra skilyrða
eða krafna. Þetta sjónarmið var
ríkjandi hjá öllu því A-flokkafólki
sem Dagur ræddi við um þetta
mál í gær.
Margoft hafnað
Kvennalistinn kom strax í upp-
hafi viðræðna samfylkingarinnar
um framboðsmál með þessa
kröfu um eitt af þremur efstu
sætunum í öllum kjördæmum. A-
flokkarnir höfnuðu henni þegar í
stað með sömu rökum og nú, það
væri kjördæmisráðanna að
ákveða þetta. „Þær komu alltaf
með kröfuna aftur og aftur þótt
Konurnar í Kvennalistanum hafa sett fram kröfur sem eru algjörlega óaðgengilegar að mati talsmanna A-flokkanna. Það fyrsta sem Sighvati Björgvinssyni, form
heyrði af kröfunum var: „Svona gerir maður ekki.“
við værum búin að hafna henni
þrjú hundruð sinnum og nú
koma þær með hana einu sinni
enn og það formlega samþykkta á
landsfundi," sagði einn af A-
flokkamönnunum sem unnið
hefur í stýrihópunum.
I þessu sambandi er á það bent
að kvennalistakonurnar eru ekki
einhuga í þessu máli. Ymsar kon-
ur úr Reykjavík, sem eru jarð-
bundnar, telja kröfurnar sem
landsfundurinn samþykkti,
óraunhæfar. Þær hafa fyrir löngu
gert sér grein fyrir því að þessar
kröfur og ýmsar aðrar kröfur
Kvennalistans hafa tafið fyrir
kosningaundirbúningi samfylk-
ingarinnar. Sumir segja um ekki
minna en tvo mánuði.
Eins og áður hefur verið skýrt
frá í Degi eru margir úr A-flokk-
unum að gefast upp á Kvennalist-
anum vegna óraunhæfra krafna.
Fyrir utan þessar kröfur sem nú
komu fram hafa þær til skamms
tíma krafist þess að fá að leiða
annan hvorn listann í Reykjavík
eða Reykjanesi og var þá talað um
Guðnýju Guðbjörnsdóttur í því
sambandi. Þessu var hafnað. I
Reykjanesi hafa A-flokkarnir
hafnað því að Kvennalistinn fái
sæti framar en 4. sætið. Kröfum
þeirra um að fá þriðja hvert sæti
á listanum í Reykjavík var líka
hafnað. Kratar í Reykjavík hafa
lagt til að þeim verði f prófkjöri
tryggð tvö sæti af átta efstu sæt-
um listans í borginni.
Sumir A-flokkamanna sögðu í
gær að nú væri að því komið að A-
flokkarnir héldu bara áfram vinn-
unni og segðu Kvennalistanum
að hann mætti vera með ef hann
vildi, konurnar réðu hvað þær
gerðu í málinu, hvort þær verði
með eða ekki, svona gæti það ekki
gengið til lengur.
Fannst þetta raunhæft
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir,
landsfundarfulltrúi og Ieiðtogi
Kvennalistans á Vestfjörðum, var
spurð hvort hún liti á þessa kröf-
ur sem ófrávíkjanlegar í Ijósi þess
að þeim er alfarið hafnað af A-
flokkunum?
„Þetta er auðvitað stefna sem
er mörkuð á landsfundinum og
að skoðuðu máli í öllum kjör-
dæmum, sem fulltrúarnir komu
með skýrslur um, fannst okkur
þetta vera raunhæft. Við gerum
okkur grein fyrir því að það gæti
komið upp sú staða, kannski í
einu kjördæmi, að þetta næðist
ekki. Þá yrði það mál bara skoð-
að,“ sagði Jóna Valgerður.
- Myndi Kvennalistinn láta
hrotna endanlega á þessum kröf-
um?
„Eg býst við að ef sú staða
kæmi upp að það væri langt frá
því að þessar kröfur næðust fram,
yrðum við að halda samráðsfund,