Dagur - 18.11.1998, Blaðsíða 5

Dagur - 18.11.1998, Blaðsíða 5
Xk^ur MIDVIKUDAGVR 18. NÓVEMBER 1998 - S FRÉTTIR i. A Ofsóknir gegn lögreglustjora Ögmundur Jónasson ræðir við lögreglumenn sem fylgdust með heitum umræðum um breytingar á skipulagi lögreglunnar í Reykjavík á Alþingi í gær. Framsóknarþingmeim gagnrýndu harðlega fyrirhugaðar breyt- ingar á stjómskipu- lagi lögreglunnar í Reykjavík og talað var um aðför að lögreglu- stjórauum. „Mikið gjörningaveður hefur dunið yfir störf lögreglustjórans í Reykjavík, persónu hans, emb- aetti hans og embættisfærslur. Vissulega er ýmislegt sem betur mætti fara en aðferðirnar við að rýra mannorð lögreglustjórans eru með ólíkindum," sagði Isólf- ur Gylfi Pálmason á Alþingi í gær þegar ræddar voru umdeild- ar tillögur VSÓ ráðgjafar um nýtt skipurit lögreglunnar í Reykjavík. Isólfur sagði að lögreglustjóri væri „rúinn völdum" með skipu- ritinu og efaðist um að það stæð- ist lög. Hann sagðist hafa spurt aðstoðarmann dómsmálaráð- herra sem væri í raun arkitekt breytinganna hvort samband hefði verið haft við Landssam- band lögreglumanna og fengið það svar að því kæmi þetta ekki við. Hörð gagnrýni ísólfs Gylfa og tveggja flokksbræðra hans vakti athygli enda eru ekki mörg dæmi þess á kjörtímabilinu að stjórnar- liðar hafi gagngrýnt ráðherra jafh harkalega og þeir gerðu í gær. Jón Kristjánsson sagði til- lögur VSÓ „undarlega Iesningu", „vinnubrögðin" væru sérstæð og fá yrði úr því skorið hvort skipu- ritið stæðist lög. Hjálmar Arna- son talaði um að „samhljómur- inn“ innan lögreglunnar hefði verið rofinn og öryggi borgar- anna þannig stefnt í hættu. Handarbaksvinna Ögmundur Jónasson, þingmaður óháðra, hóf utandagskrárum- ræðu um skipuritið og sagðist sjaldan hafa séð „önnur eins handarbaksvinnubrögð". Nýja skipuritið á að taka gildi um áramót en samkvæmt því á lögreglustjórinn að sjá um stefnumótun til lengri tfma en varalögreglustjóri að annast dag- Iegan rekstur embættisins. Þetta telur Ögmundur stangast á við lögreglulögin þar sem skýrt sé kveðið á um að lögreglustjórar annist „daglega stjórn og rekstur Iögreglunnar í umdæmi sínu og beri ábyrgð á framkvæmd lög- reglustarfa innan þess," eins og segi orðrétt í 6. grein laganna. Lúðvík Bergvinsson, þingmað- ur Jafnaðarmanna, sagði Ijóst að málefni lögreglunnar hefðu verið í ólestri og grátbroslegt væri að fylgjast með dómsmálaráðherra reyna að gera lögreglustjórann einan að blóraböggli í þeim efn- um. Ur því ráðherra treysti sér ekki til að segja lögreglustjóran- um upp væri „lítilmannlegt að ætla þess í stað að útiloka hann frá daglegri stjórn á embættinu með einhvers konar skipuriti.“ Lúðvík sagði það betra fyrir Iög- regluna ef ráðherra tæki upp samstarf við lögreglustjórann og léti af „skæruhernaði" sínum. Markvissari stjóm Þorsteinn Pálsson, dómsmála- ráðherra, sagði fjarri lagi að skipuritið stæðist ekki lög enda hefðu engin rök verið færð fyrir þeirri gagnrýni. Verið væri að gera skipulag og vinnu Iögregl- unnar markvissari, boðleiðir og verkaskiptingu skýrari. Lögreglu- stjóri væri sem fyrr æðsti yfir- maður embættisins „og það hef- ur ekki verið minnsta tilraun gerð til þess að draga úr því valdi og þeirri ábyrgð". -VJ Stefán Guðmundsson. Stefán ætlar að hætta hing- mennsku Stefán Guðmundsson, alþingis- maður Framsóknarflokks í Norð- urlandskjördæmi vestra og sveit- arstjórnarmaður í hinu nýja sveitarfélagi í Skagafirði, lýsti þvf yfir i upphafi fundar sveitar- stjórnar á Sauðárkróki í gær að hann teldi að þingmennska væri fullt starf og því hefðu hans hug- leiðingar um að taka þátt í vænt- anlegu prófkjöri leitt til þess að hann stæði við fyrri yfirlýsingu um að hann hygðist hætta þing- mennsku í vor. Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á fundinum að gerð yrði arðsemisathugun fyrir 1. febrúar 1999 á yfirtöku á dreifi- kerfi RARIK í Skagafirði og stofnað yrði síðan eitt orkuveitu- fyrirtæki fyrir Skagfirðinga með sameininingu Rafveitu Sauðár- króks og Hitaveitu Skagafjarðar, sem stofnuð var nýverið við sam- einingu Hitaveitu Seyluhrepps og Hitaveitu Sauðárkróks. Til- lagan var samþykkt með 9 at- kvæðum, 2 fulltrúar Skagafjarð- arlista sátu hjá, töldu meðal ann- ars að ganga ætti í viðræðurnar með sameiningu að leiðarljósi en ekki yfirtöku. — GG „Konungur lögreglubí/anna, “ segir Olafur Ásgeirsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, sem stendur hér við nýja bílinn. mynd: brink Loksins nýr löggubHl! Lögreglan á Akureyri iékk fyrir helgina af- hentan langþráðan og- spánýjan Nissan Patrol jeppa. Bíllinn er af árgerð 1998, sem jafnframt er búinn öllum full- komnasta aukabúnaði sem völ er á. „Með þessum vonumst við til þess að vandræði okkar í sam- bandi við bílamál séu að Ieysast," sagði Ólafur Asgeirsson, aðstoð- aryfirlögregluþjónn, í samtali við Dag. Embættið á alls IJóra bíla með þessum nýja bíl, en þess er vænst að á vormánuðum muni tveir njár bílar koma í stað þeirra sem eldri eru og mikið eknir. „Þetta verður konungur lög- reglubílanna hér nyrðra,“ sagði Ólafur Ásgeirsson um hinn nýja bíl. Þetta er díselbíll, sem er meðal annars með tæki til radar- mælinga, fullkomnum fjarskipta- búnaði, GPS staðsetningartæki, öflugum leitarljósum og í bílnum eru jafnframt fjölmörg tæki sem nýtast vel til þeirrar aðstoðar sem lögreglan þarf að veita borgurun- um við margvíslegar aðstæður. -SBS. Galopið flokksþing Allir lanasmenn geta skoðað ályktanir á flokksþingi Framsóknarmanna á nýrri heimasíðu flokksins á Netinu og komið með ábendingar og tillögur. Þetta eru tímamót í sögu flokksins sagði Halldór Ásgrímsson formaður Framsóknar- flokksins þegar hann opnaði heimasíð- una í gær. Síðan hefur að geyma drög að flestum ályktunum sem lagðar verða fyrir flokksþingið um næstu helgi. Slóð- in á heimasíðu flokksins er www.fram- sokn.is en skrifstofa flokksins mun taka við ábendingum og tillögum í gegnum netfangið framsokn@isIandia.is og koma þeim áleiðis til vinnslu á þinginu. Afnotagjald RÚV hækkar Ríkisstjórn samþykkti í gær að leyfa Ríkisútvarpinu að hækka afno- tagjöldin um 5 prósent og hækka þau um 87 krónur í rúmar 1.840 krónur á mánuði. Afnotagjöldin hafa ekki hækkað síðan 1993. Hækkun þýðir um 80 milljóna króna auknar tekjur Ríkisútvarpsins. Aöstoð viö Mið Ameríku Ríkisstjórnin samþykkti í gær tillögu utanríkisráðherra um að veita tveimur milljónum króna í aðstoð við fórnarlömb náttúruham- faranna í Mið-Ameríku nýlega. Fleiri þúsund manns fórust í ham- förunum þegar fellibylurinn Mitch gekk yfir og gífurlegt eignatjón varð, einkum í Honduras og Nicaragua. Parkinsonslyf tekið af markaði Lyfjaeftirlit ríkisins bannaði í gær notkun á lyfinu Tasmar sem notað er gegn Parkinsonsveiki. Samkvæmt kvöldfréttum Ríkisútvarpsins eru ástæður bannsins slæmar aukaverkanir á lifur. Þrír sjúklingar sem tóku lyfið í Evrópu fengu bráða lifrarbólgu. Lyfjaeftirlitið fylgir þar fordæmi Evrópusambandsins sem þegar hefur bannað lyfið, en Bandaríkjamenn hafa enn ekki tekið þetta skref þó þeir hafi hert til mikilla muna reglur um notkun lyfsins. Talið er að um 100 parkin- sonssjúklingar hér á landi noti þetta lyf. Tímamót segir Halldór Ás- grímsson, formaður Fram- sóknarflokksins um nýja heimsíðu flokksins.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.