Dagur - 18.11.1998, Blaðsíða 12

Dagur - 18.11.1998, Blaðsíða 12
12- MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998 ÞfíB ERU fítLIR VITLfíUSIR í MfíRV EercArbic B S 462 3500 Eíginmaður. Eiginkdna. Elskuhugi. Hættulegt framhjáhald. Fullkomið mord. SofyfÍlHlNG y4b°úT M^RY MICHAEL DOUGLAS GWYNETH VIGGO PALTROW MORTENSEN Hörkuspennandi tryllir frá þeim sömu og gerðu The Fugetive, um svik, afbrýðisemi og hið fullkomna morð. Hvað myndir þú gera ef makinn þinn héldi framhjá? Aðalhlutverk: Michael Douglas, Gwyneth Paltrow og Viggo Mortensen. Eiginmaður, eiginkona, elskhugi... hættulegt framhjáhald_____________fullkomið morð. Miðvikud. kl. 19 B.i. 16 ára. □□ | DQLBY | D I G I T A L Það eru allir vitlausir í Mary. Óborganleg gamanmynd frá Farelly bræðrum, leikstjórum Dumb & Dumber og KingPin. Fyrir 20 árum, sviðsetti Laurie dauða sinn en það hefur ekki hindrað geðsjúklinginn Michael Mayers í að reyna að hafa upp á henni. Nú hittast þau aftur... Miðvikud. kl. 21 og 23. b.í. w □□ Doi-nv D I G I T A L Miðvikud. kl. 19 og 23. □[ 11 DOLBY | D I G I T A L ÍÞRÓTTIR Leildðí ktirfunni á morgun DHL-deildin Fimmtudagur 19. nóvember Kl. 20.00 UMFN - Valur Kl. 20.00 Tindastóll - Haukar Kl. 20.00 KR - Keflavík Kl. 20.00 Snæfell - ÍA Föstudagur 20. nóvember Kl. 20.30 Þór Ak. - UMFG Kl. 20.00 KFÍ - Skallagrímur 1. deild karla Fimmtudagur 19. nóvember KI. 20.15 IS - Stafholtstungur Föstudagur 20. nóvember Kl. 20.00 Hamar - Breiðablik Kl. 20.00 Þór, Þorl. - ÍR Stéttin erfyista skrefiö inn... MiMðúrval afhellum og steinum. Mjöggottverð. STÉTT HELLUSTEYPA HYRJARHÖFÐI 8 112 REYKJAVÍK SÍMI 577 1700-FAX 577 1701 Steve McManaman og Robie Fowler líklega á leid frá Liverpool. Houllier viH fimm nýja leikmenn Byltingin á Anfield er hafin. Houllier hefur ekki lagt spil sín á borðið. Leikmenn híða í mikilli óvissu. Rohhie Fowler viH hurt strax. Ástandið í herbúðum Liverpool er vægt sagt á suðupunkti eftir að Roy Evans yfirgaf félagið. Hann afþakkaði „annað starf' hjá félaginu með þeim orðum að hann hefði ekki áhuga á að ráfa aðgerðarlaus um á Anfield Road. Það var meira en taugar margra leikmannanna þoldu og því var það eins og olía á eld þegar ein- valdurinn, Gerard Houllier, sagði að hann yrði strax að kaupa fimm nýja leikmenn til Iiðsins ef árangur ætti að nást. Byltingin er Iialin Houllier ætlar því ekkert að bíða með byltinguna. Hún er hafin. Fyrsta skrefið er að hræða leik- mennina og gera þeim ljóst að það er hann sem velur liðið. Hann hefur þegar sagt að hann vilji selja nokkra leikmenn strax. Þar eru Steve McManaman og Robie Fowler efstir á blaði vegna þeirrar formúgu sem Liverpool fær fyrir þá. Houllier segist reryndar ekki vilja selja Fowler en leikmaðurinn mun ekki vera sólginn í að leika undir hans stjórn hjá Liverpool. Paul Ince er alls ekki í náðinni hjá Frakk- anum og því er nær öruggt að hann verður seldur eftir því sem heimildir Dags í Liverpool segja. Reyndar vill Ince burt sem fyrst úr því sem komið er. Nú er eng- inn Evans til að taka upp hansk- ann fyrir hann lengur. Það vekur óneitanlega athygli, í ljósi þess hve varnarleikur Liverpool hefur verið dapur, að aðeins einn varnarmaður hefur verið orðaður við sölulista Houllier, Jason McAteer. Hann sagði ástandið í herbúðum Liverpool ömurlegt þessa dag- ana og að hvorki leikmenn né þjálfarar þeirra vissu hvað morg- undeginum fylgdi. Það eru ár og dagar síðan Liverpooleikmaður hefur sagt að gott væri að kom- ast í burtu og það til Balkanskaga, með írska landslið- inu til þess að hvíla sig á and- rúmsloftinu á Anfield. Eríiður timi framundan Hvaða skoðun sem menn hafa á hrókeringum stjórnarmanna Liverpool er staða liðsins mun erfiðari í dag en hún var fyrir viku síðan. Gerard Houllier er ekkert öfundsverður af hlutverki sínu. Hans bíður nær ofurmann- legt verk, að rétta skútuna og vinna sér vinsældir stuðnings- manna liðsins. Hann ætlar að hreinsa til og hann verður að gera leikmönnum sínum strax Ijóst hveijir þeirra eru í framtíð- armynd hans af liðinu og hverja hann ætlar að selja. Með þeirri óvissu sem nú ríkir í leikmanna- hópnum getur stefnan bara orð- ið ein. Niður. — GÞÖ íþróttamaður ársins á Stöð 2 Bein útsending frá Hótel Loft- leiðum, á kjöri íþróttamanns árs- ins árið 1998, verður á Stöð 2 þann 29. desember klukkan 19.55. Þetta er í fyrsta sinn sem Stöð 2 sendir út frá þessari mestu hátíð íslenskra íþrótta- manna. Til þessa hefur Sjón- varpið alfarið séð um að koma kjörinu inn í stofur landsmanna. Mikil samkeppni var um út- sendinguna á síðasta ári þegar Stöð 2 bauð í fyrsta sinn í þetta vinsæla sjónvarpsefni. Því til- boði var ekki tekið. Á fundi íþróttafréttamanna var neitað að bera tilboð Stöðvarinnar undir atkvæði. Sjónvarpið fékk síðan sýningarréttinn án útboðs. Ivar Benediktsson, formaður Samtaka íþróttafréttamanna, segir að stjórn samtakanna hafi ákveðið, í kjölfar atburðanna í fyrra, að sjónvarpsstöðvarnar myndu skiptast á að sýna frá út- nefningunni. „Þetta er mál sem verður að taka fyrir á næsta aðal- fundi. Það eru nokkrar Ieiðir færar sem félagsmenn verða að ræða og síðan koma sér saman um hvernig að þessari hátfð verður staðið í framtíðinni," seg- ir Ivar. - GÞÖ

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.