Dagur - 18.11.1998, Side 9
8- MIDVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998
MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1998 - 9
FRÉTTA SKÝRING
Thgpr
Xfc^ur
FRÉTTIR
litið eftir í tímaglasinu
Sighvatur Björgvinsson formaður Alþýðuflokksins, Guðmundur Árni Stefánsson þingmaður Alþýðuflokksins og Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarfuiitrúi. Deiiur um skiptingu saeta á framboðslistum samfylkingarinnar eru háværar þessa
dagana, sagðar erfiðar en ekki óleysanlegar. Kvennalistakonur segja deilur A-flokkanna um aðferðarfræði halda Kvennalistanum í gíslingu.
Formenn A-flokkaima
segja það liggja alveg
ljdst fyrir að skilyrð-
um Kvennalistans um
að hann fái eitt af
þremur efstu sætun-
um í öllum kjördæm-
um og tvö örugg sæti í
Reykjavík sé eudau-
lega hafnað.
Kvennalistakonur hittust í gær-
morgun til að bera saman bækur
sínar um stöðuna eftir að skilyrð-
um þeirra um tvö örugg sæti í
Reykjavik og eitt af þremur efstu
sætunum í öðrum kjördæmum
hjá samfylkingunni var hafnað.
Þar var, að sögn Þórunnar Svein-
bjarnardóttur, ákveðið að halda
samráðsfund um málið. Samráð
kemur næst á eftir landsfundi að
völdum og er svipað og miðstjórn
hjá hinum stjórnmálaflokkunum.
„Eg vil engu spá um framhald-
ið en ég hef sagt það fyrr og segi
enn að allar deilur er hægt að
leysa ef vilji er fyrir hendi. Ef það
er vilji A-flokkanna og Kvenna-
Iistans að Ieysa deiluna þá gerum
við það auðvitað. Hins vegar geri
ég mér ljóst, og sjálfsagt flestir
aðrir sem í þessum samfylkingar-
málum starfa um þessar mundir,
að ferlið er í hnut. Spurningin er
hvort okkur beri gæfu til að leysa
hnútinn á næstu dögurn," sagði
Þórunn Sveinbjarnardóttir, og á
þá við tvöfaidan hnút, skilyrði
Kvennalista og deiluna um próf-
kjör eða uppstillingu.
Það liggur fyrir á ummælum
ýmissa kvennalistakvenna að
samtökin eru ldofin hvað varðar
þessi skilyrði sem A-flokkarnir
hafa nú hafnað. A landsfundi list-
ans töluðu þær Þórunn Svein-
bjarnardóttir og Steinunn Valdís
Óskarsdóttir gegn því að svona
úrslitaskilyrði væru sett. Þær
Guðný Guðbjörnsdóttir og Guð-
rún Jónsdóttir framkvæmdastjóri
Kvennalistans stýrðu harðlínu-
arminum og höfðu betur á fund-
inum.
Dagur hefur öruggar heimildir
fyrir því að afar Iítið er orðið eftir
í tímaglasi A-flokkanna varðandi
kröfur Kvennalistans. Sumir full-
yrða meira að segja að nú sé það
ekki lengur spurning um hvað
Kvennalistinn geri, heldur hvort
hurðinni verði skellt á þær.
A það er bent að Kvennalistinn
hafí ekki tekið neina afstöðu til
þess með hvaða hætti verði stillt
upp á Iista samfylkingarinnar. Þar
deila A-flokkarnir um hvort við-
haft verði prófkjör eða stillt verði
upp á listana. Einkum er þetta
vandamál í Reykjavík. Kvennalist-
inn er sakaður um að hugsa bara
um hvaða sæti konurnar geti
fengið og setji nú skilyrði f þeim
efnum. Kvennalistakonur segja
aftur á móti að þeim sé haldið í
gíslingu vegna deilna A-flokkanna
um aðferðarfræði við að koma
saman listum.
Skilyrðuniun Iiafnað strax
Enda þótt Kvennalistakonur hafí
talað þannig á mánudaginn, þeg-
ar Sighvatur Rjörgvinsson, for-
maður Alþýðuflokksins hafnaði
skilyrðum þeirra opinberlega,
eins og þarna væri um eitthvað
nýtt að ræða, er það ekki svo. A
fyrsta fundi formanna A-flokk-
anna og kvennalistakvennanna
Guðnýjar Guðbjörnsdóttur og
Guðrúnar Jónsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Kvennalistans, um
miðja viku eftir landsfund
Kvennalistans, skýrðu þær frá
skilyrðunum formlega. Þó var
það svo að þegar þær voru spurð-
ar hvort um alger skilyrði væri að
ræða dró Guðný heldur úr því en
Guðrún sagði þetta vera sldlyrði.
Um þetta voru þær síðan ósam-
mála. Þá tilkynnti Sighvatur
Björgvinsson þeim að ef um skil-
yrði væri að ræða þá hafnaði
hann þeim. Svarið sitt væri nei
við þeim skilyrðum. Þær voru
spurðar hvort þær ætluðu þá að
halda áfram í málefnavinnunni.
Þá báðu þær um frest til að svara
því.
Meðan Margrét Frímannsdótt-
ir og Svavar Gestsson dvöldu á
Kúbu var enginn stýrinefndar-
fundur haldinn. En síðastliðinn
sunnudag var svo haldinn fundur.
Sá fundur var haldinn bara til að
ræða stöðuna sem kom upp
vegna skilyrða Kvennalistans. Á
þennan fund mætti Svavar Gests-
son fyrir Alþýðubandalagið og
sagðist skilja kröfu kvennalista-
kvenna sem skilyrði og svar Al-
þýðubandalagsins væri nei. Sig-
hvatur Björgvinsson tók undir
það enda áður búinn að hafna
þessum skilyrðum. A þessum
fundi var kvennalistakonunum
gert það ljóst að þær yrðu að gera
það upp við sig hvort þær ætluðu
að halda áfram eða hætta, skil-
yrðunum væri hafnað.
Kvennlistakonurnar drógu þá í
efa að þeir Svavar og Sighvatur
hefðu umboð til að veita þessi
svör, því málið væri í höndum
kjördæmaráðanna, sem ættu að
svara þessu en ekki þeir tvímenn-
ingar. Sighvatur benti þeim þá á
að hann væri formaður Alþýðu-
flokksins og hefði umboð hans,
samkvæmt samþykkt landsfundar
flokksins, og því væri hann að
svara hér formlega fyrir hönd Al-
þýðuflokksins.
Á þessum fundi var síðan farið
yfír stöðuna í hverju kjördæmi
fyrir sig, í ljósi skilyrða Kvenna-
listans. Á AustQörðum taka þær
ekki þátt í viðræðum flokkanna.
Þar væri því ekki inni í myndinni
að þær fengju eitt af þremur efstii
sætunum. I Norðurlandskjör-
dæmi vestra hefði bara fundist
ein kona. Hún hefði ekki vitað
um neinar aðrar konur sem gætu
unnið með henni að samfylking-
armálum. Hins vegar væri þessi
kona að flytja úr kjördæminu. I
Reykjaneskjördæmi er búið að
hafna skilyrðunum alfarið og það
hefur meira að segja verið fært til
bókar fyrir tíu dögum síðan.
Eftir að kvennalistakonurnar
höfðu beðið um fundarhlé til að
ræða sín mál komu þær aftur og
sögðust ætla að halda áfram mál-
efnavinnunni en sögðust þó ekki
vera horfnar frá sínum skilyrðum.
Síðan var haldinn fundur á
mánudag hjá stýrihópnum. Þar
mættu fulltrúar Kvennalistans
eins og ekkert hefði í skorist.
Þannig standa málin í dag.
Óframkvæmanlegt
„Það er alrangt sem komið hefur
fram hjá þeim kvennalistakonum
að þær hafí verið dregnar á svari.
Á fundi með Guðnýju Guðbjörns-
dóttur og Guðrúnu Jónsdóttur,
sem haldinn var fyrir nærri hálf-
um mánuði, strax í vikunni eftir
landsfund þeirra, hafnaði ég skil-
yrðum þeirra fyrir hönd Alþýðu-
flokksins. Daginn eftir að
Margrtét og Svavar komu úr
Kúbuferðinni var haldinn
stýrinefndarfundur og þar tók Al-
þýðubandalagið af skarið og
hafnaði skilyrðum Kvennalistans.
Málið liggur því alveg klárt fyrir,
skilyrðum þeirra er hafnað. Um
það tjáir ekki frekar að ræða. Ég
vona það aftur á móti ennþá að
þetta hafi ekki verið hugsað sem
skilyrði af hálfu Kvennalistans og
að hann haldi áfram að vinna
með okkur,“ sagði Sighvatur
Björgvinsson, formaður Alþýðu-
flokksins.
Margrét Frímannsdóttir tekur í
svipaðan streng og Sighvatur
hvað varðar skilyrði Kvennalist-
ans. Hún segist hins vegar vona
að í raun hafi Kvennalistinn sett
þetta fram sem hugmynd en ekki
skilyrði.
„Ég hef sagt það áður að við
verðum að bíða niðurstöðu úr
hverju kjördæmi fyrir sig. Þá ligg-
ur fyrir hvaða sæti eru ætluð þeim
sem að framboðinu standa. A-
flokkarnir hafa ekki gert neinar
ákveðnar kröfur í þeim efnum.
Það er því alrangt hjá kvennalista-
konum að við höldum þeim í ein-
hverri gíslingu. Við bara gerðum
þeim grein fyrir því, eftir yfirferð
okkar um kjördæmin og samtöl við
okkar fólk þar, að það virtist vera
óframkvæmanlegt að Kvennalist-
inn fengi eitt af þremur efstu sæt-
unum í öllum kjördæmum," segir
Margrét.
Hún segist vonast til að þeir
flokkar sem tóku þátt í að móta
samfylkinguna verði með til enda.
Hver flokkur verði hinsvegar að
gera það upp við sig hvort svo
verði. Hún sagði að inn í málefna-
vinnunni væri fjöldi atriða sem
Kvennalistinn hefði lagt þunga
áherslu á.
„Þess vegna legg ég áherslu á að
sem allra fyrst liggi fyrir hver nið-
urstaðan verður í kjördæmunum,"
segir Margrét Frímannsdóttir.
Gíslingin
Gíslingin sem kvennalistakonur
tala um er sú deila A-flokanna,
einkum í Reykjavík, með hvaða
hætti verði stillt upp á lista. Krat-
ar krefjast prófkjörs og þar fer
fremstur Össur Skarphéðinsson,
sem hafnar því að taka annað sæt-
ið án þess að prófkjör skeri úr.
Tveir af þremur fulltrúum Alþýðu-
bandalagsins í níu manna nefnd-
inni sem vinnur að uppstillingu
Ieggja til að uppstillingarnefnd
raði listanum upp og þá er 'rætt
um Svavar Gestsson í efsta sæti.
Einn fulltrúi flokksins, Gísli
Gunnarsson, hefur teldð undir til-
lögu krata um prófkjör. Hann tal-
ar þar fyrir hönd Bryndísar
Hlöðversdóttir alþingismanns,
sem er sammála krötunum um að
haldið verði prófkjör.
Samkvæmt heimildum er nú
verið að ræða tvær eða þijár hug-
myndir til lausnar deilunni, sem
er sögð erfið en ekki óleysanleg.
Á landsbyggðinni er atvinnuástandið tiltölulega gott miðað við Reykjavík þar sem yfir 1600 manns eru
atvinnulausir.
Reykvflángar 60%
allra atvinnulausra
Næstiun 60% allra at-
vinnulausra í landinu
eru Reykvíldngar.
Aðeins 0,8% karla á landsbyggð-
inni vantaði vinnu í október en
tvöfalt hærra hlutfall á höfuð-
borgarsvæðinu (1,7%). Af lands-
byggðarkonum vildu 2,5% meiri
vinnu og 3,5% borgardætra.
Andstætt venju fjölgaði atvinnu-
Iausum ekki milli september og
Auka for-
vamir
Fíkniefnaneysla á Akureyri hef-
ur færst æ neðar í aldurshópum
og hafa forráðamenn félagsmið-
stöðva nú leitað eftir stuðningi
bæjarins til að lengja opnunar-
tíma. Björn Björnsson, sem hef-
ur umsjón með þessum mála-
flokki hjá Akureyrarbæ, segir
nauðsynlegt að geta boðið
krökkum upp á einhvern valkost
annan en miðbæjarröltið. Sér-
staklega sé þetta mikilvægt á
föstudagskvöldum. Tæpar þrjár
milljónir þarf til að geta haft fé-
lagsmiðstöðvar opnar á föstu-
dögum næsta ár og yrðu þær
opnar til skiptis.
íþrótta- og tómstundaráð fjall-
aði um beiðni félagsmiðstöðv-
anna í gær og voru allar líkur á
að erindið yrði samþykkt. Þor-
steinn Guðbjörnsson, forstöðu-
maður félagsmiðstöðvar Glerár-
skóla, segir að þar sé aðeins opið
tvo virka daga, tvo klukkutíma í
senn. Brýnt sé að lengja opnun-
artíma.
I ár hafa allnxargir 14-16 ára
unglingar verið staðnir að
neyslu sem er mönnum mikið
áhyggjuefni. „Okkur fínnst varla
hægt að tala um forvarnir af
hálfu bæjarins ef hvergi er hægt
að fá inni á helsta hættutíman-
um,“ segir Björn Björnsson. — Bt>
100 einstak-
lingar í
dópmálunt
I Degi í gær kom ekki fram rétt-
ur fjöldi á fíkniefnamálum sem
orðið hafa á Akureyri. Málin eru
á fimmta tug, en einstaklingarn-
ir sem þeim tengjast eru um 100
talsins. Þessi misskilningur leið-
réttist hér með.
október og Vinnumálastofnum
býst heldur ekki við að þeim Qöl-
gi að marki í nóvember. Hlutfall
atvinnulausra mældist 2,1% af
mannafla í október, ríflega þriðj-
ungi lægra en fyrir ári.
Víðast iiman við tug
Atvinnuleysisskráning jafngilti
1.000 körlum og tæplega 1.800
konum án vinnu í október (hvar
af þriðjungurinn var þó í hluta-
starfí), eða nær 2.800 manns að
jafnaði. Næstum 60% þessa hóps
(1.620 manns) var á skrá í
Reykjavík. Um 200 vantar vinnu
á Akureyri, 110 í Reykjanesbæ,
tæplega 50 á Sauðárkróki og Sel-
fossi en víðast hvar annars staðar
telur skráin innan við tug.
Um 190 laus störf voru skráð
hjá vinnumiðlunum í októberlok.
Um 150 útlendingar fengu at-
vinnuleyfí í október. AIls voru um
1.700 atvinnuleyfí gefín út fyrstu
tíu mánuði ársins, um 140 fleiri
en allt síðasta ár. - HEI
25. flokksþing
framsóknarmanna á Hótel Sögu
20. ■ 22. nóvember 1998
„VERTU MEÐ Á MK)JUNNI“
Dagskrá:
Föstudagurinn 20. nóvember 1998
Kl.9.15 Afhending þinggagna
Kl.10.00 Þingsetning
Söngur Margrét Bóasdóttir
Kl.10.10 Kosning þingforseta (6)
Kosning þingritara (6)
Kosning kjörbréfanefndar (5)
Kosning dagskrárnefndar (3)
Kosning kjörnefndar (8)
Kosning kjörstjórnar (8)
Kl. 10.30 Skýrsla ritara
Kl. 10.45 Skýrsla gjaldkera
KI.11.00 Mál lögð fyrir þingið
Skipan í málefnahópa v/ nefndarstarfa
Umræður um skýrslur og afgreiðsla þeirra
Kl. 12.00 Matarhlé
Kl.13.15 Yfirlitsræða formanns
Kl. 14.15 Almennar umræður
Kl. 16.30 Nefndarstörf-starfshópar-undirnefndir
Laugardagurinn 21. nóvember 1998
Kl.09.00 Almennar umræður, framhald
Kl. 11.00 Afgreiðsla mála - umræður
Kl. 12.00 Matarhlé
Kl.13.15 Kosningar:
Fulltrúar í miðstjórn samkv. lögum
Kl.13.45 Fjölskyldan og vimuvarnir
Þórólfur Þórlindsson, prófessor
Kl. 14.30 Afgreiðsla mála - umræður
Kl. 15.30 Nefndarstörf - starfshópar - undirnefndir
Kl. 19.30 Kvöldverðarhóf T Súlnasal .
Sunnudagurinn 22. nóvember 1998
Kl. 10.00 Afgreiðsla mála - umræður
Kl. 12.00 Matarhlé
Kl.13.15 Bjartsýnisverðlaun Framsóknarflokksins 1998
Kl. 13.45 Kosningar:
-Formanns
-Varaformanns
-Ritara
-Gjaldkera
-Vararitara
-Varagjaldkera
Kl. 14.00 Afgreiðsla mála og þingslit að dagskrá tæmdri
Með fyrirvara um breytingar