Dagur - 19.11.1998, Side 2
18"-° TIM'NTTWD'A'&UR 1 9 ."ATÓVEIffREjr 1 9 9 8
LÍFIÐ í LANDINU
■ SMÁTT OG STÓRT
UMSJÓN:
SIGURDOR
SIGURDÓRSSON
Össur
Skarphéðinsson.
Ritstjóramii
Því er haldið fram að andstæðingar samfylk-
ingarinnar hyggi gott til glóðarinnar ef þeir
Svavar Gestsson og Össur Skarphéðinsson
skipa tvö efstu sætin á lista hennar í Reykja-
vík. Þeir segjast muni benda fólki á að þarna
fari engir kratar heldur tveir kommar því
þarna sé um að ræða tvo fyrrverandi ritstjóra
Þjóðviljans. En í gerbreyttum pólitískum heimi
er hætt við að slík ábending muni missa marks
nema hjá elstu kjósendunum.
Heilbrigðisráðherra
Árni M. Mathiesen sagði í sjónvarpsviðtali eft-
ir frækinn sigur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
á Reykjanesi að hann teldi eðlilegt að
Reyknesingar fái ráðherra í næstu ríkisstjórn
sem Sjálfstæðisflokkurinn eigi aðild að. Enda
þótt Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, kæmi í sjónvarp skömmu síðar og
segði að enginn gæti gert kröfur til ráðherra-
dóms í Sjálfstæðisflokknum eru gárungar farn-
ir að gera því skóna að Arni M. Mathiesen
verði næsti heilbrigðisráðherra. Þeir segja það
mátulegt á hinar óstýrilátu heilbrigðisstéttir að
fá dýralækni sem heilbrigðisráðherra í stað
hjúkrunarfræðings.
„Lyktin af kosn-
ingafleskinu
leynir sér ekki.“
Jón Sigurðsson,
fyrrum Jámblendi-
forstjóri, um Sól-
skinsfrumvarpið.
Munurinn
Einn þingmanna Sjálfstæðisflokksins spurði
annan þingmann flokksins hvort hann vissi
hver væri munurinn á Drottni allsherjar og
Davíð Oddssyni? Sá sem spurður var svaraði
neitandi. Munurinn er sá, sagði hinn, að
Drottinn heldur ekki að hann sé Davíð Odds-
son.
Pissað í skálina
Það gat auðvitað ekki farið hjá því að hagyrð-
ingar, og þá ekki síst á Alþingi, færu í gang
þegar hinar einstöku kynhlutverkamyndir birt-
ust af ráðherrum og þingmönnum. Að vísu
bentu menn á að Guðný Guðbjörnsdóttir vissi
ekki mikið um hegðun karlmanna fyrir framan
pissuskál, svona dags daglega. Þeir styðji ekki
báðum höndum fyrir ofan skálina eins og hún
gerir á myndinni, fyrr en þeir eru orðnir svo
ofurölvi að þeir standa ekki í fæturna og sem
betur fer gerist slíkt ekki oft. En vísurnar sem
hér fara á eftir orti Hjálmar Jónsson í tilefni
myndbirtinganna:
Kynhlutverk getum nú gripið að vali,
góður er Páll með nálina.
Óléttur Grímur gengur um sali
og Guðný pissar í skálina
Karlmennskan hlýtur harðan dóm
hrynja goðin afstalli.
Davtð gengur t gelluskóm
og Grímur er kominn aðfalli.
jy^ur
Mjög eru höfund-
ar misvirkir og
sjálfsagt fáir sem
á einu og sama
árinu gefa út sex
bækur, en sú er
raunin með Ragn-
ar Inga Aðal-
steinsson.
Með mörg jám í eldiiium
Hann erkennari að
mennt en Ijóðskáld í
hvergi lengur og er alveg stór-
kostlegt að við skulum hafa varð-
veitt það í 1100 ár.“
„Svo kenndi ég upp úr vösun-
um í mörg ár, var að búa til
Þegar líður að hausti skellur
jafnan á hið hefðbundna jóla-
bókaflóð, sem veldur því að fæst-
ar bækur sjást, heldur verða hluti
af flóðinu. Mjög eru höfundar hjarta sínu. Ragnarlngi
misvirkir og sjálfsagt fáir sem á.,, . , „ _ kennsluefni jafnóðum og ljósrita
einu og sama árinu gefa út sex AOalStefflSSOn nejUTgej- 0g vegna þess tók ég til við að
bækur, en sú er raunin með rú iit marríarhmhnr nrí nr gera kennslubækurnar. Ég kenni
Ragnar Inga Aðalsteinsson. íflafgtir Og t / fsiensku Qg f september gaf ég út
Ragnar er kennari að mennt og ÍafnVÍÓWálióðformið bókina Gullvör, sem er málfræði
aðalstarfi og hluti bóka þeirra ^ * J J
sem hann skrifar eru einmitt $Cm SkáldskapfflU. VÍllll
kennslubækur. „Þetta er nú búið
að vera með skrautlegra móti,“
segir hann og hlær við. „Það eru
ekki öll ár svona. En ég hef und-
anfarin þrjú ár verið á starfslaun-
um hjá Launasjóði rithöfunda,
sex mánuði hvert ár og hefur sá
tími nýst mér afar vel, fyrst og
fremst við skáldskap, en þess á
milli er gott að skrifa eins og
eina og eina kennslubók í
bland.“
Ragnar segir ljóð vera sitt aðal-
áhugamál og hafa fengist við ljóðagerð lengi eða
frá átta ára aldri. „I nóvember kom út ljóðabók-
in Jörð og svo er á næstunni von á litlu kveri
sem inniheldur eitt kvæði, aðventuljóð og er það
gefið út til styrktar Krísuvíkursamtökunum,"
segir Ragnar. „Þetta ljóðform sem við notum
hérlendis, stuðlar og höfuðstafir, það þekkist
ursvo kennslubækur
fyrir efri bekki grunnskólans og
sama dag og hún kom út kom
bókin Týndi bekkurinnn út, en
það er kennslubók í ritun og staf-
, setningu, sniðin fyrir 10. bekk
SVOna l hjaverkum, enda grunnskólans og fornámsbekki
framhaldsskólans.“ Ragnar hefur
líka gefíð út bókina Ljóð í tíunda,
sem er kennslubók í bragfræði og
ljóðlist fyrir 10. bekk grunnskóla,
sniðin fyrir þarfir nemenda sem
eru að búa sig undir samræmd
próf og Gunnlaugs sögu Orms-
tungu, lestrarútgáfu með ítarleg-
um orðskýringum.
Ragnar segist vera heillaður af leikritaforminu
en því miður ekki hafa tíma til að sinna því sem
skyldi. „Við eigum svo mikið af fyrsta flokks
leikurum hér og íslenskt leikhús er á heims-
mælikvarða," segir hann. „Ég er búinn að vera
með leikrit í smíðum um tíma og vonast til að
geta lokið því og gefíð það út innan tíðar.“ -VS
hvíld að því að skrifa
þærsegirhann.
SPJALL
■ FRÁ DEGI TIL DAGS
Hvers vegna setjum við ekki upp mun-
aðarleysingjahæli við hliðina á elli-
heimilunum? Það líður ekki á löngu
áður en sá sem er í ruggustól er kom-
inn með einhvem lítinn í kjöltuna.
Cloris Leachman
Þetta gerðist 19.nóv.
• 1763 var Hóladómkirkja vígð.
• 1910 hófst bylting í Mexíkó.
• 1945 hófust réttarhöld yfir 24 þýskum
nasistaleiðtogum í Núrnberg.
• 1952 hófust sýndarréttarhöld yfir 14
kommúnistum í Prag.
• 1959 tók Viðreisnarstjórn Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðuflokks við völdum und-
ir forystu Olafs Thors.
• 1977 ávarpaði Anvar Sadat Egypta-
landsforseti ísraelska þingið.
Þan fæddust 19. nóv.
• 1770 fæddist íslensk-danski mynd-
höggvarinn Bertel Thorvaldsen.
• 1833 fæddist þýski heimspekingurinn
Wilhelm Dilthey.
• 1839 fæddist þýski iðnjöfurinn Emil
von Skoda.
• 1888 fæddist kúbverski skákmeistarinn
José Raúl Capablanca.
• 1899 fæddist bandaríski rithöfundur-
inn Allen Tate.
• 1909 fæddist Peter F. Drucker, rithöf-
undur og ráðgjafi.
• 1938 fæddist bandaríski Ijölmiðlakóng-
urinn Ted Turner.
Vísa dagsins
Auðunn Bragi kom með þessa vísu sem
hann kallar götumynd:
Einn ég leit þar ungling
titi t golunni
með videoband og vindling.
- Ilvuð var svo á spólunni?
Afmælisbam dagsins
„Faðir minn var dýrfingur. Ég er
það ekki,“ sagði Indira Gandhi ein-
hverju sinni, en faðir hennar var
Jawaharlal Nehru, fyrsti forsætis-
ráðherra Indlands. Sjálf var Indira
forsætisráðherra á Indlandi 1966-
77 og 1980-84. Hún féll lyrir
morðingja hendi 31. október 1984.
Sonur hennar Rajiv Gandhi tók þá
við forsætisráðherrastólnum, en
hann féll einnig lyrir morðingja
árið 1991.
Hraðarenþú...!
Tveir Islendingar, borgarbúi og sveitamað-
ur, eru saman á ferðalagi í Afríku. Skyndi-
lega birtist Ijón á vegi: þeirra, í nokkurra
metra fjarlægð, og stárir á þá hungruðum
augum. Sveitamaðurinn beygir sig þá nið-
ur til að herða reimarnar, og er snöggur
að. „Hva, heldurðu að þú getir hlaupið
hraðar en Ijónið,“ spyr borgarbúinn háðs-
lega. „Nei, en ábyggilega hraðar en þú,“
segir sveitamaðurinn og er roldnn af stað.
Veffang dagsins
Skyldi einhver vilja sjá (splunkunýja) mynd
frá Rio de Janeiro í Brasilíu þá er stöðugt
nýja mynd að sjá á Netinu á slóðinni
http://liveinrio.iis.com.br/cgi-
bin/today.exe