Dagur - 19.11.1998, Page 5
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998 - 21
LÍFIÐ í LANDINU
Vægðarlaus
alþýðudómstóll
Anna Dóra Antonsdóttir: Gefur út sjálf til að tefja ekki bókina á göngunni milli útgefenda.
Hún erað sendafrá sér tværbæk-
ur, gefuraðra útsjálfenfékk út-
gefanda að bamabók sem hún
skrifaði. Voðaskotið ersaga af
glæp - eins konarvamarræða af-
komanda aðalpersónunnar.
Anna Dóra Antonsdóttir rannsakaði 160
ára gamalt sakamál og telur sig hafa dregið
sannleikann ffam í dagsljósið. „Eg hef
lengi haft áhuga á þessari sögu. Eg heyrði
hana sem krakki og það hefur lengi blund-
að í mér að fara betur ofan í hana,“ segir
Anna Dóra um það hvernig hún kom að
sögunni um glæpinn á Upsum. Hún er
fædd og uppalin á Dalvík og er afkomandi
einnar aðalpersónunnar í sögunni.
„Eg hafði aldrei tíma til eins eða neins
en svo fékk ég tækifæri til að sinna þessu.
Eg gaf mér bara tíma, börnin komin upp
og tíminn orðinn rýmri.“ Anna Dóra segir
einnig hafa skipt miklu máli að hún býr
nú í Reykjavík því þær heimildir sem hún
þurfti á að halda eru að mestu geymdar á
Þjóðskjalasafni og handritadeild Lands-
bókasafns.
Trú heimildnm
- Hvers konar bók er Voðaskotið? Sagn-
jfæði? Skdldskapur?
„Þetta er ekki hrein og klár fræðibók
en hinsvegar er ég mjög trú heimildum.
Það má alveg segja það en ég náttúrlega
skálda til að gera þetta Iæsilegra og glæða
söguna dálitlu lífi.“
Anna Dóra segist hafa verið með bók-
ina á prjónunum í tvö ár en hefur ekki
setið yfir henni eingöngu. „Eg var til
dæmis að skrifa barnabók sem heitir
„Hefurðu farið á hestbak?" og er að koma
út núna fyrir jólin hjá Æskunni. Þetta er
það fyrsta sem kemur út eftir mig frum-
samið en ég hef fengist við þýðingar og
skriftir. Eru ekki flestir sem eru að byrja
að skrifa búnir að skrifa nokkuð lengi fyr-
ir skúffuna?"
- Þií gefur Voðaskotið út sjúlf?
„Eg gef Jressa bók út sjálf og það er tals-
vert mál. Eg er óþekktur höfundur og það
þýðir ansi mikil hlaup á milli bókaútgef-
enda. Eg kynntist því í sambandi við bama-
bókina sem ég fékk þó loks útgefanda að.
En ég sá fram á að þama yrði seinkun hjá
mér um ár eða meira ef ég færi að hlaupa á
milli og ég nennti því ekki. Eg ákvað því að
gefa hana bara út sjálf."
- Hvað fannst þér erfiðast?
„Erfiðast er að byggja upp söguna
þannig að eitthvert vit yrði í henni. Það
var erfiðast að komast niður á byggingar-
stílinn, ef við getum orðað það þannig."
Vamaxræða afkomanda
- Aðeins um söguna sjálfa?
„Sagan byrjar á því að vinnukona á
Upsum deyr af byssuskoti. Það veit eng-
inn hvað hefur gerst en svo kemst sá
kvittur á kreik að Hans Baldvinsson hafi
verið valdur að þessu - hafi haldið á byss-
unni og skotið hana. Þetta fer í rannsókn
vegna þess að faðir stúlkunnar kærir mál-
ið. Málið varð mjög umfangsmikið í
dómabókum, mildar yfirheyrslur en aldrei
felldur neinn dómur.“
- Ertu þama að skrifa varnarræðu fyrir
forföður þinn?
„I og með en þetta er bara svo
skemmtilegt viðfangsefni. Þetta snertir
mig ekki Iengur, komið í fjórða eða
fimmta lið.“
- Og finnur þú þann seka... eða má
ekki segjafrá þvt?
„Við skulum segja að ég dragi sann-
leikann fram í dagsljósið."
Þann sannleika verða þeir sem vilja að
finna með því að lesa bókina. - Hi
Magrímaferðir
nútímans
SVOJMA
ER LIFIÐ
skrifar
©
Hér á árum áður voru píla-
grímaferðir erfiðar og tóku
langan tíma. Menn voru
burtu árum saman, sultu
heilu hungri og alveg óvíst
hvort þeir kæmu aftur heim.
Með tilkomu tækninnar hef-
ur þetta heldur en ekki
breyst, því Vatikanið hefur
sett upp vefsíðu
http:/www.vatica.va - þar sem
meðal annars má sjá og heyra
Jóhannes Pál páfa fara með
messu á sunnudögum.
Einnig er að finna á síðunni
Páfabréf og aðrar ritsmíðar
Páfa, ásamt fréttaþjónustu
Vatíkansins. Sömuleiðis er á
síðunni að finna ýmislegt um
þau söfn, sem eru í Vatíkan-
ríkinu og þykja ákaflega
merkileg. Og svo er heil síða
um aldamótafagnað kaþólsku
kirkjunnar árið 2000. Og allt
er þetta á mörgum tungumál-
um, ensku, þýsku, ítölsku,
frönsku, spænsku.
Vigdís
svarar
í símann!
Ertu með ráð,
þarftu að spyrja,
viltu gefa eða
skipta?
Vigdís svarar í
símann kl. 9—12.
Síminn er
563 1626 (beint)
eða 800 7080.
Póstfang:
Þverholt 14 Rvk.
ða Strandgötu 31
Akureyri.
Netfang:
ritstjori@dagur.is
Húsráð
Þegar ferskar jurtir hafa verið tíndar, er gott að frysta þær og
þá er auðvelt að mylja þær niður frosnar. Setjið jurtirnar í
plastpoka og rúllið nokkrum sinnum yfir með kökukefli.
Ef færa á þvottavél eða annað þungt, er það auðveldara ef
nokkrum dropum af uppþvottalegi er sprautað undir fæturna
á tækjunum.
Dýfið endum skóreima í glært naglalakk til að koma í veg fyr-
ir að endarnir rakni.
Þegar verið er að skera lauk, er gott að hafa blautt dagblað
nærri, það dregur í sig Iyktina.
Litlir nælonpokar eru góðir til að setja í fræ og annað sem
fuglum kemur vel. Þá er hægt að hengja upp og fuglarnir
kroppa úr þeim.
Klippið framan af fingri á gúmmívettlingi og látið efst á kúst-
skaftið. Það kemur í veg fyrir að kústurinn renni til þegar
hann stendur upp við vegg.
■ HVAD ER Á SEYÐI?
MÓTUN LISTAHÁSKÓLA ÍSLANDS
Félag um Listasháskóla Islands efnir til umræðufundar
um mótun Lisataháskóla íslands. Fundurinn verður hald-
inn í Norræna húsinu næstkomandi mánudagskvöld 23.
nóvember kl. 20.30.
Frummælendur verða Páll Skúlason háskólarektor,
Gunnar J. Arnason listheimspekingur og nýráðinn rektor
Listaháskólans Hjálmar H. Ragnarsson.
Fundinum er ætlað að byija að safna í hugmyndapott fyr-
ir skólann og ef undirtektir verða góðar, er gert ráð fyrir
að framhald verði á þessum fundum.
Mætum og hjálpum til við mótun Listaháskóla á íslandi.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Afbrot á Islandi
Helgi Gunnlaugsson, dósent við Félagsvís-
indadeild Háskóla Islands, mun kynna
væntanlega bók sína um afbrot á Islandi í
boði Félagsfræðingafélags íslands. Kynn-
ingin fer fram í stofu 201 í Odda, húsi Fé-
lagsvísinda- og Viðskipta og hagfræðideilda
Háskóla Islands, fimmtudaginn 19. nóvem-
ber kl. 20.30.
Ritlistarhópur Kópavogs
Upplestur á vegum Ritlistarhóps Kópavogs
verður haldinn í Gerðarsafni í dag 19. nóv.
kl. 17-18. Ragnar Ingi Aðalsteinsson les úr
nýrri ljóðabók sinni, Jörð. Aðgangur ókeyp-
is og allir velkomnir.
Tónleikaröð Kaffileikhússins
I kvöld eru þriðju tónleikarnir í tónleikaröð
Kaffileikhússins. Þar koma fram Unun,
Fræbblarnir og Rúnar Júlíusson. Tónleik-
arnir heljast kl. 21 og er miðaverð kr. 800.
Ljósið í myrkrinu
I kvöld kl. 21 opna Ragnheiður Olafsdóttir
og Aðalsteinn Gunnarsson sýningu á list-
munum í Gallerí Hár og List að Strand-
götu 39, Hf. Verkin eru unnin með bland-
aðri tækni og er inntak þeirra allra „ljósið í
myrkrinu". Sýningin er opin alla virka daga
frá kl. 9-18 og 14-18 um helgar.
Ævi og list í Hafharborg Hf.
Yfirlitssýningu Sigurjóns Ólafssonar mynd-
listarmanns stendur nú yfir í Hafharborg. í
tengslum við sýninguna verða tónleikar á
sunnudaginn 22. nóvember kl. 20.30 þar
sem fram koma Hlíf Sigurjónsdóttir fiðlu-
leikari, Junah Chung lágfiðluleikari og Sig-
urður Halldórsson sellóleikari.
Breiðfirðingafélagið
Kántrý-kvöld í kvöld kl. 20 í Breiðfirðinga-
búð. Kántrýkóngur suðursins skemmtír.
Fitl í Hinu Húsinu
Utgáfutónleikar hljómsveitarinnar Fitl
verður í kvöld á Geysi-kakóbar kl. 20.30.
Fitl gaf nýlega út geislaplötuna „Undur“ en
þeir sem mæta með diskinn á tónleikana fá
ókeypis inn.
LANDIÐ
Gítar Islancio á Dalvík
Tríóið Gítar Islancio heldur tvenna tón-
leika á Norðurlandi. Tríóið skipa Björn
Thoroddsen, Gunnar Þórðarson og Jón
Rafnsson. Þeir spila á Dalvík fimmtudag-
inn 19. nóv. kl. 21.30 á Café Menningu.
Tónleikar á Egilsstöðum
Aðrir tónleikar Tónlistarskólans á Egils-
stöðum á þessu misseri verða í Egilsstaða-
kirkju föstudagskvöldið 20. nóvember kl.
20.00. Efnisskráin er blönduð söng og
hljóðfæraslætti. Aðgangur er ókeypis.
Jólastemmning á Akureyri
Norðurpóll, jólaþorpið á Akureyri verður
opnað á föstudaginn kl. 15.00 þegar jóla-
sveinar safnast saman á Ráðhústorgi.
Kveikt verður á jólatré allra barna kl.
17.00. Þar með er hafín dagskrá á Norður-
pólnum sem mun standa fram til jóla.