Dagur - 21.11.1998, Page 6

Dagur - 21.11.1998, Page 6
JA -L A U G AR DA GV R 21. NÓVEMBER 19 9 8 MINNINGARGREINAR Júlíus Smári Baldursson Júlíus Smári Baldursson fædd- ist á Akureyri 8. september 1970. Hann lést 7. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hans eru Baldur Bagnarsson raf- verktaki frá Hólmavík og Þor- gerður Fossdal frá Akureyri. Júlíus Smári á tvær systur; Thelmu Baldursdóttur, f. 02.05. ‘73, sambýlismaður hennar er Friðbjörn Benedikts- son f. 21.10. ‘68. Eiga þau son- inn Baldur Smára f. 05.07. ‘95. Berglin Baldursdóttir f. 16.10. ‘80, sambýlismaður hennar er Tómas Arason f. 13.10. ¥75. Júlíus Smári gekk í Hvamms- hlíðarskóla og síðustu 2 ár hef- ur hann átt sitt annað heimili á Sambýli við Hafharstræti 16 á Akureyri. Útförin fór fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 13. nóvember s.l. Elsku Brói. Ég minnist þín með sáran sökn- uð í hjarta. Maður trúir því varla að þú sért farinn. Eða kannski vill maður ekki trúa því, svona er maður eigingjarn. Þegar ég hugsa til baka til allra góðu minninganna þá tárast maður svo mikið og saknar þín svo sárt. Þegar Thelma systir hringdi og sagði að þú værir farinn til Guðs þá varð ég fyrst svo reið og um leið svo sorgmædd, ég vildi óska þess að ég gæti fengið þig aftur. Þú varst bestur. Við áttum okkar góðu stundir saman en samt voru þær alltof fáar, þú áttir eftir að koma og sjá húsið mitt og sjá börnin mín þegar þau koma. Ég vildi óska þess að ég eigi eftir að eignast einhvern sem var mér eins nákominn og þú varst, og einhvern með hjarta úr gulli eins og þú. Ég vona að þér líði vel núna og getir lifað lífinu á þann hátt sem þú gast ekki í Iífanda lífi. En ég veit að þú unnir þínu lífi hér á þinn hátt. Það er svo erfitt að hugsa til þess að koma heim og sjá þig ekki á gólfinu eða í stólnum þínum og eiga aldei eftir að heyra hláturinn þinn aft- ur. Ég á eftir að sakna þín svo mikið stóri bróðir og vonast svo sárt eftir því að sjá þig aftur hinu megin. Viltu svo hjálpa mömmu og pabba í framtíðinni og vaka yfir oltkur öllum. Ég elska þig. Þín litla systir Begga. *** Nú ert þú farinn elsku bróðir. Skarð hefur myndast í eininguna sem staðið hefur að þér. Þú hef- ur verið til staðar alla mína ævi. Þú hefur verið til staðar frá því ég fór fyrst að muna eftir mér og hefur fylgt mér og mínum minn- ingum alla tíð. Það er ekki fyrr en nú á síðustu árum sem leiðir okkar hafa skilið. Ég fór í skól- ann og þú tókst það skref að fara að heiman. Fram að því vorum við saman. Ó þetta er svo sárt. Þau orð sem upp koma í huga okkar allra sem þekktum þig, sorg, söknuður, missir, óréttlæti eru þó kannski þau orð sem hafa fylgt þér alla ævi. Þú varst kannski sorgmæddur yfir því að vera ekki eins og við hins, þú saknaðir þess kannski að vera ekki eins og við, fannst það miss- ir eða horfðir upp á óréttlætið að geta ekki gert eins og við hin. En nú ert þú fijáls elsku vinur og gengur um á öðrum stað. Ég gleymi því aldrei, hversu ánægður þú varst þegar þú eign- aðist litla frænda þinn og nafna sem á erfitt með að skilja að þú sérst ekki enn á meðal okkar. Hann spurði: „Af hverju tók Brói ekki hjólastólinn sinn með sér til Guðs?“ „Mamma þetta er allt í lagi, þegar Brói kemur sem engill til okkar í nótt, þá keyrum við hann bara aftur til ömmu Lillu og afa Balla.“ Það er ekki von að nafni þinn skilji það sem ég skil varla sjálf. Þú vildir alltaf fylgjast með öllu sem við vorum að gera og varst alltaf í hringiðu eldhúsborðsum- ræðna. Þú varst svo ánægður að geta verið með okkur. Þú vildir fá að vita hvernig gengi í nýja hús- inu og fylgjast með hvað við vær- um að gera þar. En hafðir þó ekki tækifæri til þess að koma suður elskan og sjá. Nú fylgist þú bara með úr fj'arlægð. Þó að myrkur sé yfir okkur, þá veit ég að vilji þinn er að við séum sterk og reynum að horfa fram á við. Það var það sem þú gerðir, þú vissir alltaf að það kæmu betri tímar. Það getur bara tekið smá tíma. Það styttir upp hjá okkur eins og það hefur alltaf gert hjá þér. Nú ert þú kominn í faðm góðra manna sem ég veit að hafa tekið á móti þér. Og þú tek- ur síðan á móti okkur þegar þar að kemur. Elskan mín nú verður þú að hjálpa mér að styrkja mömmu, pabba og Beggu í þess- ari miklu sorg sem við erum að ganga í gegnum. Elsku Brói minn með þessum fátæklegu orðum langar mig að kveðja þig en minningin um yndislegan bróður verður með mér um alla tíð. Bróðir ntinn sæll ég kveð þig nú, söknuður, ást og trú. Þitt frelsi, fegurð og framtíð björt, er það sem við viljum þér öll. T.b.'98. Þín systir Thelma. *** Elsku drengurinn minn, nú þeg- ar þú ert farinn sitjum við sem eftir erum og minnumst þín og þökkum fyrir árin sem við feng- um að hafa þig hér hjá okkur. Ég mun alltaf minnast þess þegar þú fæddist svo Iítill og veikburða en samt svo fallegur. Þú varst frumburður foreldra þinna sem umvöfðu þig ást og umhyggju og létu þig aldrei skorta neitt. Systur þínar voru þér mikils virði og litli systurson- ur þinn sem ber nafn þitt og pabba þíns, hvað þú varst stoltur þegar hann var skírður. Alltaf áttu amma Sigga og afi Júlli stórt rúm í þínu hjarta og af öllum þeirra mörgu barnabörnum varst þú næst elstur og að ég held augasteinn þeirra. Þín mun ég minnast brosandi og kátur með hlýju í augum, þér fannst alltaf svo gaman að hafa marga í kringum þig. Oft var hlegið og ýmsar sögur sagðar við eldhúsborðið f Tungusíðu og þá líkaði þér lífið, á fjölskyldumót- um þar sem Fossararnir komu saman, vildir þú ekki láta þig vanta. Brói minn, oft hafa þessi ár verið þér erfið, svo oft veikur og hætt kominn, en þá hefur vakað )dtr þér yndisleg móðir, sú sem kom þér í þennan heim, og sá leyndi strengur sem tengdi ykkur svo sterkt saman er nú rofinn, en minning þín er Ijós í lífi hennar. Far í friði elsku drengurinn minn, megi Guð geyma þig. Þín frænka Sirrý. Elsku frændi minn, þá ert þú horfinn burt frá okkur, burt frá þessu jarðneska lífi sem var þér kannski ekki mjög auðvelt, oft á tíðum þyrnum stráður vegur en viljastyrkurinn hélt þér gangandi. Þegar ég lít til baka minnist ég þess tíma sem ég bjó hjá ykkur. Þá vorum við eins og bræður því tengslin voru sterk. Við áttum okkar góðu stundir saman og ég gat trúað þér fyrir mínum leynd- armálum af því ég vissi að þú myndir aldrei segja neinum frá. Það var svo oft að þegar þú kall- aðir nafn mitt og vildir segja mér eitthvað eða biðja mig að gera eitthvað fyrir þig. Stundum gat ég þó ekki alltaf orðið við ósk þinni en þá horfðir þú á mömmu þína og hún var fljót að átta sig á hvað í huga þér bjó vegna þess að tengslin við mömmu þína voru svo sterk að hún gat lesið úr aug- um þínum hvað það var sem þú vildir mér og þá var ég fljótur að verða við óskum þínum. Seinna þegar ég eignaðist fjöl- skyldu þá mynduðust strax mikil og góð tengsl milli okkar allra og ég tel það forréttindi fyrir syni mína að hafa fengið að kynnast þér og umgangast þessi ár sem þeir áttu með þér. Oft ferðuð- umst við ásamt þér og þinni fjöl- skyldu saman, þær eru ófáar úti- legurnar sem við fórum í og oft voru stórir steinar og þröngir stígar engir farartálmar fyrir okk- ur að fara með þig yfir. Þá minn- ist ég meðal annars ferða okkar í Hljóðakletta og siglingar um Breiðafjörð. Það er mikil sorg og tregi í hjörtum okkar þegar við þurfum að horfa á eftir þér elsku vinur og frændi og ég er viss um að þú er í góðum höndum núna. Megi Guð almáttugur taka þér opnum örmum, vernda þig og varðveita fyrir okkur. Elsku Lilla, Balli, Thelma og Begga megi Guð veita ykkur styrk á þessari sorgarstund sem þurfið að ganga í gegnum. Hjarta yðar skelfist ekki. Trúið á Guð og trúið á mig. Frið læt ég yður eftir, Minnfrið gef ég yður. Jóhannes 14. 1 og 27. Okkar innilegustu samúðar- kveðjur til ykkar allra. Ari. Inga, Óli og Júlli. *** Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þtn. Sum ykkar segja : í heimi hér er meira af gleði en sorg, og aðrir segja : „Nei, sorgimar eru fleiri." En ég segi þér, sorgin og gleðin ferðast saman að húsi þinu, og þegar önnur situr við borð þitt, sefur hin í rúmi þínu. Þú vegur salt milli gleði og sorgar, jafnvægi nærð þú aðeins á þínum dauðu stundum. Spámaðurinn Kahlil Gibran. Þessi orð úr Spámanninum var það fyrsta sem kom upp í hug- ann, þegar okkur barst sú harma- fregn að Smári vinur okkar væri látinn. Við vorum að koma heim frá skírn fyrsta barnabarns okkar, en þann 8. september sl. á af- mælisdegi Smára kom lítill drengur í heiminn, með allri þeirri gleði, sem því fylgir. I lífinu skiptast á gleði og sorg, líf kvikn- ar og Iíf slökknar. Frá því að Smári var lítill drengur, höfum við fylgst með honum vaxa og þroskast. Líf hans var ekki eins og okkar flestra, því líkamleg fötlun hans kom í veg fyrir það. Mjög snemma kom þessi mikla fötlun í ljós, en með ótrúlegum dugnaði tókst Smára og fjölskyldu hans að gera lífið bærilegt. Foreldrarn- ir gerðu allt, sem í þeirra valdi stóð til að Smári mætti Iifa sem eðlilegustu lífi og ekki var hægt að gera meira. Hvergi höfum við kynnst meiri móðurást en þeirri sem Lilla móðir Smára bar til hans og stundum fannst manni að þau hefðu sömu sál. Alltaf þótti okkur jafn vænt um þegar við hittumst, því okkur þótti svo óskaplega vænt um þennan dreng. Hann tjáði sig með svipbrigðum og nokkrum orðum, þannig að alltaf skyldum við hvert annað. Hann hafði ótrúlegt minni og gat minnt mann á löngu Iiðna atburði, sem voru fallnir í gleymsku. Hann var mjög kómískur og einnig átti hann það til að vera svolítið stríð- inn. Það gaf okkur og börnunum okkar mikið, að kynnast Smára, það sýndi okkur framá að það er ekkert sjálfgefið að geta hlaupið um og notið lífsins. Maður öðlast annan skilning á lífið við slík kynni. Við gætum rifjað upp mörg skemmtileg atvik frá liðnum árum en förum ekki út í það hér, en af nógu væri að taka. Elsku Lilla, Balli, Thelma og Begga! Nú trúum við því að Smári sé kominn á annan og göfugri stað, þar sem hann hleypur um og nýt- ur lífsins. Því slíkur kross, sem hann bar verður ekki lagður á sömu herðar aftur. Blessuð sé minning þín elsku vinur. Guð blessi alla þá, sem eiga um sárt að binda. Tryggvi og Herdís. *** Elsku Smári minn, það er svo ótrúlegt að þú skulir vera farinn frá okkur. Það var svo margt sem við áttum ógert. En í minning- unni eru margar góðar stundir sem við áttum saman, þú varst alltaf til í eitthvað sprell og það þurfti ekki mikið til að fá þig til að brosa. Allt það sem við gerð- um, sundlaugarævintýri, bóka- búðarferðir og svo margt fleira er geymt í minningunni. Þig ber við himin stendur þar hlæjandi augunfull af gleði. Og þú segir mér allt það sem þér hýr í brjósti. (SDH 1998) Ég votta öllum aðstandendum samúð mína, þið hafið misst ynd- islegan dreng. Smári minn, ég trúi því að þú sért á stað þar sem þú getur sungið, dansað, kafað og gert allt það sem þig langar til að gera. Við sjáumst seinna og gerum þá allt það sem við áttum ógert, með kveðju, þín vinkona, Sonja Dröfn Helgadóttir. *** Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (S. Egilsson) „Hin sanna gjöf er að gefa af sjálfum sér.“ Þessi orð úr Spá- manninum komu upp í huga minn er ég fékk upphringingu laugardaginn 7. nóvember s.l. um að einn af mínum kærustu vinum, hann Smári minn, hefði verið kallaður burt úr þessum heimi aðeins 28 ára gamall. Þetta var sárari frétt en orð fá lýst, en minningarnar eru margar og ljúft þætti mér að fá að rilja upp nokkrar þeirra hér. Mér er ofarlega í huga er við dvöldum á Reykjalundi haustið 1997. Þá spauguðum við með það að við værum áreiðanlega kölluð „þessi skrýtnu að norðan" vegna ýmissa uppátækja okkar. Eitt skipti ösluðum við t.d. úti í grenjandi rigningu þegar ekki átti að vera hundi út sigandi. Þegar við komum heim aftur rennandi blaut og illa til reika varð Smári að lána mér algalla, þó svo að númerin pössuðu kannski ekki alveg. En svona mættum við til kvöldverðar í matsalnum, fólki til mikillar furðu en okkur til mikill- ar ánægju. Við sögðum Sunnlendingun- um að okkur bæri skylda til að hlusta á útvarpsþátt Gests Einars eftir hádegi en sunnanmenn full- yrtu að ef þeir litu inn til okkar á þessum tíma þá værum við alltaf hrjótandi. Oft ræddi ég um það við Smára sem hvíldi á mér í dagsins önn og fékk ég ávallt styrk í umburðar- lyndi hans, hlýju og kærleik sem var svo einkennandi fyrir þennan einstaka pilt. Þrátt fyrir að lífið væri honum ekki alltaf auðvelt þá átti hann alltaf bros, hlýju og uppörvun til handa öðrum. Elsku Smári, mér þótti svo undur vænt um þig og er þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér en þau kynni hafa auðgað líf mitt og gert mig ríkari. Minning- arnar um þig munu geymast í hjarta mínu og ylja mér um ókomna tíð. Hver minning dýrmæt perla á liðnum Itfsins degi, hin Ijúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, erfengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sig.) Innilegar samúðarkveðjur til ykkar elsku Lilla, Balli, Thelma, Begga og fjölskyldur. Megi Guð styrkja ykkur og blessa í sorginni. Guð blessi þig Smári minn og minningu þina. Hvíl þú í friði. Þín vinkona, Inga Jónsdóttir.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.