Dagur - 21.11.1998, Síða 8
P _ b. ii p r >! i n Iítti «\ tt vniii miíi t .
VIII -LAUGARDAGUR 21. NÓVEMEER 1998
Andlát
Anna Pétursdóttir
Espilundi 5, Akureyri, lést á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri, föstudaginn 13. nóv.
Amór Sigurðsson
frá Sauðárkróki, Fögrubrekku
16. Kópavogi, lést laugardaginn
14. nóvember í Sjúkrahúsi
Reykjavíkur.
Ásdís Pálsdóttir
Sléttahrauni 19, Hafnarfirði,
lést laugardaginn 14. nóv.
Ásiaug Stefanfa Gísladóttir
Hólmgarði 51, Reykjavík, sein-
ast til heimilis á hjúkrunar-
heimilinu við Skógarbæ, (Heið-
arbæ), Reykjavík, lést mánudag-
inn 9. nóvember.
Bendt Bendtsen
lést á Droplaugarstöðum 4.
þessa mánaðar.
Berta Sigríður Stefánsdóttir
frá Hóli, Stöðvarfirði, Iést á Sól-
heimum, Grímsnesi, föstudag-
inn 13. nóvember.
Einar Helgason
Bókbandsmeistari, hjúkrunar-
heimilinu Eir, lést þriðjudaginn
17. nóvember.
Eyjólfur Þorvarðarson
sjómaður frá Bakka, Kjalarnesi,
lést á Hrafnistu í Reykjavík
föstudaginn 13. nóvember.
Guðný Nikulásdóttir
lést á heimili sínu, Keldulandi
3, laugardaginn 14. nóvember.
Hólmfríður Sigfinnsdóttir
frá Borgarfirði eystra, Hraun-
teigi 21, Reykjavík, lést á heim-
ili sínu miðvikudaginn 18. nóv.
Hulda Magnúsdóttir
fædd í Ólafshúsum, Vest-
mannaeyjum, Rauðarárstíg 30,
Reykjavík, lést föstudaginn 6.
nóvember.
Ingólfur Guðjónsson
frá Oddsstöðum lést f Flraun-
búðum í Vestmannaeyjum
mánudaginn 16. nóvember.
Jófiríður Gróa Sigurlaug Jóns-
dóttir
Hrafnistu, Reykjavík, áður til
heimilis á Snorrabraut 81, iést á
Landspítalanum föstudaginn
13. nóvember.
Jón A. Gíslason
frá Brekkuborg í Breiðdal, Vest-
urgötu 17A, Reykjavík, lést
mánudaginn 16. nóvember.
Jónas Gíslason
vígslubiskup, Lækjarsmára 2,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur
miðvikudaginn 18. nóvember.
Jónas Sigurðsson
frá Hailsbæ, Hellissandi, lést á
Landspftalanum miðvikudaginn
18. nóvember.
Karitas Ósk Kristbjörnsdóttir
lést fimmtud. 15. október sl.
Karólfna Stefánsdóttir
Bergþórugötu 6b, Reykjavík,
Iést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur
þriðjudaginn 17. nóvember.
Margrét Þorsteinsdóttir
Snorrabraut 56, Iést á Landspít-
alanum föstudaginn 13. nóv.
Marín Hafsteinsdóttir
lést á barnadeild Landspítalans
þriðjudaginn 17. nóv.
Ólafur Eldjárn
lést á Landspítalanum föstu-
daginn 13. nóvember.
Rósa Kristjánsdóttir
Sunnuvegi 19, Reykjavík, er lát-
in.
Rúnar Bárður Ólafsson
Hólmgarði 2b, Keflavík, lést af
slysförum laugardaginn 14.
nóvember.
Teresia Horvath
Möðrufelli 1 5, síðast til heimil-
is á hjúkrunarheimilinu Skjóli,
lést föstudaginn 30. október.
Vigfús Sigurðsson
Sogavegi 34, Reykjavík, lést á
heimili sínu föstudaginn 13.
nóvember.
Þórður Guðjohnsen
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur
miðvikudaginn 18. nóvember.
Þórir Sigurðsson
Efstasundi 50, lést laugardag-
inn 7. nóvember.
Kirkjustarf á lands-
byqgðinni______________
Sunnudagur 22. nóvember
Glerárkikja
Sunnudagurinn 22. nóvember. Barnasam-
vera og guðsþjónusta kl. 11, foreldrar kvatt-
ir til að mæta með börnum sínum. Fundur
æskulýðsfélagsins kl. 20.00. Mánudaginn
23. nóv. biblíulesur og bænastund kl. 20 og
náttsöngur kl. 21.
Akureyrarkirkja
Sunnudaginn 22. nóv. er Sunnudagaskóli kl.
11 í Safnaðarheimilinu. Guðsþjónusta kl.
14. Fundur í Æskulýðsfélaginu kl. 17. Æðru-
leysismessa kl. 20.30. Mánudagur 23. nóv.
kl. 20.30 biblíulestur í Safnaðarheimilinu.
KFUM og KFUK, Sunnuhlíð, Ak.
Sunnudaginn 22. nóv. bænastund kl. 17.
Mánud. 23. nóv. fundur í yngri deild KFUMK
kl. 17.30 fyrir 8-12 ára.
Hjálpræðisherinn á Akureyri
Föstudagur flóamarkaðaur kl. 10-17.
Sunnudagur 22. nóv. Sunnudagaskóli kl.
11. Almenn samkoma kl. 17. Unglingasam-
koma kl. 20. Mánudaginn 23. nóv kl. 15
heimilasamband.
Eyrarbakkakirkja
Sunnudaginn 22. nóv. barnaguðsþjónusta
kl. 11. Messa kl. 14.
Möðruvallarkirkja
Sunnudaginn 22. nóv. sunnudagaskóli kl.
11. Ath. rútuferðir.
Grenivíkurkirkja
Kirkjuskóli laugardaginn 21. nóv. kl. 13.30.
Kyrrðar- og bænastund mánudaginn 23.
nóv. kl. 21 (ath. breytta dags.).
Húsavíkurkirkja
Sunnudaginn 22. nóv. sunnudagaskóli kl.
11. Biblíulestur í Kirkjubæ fimmtudags-
kvöldið 26. nóv. kl. 20.30.
Hvítasunnukirkjan á Akureyri
Sunnudaginn 22. nóv. sunnudagaskóli kl.
11.30. Samkoma kl. 16.30.
Kirkjustarf á höfuð-
borgarsvæðinu___________________
Fella- og Hólakirkja
Opið hús fyrir unglinga í dag laugardag
kl. 21.
Neskirkja Biblíulestur kl. 10.30 í dag.
Lesið úr Mtteusarguðspjalli.
Sunnudagur 22. nóvember
Áskirkja
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta
kl. 14.
Bústaðarkirkja
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta
kl. 14.
Dómkirkjan
Guðsþjónusta kl. 11. Æðruleysismessa
kl. 21.
Elliheimilið Grund
Guðsþjónusta kl. 10.15.
Grensáskirkja
Barnastarf kl. 11. Guðsþjónusta kl. 11.
Landsspítalinn
Messa kl. 10.
Háteigskirkja
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Messa kl. 14.
Hallgrímskirkja
Fræðslumorgunn kl. 10, Ný Biblíuþýðing.
Nauðsyn eða mistök? Dr. Guðrún Kvaran,
kynnir þýðinguna og álitamál sem upp
koma í slíku verki. Messa og barnasam-
koma
kl. 11.
Langholtskirkja
Messa kl. 11. Barnastarf í safnaðarheimilinu
kl. 11.
Laugarneskirkja
Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Kyrrðar-
stund kl. 13. Guðsþjónusta kl. 14.
Neskirkja
Barnasamkoma kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Seltjarnarneskirkja
Messa kl. 11.
Óháði söfnuðurinn
Þjóðlagamessa kl. 14. Barnastarf á sama
tima.
Árbæjarkirkja
Guðsþjónusta kl. 11. Barnaguðsþjónusta i
safnaðarheimilinu kl. 13.
Breiðholtskirkja
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Tómasarmessa
kl. 20.
Digraneskirkja
Messa og sunnudagaskóli kl. 11. T.T.T. starf
10-12 ára á mánud. kl. 17.15.
Fella- og Hólakirkja
Guðsþjónusta kl. 11. Bænastund og fyrir-
bænir mánudaga kl. 18.
Grafarvogskirkja
Sunnudagaskóli kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Bænahópur á mánud. kl. 20. Æskulýðs-
fundur mánud. kl. 20 16-18 ára. Æskulýðs-
fundur í Engjaskóla fyrir 8 og 9 bekk
mánud. kl. 20-22.
Hjallakirkja
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Barnaguðs-
þjónusta kl. 13. Æskulýðsfélag unglinga 13-
15 ára kl. 20.30 mánudaga.
Kópavogskirkja
Barnastarf í safnaðarheimilinu kl. 11. Guðs-
þjónusta kl. 14. Æskulýðsfélagið í safnaðar-
heimilinu Borgum mánudaga kl. 20.
Seljakirkja
Barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Mömmumorgnar á
þriðjudögum kl. 10-12.
Ýmislegt___________________________
Mæðrastyrksnefnd Akureyrar,
Dalsbraut 1.
Flóamarkaður og fataúthlutun alla þriðju-
daga kl. 13-18.
Parkinsonfélag Akureyri og nágrennis,
minningarkort fást í Bókabúð Jónasar,
Blómabúðinni Akur og Möppudýrinu,
Sunnuhlíð.
Takið eftir_________________________
F.B.A. samtökin (fullorðin börn alkó-
hólista). Erum með fundi alla sunnudaga kl.
20.30 í AA-húsinu við Strandgötu 21, efri
hæð, Akureyri.
Leiðbeiningastöð heimilanna, sími 551
2335. Opið frá kl. 9-17 alla virka daga.
ORÐDAGSINS
462 1840
Askriftarsíminn er
8oo 7080
MINNINGAR GREINAR
150 ára míniung
Jðns Jónssonar
frá Bandagerði
I dag eru liðin 150 ár frá fæð-
ingu afa míns, Jóns í Banda-
gerði. Af því tilefni langar mig að
reyna að minnast hans með
nokkrum orðum.
Foreldrar hans voru Jón Guð-
mundsson bóndi að Syðra
Laugalandi í Öngulsstaðahreppi
f. 17. des. 1790 og Sigurlaug
Stefánsdóttir f. 24. sept. 1810.
Hún var vinnukona hjá Jóni og
Ásdísi Sigfúsdóttur konu hans.
Foreldrar Sigurlaugar voru Stef-
án Sigurðsson og Salóme Magn-
úsdóttir sem bjuggu í Kjartans-
staðakoti og fleiri bæjum í
Skagafirði.
Frá Laugalandi flyst Sigurlaug
að Krossastöðum á Þelamörk og
þar fæddist afi minn þann 21.
nóvember 1848. Um ævi
langömmu minnar veit ég lítið
nema að hún ílengdist að
Krossastöðum og andaðist þar
árið 1891. Hefur hún trúlega
annast uppeldi sonarins ein og
hann haft lítið af föður sínum að
segja. Frá föður sínum átti hann
nokkur hálfsystkin og eftir ein-
um hálfbróður hans man ég sem
Sigfús hét og var síðustu æfiár
sín hjá foreldrum mínum og lést
hjá þeim 96 ára að aldri.
Um þrítugs aldur giftist afi
Guðrúnu Jónsdóttur fæddri 16.
október 1845 að Þúfnavöllum í
Hörgárdal. Foreldrar hennar
voru Jón Jónsson og Helga Jóns-
dóttir sem síðar bjuggu á Brita á
Þelamörk og var Guðrún ein af
mörgum dætrum þeirra. Fyrst
settu þau saman bú að Ytra
Krossanesi en fluttu þaðan að
Rangárvöllum í Kræklingahlíð,
en 1887 flytjast þau svo að
Bandagerði, þann stað sem hann
var ætíð síðan kenndur við. Þau
eignuðust fjórar dætur, tvær dóu
í frumbernsku en tvær komust
upp, Sigríður Aðalheiður f. 29.
okt. 1883 og Anna Soffía f. 10.
okt 1886, móðir mín. Fyrstu bú-
skaparárin var afi leiguliði eins
og kallað var en kaupir svo jörð-
ina og verður þá Bandagerði
fyrst sjálfstætt býli. Síðan byggir
hann þriggja hæða hús sem
þætti nú kannski ekki stórhýsi í
dag en var mikið átak í þá daga.
I Bandagerði var alltaf margt um
manninn og heilu fjölskyldurnar
bjuggu þar og oft var skotið
skjólshúsi yfir þá sem minna
máttu sín. Oft talaði mamma um
uppvaxtarárin þeirra systra, hvað
þau hefðu nú verið góð, þó ekki
hefði nú alltaf verið svo mikið til.
En svo kom reiðarslagið þegar
móðir þeirra dó 13. febrúar
1901. Stóð þá afi einn uppi með
dæturnar á unglingsaldri. Sigríð-
ur eldri systirin tók \ið búsfor-
ráðum hjá föður sínum og fórst
það vel úr hendi, en Soffía fór
frekar í vinnu utan heimilis ef
hana var að fá, svo þannig bless-
aðist þetta allt saman, en að því
kom að dæturnar giftust.
Þær gengu að eiga bræðurna
Baldvin og Áskel Sigurðssyni,
fædda í Steinkoti í Kræklinga-
hlíð. Foreldrar þeirra voru Sig-
ríður Þorkelsdóttur og Sigurður
Magnússon. Ungu hjónin byrj-
uðu búskapinn í Bandagerði því
þar var alltaf nóg húsrúm og þar
fæddust barnabörnin 7 af 9.
Um 1918 festu foreldrar mínir
kaup á gömlu húsi úti í Krækl-
ingahlíð (kuðungnum), fluttu í
þorpið og settu niður í Banda-
gerðislandi, og nefndu Baldurs-
heim. Stendur það hús enn og er
vel við haldið og búið í því. En
afi hélt áfram búskapnum í
Jón Jónsson frá Bandaagerði.
Bandagerði með Áskeli og Sig-
ríði.
Það fóru svo að verða miklar
breytingar á högum fólks til hins
betra. Rafstöðin var reist í Gler-
árgili, tóvinnuverksmiðja reist á
Gleráreyrum og brú byggð yfir
Glerána, sem oft gat verið mikill
farartálmi. Bændur og aðrir sem
áttu leið til Akureyrar komu oft
við í Bandagerði og geymdu
gjarnan hesta sína þar, meðan
þeir gengu erinda sinna í bæn-
um.
En svo kom að því að afi seldi
allt Bandagerðislandið að und-
andskildu húsi og lóð. Áður
hafði hann látið vatnsréttindi sín
í Glerá renna til verksmiðjufé-
lagsins um ótakmarkaðan tíma
án endurgjalds. Eitthvað var nú
bitist um Bandagerðislandið því
margir vildu eiga þetta gósen-
land sem allt Glerárhverfi stend-
ur á í dag og ekki voru allir á eitt
sáttir þá frekar en nú.
Árið 1955 var svo Glerárþorp
og Akureyri sameinað og eftir
það urðum við ekki lengur þorp-
arar heldur hverfingar (okkur
gömlum þorpurum til sárra leið-
inda). Árið 1927 flutti svo afi
með fjölskyldu sinni inná Akur-
eyri og hafði þá átt heima að
Bandagerði í 44 ár. Áskell og Sig-
ríður byggðu sér hús í Oddeyrar-
götu og var gamli maðurinn hjá
þeim þangað til hann Iést 1.
september 1931, 84 ára að aldri.
Hann var jarðsettur að Lög-
mannshlíð, sinni gömlu sóknar-
kirkju og þar sem amma hvílir. I
húsi afa í Bandagerði var búið í
mörg ár eftir að hann fluttist
þaðan eða þangað til það var
jafnað við jörðu um 1984 og er
nú fátt eitt sem minnir á þetta
forna býli.
Eins og ég sagði í upphafi átti
þetta aðeins að vera örfá orð til
að minnast hans á þessum tíma-
mótum. Um Jón í Bandagerði
hefði margt mátt segja sem ég
hef ekki vit á að færa í letur.
Hann hefur verið maður á und-
an sinni samtíð. Vonandi verður
kannski einhvern tímann rifjað
upp um búskaparsögu hans.
Þegar ég flutti í þorpið fyrir
tæpum 50 árum kom til mín
gamalt fólk sem bjó lengri eða
skemmri tíma í Bandagerði og
sagði afa hafa verið mikinn
sómamann sem öllum vildi gott
gera. Já, ég er stolt yfir að hafa
átt Jón í Bandagerði fyrir afa og
minnist hans með þakklæti og
virðingu. Hef ég þá trú að amma
og afi í Bandagerði fylgist með
okkur, afkomendum sínum, sem
mér telst til að séu um 80 tals-
ins.
Guð blessi minningu afa míns
og ömmu.
Þeirra dótturdóttir,
Helga Sigurlaug.