Dagur - 27.11.1998, Síða 8
8- FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998
FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998 - 9
„Uafpir
FRETTASKYRING
Brigslyrðin ganga á víxl
GUÐ
SUR
l
HEIÐARS
Sverrir Hermannsson
formaður Frjálslynda
flokksins. Ahersla á
kvóta, umhverfi og
velferð. Landsþing í
janúar. Frjálslyndi
lýðræðisflokkurinn
stofnaður um helgina.
Sverrir Hermannsson, fyrrver-
andi bankastjóri Landsbankans,
hefur ásamt stuðningsmönnum
sínum stofnað Frjálslynda flokk-
inn og var það gert í gær. Stefnt
er að því að bjóða fram í öllum
kjördæmum landsins við þing-
kosningarnar í vor. Ekki er útilok-
að að Sverrir bjóði sig fram í
Reykjavík. Helstu málefnaáhersl-
ur hins nýja flokks lúta að því að
umbylta kvótakerfinu, samþykkja
Kyoto-sáttmála Sameinuðu þjóð-
anna auk annarra mála í um-
hverfismálum. Boðuð er ný sókn í
velferðarmálum með áherslu
m.a. á kjör aldraðra og heilbrigð-
ismál.
Fasistallokkur
„Við stofnum Frjálslynda lýðræð-
isflokkinn auðvitað,“ segir Bárður
Halldórsson sem boðið hefur sig
fram til formanns á stofnfundi
flokksins sem haldinn verður um
helgina. Hann segir að þessi
ágreiningur milli Samtaka um
þjóðareign og Sverris hafi ávallt
snúist um lýðræði.
„Þetta er bara fasistaflokkur og
fyrsti flokkurinn á Islandi þar
sem formaður hans kemur fram
og segir að hann eigi flokkinn,“
segir Bárður. Hann segir jafn-
framt að það þurfi enginn að
keppa við Sverri Hermannsson í
því að níða niður menn og flokka.
Hann Iætur jafnframt að því ligg-
ja að stuðningsmenn Sverris hafi
gengið rösklega til verks í því að
sverta forystumenn Samtaka um
þjóðareign. Af þeim sökum m.a.
sé það honum og hans mönnum
„voða mikill léttir" að Sverrir sé
búinn að stofna sinn eigin flokk.
Ef eitthvað er þá muni það ein-
ungis hvetja menn til dáða undir
merkjum Frjálslynda lýðræðis-
flokksins.
Bárður segist ekki kvíða fram-
haldinu þótt Sverrir og stuðn-
ingsmenn hafi stofnað Frjáls-
lynda flokkinn. Hann staðhæfir
að kjósendur muni hópast að
Fijálslynda lýðræðisflokknum og
telur að trúverðugleiki hans hafi
ekki beðið hnekki eftir það sem á
undan hefur gengið.
Sverrir formaður
A blaðamannafundi í Rúgbrauðs-
gerðinni í gær kom fram að í
bráðabirgðastjórn hins nýja
flokks eru þau Sverrir Hermanns-
son formaður, Gunnar Ingi
Gunnarsson heilsugæslulæknir
varaformaður, Jón Sigurðsson,
fyrrverandi framkvæmdastjóri
Járnblendifélagsins á Grundar-
tanga, er hugmyndafræðingur
flokksins og þá einkum í sjávarút-
vegsmálum. Þá er Margrét Sverr-
isdóttir Hermannssonar með-
stjórnandi og framkvæmdastjóri
flokksins. Nánari útlistun á því
hvernig ætlunin sé að hrinda
áherslum flokksins í framkvæmd,
mun bíða betri tíma. Hins vegar
máttí skilja á forystumönnum
hans í gær að nóg væri af ríki-
dæmi á Islandi. Það þyrfti hins
vegar að nýta þá fjármuni betur
en gert hefur verið og forgangs-
raða hlutunum betur en stjórn-
völd hafa haft getu til fram til
þessa. Sjálfur telur formaður
flokksins, sem jafnframt er fyrr-
verandi ráðherra og þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, að þar megi
kenna um nýfrjálshyggjunni sem
tröllriðið hefur hans gamla flokki
sem hann hefur ságt skilið við.
„Það er alveg útilokað að ég
gæfi mig að því, þótt við mundum
fá fimmfalt fleiri atkvæði að láta
Frjálslyndi flokkurinn var stofnaður í leyni í gær en fæðingin var tilkynnt formlega á blaðamannafundi seinna um daginn í Rúgbrauðsgerðinni. í bráðabirgðastjórn flokksins er Sverrir Hermannsson for-
maður, Gunnar Ingi Gunnarsson, fyrrum félagi í Alþýðuflokknum, er varaformaður og meðstjórnandi og framkvæmdastjóri er Margrét Sverrisdóttir Hermannssonar. Hugmyndafræðingur flokksins í sjáv-
arútvegsmálum erJón Sigurðsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Járnblendifélagsins og ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu.
kjósa á milli mín og Bárðar Hall-
dórssonar. Það gæti verið unnið
mikið óþurftarverk á slíkum fundi
ef menn setja sig í þær stellingar.
Það vil ég ekki að þeim gefist færi
á,“ segir Sverrir Hermannsson
aðspurður af hverju hann vildi
ekki taka slaginn við formann
Samtaka um þjóðareign um for-
ustuhlutverkið í nýjum flokld.
Flokksslofnun í leyni
I yfirlýsingu sem bráðabirgða-
stjórnin sendi frá sér í gær kemur
m.a. fram að þar sem búið er að
stofna flokkinn hafi verið aflýst
fyrirhuguðum stofnfundi sem átti
að halda um helgina. Formaður
flokksins vildi hins vegar ekki
upplýsa hvar flokkurinn hefði
verið stofnaður né heldur hverjir
hafi komið að stofnun hans í gær
að undanskildum fjórmenning-
unum sem sátu blaðamanna-
fundinn. Hins vegar var því hald-
ið fram að stuðningsmenn flokks-
ins skiptu hundruðum og von
væri á fleirum sem mundu ganga
til liðs við hann á næstu misser-
um.
Stefnt er að því að halda lands-
þing Frjálslynda flokksins um
miðjan janúar nk. Þá var því einn-
ig lýst yfir að gengið verði ötullega
fram í því að leita eftir hæfileika-
fólki til að skipa framboðslista
hans í vor. í þeim efnum verður
lögð áhersla á að finna fólk sem
getur lagt þvf lið að móta stefnu
ftokksins, þekkir þau vandamál
sem brenna á almenningi og hef-
ur hugmyndir um úrlausnir á
þeim. A blaðamannafundinum
kom fram að enginn hörgull væri
á fólki til að starfa fyrir hinn nýja
flokk, slíkur væri meðbyrinn eftir
að ljóst væri að flokkurinn ætti
ekki samleið með forystu Sam-
taka um þjóðareign.
„Þetta er allt önnur tegund af
fólki en það lið, sem ætlaði sér
inn á þing óverðugt og óhæft með
skikkju Samtaka um þjóðareign á
herðum," eins og segir í yfirlýs-
ingu Fijálslynda flokksins.
Sverrir fram í Reykjavík
Sverrir Hermannsson segir að
hans hlutverk sé það fyrst og
fremst að hrinda þessu nýja
stjórnmálaafli úr vör. Þótt hann
segist ætla að draga sig í hlé þeg-
ar fram sé komið ungt og öflugt
forystulið sem flokkurinn muni
treysta, þá útilokar hann ekki
þann möguleika að leiða flokkinn
í fjölmennasta kjördæmi landsins
við kosningarnar í vor. Hann
sagðist einnig vonast til þess að
allir þeir sem sjónarmið flokksins
höfða til, muni halda ró sinni
þrátt fyrir þær væringar sem ein-
kennt hafa samskipti hans rið þá
vandaræðamenn sem skipa for-
ystu Samtaka um þjóðareign.
Formanni hins nýja flokks seg-
ist vera fullkunnugt um að kvóta-
eigendur hafi mjög mikinn „óbif-
ur“ á sér, eins og hann orðar það.
Hann segir einnig að forystu-
menn Samtaka um þjóðareign
hafi á sínum tíma sagt sér að þeir
hafi orðið fyrir miklum þrýstingi
úr ýmsum áttum og m.a. frá
„æðstu stjórnvöldum". Þar hefði
þeim verið boðið að samtökin
væru tekin gild ef skilið væri við
Sverri Hermannsson.
Hann segir að markmið þessara
„upphlaupsafla", eins og hann kýs
að kalla nokkra menn í stjórn
Samtaka um þjóðareign, verði að
öllum líkindum aldrei upplýst.
Hins vegar sé nokkuð augljóst að
þarna hafi verið á ferðinni tilraun
til að veikja andstöðuna gegn
kvótakerfinu og afleiðingum þess.
Með stofnun Frjálslynda flokksins
hafi þeirri hættu verið bugað frá
að sinni, þótt forsvarsmenn sér-
hagsmuna hefðu óneitanlega
varpað öndinni léttar ef tilraun
þeirra til að einangra Sverri Her-
mannsson hefði tekist.
Á ekkert óuppgert við Sverri
Varaíoriiiaiinscfúi
Bárðax HaUdórssonar
af hugsjón. Frjáls
lyndi lýðræðisflokkur-
inn stofnaður um
helgina. ísfiröiiigar í
forystusveit. Ekki
fjárhagslegur hak-
hjarl.
„í byrjun september hafði Bárður
samband við mig og ég hef hugs-
að þetta mál síðan. Eg er því til-
búin að taka þátt í því starfi sem
framundan er af hugsjón og tek
þá áhættu. Helst vildi ég að
Sverrir Hermannsson yrði sam-
stíga okkur," segir Gunnþórunn
Jónsdóttir, ekkja Óla í OIís, sem
boðið hefur sig fram til varafor-
manns í Frjálslynda Iýðræðis-
flokknum með Bárði Halldórs-
syni sem formannsefni. Boðað
hefur verið til stofnfundar hans
um helgina.
Áhersla á mjúku málin
Gunnþórunn segist hafa ákveðið
að hella sér út í pólitíska baráttu
m.a. vegna kvótans og breytingu á
skipan fiskveiðistjórnunarinnar.
Þar fyrir utan segir hún mörg
önnur mál vega þungt í íslensku
samfélagi eins og t.d. fíkniefna-
málin. Sjálf segist hún hafa mest-
an áhuga á svonefndum mjúkum
málum sem snerta ungu börnin
og framtíð þeirra. Hún telur að
stefna stjórnvalda í fíkniefnamál-
um mætti að ósekju vera harðari
en verið hefur.
„Það kemur bara í Ijós,“ segir
> .titilk9ÍM>li t l»|d'/ iltLf
Gunnþórun Jónsdóttir, ekkja Úla í Olís, hefur boðið sig fram til varafor-
mennsku í nýjum flokki sem stofnaður verður um helgina. Líklegt þykir að
nýi flokkurinn muni nefnast Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn. - mynd: gva
hún aðspurð hvort hún hafi á tak-
teinum einhveijar tillögur til úr-
bóta í þeim málaflokkum sem
hún mun leggja áherslu á. Að
öðru leyti segist hún styðja þá
stefnu sem Samtök um þjóðar-
eign hafa lagt fram og birtast
munu sem stefnumál Fijálslynda
lýðræðisflokksins á stofnþingi
hans um helgina. Aðspurð um
væringarnar sem verið hafa á
milli Sverris Hermannssonar og
forystu Samtaka um þjóðareign
segist hún ekki vilja senda neitt
neikvætt frá sér heldur aðeins já-
kvæða strauma. Jafnframt segist
hún bera þá einu ósk í bijósti að
þessu nýja afli í íslenskri pólitík
farnist vel, enda verkefnin næg.
Gamlir draugar
„Eg á ekkert óuppgert við Sverri.
Gamlir draugar geta synt og
dansað fyrir mér. Þeir eru ekki á
mínum vegum,“ segir Gunnþór-
unn aðspurð hvort þátttöku henn-
ar með Bárði megi kannski rekja
til óuppgerðra saka við Sverri
Hermannsson, þegar hann sótti
hart að Óla í Olís á sínum tíma
sem bankastjóri Landsbankans.
Ekki fjárhagslegur bakhjarl
Hún neitar því alfarið að samstarf
hennar við Bárð sé öðrum þræði
til að fjármagna starfsemi vænt-
anlegs flokks og framboða á hans
vegum. Engu að síður segist hún
hafa búist við því að fólk muni
halda því fram. Því sé hins vegar
ekki til að dreifa, enda sé hún alls
enginn íjárhagslegur bakhjarl í
þeirri baráttu sem framundan er.
Þess utan hefur hún ekki verið
beðin um það, heldur fyrst og
fremst um stuðning og þátttöku
þeirrar persónu sem heitir Gunn-
þórunn Jónsdóttir.
Rönun er sú taug
Hins vegar dregur hún enga dul á
það að koma hennar í íslenskri
pólitík sé fyrst og fremst vegna
hvatningar frá Bárði Halldórssyni
sem hefur boðið sig fram til for-
manns í flokknum. Þau eru göm-
ul skólasystkin frá Isafirði og hafa
þekkst frá sjö ára aldri. Þess utan
ólust þau upp gegnt hvort öðru
við Austurveg á Isafirði. Sjálf er
hún hárgreiðslumeistari að
mennt og því ekki ólíklegt að hún
muni á einn eða annan hátt
stuðla að kosningavænni hár-
greiðslu meðframbjóðenda sinna í
vor. Hún segist ekkert vera farin
að huga að framboðsmálum.
Fyrst verði að stofna flokkinn og
taka afstöðu til framhaldsins á
eftir.
„Menn halda að flokks- og frí-
múrarabönd séu eitthvað en hafa
ekki hugmynd hvað það er að vera
ísfirðingur,“ segir Bárður Hall-
dórsson, aðspurður um tengsl
hans við þessa gömlu skólasystur
sína.
Gunnþórunn segist ekki hafa
starfað áður að neinu marki í
pólitík og hafi þess utan ekki ver-
ið í neinum stjórnmálaflokki. Ef
eitthvað er þá segist hún hafa
starfað lítillega að bæjarmálum
þegar hún var ung, eða í sinu
„fyrra, fyrra lífi“, eins og hún orð-
ar það' Aftur á móti segist hún
vera komin af pólitískt sterku
fólki og hafa fylgt móður sinni,
Rannveigu Hermannsdóttur á
Isafirði, sem var í Framsóknar-
flokknum þar vestra. Faðir Gunn-
þórunnar var hins vegar tónskáld-
ið Jón frá Hvanná. — GRH
Kaupfélag Eyfirðinga
boðar til fulltrúafundar með kjörnum
aðalfundarfulltrúum félagsins
Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 3. desember nk. á
Fosshótel KEA og hefst kl. 20:30.
Dagskrá
1. Áður kynnt tillaga stjórnar um formbreytingu á rekstri
Kaupfélags Eyfirðinga lögð fram til afgreiðslu.
2. Breytingar á samþykktum Kaupfélags Eyfirðinga vegna
áðurnefndrar tillögu.
Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga.
Leiðandi fyrirtæki í kerrum, vögnum og
dráttarbeislum. Áratuga reynsla.
Lögleg hemlakerfi fyrir
kerrur og vagna.
Skv. EES
Dráttarbeisli
Á allar gerðir bifreiða.
Ásetning á staðnum.
m
Oll okkar vara er
samkvæmt Evrópustaðli.
Tveggja til átta hesta kerrur.
VIKURVAGNAR El
VfKURVAGNAR EHF.
ÖRYGGI - ÞJÓNUSTA \ 0.
ÁRATUGA REYNSLA
Síðumúla 19*108
Sími 568 4911 • Fox 568 4916
Áskriftars íminn er
ýy800 7080
Thwur
itiiiii
D 1.1 > Ut> / 1 1-U 'i'
o U 1 *
111 GtoM
UOVítMfri 1 ',i H o