Dagur - 15.12.1998, Side 1
Þridjudagur 15. desember 1998
ur að þyngjast enda hægt að
leggja meira á fullorðinn mann
en unglinga á vaxtarskeiðinu. En
að sögn pabba hans er Orn ekk-
ert á leiðinni út í þjálfun. „Það er
best að vera bara í matnum hjá
mömmu, fá íslenskan fisk og
svona. Hann fékk boð sent frá
skóla í Bandaríkjunum í fyrra en
þegar menn eru ungir þá hafa
þeir ekkert út að gera. Eini stað-
urinn sem hann gæti hugsað sér
að fara til væri til Canberra í
Ástralíu. Þar er besta sundæf-
ingaaðstaðan í heiminum en það
er svo umsetið þar að m.a.s.
bestu sundmenn Bandaríkjanna
komast ekki þangað inn.“
Sundbakterían
Enda er ekki eins og Orn skorti
áhugafólk um sundið í kringum
sig. Báðar systur hans hafa kom-
ist í snertingu við sundbakterí-
una, sú eldri er hætt en litla
systirin Erla er einungis 8 ára
gömul og æfir á fullu með Sund-
félagi Hafnarfjarðar. Þá er kær-
asta Arnar, Lára Hrund, heldur
ekki alls ókunnug íþróttinni og
raunar munaði mjóu að hún
næði lágmarkinu til að komast á
Evrópumeistaramótið en hún er
sjálf landsliðsmanneskja í sund-
inu. Það má nærri geta hvert um-
ræðuefnið verður við matarborð-
ið hjá Kristínu og Erni næstu
kvöldin... — lóa
Örn er búinn ad æfa óslitið síðan hann var 5 ára og urðu ekki einu sinni messuföll á geigjuskeiðinu. „Geigjuskeiðið
kom aldrei. Hann hefur alla tíð verið ákaflega rólegur, “ segir pabbi hans.
SuncLkappa-
fl ölskylda
Byrjaði að æfa S ára
gamall. Tólfárum síð-
ar er Öm Amarson orð-
inn Evrópumeistari í
200 metra baksundi...
Örn Arnarson, 17 ára gamall
nemandi á íþróttabraut í Flens-
borg, sló í gegn á Evrópumeist-
aramótinu í Sheffield um helgina
þar sem hann sigraði í 200 metra
baksundi, náði 4. sæti í 100
metra baksundi og var svo valinn
efnilegasti sundmaður Evrópu á
mótinu. Kappinn sló raunar Is-
landsmet í hvert sinn sem hann
synti, eða alls 5 sinnum. Er þetta
í fyrsta sinn sem íslendingar hafa
eignast Evrópumeistara í sundi
og má líklegt teljast að talsverð
gleðilæti hafi brotist út á heimili
Arnar á Iaugardaginn þegar hann
synti fyrstur í mark, því hann er
nú ekki eini sundáhugamaðurinn
í fjölskyldunni - og það var afinn
sem byijaði...
Sundkappaætt
„Jú, jú,“ sagði Örn Ólafsson, fað-
ir Arnar og vélfræðingur í samtali
við blaðið. „Þetta er búið að vera
óslitið frá ‘43. Það var pabbi sem
byijaði í þessu. Hann æfði með
IR í Reykjavík og var í landslið-
inu. Hann vann einmitt í 100
metra baksundi í frægri lands-
keppni við Noreg." Þá er afasyst-
ir Evrópumeistarans sú fræga
sunddrottning Hrafnhildur Guð-
mundsdóttir og hafa hennar börn
engir aukvisar verið í sundíþrótt-
inni. Og Örn eldri, pabbi Evr-
ópumeistarans, hefur sjálfur æft
sund alla sína tíð.
Sú ákvörðun að byija að æfa
sund var ekki tekin með neinum
látum. Að sögn pabba Arnar var
pilturinn orðinn syndur aðeins
2ja og hálfs árs gamall „og svo fór
hann eiginlega bara með mér í
laugina," segir Örn og upp úr því
hófst þjálfun af krafti.
- Veistu hvaða kraftur hljáp eig-
inlega t hann þama?
„Maður bara skilur þetta ekki.
Hann byrjaði náttúrulega að
koma á óvart í sumar á Evrópu-
meistaramóti unglinga, þar synti
hann fjórar greinar og komst í úr-
slit í þeim öllum."
- Hvað gerir hann til að peppa
sig upp fyrir keppni?
„Áður en hann fer á mótin þá
skoðar hann myndbönd af mót-
um og þeim sem hann er að fara
að keppa við. Hann er yfirleitt
búinn að kynna sér þá mjög vel,
hvernig þeir synda og svo planar
hann sitt sund út frá því. Þegar
hann kemur á mótsstað þá skoð-
ar hann keppnisskrána og athug-
ar sína möguleika og hveijum
hann þarf að fylgjast með.
Þannig að hann er búinn að
vinna mikla forvinnu í höfðinu á
sér áður en hann byijar. Svo þarf
náttúrulega að hafa óbilandi trú
á þvi að það sé hægt að vinna,
þetta séu bara menn eins og
hann sem er verið að keppa á
rnóti."
Syndir í morgunsárinu
Áttu menn von á sundliðinu
heim í gærdag og þegar reynt var
að ná sambandi við Evrópumeist-
arann í gærmorgun var slökkt á
gemsanum. Sennilega hefur pilt-
urinn verið að jafna sig eftir átök
helgarinnar, nú eða bara að æfa
þarna í morgunsárið - því það er
ekki tekið út með sældinni að
þjálfa líkamann upp til að ná
svona árangri. Kyrrsetufólki
þætti æfingatími sundhetjunnar
líklega heldur ókristilegur.
„Hann verður að æfa þetta 8-10
sinnum í viku, 2-3 tíma í senn.
Svo er hann frá 5 til 7 á morgn-
ana l-3svar í viku.“
Nú þegar Örn hefur náð 17 ára
aldrinum fer æfingaplanið held-