Dagur - 15.12.1998, Blaðsíða 7
I’RIÐJUDAGUR 15. DESEMRER 1998 - 23
ÞJÓÐMÁL
VEÐUR
„Dómi Hæstaréttar íslands í máli Vaidimars Jóhannessonar ber öllum aö fagna. Dómurinn sýnir að réttaröryggi borg-
aranna fer vaxandi."
Endurmenntun ráðheira
í stjómskipunarrétti
í afmælisriti til-
einkuðu Davíð
Oddssyni for-
sætisráðherra
fimmtugum,
17. janúar
1998, sem rit-
stýrt var af
Hannesi Hólm-
steini Gissurar-
syni, Jóni Stein-
ari Gunnlaugs-
syni og Þórarni Eldjárn, er að
finna grein á bls. 577-590, sem
ber heitið „Fer réttaröryggi borg-
aranna gagnvart ríkisvaldinu
vaxandi?" Höfundur greinarinn-
ar er Jón Steinar Gunnlaugsson
hæstaréttarlögmaður.
í ljósi ummæla Davíðs Odds-
sonar forsætisráðherra og Þor-
steins Pálssonar dómsmála- og
sjávarútvegsráðherra í fjölmiðl-
um um Hæstarétt Islands í kjöl-
far dóms réttarins fimmtudag-
inn 3. desember 1998 í máli nr.
145/1998: Valdimar Jóhannes-
son gegn íslenska ríkinu, finnst
mér við hæfi að benda ráðherr-
unum á niðurlag greinar Jóns
Steinars á bls. 589-590 til fróð-
leiks og nokkurrar endurmennt-
unar í stjórnskipunarrétti. En
þar segir:
Álitsgerð Jóns Steinars
„Haustið 1990 skrifaði ég, að
beiðni nokkurra útgerðarmanna,
álitsgerð um lögmæti starfsemi
svonefndrar Aflamiðlunar, sem
stjórnaði úthlutun á útflutnings-
leyfum fyrir fisk. Komst ég að
þeirri niðurstöðu að þessi starf-
semi stæðist ekki stjórnskipun-
arlög vegna óhæfilegs framsals
valds. Oskað var eftir birtingu á
álitsgerðinni opinberlega og
birtist hún í Morgunblaðinu 18.
september 1990. Af hálfu ráðu-
neytis sem í hlut átti var ekki
talin ástæða til að bregðast neitt
við þessu. Ekkert varð heldur
neitt frekar úr aðgerðum af
hálfu þeirra manna sem beðið
höfðu um álitsgerðina. Málið
sem orðið hafði tilefni beiðninn-
ar var leyst með öðrum hætti.
Gleymdist málið að sinni.
Nokkrum árum síðar gerðist
það svo að sjálfstæðir og skap-
stórir útgerðarmenn á Norður-
landi urðu fyrir barðinu á stjórn-
sýslu Aflamiðlunar. Þeir létu
ekki bjóða sér það, sem betur
fór, og höfðuðu mál. Því máli
lyktaði með dómi Hæstaréttar í
október 1996, rúmum 6 árum
muni breytast meira í rétta átt,
þegar nýjar kynslóðir lögfræð-
inga komast til meiri áhrifa.
Sannleikurinn er sá, að í því
hlýtur að felast mikill léttir fyrir
dómara að gefa vildarsjónarmið
„Taka má undir tilvitnuð orð Jóns Steinars Gunnlaugssonar hæstaréttarlög-
manns um stöðu og hlutverk dómstóla í íslenskri stjórnskipan. Svo virðist
sem þau hafi farið fram hjá Davíð Oddssyni forsætisráðherra og væntanlega
eru þau dómsmálaráðherra ókunn, enda var hann á skíðum I útlöndum þeg-
ar forsætisráðherra varð fimmtugur. Eru þau því rifjuð upp hér.“
eftir að álitsgerð mín hafði birst
í Morgunblaðinu (H. 1996.2956).
Niðurstöður réttarins urðu allar
hinar sömu og mínar. Starfsem-
in var ólögmæt, og af þeim
sömu ástæðum og ég hafði til-
greint. Þessi ólögmæta starfsemi
hafði farið óáreitt fram allan
tímann. Tilviljun réði því að
dómstólar voru spurðir um lög-
mæti hennar. Þetta sýnir vel að
dómstólar geta aldrei sinnt því
hlutverki að leiðrétta allt sem
aflaga fer. Áhrif þeirra felast
fyrst og fremst í því að bregðast
ekki hlutverki sínu þegar á það
reynir, þannig að send séu þau
skilaboð til handhafa fram-
kvæmdar- og löggjafarvalds, að
geri þeir sig seka um að virða
ekki meginreglur um réttarör-
yggi, þá megi þeir vænta þess að
menn geti borið slíkt undir dóm-
stóla með árangri.
Hugarfarsbreytingar í þessa
átt hjá æðsta dómstóli þjóðar-
innar hafa verið hægfara en þær
hafa samt ótvírætt orðið nokkr-
ar. En betur má ef duga skal.
Það sýna dæmin sem ég hef
nefnt. Ég held að hugarfarið
og geðþótta upp á bátinn og
taka til við að dæma bara eftir
þeim hlutlausa lögfræðilega
mælikvarða, sem kennt er að
dómstólar eigi að dæma eftir.“
Vaxandi réttaröryggi
Taka má undir tilvitnuð orð Jóns
Steinars Gunnlaugssonar hæsta-
réttarlögmanns um stöðu og
hlutverk dómstóla í íslenskri
stjórnskipan. Svo virðist sem
þau hafi farið frant hjá Davíð
Oddssyni forsætisráðherra og
væntanlega eru þau dómsmála-
ráðherra ókunn, enda var hann
á skíðum í útlöndum þegar for-
sætisráðherra varð fimmtugur.
Eru þau því rifjuð upp hér.
Dómi Hæstaréttar Islands í
máli Valdimars Jóhannessonar
ber öllum að fagna. Dómurinn
sýnir að réttaröryggi borgaranna
fer vaxandi. Hæstiréttur íslands
bregst ekki hlutverki sínu og
hikar ekld við að senda fram-
kvæmdar- og löggjafarvaldi
skilaboð þegar þessi handhafar
ríkisvaldsins gera sig seka um að
virða ekki grundvallar mannrétt-
indi.
Veðrið í dag...
Norðan kaldl og sums staðar stinnlngskaldi og él á
norðanverðu landinu, en gola eða kaldi og skýjað með
köflum sunnanlands. Frost 0 til 8 stig, kaldast
norðvestantil.
ffiti 8 til 0 stig.
Veðurhorfur næstu daga
Línuritin sýna fjögurra daga veðurhorfur á
hverjum stað. Línan sýnir hitastig, súluritið 12 tíma
úrkomu en vindáttir og vindstig eru tilgreind fyrir neðan.
Færð á vegum
Hálka er á öllum vegum í nágrenni Reykjavíkur.
Skafrenningur er á Reykjanesbraut, í Þrengslum og á
Hellisheiði. Óveður er á SnæfeHsnesi og víða á Vesturlandi.
Á Vestfjörðum er skafrenningur og slæmt ferðaveður.
Einnig er mjög slæmt veður um aUt Norður- og Austm-land.
Talið er ófært vegna veðurs frá Hofsósi til Siglufjarðar, á
Öxnadalsheiði, um KísUveg, Möðrudalsöræfi,
Vopnafjarðarheiði og Breiðdalsheiði. Á hringvegi við
Lómagnúp er talið ófært vegna storms.