Dagur - 15.12.1998, Side 2
18 - ÞRIDJUDAGUR 1S. DESEMBER 1998
LÍFIÐ í LANDINU
■ SMflTT OG STÓRT
UMSJÓN:
BJÖRN
ÞORLÁKSSON
Egill Ólafsson.
„Ljóðin Iáta ein-
hvern veginn vita
af sér. Ætli það sé
ekki svipað og
þegar skepnur vita
að það er óveður í
aðsigi.“
Rithöfundurinn
Sjón í DV.
Egill 1 kröppum dansi
Stórsveitin Stuðmenn hélt tvenna tónleika í
Sjallanum um helgina við ágæta aðsókn eins
og hefð er fyrir á Akureyri þegar þessi mikla
gleðisveit á í hlut. Veðurguðirnir settu hins
vegar óvænt strik í reikninginn á Iaugardags-
kvöldið. Egill Ólafsson þurfti nefnilega að
skreppa til Reykjavíkur milli „gigga“ og
skömmu eftir að Egill kom suður, versnaði
veður til muna og var öllu flugi aflýst. Tölu-
verð spenna hlóðst upp í Sjallanum þegar
mínútur Iiðu án þess að hljómsveitin kæmi á
svið. Fyrst um klukkan 01.00 fengu gestir að
berja sveitina augum á sviðinu og enn vantaði
Egil. Stuðmenn léku nokkur lög, hálfvæng-
brotnir, en þegar klukkan var langt gengin í
hálftvö auglýsti Jakob Magnússon að EgiII
væri kominn í hús. Kappanum var fagnað gríð-
arlega þegar hann kom Ioks fram, þreyttur og
slæptur eftir erfitt jeppaferðalag frá Reykjavík
en í sárabætur fengu gestir hússins að stíga
dansinn dálítið lengur fram eftir nóttu en
venja er til. Eftir stóð að Stuðmenn án Egils
eru eins og konfektkassi án innihalds.
Hvar næst?
Vinsældir Davíðs Oddssonar eru geysimiklar
en þeir sem standa honum næst hafa þó
áhyggjur af því núna að dálítið hafi á þær sleg-
ið. Davíð hefur verið óhræddur að undanförnu
við að vanda um við ýmsa sem dags daglega
kallast engir meðaljónar. Þannig réðist forsæt-
isráðherrann ekki á garðinn þar sem hann var
Iægstur með því að gagnrýna hæstaréttardóm-
arana eftir kvótadóminn. Menn héldu að í
kjölfarið myndi Davíð halda sér til hlés um
stund, en um helgina var svo haft eftir honum
að prófessorarnir sem sendu frá sér yfirlýsingu
vegna sama máls, gætu ekki hafa lesið dóminn
og málflutningur þeirra væri byggður á mis-
skilningi. Bíða menn nú spenntir eftir næsta
lagi og hvar það kemur.
Hvererþað?
I spunaþætti Sjónvarpsins sl. föstudagskvöld
var Valdimar Jóhannesson kvótaskelfir leyni-
gestur þáttarins og greindu þeir sem fylgst
hafa með fréttum að undanförnu, frekar
snemma hver var á ferðinni. Annars frábærir
spunaleikarar þáttarins voru þegar á leið,
beðnir um að nefna manninn en þeir virðast
ekki hafa sökkt sér niður í þjóðmálin að und-
anförnu því að þótt gervið væri fallið, kveikti
enginn þeirra á því hver maðurinn var. Segja
innanbúðarmenn að sumum hafi hitnað dálít-
ið í kinnum vegna uppákomunnar en leikarar
eru nú líka dálítið sjálfhverfir.....
.D^or-
„Sagan snýst um
sjónarhorn og mig
langaði líka til að
búa til lárétt, liggj-
andi sjónarhorn á
umhverfið, hið
kvenlega sjónar-
horn,“ segir Auður
um skáldsögu
sína Upphækkuð
jörð. mynd: hilli.
- Af hverju fer listfræðingur að
skrifa skáldsögu?
„Ætli þetta sé ekki draumur
konunnar um að vera ekki bara
eitt heldur margt allt í senn, vera
þríein. Ég hef verið að skrifa í
mörg ár en ég er í mjög anna-
sömum störfum sem sést kannski
á því að þessi bók er ekki nema
139 síður með fremur góðum
spássíum. En þegar ég var að
skrifa skáldsöguna með vinstra
heilahvelinu vann ég mjög hratt
og skipulega og þurfti ekki nema
einn eða tvo tíma á dag til að
koma einhvequ áleiðis. Næsta
skáidsaga verður líklega Iengri og
þéttari."
- Sérðu mjög myndrænt þegar
þú skrifar?
„Eins og lifandi málverk" stóð í
fallegum dómi um þessa bók í
Stúdentablaðinu. Myndlistar-
menn hafa sagt mér að ég skrifi
eins og myndlistarmaður en ég er
ekki myndlistarmaður, ég er
fræðimaður. Aðalpersónan hugs-
ar mikið í myndum, hugsar jafn-
vel í myndum í stað orða, og ger-
ir mikið af því að setja líf sitt á
svið. Hún Iifir að hluta til í heimi
ímyndunarafls."
Auður Ólafsdóttir,
listfræðingur og
kenrnrí við Háskól-
ann og Leiklistar-
skóla íslands, sendir
um þessi jól frá sér
jyrstu skáldsögu
sína. Sagan nefnist
Upphækkuð jörð og
ersaga ungrarbækl-
aðarstúlku sem
dreymirum að kltfa
fjall.
SPJflLL
- Er einhver séstök ástæða fyrir því
að þú hafðir stúlkuna fatlaða?
„I upphafi Velti ég því fyrir mér
að hafa hana blinda og ætlaði að
láta lesandann upplifa með henni
umhverfið í gegnum annars kon-
ar skynfæri en sjónina. Svo ákvað
ég að hafa hana „fótalausa". Ég
\aldi kyrrsetja hana Iíkamlega til
að geta hleypt anda hennar eða
ímyndunarafli á flug og ná
þannig fram togstreitunni milli
þeirra tveggja heima sem hún
hrærist í. Vegna fötlunar sinnar
kemst hún lítið yfir og heimur
hennar er kyrrstæður. Sagan
snýst um sjónarhorn og mig lang-
aði Iíka til að búa til lárétt, liggj-
andi sjónarhorn á umhverfið, hið
kvenlega sjónarhorn. Upphækk-
unin í titlinum vísar til persónu-
legs sambands hennar við guð-
dóminn sem hún telur sig eiga í
nokkrum útistöðum við og síðan
þá yfirsýn sem hún telur sig
þurfa að öðlast til að þroskast, og
fjallið stendur fyrir. Ég hef alltaf
haft áhuga fyrir fólki sem er
öðruvísi, og þessi stúlka er ýkt
öðruvísi persóna, eins og við
flest." - kb
■ FRÁ DEGI TIL DflGS
Lengi man til lítilla stunda.
Eyjólfur Guðmundsson (Bókarheiti)
Þetta gerðist 15 .desember
• 1979 keypti Davíð Scheving Thor-
steinsson bjór í Fríhöfninni á Keflavík-
urvelli en var meinað að hafa hann
með sér og leiddi málið til rýmkunar á
reglum.
• 1953 var Fjórðungssjúkrahúsið á Akur-
eyri tekið í notkun. Þar voru í upphafi
rúm fyrir 120 sjúklinga.
• 1888 var Glímufélagið Armann stofnað
en það er elsta starfandi íþróttafélag á
landinu.
Þaufæddust 15. desember
• 1883 fæddist Andrés Bjömsson skáld.
• 1927 fæddist Indriði Pálsson forstjóri.
• 1935 fæddist Hafsteinn Jóhannsson
siglingakappi.
• 1949 fæddist Don Johnson leikari (Mi-
ami Vice) í Flatt Creek.
• Það er sagt, en þó óstaðfest að Neró, 5.
keisari rómaveldis hafi fæðst þennan
dag árið 37.
Vísa dagsins
Þessa \isu orti Jóhann Jóhannsson frá
Oxney.
Hlátur hrestur, grátur grær,
gæfa sést á reiki.
Sá hlær hest er siðast hlær
svo er umflesta leiki.
Afmælisbam dagsins
Herbert Guðmundsson söngvari á af-
mæli í dag. Hann fæddist árið 1953
og varð lýrst þekktur sem tónlistar-
maður á Islandi árið 1985 þegar
„Cant Walk Away“ varð megasmellur.
Herbert hefur gefið út fimm sóló-
plötur og átti lag á plötu sem gefin
var út til styrktar vímulausri æsku.
Aðdáendaklúbbur Herberts hefur
verið starfræktur á Islandi nokkur
undanfarin ár en heimasíða hans er
http://.www.simnet.is/190/her-
bert.htm
Frábær yfirmaður!
Starfsmaðurinn fór inn til yfirmannsins og
sagði: „Heyrðu húsbóndi, við ætlum að
gera hreint heima hjá mér á morgun og
konan mín vill fá mig með sér í það að
bera niður af háaloftinu og taka til í bíl-
skúrnum, en til þess þarf ég að fá frí.“
„Því miður get ég ekki orðið við þessari
beiðni því við erum heldur fá í augnablik-
inu,“ svaraði yfirmaðurinn alvarlega.
„Kærar þakkir," sagði þá starfsmaðurinn.
himinglaður. „Ég VISSI að ég gæti treyst á
þig!“
Veffang dagsins
Mannréttindasamtökin Amnesty
International eru með glæsilegt vefsetur á
http://rights.amnesty.org
ój. Or. r tlí« i*'Ut